Morgunblaðið - 30.10.1976, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 30.10.1976, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1976 21 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Suðurnesjum Óska eftir múrara í skiptum fyrir trésmið.. Uppl. í síma 27962 Reykjavík. Maður vanur enskum bréfaskriftum, bókhaldi og alm. skrifstofustörfum óskar eftir hálfs dags starfi. Uppl. i síma 181 93. 25 ára maður óskar eftir atvinnu. Uppl. i sima 20388. Framleiðendur alþjóðlegra byggingavara og múrhúðunarefna óskar eftir hæfum sölumanni. Há laun i boði. Bónus og hlunnindi. Enskukunnátta æskileg. Sendið svar i flugpósti til: A. M. Pate, Jr. President TEXAS REFINERY CORP., Dept. E-16 P.O. Box 711, Fort Worth, Texas 76101, U.S.A. Borgarhúsgögn auglýsa 1 5% afsláttur á öllum okkar sófasettum úrval af áklæði. Borgarhúsgögn. Grásleppuútvegur til sölu Girnisnet á nylonteinum, Færi, drekar, belgir, hrognsi- ur og plaststampar 35 og 40 litra. Upplýsingar i sima 96- 81161._________________ Tvær hryssur á tamningaraldri, vel ættað- ar, til sölu. Upplýsingar i sima 99-3393. Einkatímar i ensku. Enskur kennari. Uppl. i s. 26793 sunnudag kl. 4—7. H. &V. Heimatrúboðið Austurgötu 22 Hafnarfirði Almenn samkoma sunnudag- inn kl. 5. Verið öll velkomin. Heimatrúboðið Á morgun hefst vakningavika að Óðinsgötu 6 A. Sam- komur verða hvert kvöld kl. 20.30. Allir velkomnir. Filadelfía Keflavík Bibliukennsla i dag kl. 9 —12. Vigslusamkoma i kvöld kl. 8.30. Allir velkomn- ir. Félag austfirzkra kvenna heldur skemmtifund, mánu- daginn 1. nóv. kl. 8.30 að Hallveigarstöðum. Spilað verður bingó. Stjórnin. Kvenfélag Laugarnessóknar Fundur verður haldinn mánu- daginn 1. nóvember kl. 8.30 i fundarsal kirkjunnar. Sýndir verða kjólar frá Elsu ásamt fl. Stjórnin. K.F.U.M. og K. Fyrsta samkoma Æskulýðs- vikunnar verður sunnudags- kvöld kl. 8,30 i húsi félaganna við Amtmannsstig. Ræðumaður: Kjartan Jóns- son. Nokkur orð: Guðmundur Guðmundsson, Margrét Eggertsdóttir. Æskulýðskór K.F.U.M. og K. syngur. Önnur samkoma Æskulýðs- vikunnar verður á mánudags- kvöld kl. 8,30. Ræðumaður: Halldór Reynis- son Nokkur orð: Ágúst Einarsson. Sigriður Hjartardóttir. Söngur: Oddur og Ingi. Allir eru velkomnir á sam- komurnar. UTIVISTARFERÐIR Sunnud. 31 /10 kl. 13 1. Bláfjölt með Þorleifi Guðmundssyni 2. Bláfjallahellar með Einar Þ. Guðjohnsen og Jóni I. Bjarnasyni. Ferð fyrir alla fjölskylduna að skoða undra- heim hellanna áður en snjór lokar þeim. Hafið góð Ijós með. Verð 800 kr. frítt f. börn með fullorðnum. Farið frá B.S.Í. vestanverðu. Útivist Félag Snæfellinga og Hnappdæla Spilað verður félagsvist i Dómus Medica i kvöld kl. 20.30. Stjórn og skemmtinefnd. Haustfagnaður Súgfirðingafélagsins i Félagsheimili Seltjarnarness i kvöld kl. 21—02. Stjórnin. SIMAR. 11798 og 19533, Sunnudagur 31. okt. kl.13.00 1. Gengið um slóðir Kjalnesingasögu. Leiðsögu- maður: Sigurður Kristinsson. 2. Gengið um Esjuhlíðar. Fararstjóri: Guðrún Þórðar- dóttir. Verð kr. 800 gr. v/bilinn. Farið frá Umferðarmiðstöð- inni (að austanverðu). Ferðafélag íslands. raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar 4—5 herbergja íbúð til leigu í Árbæjarhverfi. Laus strax. Tilboð, sem greinir fjölskyldustærð og leiguupphæð sendist blaðinu fyrir 3. nóvember n.k. merkt: „Árbær — 2558". Hús til niðurrifs Tilboð óskast í að rífa og fjarlægja gamalt íbúðarhús í Kópavogi. Tilboðseyðublöð ásamt nánari upplýsingum eru afhent á skrifstofu vorri. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGAHTUNI 7 SIMI 26844 Rangæingar 1. umferð i 3ja kvölda spila- keppni Sjálfstæðisfélaganna i Rangárvallasýslu verður að Hvoli föstudaginn 5. nóvember n.k. kl. 21.30. Aðalverðlaun ferð til sólarlanda fyrir tvo. Steinþór Gestsson alþm. flytur ávarp. Sjálfstæðisfélögin í Rangárvallasýslu. | Hvergerðingar Borgarafundur í Hveragerði Sjálfstæðisfélagið Ingólfur og framsóknarfélagið i Hveragerði halda almennan borgarafund i Hótel Hveragerði þriðjudaginn 2. nóv. kl. 21.00. Fundarefni: llræktarver i Hveragerði. Á fundinn koma Guðmundur Sigþórsson deildarstjóri og þingmenn flokkanna. Hvergerðingar mætið vel og stundvíslega. Stjórnirnar. ÞARFTU AÐ KAUPA? ÆTLARÐU AÐ SELJA? H' Al’GLYSIR l m allt la.nd þegar ÞÚ AIGLYSIR I MORGL’NBLAÐINE —Æjárlagaræða Framhald af bls. 19 samkomulag við BHM að því sinni, en viðræðum fjármála- ráðuneytisins og BHM um nýja samningslöggjöf var þá frestað, og verða væntanlega teknar upp að nýju nú á næstunni. Þrátt fyrir að samningar næðust við BSRB og BHM um aðalkjarasamninga, fór svo að verulegur ágreiningur varð i viðræðum samninganefndar rikisins við einstök aðildarfélög bandalaganna um sérsamninga þeirra, þ.e. um röðun rikis- starfsmanna en öðrum málum var visað til úrskurðar Kjara nefndar og Kjaradóms lögum samkvæmt. í framhaldi af þeim úrskurðum varð vart við töluverða óánægju meðal einstakra hópa starfsmanna. Óánægjan beinist að þvi, að ýmsir hópar opinberra starfsmanna telja sig hafa lægri launakjör en samsvarandi starfshópar á hinum almenna vinnumarkaði Það er ekki nýtt af nálinni, að slíkar óánægjuraddir heyrast úr röðum opinberra starfsmanna. Á síðari hluta síðasta áratugs kom fram sams konar gagnrýni. Þá varð að samkomulagi milli BSRB og fjármálaráðherra, að fram færi skipulegt mat á störfum opinberra starfsmanna, með hliðsjón af kjörum laun- þega á almennum vinnumarkaði í lok ársins 1970 var siðan gerður kjarasamningur við BSRB, sem að verulegu leyti var byggður á starfsmati þessu. Nú er því enn á ný haldið fram, að opinberir starfsmenn beri skarðan hlut frá borði miðað við hinn almenna vinnumarkað Nú sem jafnan fyrr, orkar slíkur samanburður tvímælis, því að i þessum efnum er erfitt að fullyrða, hvenær það sé saman borið sem saman á og hvenær ekki. Könnun á réttmæti þessarar gagnrýni er vandasamt verk, og veldur þar m.a. að launakerfi opinberra starfsmanna er mjög frábrugðið launakerfi annarra launþega Þá eru starfskjör opinberra starfsmanna að öðru leyti en tekur til beinna launa einnig frábrugðin starfskjörum annarra launþega og saman- burður því erfiðari af þeim ástæðum. Þrátt fyrir þessa augljósu annmarka tel ég rétt, að slík könnun verði gerð, og að niðurstöður hennar liggi fyrir við gerð næstu samninga við opinbera starfsmenn. Ég mun fara þess á leit við Hagstofu íslands eða aðra hlutlausa aðila að gerður verði samanburður á kjörum opin- berra starfsmanna og kjörum annarra stétta þjóðfélagsins. Það er von mín, að slick könnun muni auðvelda samningsgerð um kjör opinberra starfsmanna Með hinni nýju löggjöf um kjarasamninga BSRB, sem samþykkt var á Alþingi i vor, og reyndar einnig með kjara- samningalögunum frá 1973, hefur viðsemjendum rikisins fjölgað verulega frá því sem áður var og allt starf fjármálaráðu- neytisins að gerð kjarasamninga vaxið gifurlega Fram til ársins 1 974 var Kjararáð BSRB eini viðsemjandi fjármálaráðu- neytisins um kjör ríkisstarfsmanna, en nú eru viðsemjendurnir á milli 30 og 40, auk hinna tveggja bandalaga, þ e BSRB og BHM Þrátt þetta hefur ekki verið fjölgað starfsliði i fjármála- ráðuneytinu til að fást við samningagerð. Slik fjölgun er þó óhjákvæmileg, þar sen hinum auknu verkefnum á þessu sviði verður að mæta með auknu starfsliði Á undanförnum árum hefur staða formanns samninganefndar ríkisins i launamálum verið aukastarf ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins. Frá og með næstu áramótum verður hér breyting á Er hinn skipaði ráðuneytisstjóri kemur aftur til starfa um n.k. mánaðamót mun núverandi settum ráðuneytisstjóra verða falið að gegna áfram formennsku i samninganefnd rikisins, og mun það verða aðalverkefni hans næstu mánuði Ég tel, að mikla áherslu beri að leggja á að hafa sem best samskipti við launþegasamtökin Á næstu mánuðum mun reyna á, hvort okkur tekst að móta raunsæja og hóflega stefnu í kjaramálum, sem er ein helsta forsenda árangurs í viðureign okkar við verðbólguna. í þessu sambandi vildi ég með leyfi hæstvirts forseta vitna til orða hæstv forsætisráðherra í stefnuræðu hans, sem flutt var i upphafi þessarar viku, en þar sagði hann m.a. um kjaramálin: ,,Auðvitað hefur sitthvað raskast i launahlutföllum i umróti siðustu ára, og á næsta ári þarf enn að leita leiða til að ná sanngjörnum launahlutföllum og tekjuskiptingu í þjóðfélag- inu Beita þarf skatta- og tryggingakerfinu i sama skyni, en allt innan þess ákveðna ramma, sem framleiðslugeta og jafnvægi í utanríkisverslun setur Reyndar fela gildandi kjarasamningar þegar i sér nokkra kaupmáttaraukningu fyrir nokkrar stéttir, þegar kemur fram á næsta ár, þannig að fyrirfram hefur verið ráðstafað nokkru af því svigrúmi, sem fyrir hendi kann að vera Aðalatriðið er að reyna að ná settu marki i kjaramálum með sem minnstum verðhækkunum." Þetta verður vitaskuld keppikeflið i launamálum opinberra starfsmanna á næsta ári, og ég veit, að viðsemjendur ríkisins vilja einnig vinna að þessu marki. Eins og kunnugt er, eru i samningi opinberra starfsmanna ákvæði um launabreytingar á næsta ári eftir að gildistíma núverandi samninga flestra verkalýðsfélaga sleppir Um þessi ákvæði var samið i trausti þess að úr rættist um efnahag þjóðarinnar Nú virðist von til þess að svo verði, en menn verða að gera sér Ijóst, að með þessum ákvæðum var i raun og veru tekið forskot á efnahags- batann, sem ekki kemur öðru sinni til skipta Lokaord Við afgreiðslu fjarlaga liðand árs var lögð á það rik áhersla, að rikisfjármálunum yrði markvisst beitt til þess að tryggja framgang efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Sú stefna hefur fyrst og fremst miðað að þvi að draga úr viðskiptahallanum við útlönd og minnka hraða verðbólgunnar, án þess að gripið væri til svo harkalegra aðgerða að atvinnuöryggi landsmanna væri teflt í hættu. Þessari stefnu aðlögunar i áföngum að breyttum ytri skilyrðum þjóðarbúsins hefur verið staðfastlega fylgt. en hún hefur óneitanlega kostað skuldasöfnun við útlönd. Verulega hefur miðað i jafnvægisátt í efnahagsmálum þjóðarinnar á þessu ári í þvi sambandi verður þó jafnframt að hafa i huga. að hér er aðeins um að ræða einn áfanga á lengri leið, þar sem stefnt er að þvi að minnka viðskiptahallann enn meira, svo og að koma hraða verðbólgunnar niður á það stig. sem algengast er i nálægum löndum Traustur fjárhagur rikisins er nú enn brýnni en fyrr, þar sem verslunarárferði hefur nú snúist okkur i hag, og okkur er mikil nauðsyn að nota þetta tækifæri til þess að styrkja stöðu þjóðarbúsins út á við, en ekki eingöngu til þess að auka þjóðarútgjöldin Þótt horfur fyrir næsta ár séu nú nokkru bjartari en verið hefur, ætti reynsla siðustu ára að hafa fært okkur heim sanninn um, að skjótt skipast veður i lofti, og að óvarlegt er að treysta á langvarandi framhald þeirrar hagstæðu þróunar, sem við njótum nú um sinn Nú skiptir afar miklu, að menn meti stöðuna i efnahagsmálum af raunsæi Þessu verður ekki breytt i einu vetfangi, heldur með hægðinni og itrustu aðhaldssemi Þessar aðstæður setja efnahagsstefnunni á næstunni ákveðnar skorður, og i Ijósi þessara staðreynda er þetta frumvarp samið og flutt Ég vænti þess, að þingmenn fjalli um það með sama hugarfari, það býður bióðarhaaur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.