Morgunblaðið - 30.10.1976, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1976
nfinmiuiML
íjmat! £
Benjohnson in
TheRedFbnyA
Minning:
Hannes Jónsson
Stykkishólmi
Ég get ekki státað af þvf að hafa
sýnt æskustöðvum mínum,
Stykkishólmi, ræktarsemi og því
síður sóma, enda verið fáförull,
en ekki gat hjá þvl farið að ég liti
þar við sfðastliðið sumar. —Aldr-
ei hef ég komið svo f Hófminn, að
ég hafi ekki heimsótt fólkið mitt I
Möngubæ. Þar á ég þó ekki tif
skyldra að telja. —Torfbærinn
litli og gamli er löngu horfinn.
Reist var myndarlegt hús fyrir
nær fimm áratugum, reyndar á
öðrum stað, þar sem mitt gamla,
góða Möngurbæjarfólk hefur
búið sfðan. En I hugskoti mlnu
getur ekki annað heiti átt heima
yfir það né þetta hús, og liggja til
þess býsna rfkar ástæður.
Þegar ég var að alast upp I
Stykkishólmi, bjuggu I Möngubæ
hjónin Margrét Andrésdóttir og
Jón Jónasson. Margrét var dóttir
Guðnýjar Guðmundsdóttur og
Andrésar Andréssonar I Búðar-
nesi, þar sem hin upphaflega
verzlun I Stykkishólmi mun hafa
verið, en Jón var sonur Astríðar
Þorsteinsdóttur og Jónasar
Sigurðssonar, sem víða bjuggu, en
lengst á Helgafelli, og meðal
Hólmara var hann ætfð við þann
bæ kenndur og kallaður Jón Helg-
fellingur.
Margrét og Jón giftust árið 1902
og eignuðust 12 börn á tuttugu
árum. Tvö þeirra dóu kornung, en
hin öll náðu fullorðinsaldri. Mar-
grét og Jón þurftu að bera
margan kross og ekki ætfð léttan,
en það gerðu þau með fágætu
þolgæði og karlmennsku.
Ekki þekkti ég annan bæ f
Hólminum, þar sem var þröng-
býlla en I Möngubæ. En við
hópinn, sem fyrir var, bættust
sjaldan færri en þrír strákar
margan dag. Möngubær hafði
undravert aðdráttarafl, sem eigi
verður skýrt né skilgreint nema f
löngu máli. —Fátækt var mikil á
þeim bæ og lágu hjónin þó ekki á
liði sfnu við að klóra f bakkann til
þess að bjargast af. Jón var á
skútum öll sumur og sinnti
vaktarastarfi á vetrum, eftir að
nauðsynlegt þótti öryggis vegna,
að einhver gengi stöðugt um
þorpið að næturlagi til þess að
gera viðvart, ef bólaði á skað-
legum eldi.
Hannes, sonur Margrétar og
Jóns, var fæddur 15. desember
1911. Við áttum samleið I leik,
skóla og einnig um nokkurt skeið
í starfi, eftir að okkur óx svo
fiskur um hrygg, að við gátum
tekið til hendi. Meðan ég staldraði
við hjá honum í sumar, minnt-
umst við á margt frá þeim tfma.
Húsgögn til sölu
Gömul, vönduð borðstofuhúsgögn, tveir skáp-
ar, borð og 6 stólar, til sölu. Einnig stórt
skrifborð. Uppl. í síma 50542 kl. 2 — 6 laug-
ard. og sunnudag.
Jón bróður hans bar þá að og var
fámáll og hóglátur að vanda.
Báðir hafa þeir bræður verið
verkamenn alla tfð, og ætla ég, að
enginn hafi verið svikinn af
störfum þeirra. Annt var þeim
um, að öldruðum foreldrum
þeirra farnaðist sem bezt, sem
þeim lánaðist svo vel, að vert var
aðdáunar, en þau eru nú bæði
látin fyrir allmörgum árum. Syst-
kinin, sem ekki voru að heiman
farin, héldu hópinn. Asta annað-
ist húsmóðurstörfin, unz hún féll
frá skyndilega, en þá tók dóttir
hennar við, sem þá var orðin full-
vaxta. Bróðursyni sfnum, sem
varð fyrir örkumlaáfalli, hafa
þeir bræður reynst sem ættu þeir
f honum hvert bein.
Andrés vinur minn, sem átti
með mér margan snúning f hesta-
stússi áður og fyrr, fór snemma að
heiman, lést f bílslysi f Reykjavík
9. janl973. Það er þvf orðið æði
grisjað í gömlu Möngubæjarfjöl-
skyldunni, þvf að nú er Hannes
einnig horfinn, hann lézt I Land-
sþítala 22. október síðastliðinn og
verður til moldar borinn f Hólm-
inum í dag. —Seinna mátti það
þvf ekki vera, að við gætum rifjað
upp slitring gamalla minninga.
Hannes Jónsson var mikill
sómamaður eins og öll fjöls-
skyldan. —Kærari æsku-
minningar með óvandabundnu
fólki á ég ekki. Þær þakka ég um
leið og ég kveð æskuvin minn,
Hannes Jónsson, og sendi syst-
kinum hans beztu kveðju mfna.
'Orösending -
til bif reiðaeigenda
Höfum opiö alla virka daga
frá 8 — 18.40 og sunnudaga
f rá 9 — 17.40.
Viö þvoum og bónum bifreiðina
á meðan þér bíðið.
Bón- og þvottastöðin h.f.,
Sigtúni 3.
Lúðvfk Kristjðnsson.
Morgunblaðið
óskar eftir
blaðburðarfólki
Austurbær
Skipholt 2—50
Úthverfi
Blesugróf
Upplýsingar í sima 35408
fagpmiritafrffr
Stórkostleg hlutavelta
í Iðnaðarmannahúsinu viö Hallveigarstíg á morgun
sunnudag 31. okt. og hefst kl. 2 e.h.
Aðalvinningur sólarlandaferð
Að auki margir góðir munir m.a.
Ragmanssteikarapanna, hórþurrka á standi, eldhúsborð og stólar,
Gjafakort fyrir úttekt ó herrafötum o.fl.
Allur ágóði rennur til styrktar fjölfötluðum börnum. .
Komið og styrkið gott málefni. LlOnsklÚbburÍnn Tyr