Morgunblaðið - 30.10.1976, Page 17

Morgunblaðið - 30.10.1976, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 30. OKTÓBER 1976 17 /ið verðbólgu Fjárlagaræða — síðari hluti þeirri verkaskiptingu milli rikis og sveitarfélaga sem að er stefnt þá er enginn vafi á þvi, að sú breyting, sem komist hefur á fjárhagsleg samskipti rikis og sveitarfélaga að undanförnu mun á endanum leiða til einfaldari og betri stjórnarhátta í framangreindri áætlun um útgjöld til almannatrygginga er í fyrsta lagi tekið tillit til þeirra bótahækkana og daggjalda- hækkana, sem orðið hafa frá samþykkt siðustu fjárlaga, og i öðru lagi er tekið mið af þeim launahækkunum, sem fyrir- sjáanlegar eru samkvæmt kjarasamningum fram á mitt ár 1977, svo sem rakið er nánar i athugasemdum frumvarpsins Þó hefur hér ekki verið tekið tillit til þeirrar 3,11% verðlagsuppbótar á laun og lifeyris- og sjúkratryggingaútgjöld sem áður gat. Niðurgreiðslur Kostnaður við niðurgreiðslur er áætlaður 5.102 m. kr. að meðtöldu framlagi í Lífeyrissjóð bænda, eða 2,7% hærri en í fjárlögum 1976. Helsta skýring þessarar litlu hækkunar er fólgin í þeirri lækkun niður- greiðslna, sem ákveðin var í aprílmánuði s.l og boðuð var í fjárlagafrumvarpi og auk þess fellur nú niður sérstök niður- greiðsla á áburði Útflutningsuppbætur eru áætlaðar 1800 m kr , sem er rösklega tvöföldun frá fjárlögum þessa árs. Við afgreiðslu fjárlaga í desember s.l. var Ijóst að sú fjárhæð mundi ekki nægja að óbreyttum lögum og reglum, og var að því stefnt að endurskoða útflutningsuppbótakerfið á árinu. Þessi endurskoðun hefur enn ekki farið fram, og því er óleystur vandi af þessum sökum á árinu 1 976. Ef verðábyrgð ríkissjóðs væri fullnýtt á árinu 1977 má áætla, að á grundvelli óbreyttra reglna, væri útgjaldaþörfin um 2.200 m. kr., þannig að fjárlagaáætlun 197 7 miðast við rösklega 80% nýtingu verðábyrgðarinnar að öllu óbreyttu. Aðrir rekstrarliðir og rekstrartilfærslur. Þessi flokkur gjalda er áætlaður samtals 5.616 m. kr. og er það 43,8% hækkun frá fjárlögum 1976. Við þennan saman- burð ber þess þó að gæta, að hér er tekinn með sá hluti olíugjalds, sem rennur til niðurgreiðslu á oliu til húshitunar og er áætlaður 600 m. kr. á næsta ári, en ollustyrkurinn var ekki i fjárlögum ársins 1976 Raunhæfur samanburður leiðir því í Ijós 28,5% hækkun þessa gjaldaflokks, og er það allverulega undir meðaltalshækkun verðlags. Framlög til framkvæmda sem fram koma í A-liluta frum- varpsins eru áætluð samtals 19.754 m kr., sem er 39% hækkun frá fjárlögum 1 976 Hér verður að taka tillit til þess, að nú er í fjárlögum hluti Orkusjóðs af oliugjaldi, sem nemur 1.000 m. kr., gagnstætt því sem var i fjárlögum þessa árs. Án þessa gjalds nemur hækkun þessara framlaga um 32%. Kostnaður viÖ verklegar framkvæmdir, að oliugjaldi undan- skildu, er talinn hækka um 30,9%, fjárfestingarstyrkir um 19,1%, framlög til fjárfestingarlánasjóða um 38,7% og framlög til lánagreiðslna um 20,1%. Sérstaklega skal tekið fram, að hér er einungis átt við framkvæmdaframlög í A-hluta frumvarpsins, en á 141 bls. frumvarpsins er að finna yfirlit, er tekur til allra framkvæmdaframlaga ríkisins, bæði í A- og B-hluta. Heildarframlög til verklegra famkvæmda hækka þannig um 2,5% (án oliugjalds), sem felur í sér allverulega magnminnkun, og skýrist af því, að á næsta ári verður að miklu leyti lokið við hinar miklu framkvæmdir á sviði orku- mála Á hinn bóginn aukast endurgreiðslukvaðir vegna lántaka til þessara framkvæmda að miklum mun, en í yfirlitinu kemur fram, að framlög vegna endurgreiðslna á lánum og endurlána aukast um 42,1% Framlög til fjárfestingarlánasjóða hækka samkvæmt því um 38,7% og fjárfestingarstyrkir um 19,1% ens og í fyrra tilvikinu. í þessu samdandi skal þess getið, að í næsta mánuði verður lagt fram frumvarp um breyting á vegalögum. í kjölfar þess er nauðsynlegt, að fjárveitinganefnd fái til athugunar vegáætlun næstu ára. Það er augljóst að ákvarðanir um framkvæmdir á vegamálum er eðlilegt að taka á sama tima og aðrar ákvarðanir um fjárráðstafanir ríkisins á tilteknu tímabili Að öðrum kosti er hætt við, að menn missi sjónar af heildarsamhengi þessara mála og nauðsynlegu samræmi Það er því brýnt, að þinginu verði gert kleift að afgreiða vegáætlun samtimis fjárlögum. Sjálfvirkni í ríkisútgjöldum Þessar útgjaldatölur sem ég hef nú gert grein fyrir og vöxtur þeirra, gefa tilefni til að vikja að þeirri sjálfvirkni, sem þau eru háð. í fjárlagaræðu minni í fyrra vék ég að því, hversu mikið hin sivaxandi sjálfvirkni í útgjöldum ríkrsins torveldaði alla fjármálastjórn. Þessi sjálfvirkni kemur annars fram í því, að veigamiklir útgjaldaflokkar eru tengdir kaup- eða verðlagsvísi- tölum, og hins vegar í lagaákvæðum er mæla beint fyrir um hversu há framlög skuli vera á fjárlögum til tiltekinna verkefna eða óbeint með reglugerðarsetningu á grundvelli laga, er haft geta í för með sér verulegar kostnaðarafleiðingar Enda þótt slika sjálfvirkni sé að finna á flestum sviðum ríkisútgjalda, tel ég þó ástæðu til að minnast hér sérstaklega á tiltekin svið þeirra. Menntamál eru einn af viðameiri útgjaldaflokkum hins opinbera og hefur vaxið mjög mikið á undanförnum árum Fyrirsjáanlegt er, að á næstu árum verður að horfast i augu við jafnvel enn örari vöxt þessa útgjaldaflokks ef ekki er að gert, ekki síst vegna rúmra ákvæða grunnskólalaganna og þess svigrúms til útgjaldaákvarðana, sem lög þessi bjóða upp á með reglugerðarsetningu. Ég tel bráðnauðsynlegt, áður en lengra er komið framkvæmd þessara laga, að mál þetta verði tekið til endurskoðunar, þar sem raunhæft mat vérði lagt á möguleikann til að framkvæma þá stefnu, sem í lögunum felst, i Ijósi fjárhagslegrar getu þjóðarinnar. Farið hefur í vöxt á síðari árum, að setja í sérlög ákvæði þess efnis, að auk sérstakra tekjustofna ýmissa atvinnuvegasjóða, skuli koma mótframlög úr rikissjóði. Þar sem tekjustofnar sjóðanna miðast gjarnan við framleiðsluverðmæti viðkomandi atvinnugreinar eða hliðstæð atriði er í raun og veru um að ræða verðtryggingu á þessum mótframlögum úr ríkissjóði í fjárlagafrumvarpinu nema mótframlög ríkissjóðs til sjóðanna samtals um 7 milljörðum króna Loks vildi ég vikja nokkrum orðum að því sjálfkrafa útgjalda- kerfi, er felst í uppbótum á útfluttar landbúnaðarafurðir. Sem kunnugt er skal bæta með framlögum úr rikissjóði þann halla, sem bændur verða fyrir af útflutningi landbúnaðarvara, allt að 10% af heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar við- komandi verðlagsár, miðað við það verð, sem framleiðendur fá fyrir afurðir sínar. Við framkvæmd þessarar reglu hafa orðin „heildarverðmæti landbúnaðarframleiðslunnar" verið látin ná til mjólkur og mjólkurafurða, annarra nautgripaafurða, allra sauðfjárafurða og auk þess til annarra afurða svo sem afurða af hrossum, garðávaxta og gróðurhúsaafurða, afurða af alifugl- um og svínum og til hlunnindatekna. Þessi skilningur er á engan hátt sjálfsagður Framleiðslu- og sölumál landbúnaðar- ins hafa á síðustu árum þróast þannig, að útflutningsupp- bætur á sauðfjárafurðir hafa orðið hlutfallslega miklu meiri en á mjólkurafurðir og gætu nú numið meira en 20% af heildarverðmæti sauðfjárafurðaframleiðslunnar. Með tilliti til þess, að endanlegur tilgangur útflutningsuppbótanna hlýtur að vera sá að tryggja í senn tekjur bænda um allt land og nægilegt framleiðslumagn i báðum helstu afurðagreinunum, þannig að landið sé sjálfu sér nógt um sauðfjár- og nautgripa- afurðir og þoli árferðissveiflur, virðist sá skilningur eðlilegur, að 10% reglan nái eingöngu til þessara tveggja afurðagreina, enda er útflutningurinn allur frá þeim kominn. Einnig er eðlilegt, að sú spurning vakni, hvort ekki beri að stefna að því, að 10% reglan gildi sérstaklega fyrir hvora afurðagrein um sig. Hins vegar er Ijóst, að breytingar af þessu tagi geta naumast orðið i einu vetfangi, en ég tel nauðsynlegt, að þessi mál séu könnuð ofan í kjölinn og leitast sé við að koma á reglum, er séu í samræmi við þær hugleiðingar, sem ég hef nú rakið, og jafnframt, að slíkar reglur tryggi að í þeim felist hvatning til þess að selja afurðir til útflutnings jafnan á hæsta verði. Tekjur ríkissjóds 1977 Tekjuáætlun rikissjóðs fyrir árið 19 77 er að venju reist annars vegar á endurskoðaðri áætlun um tekjur ríkissjóðs á liðandi ári, 1976, og hins vegar á ákveðnum þjóðhagsfor- sendum fyrir árið 1977, einkum þeirri, að almenn þjóðarút- gjöld aukist um 2% á næsta ári, eða um likt hlutfall og þjóðarframleiðslan. Verðlagsforsendur tekjuáætlunar eru hinar sömu og gjaldaáætlunar. Innheimtar tekjur 1977 eru áætlaðar samtals 84 milljarðar króna samanborið við 68,9 milljarða i endurskoðaðri tekju- áætlun 1976 og 60,3 milljarða i fjárlögum ársins 1976 Hækkun tekna frá 1976 til 1 977 nemur þannig 1 5,1 milljarði króna, eða 21,9%, en hækkun tekna frá fjárlögum ársins 1 976 nemur 23,6 milljörðum eða 39,2%. Við þennan samanburð verður að taka tillit til þess, að 1 % gjald á söluskattstofn til þess að draga úr áhrifum verðhækkunar olíu á hitunarkostnað er nú fært í fjárlagafrumvarpi, en þetta gjald hefur ekki verið fært með ríkissjóðstekjum fram til þessa Þessar tekjur eru áætlaðar 1 600 m kr á næsta ári og sé sú fjárhæð dregin frá heildartekjum fjárlagafrumvarps verður hækkunin milli áranna 1976 og 1977 13,5 milljarðar króna eða 19,6% og hækkunin frá fjárlögum 1976 verður 22 / milljarðar eða 36,5%. Gert er ráð fyrir óbeinum sköttum óbreyttum eins og nú gilda, þar með talið 1 8% sérstakt vörugjald, að öðru leyti en því að reiknað er með 600 m. kr. lækkun tolltekna vegna ákvæða samninga við EFTA og Efnahagsbandalagið. Beinu skattarnir eru áætlaðir á grundvelli gildandi laga. Hins vegar verða fyrir afgreiðslu fjárlaga flutt frumvörp um breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt, þar sem meðal annars verða ný ákvæði um skattmeðferð á tekjum hjóna, einföldun á tekjuskatti einstaklinga almennt og breytta skattalega meðferð þeirra, sem sjálfstæðan atvinnurekstur stunda. Einnig verða gerðar tillögur um nýja skattmeðferð söfuhagnaðar af fyrnan- legum eignum í tengslum við breyttar fyrningarreglur til skatts Eignarskattsstiginn verður samræmdur nýju fasteigna- mati. í heild er ekki reiknað með verulegum breytingum á skattfjárhæðum, en hins vegar munu þessar breytingar væntanlega hafa áhrif til þess að deila skattbyrðinni á sann- gjarnari hátt en gildandi reglur fela í sér Þá er einnig ráðgert að taka ákvarðanir um lækkuð aðflutningsgjöld og söluskatt af vélum, tækjum og hráefnum til samkeppnisiðnaðar, sem munu væntanlega fela í sér einhvern tekjumissi fyrir ríkissjóð Þetta mál verður þó ekki metið til fulls fyrr en við endanlega afgreiðslu fjárlaga og í tengslum við endurskoðun tollskrárlaga sem nú er unnið að, en frumvarp að nýjum tollskrárlögum, sem samið verður með sérstöku tilliti til samninganna við EFTA og EBE, mun verða lagt fram innan skamms Um einstaka þætti í tekjuhlið frumvarpsins leyfi ég mér að vísa til greinargerðar með frumvarpinu, bls 1 70— 175 Hlutdeild markaðra tekna í heildartekjum ríkissjóðs var um 13,5% árið 1975, en minnkar sennilega í rúmlega 12% í ár og verður nær óbreytt á næsta ári, ef litið er framhjá oliugjaldi en um 14% að því meðtöldu Hlutdeild beinna skatta i tekjum ríkisins verður 16,0% 1976 i stað 16,5% í fjárlögum ársins, og hlutdeild óbeinna skatta hækkar úr 82,3% í 82,9%, en aðrar tekjur eru um 1 % Á árinu 1977 verður hlutdeild beinna skatta skv frumvarpi 1 6.7%, hlutdeild óbeinna skatta 82,2%, en aðrar tekjur eru áfram um 1 %. Lánsf járáætlun 1977 og ríkisábyrgðir Svo sem greint er frá i fjárlagafrumvarpi er nú unnið að samningu lánsfjáráætlunar fyrir árið 1 97 7, og er stefnt að því, að unnt verði að gera Alþingi grein fyrir áætluninni um eða eftir miðjan nóvember. Að svo stöddu verður því ekki fjallað um efni þessarar áætlunar, heldur aðeins vikið að forsendum og vandamálum þeirrar áætlanagerðar Á sama tíma og fjallað verður um lánsfjárhæðir og skiptingu þeirra tel ég eðlilegt að ákveðin verði lánskjör helstu lánveitenda i landinu a m k í megindráttum Lánsfjáráætlunin 1 976 var frumsmið heildaráætlunar af þessu tagi, enda þótt fyrirmyndir hafi verið að einstökum þáttum hennar Reynt var að vanda til þessarar frumgerðar svo sem föng voru á, og á líðandi ári hefur verið kappkostað að halda svo fast við áætlunina í framkvæmd sem auðið má verða enda þótt ekki verði hjá því komist á heilu ári að taka afstöðu til breyttra forsendna. Ég mun gera nánari grein fyrir þessum atriðum, þegar lánsfjáráætlun 1 977 verður kynnt á Alþingi. Við samningu lánsfjáráætlunar nú fyrir árið 1977 er höfð náin hliðsjón af þeim meginmarkmiðum stefnunnar i efna- hagsmálum að halda verðbólgunni í skefjum, komast sem næst jafnvægi í utanríkisviðskiptum og hamla svo sem verða má.gegn frekari skuldasöfnun við útlönd. í þessu skyni verður að beita hvers kyns fjármagnshreyfingar svo ströngu aðhaldi, að fjárfestingu verði haldið innan marka þjóðhagsáætlunar og þannig tryggt að ekki verði vakin ný þensla, sem stofna mundi í hættu þeim takmarkaða áfanga i stjórn efnahagsmála, sem þegar hefur náðst Þá verður einnig að gæta þess, að ekki verði svigrúm til frekari verðbólgu en þegar er til stofnað Lánsfjáráætlunin mun að minni hyggju reynast veruleg framför í stjórn íslenskra efnahagsmála og mun vafalaust sanna gildi sitt eftir því sem reynsla af þessari vinnuaðferð verður meiri. Veigamikill þáttur lánsfjáráætlunar 1977 er raunar þegar fram kominn í lánahreyfingum fjárlagafrumvarps, en svo sem þar kemur fram lækka þær úr 9.770 m. kr. i 8.908 m.kr., þ.e. um 862 m. kr eða 9%. Áætlað er, að erlendur hluti fjáröflunar lækki mun meira, eða um 1.252 m kr., sem er um 1 8% lækkun. Ríkið hefur afskipti af lánamálum á fleiri vegu en með lántökum og lánveitingum. Rikisábyrgðir koma hér einnig við sögu. í 6. grein fjárlagafrumvarpsins eru ekki gerðar tillögur um nýjar ríkisábyrgðir. Nokkrar beiðnir um rikisábyrgð hafa þó borist fjármálaráðuneytinu og mun ég eftir því sem mér þykir fært, koma þeim á framfæri við fjárveitinganefnd Ástæða til þessara vinnubragða er sú, að ég hef talið rétt að staldrað yrði aðeins við og enn á ný reynt að gera sér grein fyrir, eftir hvaða meginreglum veita skuli ríkisábyrgðir Á fjárlögum fyrir árið 1976 voru veittar rúmar 777 m. kr. til Ríkisábyrgðasjóðs og i frumvarpi þvi, sem hér er um fjallað, er gerð tillaga um 867 m. kr. til sjóðsins. Hér er um mikið fé að ræða jafnvel þótt í raun sé verið að verja helmingi þessarar upphæðar til langra lána vegna skulbindinga rikisins i sambandi við kaup togara. Á vegum fjármálaráðuneytisins og stjórnar Ríkisábyrgða- sjóðs fer nú fram sérstök athugun á þeim margvislegu lagaákvæðum, er gilda um Ríkisábyrgðasjóð, þeim skuld- bindingum, sem á sjóðinn hafa verið lagðar og á þeim vanskilum, sem orðið hefur að mæta. Jafnframt er á næstunni gert ráð fyrir tillögum um endurskipan þessara mála. Ég tel, að alþingismenn ekki síður en ráðherra, sem heimildina fær, verði að meta hvort nægilegar forsendur séu i raun til þess að rikissjóður gangist undir þær kvaðir, sem felast i ríkisábyrgðum Skoðun mín er sú, að jafnan ætti að gera svipaðar kröfur til þeirra, er ríkisábyrgða eiga að njóta eins og gerðar yrðu til sömu aðila væri um lánveitingu að ræða Því aðeins væri réttlætanlegt að gera frávik frá þessari reglu, ef sýnt væri að ríkisstjórn gæti með afskiptum af verðlagningu þeirrar vöru og þjónustu, sem fyrirtækin láta í té, ráðið flestu um afkomu fyrirtækjanna Hins vegar er það með engu móti sjálfsagt mál að á rikissjóð sé lagt að gefa eftir aðflutningsgjöld og söluskatt tíl svokallaðra stóriðjufyrirtækja, veita ríkisábyrgðir í stórum stil, leggja i umfangsmiklar opin- berar framkvæmdir vegna slíkra fyrirtækja og þurfa síðan hvað eftir annað að leggja þeim til fé.eða aðra fyrirgreiðslu til þess Framhald á bls. 19 t

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.