Morgunblaðið - 30.10.1976, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. ÖKTÓBER 1976
19
— Fjárlagaræða
Framhald af bls. 17.
að þau falli ekki fram af gjaldþrotabarminum eins og dæmin
sanna Hér er nauðsynlegt að setja strangar reglur, því oft og
einatt er ekki aðeins litið á ríkisábyrgð sem tryggingu fyrir
'lánsfé, heldur hefur stappað nærri, að ýmsir aðilar hafi litið á
ábyrgð rikissjóðs sem fjárveitingarigildi. Þetta er háskaleg
braut, sem ég tel að girða verði fyrir með öllu, þvi ekki verður
framhjá því litið að rikisábyrgðarveiting hefur efnahagsleg
áhrif ekki síður en fjárveitingar og lántökur.
Skatta- og tollamál
Beinir skattar. Eins og kunnugt er hefur að
undanförnu verið á vegum fjármálaráðuneytisins unnið að
endurskoðun laganna um tekjuskatt og eignarskatt Að þvi er
stefnt, að nýtt frumvarp til laga um tekjuskatt og eignarskatt
verði lagt fyrir Alþingi nú á næstu vikum Helstu nýmæli
frumvarpsins eru eftirfarandi:
Skattlagningu hjóna verði breytt á þann veg, að tekin verði
upp tekjuhelmingaskipti milli hjóna og skattur lagður á hjónin
hvort í sinu lagi Sérstakur skattafsláttur verðu veittur fyrir
kostnað vegna útivinnu eiginkvenna, sem miðaður verður við
unnar vinnuvikur utan heimilis. Afsláttur þessi, sem nefna
mætti útvinnuafslátt, kemur annars vegar fram i barnabóta-
auka og hins vegar i auknum persónuafslætti óháð barna-
fjölda
Gjöld og tekjur vegna eigin ibúðar verða tekin út úr framtali
bæði tekna og gjaldamegin Ýmsir frádráttarliðir verða felldir
niður en aðrir sameinaðir í fastan afslátt til einföldunar.
Skattlagningu einstaklinga, sem stunda atvinnurekstur fyrir
eigin reikning, verður breytt á þann hátt, að þeim skulu áætluð
laun fyrir starf sitt að eigin atvinnurekstri, er séu ekki lægri en
launþegar i sömu starfsgrein bera úr býtum og þeim gert að
greiða skatt af þessari áætlun. Hin áætluðu laun færast síðan
sem kostnaður hjá atvinnurekstrinum en jafnframt verði tryggt
að atvinnurekstrartöp hafi ekki áhrif á skattlagningu annarra
tekna sjálfstæðra atvinnurekenda
Reglum um söluhagnað og fyrningar verður breytt á þann
veg, að engar verðbreytingar eru reiknaðar í fyrningum.
Lausafé skal fyrnt af bókfærðu verði og söluverð eigna fært til
lækkunar fyrningargrunni Heimild verði til endurfjárfestingar
en að öðru leyti verði söluhagnaður skattskyldur Um mann-
virki og aðrar eignir gildi svipaðar reglur, þó er ekki gert ráð
fyrir, að skattlagning söluhagnaðar af íbúðarhúsnæði verði
aukin, né heldur að ibúðarhúsnæði verði fyrnanlegt Sölu-
hagnaður af landi og náttúruauðæfum, sem er umfram
verðbólguvöxt, verði skattlagður að fullu, enda sé aridvirðið
ekki endurfjárfest i atvinnutækjum Um staðgreiðslu opinberra
gjalda eru ekki ákvæði í frumvarpinu. Hins vegar er við það
miðað, að staðgreiðsla geti verið tekin upp í náinni framtið, og
því er ekki gerð tillaga í frumvarpinu um neinar meiri háttar
breytingar á ákvæðum núgildandi laga um tekjuskatt og
eignarskatt að þvi er varðar skattframkvæmd.
Hið nýja skattalagafrumvarp verður væntanlega eitt af
helstu málum þessa Alþingis í því er að finna ýmsar tillögur til
úrbóta i þeim efnum, sem helst hafa sætt gagnrýni að
undanförnu. Það er Alþingis að vega og meta þessar tillögur
og taka siðan lokaákvörðun um einstök atriði þeirra.
Meginmarkmiðið hlýtur að vera að skapa réttlátari skattalög
gjöf
Virðisaukaskattur. Starfshópur á vegum fjármála
ráðuneytisins hefur kannað, hvaða leiðir væru einkum heppi-
legar til að breyta núverandi formi almennra óbeinna skatta,
einkum söluskatts, þannig að í senn sé stuðlað að öryggi í
innheimtu, einfaldri framkvæmd og sneitt verði hjá óæskilegri
mismunun milli atvinnugreina, auk þess sem skattaleg staða
innlendra atvinnuvega verði tryggð Starfshópurinn skilaði
ítarlegri greinargerð um þetta efni, þar sem rakin voru
megineinkenni virðisaukaskatts og lýst helstu kostum hans og
göllum í samanburði við önnur söluskattskerfi Virðisauka-
skattur hefur verið tekinn upp víða í nágrannalöndum okkar og
hefur reynslan verið misjöfn.
Þannig virðist vel hafa tekist til í Danmörku og mun
framkvæmd hans þar í góðu lagi að flestra dómi í Noregi
hefur hins vegar borið á gagnrýni á skattinum Um síðustu
áramót var birt álit stjórnskipaðrar nefndar, svokallaðrar
„Gjærvold' -nefndar, um framkvæmd virðisaukaskattsins í Nor-
egi. Meiri hluti nefndarinnar (10 af 13) taldi, að upptaka
virðisaukaskatts í Noregi hefði ekki orðið til bóta og lagði til að
hann yrði felldur niður og aftur tekinn um einstigs söluskattur
og með svipuðu sniði og þar var áður. Ástæðan fyrir þessu
áliti meiri hluta nefndarinnar var einkum sú, að hún taldi meiri
brögð að skattsvikum í virðisaukaskattskerfinu en söluskatts-
kerfinu.
í Ijósi þessarar gagnrýni hefur verið talið rétt að rannsaka
þessi mál nánar hér og reyna að finna leiðir til að ná fram
helstu kostum virðisaukaskattsins, án þess að gallarnir fylgi
Tollar. Frumvarp til laga um tollskrá verður lagt fyrir
Alþingi nú í haust og er þess vænst, að ný lög um tollskrá geti
öðlast gildi 1 janúar n k Frumvarpið er framhald þeirrar
stefnu, er mörkuð er með tollskrárlögum frá árunum 1 9 70 og
1974 Frumvarpið endurspeglar því samningsbundnar tolla-
lækkanir vegna aðildar islands að EFTA og ákvæði friverslun-
arsamnings íslands við EBE
í ársbyrjun 1 9 74 voru tollar á vélum til samkeppnisiðnaðar
felldir niður en tollar á hráefnum lækkaðir um helming frá því
sem þeir höfðu verið í árslok 1973, en siðari helmingur
tolialækkana á hráefnum tók gildi 1 janúar 1976 Má þvi
segja, að frá byrjun þessá árs hafi islenskur samkeppnisiðnað-
úr yfirleitt búið Við tollfrélsi á aðföngum til framleiðslu Þessi
regla hefur þó ekki veríð án undantekninga, og er að þvi stefnt
i tollskrárfrumvarpínu að leysa þau vandamál, sem eftir voru
skílin á þeim aðiögunartima, sem liðinn er frá 1970 Ber þar
einkum að nefna lækkun tolla á timbri og ýmiss konar plötum
til smiða og bygginga úr trjáviði, lækkun tolla á ýmsum
rekstrarvörum og öðrum aðföngum til iðnaðar.
Samkvæmt heimild í fjárlögum fyrir árið 1975 hefur
fjármálaráðuneytið nú um tveggja ára skeið fellt niður að hálfu
eða endurgreitt að hálfu, eftir því sem við hefur átt, sölugjald
af ýmsum vélum til iðnaðar. í XV lið 6 gr. frumvarps þess til
fjárlaga, sem nú er fjallað um, er lagt til að samþ/kkt verði
heimild til að fella niður að fullu eða endurgreiða sölugjald af
vélum og tækjum, vélahlutum og varahlutum til samkeppnis-
iðnaðar (verndarvöruiðnaðar) og verður það gert frá og með 1.
janúar 1 977
Með þessari heimild svo og nýjum tollskrárlögum yrði stigið
stórt skref að þvi marki, að islenskum samkeppnisiðnaði verði
eigi iþyngt með aðflutningsgjöldum, svo og að sambærileg
tollaákvæði gildi um samkeppnisiðnað og gilt hafa um hina
svokölluðu stóriðju.
Virðisaukaskatturinn er enn i mótun og virðist fyllsta ástæða
til að huga nánar að þeirri reynslu, sem aðrar þjóðir hafa
öðlast. áður en endanleg ákvörðun verður tekin í þeim efnum
Hins vegar er augljóst, að rikissjóði verður á einhvern hátt að
bæta þá skerðingu tekna, er af lækkun tolla og hugsanlegri
niðurfellingu vörugjalds leiðir Til þess að tryggja samræmi i
skattlagningu hér og erlendís verður enn á ný að lita til
skattinnheimtu nágrannaþjóða okkar, og hef ég i því sambandi
óskað þess sérstaklega, að kannað yrði, hvort taka ætti upp
hér á landi svokallaða „punktskatta", sem beitt er i vaxandi
mæli á Norðurlöndum Hér er um að ræða gjöld í hátt við
vörugjald það, sem við nú búum við, en af eðlilegum orsökum
er mun meir vandað til allrar uppbyggingar þessara gjalda en
vörugjaldsins, enda var vörugjaldið aldrei til annars ætlað en
að vera skammtima lausn á ákveðnum efnahagsvanda.
Á næstunni verður einnig unnið að tillögum um samræm-
ingu innri og ytri tolla. þar sem munur þeirra er óeðlilegur, svo
og jöfnun tolla milli skyldra vara, sem eru i misháum tollflokki.
Einnig er athugunarefni, hvort unnt sé að lækka á næstu árum
allra hæstu tollana. sem i sumum tilfellum þyrfti ekki að þýða
tekjumissi
Skattar af umferðinni. Að undanförnu hefur verið
unnið að athugun á skattlagningu bifreiða og bifreiðanotkun
og fjáröflun til vegagerðar Hér er um mikilvægt svið skatta-
mála að ræða, svið þar sem sjónarmiðum um gjald fyrir afnot í
einhverri mynd á að minni hyggju fyllsta rétt á sér Á
núverandi skattkerfi eru í þessu efni nokkrir hnökrar, t.d.
þannig að sams konar eða svipaðar bifreiðir, sem um vegina
fara, sæta ekki sömu skattlagningu Þessu verður að breyta
þannig, að sanngjarnt afnotagjald komi fyrir allar bifreiðir,
sem í landinu eru að staðaldri og nota vegakerfið
Langtímafjárlög
Stefnan í skattamálum ræðst endanlega af ákvörðun um
skiptingu þjóðarútgjaldanna milli hins opinbera og einkaaðila.
Öll umræða um skattamál verður m.a. að byggjast á mati á
fjárþörf ríkisins ekki aðeins frá ári til árs heldur til langframa.
í fjárlagaræðu minni i fyrra gat ég þess, að rikisstjórnin
hefði gert samþykkt um það, að á vegum fjárlaga- og
hagsýslustofnunar yrði hafinn undirbúningur að gerð áætlana
um þróun útgjalda og tekna ríkissjóðs á næstu árum. Þetta
verkefni er nú hafið, og hefur verið ráðinn maður til að annarst
það á grundvelli heimildar í fjárlögum.
Sú undirbúningsvinna, sem framkvæmd hefur verið að
undanförnu, hefur aðallega beinst að því að kanna, hvernig
staðið er að langtimafjárlagagerð grannrikja okkar. Jafnframt
þessu er unnið að athugun á, hvaða form langtimafjárlaga
hentar við íslenskar aðstæður og hvaða forsendur eru hér fyrir
hendi til þess að slíkt verk megi vinna
Liklegt er, eðli málsins vegna, að nokkurn tima taki að koma
á fót áætlanagerð, sem tekur til allra þátta ríkisfjármála Fyrsti
áfangi við gerð langtimafjárlaga er að langtímafjárlögum verði
mörkuð umgjörð og jafnframt hugað að útgjaldaþróun ein-
stakra málaflokka, á næstu árum, þar sem byggt yrði á
útgjaldaþróun liðinna ára, framkvæmda- og rekstraráætlunum
eftir því sem þær gefa tilefni til, og lagaákvæðum og reglum
sem í gildi eru á hverjum tíma
Langtimaáætlanir fyrir rikissjóð þjóna í fyrsta lagi því
markmiði að lýsa væntanlegri þróun útgjalda og tekna rikis-
sjóðs á næstu árum miðað við gildandi lagaskuldbindingar og
tekjuheimildir. í öðru lagi er áætlunum þessum ætlað að
auðvelda og vera umgjörð hinnar raunverulegu árlegu fjár-
lagagerðar.
Á það ber að leggja rika áherslu, að langtimafjárlögin eins
og þau eru gjarnan kölluð eru að því leyti frábrugðin eins árs
fjárlögum rikisins, að þau eru ekki bindandi fyrirætlun ríkisins,
heldur viðmiðun, sem gerir rikisstjórn, Alþingi og öðrum sem
við þessi efni fást auðveldara að meta stöðu rikisins, tekjuþörf
þess og útgjöld fram i tímann.
Annað verkefni, sem unnið er að í fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun i þessu sambandi, er að skoða þau frumvörp, sem
ríkisstjórnin hyggst leggja fyrir Alþingi með tilliti til þess
kostnaðar, sem slík frumvörp kunna að hafa í för með sér.
Sama máli gegnir raunar einnig um önnur lagafrumvörp og
þingsályktunartillögur Verkefni þetta má raunar telja hluta
áætlunargerðar til langs tíma á sviði ríkisfjármála
í stefnuræðu sinni 2 5. október s.l. vék forsætisráðherra að
nauðsyn þess, að metnar verði þjóðhagshorfur nokkur ár fram
i tímann, svo unnt sé að skoða í lengra timasamhengi
efnahagsþróunina og stöðu efnahagsmála hverju sinni. Ríkis-
stjórnin hefur falið Þjóðhagsstofnun að vinna að könnun á
þjóðhagshorfum næstu 4 ára i samvinnu við aðrar opinberar
stofnanir á sviði efnahagsmála Hér er auðvitað um að ræða
nauðsynlega forsendu þess, að unnt sé að semja langtímafjár-
lög, er eigi sér rökrétta samsvörun í hugmyndum manna um
þróun efnahagsmálanna í heild á þvi timabili, er langtimafjár-
lögin ná yfir.
Með gerð langtimafjárlaga er um að ræða ótroðna braut i
opinberri fjármálastjórn hér á landi Það er engum vafa
undirorpið, að hér er um að ræða tíma- og mannaflafrekt starf,
ef verkið á að leiða til raunverulegs árangurs i stjórn efnahags-
mála Það er því nauðsynlegt, að ekki veri rasað úm ráð fram,
heldur verði gaumgæfilega athugað, áður en endanlegar
ákvarðanir um þetta verkefni eru teknar, hvaða kostnaður felist
i því að koma á þeirri gerð langtimafjárlaga, er henti aðstæð-
um hér á landi.
Launamál opinberra
starfsmanna
Launamál opinberra starfsmanna hafa verið mjög á döfinni á
þessu ári.
Nýir aðalkjarasamningar BSRB og BHM tóku gildi 1. júli s I
og náðist samkomulag við bæði bandalögin um efni þeirra,
þ e um föst laun, fjölda launaflokka og önnur mikilvæg
sameiginleg kjaramál opinberra starfsmanna Samningar þess-
ir fylgdu i öllum aðalatriðum samningum ASÍ og vinnuveit-
enda frá 28 febrúar s I.
í tengslum við gerð aðalkjarasamnings BSRB og samninga-
nefndar ríkisins varð samkomulag um grundvöll að nýrri
löggjöf um kjarasamninga, sem varð að lögum s.l. vor, þar
sem BSRB er veittur takmarkaður verkfallsréttur Ekki náðist
Framhald á bls. 21
Gardínu-
húsið
Ingólfsstræti 1
FLYTUR
í Iðnaðarhúsið
Ingólfsstræti/Hallveigarstíg
I
* ^ *
I J I
INGOLFS Str
í þetta hús flytjum við
IÐNAÐARHÚSIÐ
Gardínu-
húsið
Ingólfsstræti/Hallveigarstíg