Morgunblaðið - 30.10.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKT0BER 1976
3
Aðalfundur Skógræktar-
r
félags Islands:
Gróðursetning skóg-
ræktarfélaganna
dregst saman
vegna fjárskorts
AÐALFUNDUR Skógræktar-
félags tslands er haldinn nú
um helgina f Reykjavfk.
Fundurinn var settur l gær-
morgun af Jónasi Jónssyni, for-
manni félagsins, en sæti á
fundinum eiga um 60 fulltrúar
skógræktarfélaganna í landinu.
Viðstaddir fundarsetninguna
voru Birgir lsleifur Gunnars-
son borgarstjóri, Sveinbjörn
Dagfinnsson, ráðuneytisstjóri i
landbúnaðarráðuneytinu, og
Eysteinn Jónsson, formaður
Náttúruverndarráðs. Fram
kom f skýrslu formanns að á
vegum skógræktarfélaganna
voru á árinu 1975 gróðursettar
um 310 þúsund trjáplöntur og (
mafmánuði sl. var félaginu af-
hentur frægarðurinn á Taralds-
eyju sem Norðmenn gáfu f til-
efni af þjóðhátfðarárinu.
Aðalfundurinn hófst eins og
fyrr sagði í gærmorgun og verð-
ur honum framhaldið árdegis í
dag en síðdegis á morgun,
sunnudag, verða tiilögur af-
greiddar og fundi slitið siðdeg-
is. Aðalviðfangsefni þessa aðal-
fundar verður að ræða um fjár-
mál skógræktarfélaganna i
landinu en það kom fram hjá
Snorra Sigurðssyni, fram-
kvæmdastjóra Skógræktar-
félags íslands, að mikil nauð-
syn er á að skógræktarfélögun-
um verði markaðir fastir tekju-
stofnar. Tók Snorri fram að
gróðursetning hjá skógræktar-
félögunum hefði i heildina
dregist saman á síðasta ári og
kostnaður við gróðursetningar
og plöntukaup næmi nú i fyrsta
skipti meir en helmingi af út-
gjöldum félaganna. Auk fjöl-
margra tillagna um málefni
skógræktarinnar voru í upphafi
fundarins lögð fram til kynn-
ingar drög að lögum um skóg-
rækt, sem stjórn félagsins hef-
ur látið semja og tillaga um
breytangar á skipulagsskrá fyr-
ir Landgræðslusjóð.
Jónas Jónsson, formaður
Skógræktarfélagsins, flutti I
gærmorgun skýrslu stjórnar og
kom þar fram að félaginu hefur
nú verið afhentur frægarður-
inn, sem skógræktarmenn i
Noregi gáfu i tilefni þjóð-
hátíðarársins og að 75 ár voru
liðin frá þvi að fyrst var plant-
að til skógar á Islandi. Garður
þessi er á Taraldseyju í
Harðangursfirði og er 4 hektar-
ar að stærð. Eyjan er eign Etne-
sveitar, sem með samningi við
norska skógræktarfélagið hef-
ur leigt land undir garðinn til
60 ára. Frægarðurinn á fyrst og
fremst að framleiða fræ af
sitkagreni og stafafuru, en fræ
af öðrum trjátegundum ef svo
ber undir.
Fram kom I máli Jónasar að
við opnum garðsins I endaðan
maí á sl. vori var fyrstu fræ-.
trjánum plantað, en áður höfðu
verið græddir á þau kvistir af
íslensku sitkagreni, sem safnað
hafði verið af úrvalstrjám hér
heima. Alls var búið að græða
kvisti á 1000 greniplöntur, sem
gróðursetja átti þá um vorið.
Skógræktarfélag Islands og
Skógrækt ríkisins hafa gert
með sér samning um það,
hvernig staðið verður :ð hlut
Islands að þvi að koma upp
frægarðinum, svo sem útvegun
ágræðslukvista og um ráðstöf-
un á því fræi, er garðurinn mun
gefa af sér I framtiðinni.
Þessu næst ræddi formaður-
inn um erlend samskipti skóg-
ræktarmanna, s.s. heimsókn
norrænna skógræktarmanna
hingað og skiptiferð skóg-
ræktarmanna til Noregs. A ár-
inu gekk Skógræktarfélag Is-
lands í Norræna skógræktar-
sambandið.
Að síðustu gerði Jónas að um-
ræðuefni starf héraðsskógrækt-
arfélaganna árið 1975 og sagði
að félögin hefðu greitt alls
rösklega 1.1 millj. króna til
endurbóta og lagfæringa á girð-
ingum á árinu. Lftið var um að
ný svæði væru tekin undir
skógrækt á árinu nema hvað
skógræktarfélag Borgfirðinga
hefur fengið vilyrði fyrir all-
stóru landi að Húsafelli en eftir
er að ganga frá samningum þar
að lútandi. Skógræktarfélögin
greiddu 2.370 þús. krónur til
plöntukaupa og rösklega 1.3
millj. króna fyrir gróðursetn-
ingu, en sjálfboðaliðar lögðu
fram tæp 600 dagsverk við
gróðursetningu.
Alls lögðu félögin fram 6.843
þús. kr., þar af til framkvæmda
röskar 5 millj. kr. Ríkisstyrkur
hækkaði ekki á árinu og var kr.
2. millj. Styrkir frá sveitar- og
sýslufélögum hækkuðu nokkuð
og námu kr. 2.1 millj. Aðrir
styrkir og gjafir voru kr. 498
þús. Tekjur af plöntum, jóla-
trjám, seldu girðingarefni og
verkfærum námu liðlega 1
milljón kr. og aðrar tekjur s.s.
af hlunnindum, árgjöldum,
vöxtum o.fl. urðu um 2 millj.
kr.
Nokkur erindi verða flutt á
aðalfundinum, og í gær flutti
Hákon Bjarnason yfirlit um
skógræktarmál, Haukur
Ragnarsson flutti hugleiðingu
um skógræktarmál og Baldur
Þorsteinsson ræddi gæðaflokk-
un plantna. I dag flytur Hákon
Bjarnason ágrip af'iögu trjá-
ræktar í Reykjavík.
Jónas Jónsson, formaður Skógræktarfélags Islands, flytur
skýrslu stjórnar.
Engar viðræður ákveðnar
um fiskveiðiréttindi
ENGAR óskir um viðræður við
Efnahagsbandalag Evrópu um
gagnkvæm fiskveiðiréttindi ts-
lendinga og bandalagsþjóðanna
höfðu borizt utanrfkisráðuneyt-
inu I gær, en á fundi, sem utan-
rfkisráðherrar EBE sátu á Haag I
gær, var búizt við að bandalagið
fengi samningsumboð og tiikynnt
yrði um útfærslu sameiginlegrar
lögsögu aðildarrfkjanna 1. janúar
1977.
Eins og áður hefur komið fram f
fréttum, hafa Bretar sérstaklega
rætt um viðræður við tslendinga
hinn 3. nóvember næstkomandi.
Engar slfkar viðræður eru
ákveðnar og að sögn Harðar
Helgasonar, skrifstofustjóra utan-
rfkisráðuneytisins er sennilegasta
skýringin á þessu sú, að um sé að
ræða ákveðna tfmaskipulagningu
innan Efnahagsbandalagsins, þar
sem menn hafa verið að leggja
niður fyrir sér hvaða tíma heppi-
legast væri að nota til viðræðna
við hin ýmsu rfki utan bandalags-
ins.
Þetta kemur heim og saman við
viðtal, sem blaðamaður Morgun-
blaðsins átti nýlega við háttsettan
embættismann innan Efnahags-
bandalagsans. Hann sagði að
Framhald á bls. 18.
Mildut?
matarleifar.
Palmolive-uppþvottalögurinn
er mjög áhrifamikill og gerir
uppþvottinn Ijómandi hreinan og
MrV^ skínandi - jafnvel þóttþérþurrkið
ekki af ílátunum.
PSpy ; Jafnframt er efnasamsetningin
í Palmolive þannig, að hann
er mjög mildur fyrir hendurnar.
msaW‘iV Prófið sjálf...
Æm Palmolive í uppþvottinn