Morgunblaðið - 30.10.1976, Side 11

Morgunblaðið - 30.10.1976, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTOBER 1976 11 Sauðfjárslátrun ekki meiri en í fyrra: Fallþungi allt að 700 gr. minni SAUÐFJÁRSLÁTRUN á þessu hausti er ekki enn lokið en að sögn Jónmundar Ólafssonar kjötsmatsformanns hjá Fram- ieiðsluráði landbúnaðarins, eru ailar likur á að fjöldi fjár, sem slátrað verður nú, verði áþekkur þvf, er var f fyrra. Meðal fall- þungi dilka I haust verður sennilega 200 til 500 grömmum lægri en I fyrra, mismunandi eftir landshiutum. I fyrrahaust var alls slátrað 962 þúsund fjár og þar af voru dilkar 871.555 en meðalfallþungi dilka var 14.67 kiló. Jónmundur Ólafs- son sagði, að fallþunginn væri næst þvi að vera sá sami og I fyrra á Norð-Austurlandi, hjá slátur- húsunum á Blönduósi og Hvammstanga væri fallþunginn um 500 grömmum minni en í fyrra. 1 einu sláturhúsi á Suður- landi i Laugarási í Biskups- tungum, er fallþunginn nú 590 grömmum minni en var í fyrra og féll hann úr 13.83 kflóum I 13,24. Astæður þessarar lækkunar á fallþunga rekja menn aðallega til langvarandi þurrka á Norður- landi og votviðrisins á Suður- landi. —Fyrst I haust var reiknað með því að fjöldi sláturfjárins yrði allavega um ein milljón en nú er ljóst að sláturféð i haust verður ekki fleira en i fyrra. Hjá einstaka húsum hefur orðið um sáralitla f jölgun að ræða en viða á töluverð fækkun sér stað. Það sem þessu veldur er einkum að lambalát voru viða mikil í vor og þó illa hafi horft með heyskap fram eftir ágústmánuði rættist mjög úr ástandinu í sept- ember.Gott tíðarfar í haust hefur lika orðið þess valdandi að menn setja meira á fyrir veturinn. Færra fé kemur líka til slátrunar í haust vegna þess að niður- greiðslan er orðin lægri en slátur- kostnaðurinn og það borgar sig ekki fyrir bóndann að láta slátra í sláturhúsi því fé, sem hann þarf til eigin heimilis, sagði Jón- mundur að lokum. Tímabært að huga að jólapóstinum — segir í tilkynningu frá Póst- og símamálastjórninni MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Póst- og simamálastjórninni: Póst- og símamálastjórnin vill vekja athygli á því, að enda þótt enn séu tveir mánuðir til jóla, er nú kominn tími til að huga að sendingu jólagjafa til vina og ætt- ingja í útlöndum. Til þess að tryggt sé, að sendingar nái til viðtakenda tfmanlega fyrir jóla- hátlðina vill póst og símamála- sjórnin benda póstnotendum á eftirfarandi: Póstsendingar til Evrópu í skipspósti, er rétt að póstleggja ekki síðar en svo, að þær nái skipsferðum til Evrópu um mán- aðamótin nóvember/desember. Skipspóst til Bandarikjanna og Kanada þarf þó að póstleggja nokkru fyrr, svo og skipspóst til fjarlægari landa. Böggla, sem senda á með flugpósti ætti að póstleggja þannig, að þeir nái flugi til útlanda eigi síðar en 13. desember og bréfapóstsendingar þannig, að þær nái með flugvél eigi síðar en 15Ldesember. Jólagjafir er hægt að senda á margvíslegan hátt, sem bréf, prentað mál, smápakka eða bögg- ul, allt eftir eðli þeirra og þyngd. Hámarksþyngd bréfa og prent- aðs máls er 2 kg. (þó 5 kg. ef um bækur sem prent er að ræða), smápakka 1 kg. og böggla 20 kg. (10 kg. til vissra landa þó). Um það hvernig hentugast er að búa um og senda hina ýmsu muni og veita póststöðvarnar fúslega allar upplýsingar svo og um burðar- gjöld sendinga eftir tegundum og þyngd. Auk þess vill póst- og símamála- stjórnin vinsamlegast beina eftir- farandi tilmælum til póstnotenda: a) Að þeir kaupi frímerki tím- anlega. b) Að þeir vitji böggla og an- arra sendinga á póststöð jafn- skjótt og þeim berst tilkynning í hendur. c) Að þeir búi vel um allar póstsendingar og skrifi skýrt og greinilega nafn og póstfang bæði viðtakanda og sendanda. Billínn fyrir island Peugeot hefur orðið sigurvegari í erfiðustu þolaksturskeppnum veraldar oftar en nokkur önnur gerð bíla. Þetta sýnir betur en nokkuð annað, að Peugeot er bíllinn fyrir íslenzka staðhætti. Gerð 504 kostar frá 2.200.000 HAFRAFELL HF. UMB0Ð * ‘KUREVRIVÍKINGUR SF. GRETTISGOTU 21 SIMI 23SII FURUVÖUUM II SÍMI 21670 nú hafa INGVAR OG GYLFI stækkaÁ verzlun sína um meira en helming. Stórt og glæsilegt 600m2húsnœói meó fjölda vandaóra húsgagna. Komió og sjáid einu sérverzlun sinnar tegundar, sérverzlun meS hjónarúm. Okkar hagur er ykkar ánægja. INGVAR og GYLFI, Grensásvegi 3.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.