Morgunblaðið - 30.10.1976, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTOBER 1976
29
VELVAKAIMOI
Velvakandi svarar ( sfma 10-
100 kl. 10—11 ,f.h. frá mánu-
degi til föstudags.
% Kræklingur og
franskbrauð
„Mig langar að biðja
Velvakanda að koma þessum
athugasemdum minum á fram-
færi.
Einn þátturinn í kastljósi sjón-
varpsins á föstudaginn 22.10. var
um mataræði og hollustuhætti.
Við að hlusta og horfa á þann
þátt, datt mér í hug áhrifamaður
hér í borg fyrir mörgum árum.
Hann taldi sig hafa mikið vit á
málum sem þessum og iét hafa
eftir sér, að einn kræklingur (þ.e.
lítill skelfiskur) væri næringar-
meiri en eitt franskbrauð. Svipað-
ar fullyrðingar og þetta fundust
mér einnig koma fram í umrædd-
um þætti hjá lækni, sem þar var
viðmælandi.
Hann fullyrti að hvítt hveiti,
sem svo er kallað, væri með öllu
næringarsnautt og þar á meðal
hveitibrauð, sem vanalega ganga
undir nafninu „franskbrauð“ og
sem hann sýndi um leið á
skerminum, vegna þess það væri
úr hvítu hveiti. Þar að auki væri
sykur Iátinn í það — svona til að
kóróna skömmina, datt mér í
hug.“
^ Korn hollur og
góður matur.
„Mig langar að benda á í þessu
tilfelli, að korn er hollur og góður
matur, sem menn og skepnur hafa
þrifist vel á um aldaraðir. Meðal
þess er hveiti, sem talið er öllu
betra en annað korn. Til að mat-
búa korn er það fyrst malað,
ýmist 100% mölun, sem kallað er,
og verður þá heilhveitimjöl, eða
t.d. 80% mölun og verður það sem
kallað er hvítt hveiti. Við þessa
mölun og meðhöndlun missir það
nokkuð af kostum sínum. Mest af
steinefnum. En langt frá þvi að
missa þá alla.
Ég leyfi mér að vitna í norska
fræðibók um þetta efni. Hún heit-
ir „Bakverk" eftir Arne Schuler-
ud. Þar er sýndur samanburður á
100% mölun og 80% mölun, sem
er mjög algengt : hvitu hveiti.
Þar kemur i ljós, að þrátt fyrir að
20% af korninu er sigtað frá og
fari í úrgang, er þó eftir i hvitu
hveiti 91% af proteininu (eggja-
hv.efni) 75% af fitunni, 37% af
steinefnunum, 38% af járni, 41%
af B-vítam. og 30% af niacini."
0 Sykurinn handa
gersveppunum.
„Hvað viðvíkur sykri, sem lát-
inn er í brauðdeigið, þá er hann
bara ekki handa Pétri eða Páli,
— Standið ÖU saman, sagði Art.
— Jamie farðu til baka eða ég
skýt. Nú er fullkomin alvara á
ferðum.
Jamie vissi að honum var ekki
spaug í hug. Þvl að nú var áætlun-
in hvort eð er farin út um þúfur.
Engu var lengur að tapa.
— Komið. Með aðstoð Linn og
Helene hjálpaði hann Jack að
rísa á fætur og beið eftir þvl að
annað skot kvæði við.
Hvellurinn var hærri en hann
hafði búist við. Undrandi leit
hann 1 kringum sig. Sér til ólýsan-
legrar undrunar sá hann riffil
Art» detta á jörðina úr blððugum
höndum hans. Þá varð honum
ljóst að skotið hafði komið úr
annarri átt en áður.
Hann leit yfir höfuðið á Jack
Seavering.
Dwight Percy kom gangandi
hægum skrefum inn 1 garðinn.
Það var hann sem hafði skotið.
Otrúlegt en satt. Hann hélt á
skammbyssu 1 hendinni. Jamie sá
að það hlaut að vera byssa Regs.
Og hvað hafði þá orðið af Reg?
Honum fannst sem ðratfmi væri
liðinn sfðan ósköpin byrjuðu.
Forleggjari hans nam staðar.
Efns og hann hefði ekki gert ann-
að f Iffinu, Iyfti hann byssunni.
heldur handa gersveppunum tii
að nærast á meðan á gerjun
stendur. Að magni til er miðað við
hvað muni þurfa handa þeim svo
að þeir ráðist ekki á mjölsterkj-
una sér til viðurværis, þvi hún
gegnir öðru þýðingarmiklu hlut-
verki við baksturinn, sem ekki má
rýra. í bökuðu franskbrauði er
ekkert eftir af þeim sykri, sem
látinn var í deigið. 1 þessi brauð
er líka látið undarennumjólkur-
duft o.fl. sem eykur næringar-
gildi þeirra.
F.v. bakarameistari.**
O Beinlinis
óholt, eda ...
Nú kippast sennilega einhverjir
við, svo mjög sem haltað hefur
verið á hvíta hveitið og fransk-
brauðið í ræðu og riti á undan-
förnum árum. En mikill munur er
á, hvort það er beinlinis óhollt
eins og heyrzt hefur eða
næringargildi þess aðeins minna
vegna þess, sem sigtað hefur ver-
ið frá.
Velvakandi verður að viður-
kenna fáfræði sína í þeim efnum,
og einnig því, sem hann ætti
kannski að vita, hvernig þetta orð
„franskbrauð“ er tilkomið. Er það
einfaldlega „franskt brauð" —
sennilega þá frá duggunum
gömlu — eða er uppruni þess
einhver annar? Til gamans ætti
nú einhver fróður maður að
stinga niður penna og upplýsa
fáfróðar franskbrauðsætur um
það.
0 Nagladekkin enn
Maður, sem starfs sins vegna
hefur fylgzt vel með notkun
nagladekkja, hringdi til Vel-
vakanda og kvaðst taka undir það
með gatnamálastjóra og fleirum,
að þau virtust gera mjög lítið
gagn. Hann kvaðst siðastliðinn
vetur hafa notað naglalaus snjó-
dekk og reynzt það vel. Hann
sagði þó að áríðandi væri að snjó-
mynstrið á dekkjunum væri gott.
„Það hefur allt að segja,“ sagði
hann. „Mér finnst að takmarka
ætti naglana og saltausturinn.
Þetta tvennt hjálpast að við að
leysa upp malbikið, og á dekkjun-
um myndast húð, sem gerir þau
hálli en ella."
0 Ofmeta naglana
„Menn hreinlega ofmeta
naglana," sagði viðmælandi Vel-
vakanda, „og aka þar af leiðandi
ekki með þeirri gát, sem nauðsyn-
leg er. Ég neita þvi þó ekki, að
naglarnir koma að notum, þegar
glærahálka myndast, en það er
bara svo sárasjaldan."
Spurður um keðjur, sagði við-
mælandinn, að nauðsynlegt væri
að hafa þær í bílnum og setja
undir, þegar þess gerðist þörf. Þó
væri aðalatriðið að vera með rétt
mynztruð snjódekk. Sjálfur
sagðist hann eiga jeppa. Fyrst
hefði hann verið með alhliða
mynztruð dekk, en síðan fengið
sér snjómynztruð dekk og hefði
hann fundið á því greinilegan
mun í hálku.
Hér er enn á ferðinni mál, sem
menn eru sennilega ekki á einu
máli um. En allir geta þó verið
sammála um að aðgæzla í akstri
— ekki sízt nú þegar vetur er
genginn í garð — er fyrst og
síðasta boðorðið.
HOGNI HREKKVÍSI
^ O O _ Æv }
J) 1976
McNaufht Synd., Ine.
?????
DRATTHAGI BLÝANTURINN
0PIÐ TIL HÁDEGIS
DÖNSKU GÓLFLAMPARNIR
K0MNIR AFTUR
SENDUM í P0STKRÖFU
LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL
LJÖS & ORKA
Sudurlandsbraut 12
sími 84488
Kópangskaupstaiiir K!
Félagsráðgjafi
Staða félagsráðgjafa við Félagsmálastofnun
Kópavogskaupstaðar, er laus til umsóknar.
Laus samkvæmt kjarasamningum starfsmanna-
félags Kópavogskaupstaðar.
Umsóknum er greini frá menntun aldri og fyrri
störfum, sé skilað til undirritaðs fyrir 15. nóv.
n.k., sem jafnframt veitir nánari upplýsingar á
Félagsmálastofnunni, Álfhólsvegi 32, sími
41 570.
Félagsmálastjórinn í Kópavogi.
Rammagerðin
Sendum um allan heim.
Allar sendingar full tryggðar.
Rammagerðin
Hafnarstræti 1 9.