Morgunblaðið - 27.11.1976, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1976
Barnaspítali Hringsins:
Veitir aukna þjónustu
vegna heilahimnubólgu
VEGNA fjölgunar heila-
himnubólgu tilfella, sem
orðiö hefur vart að undan-
förnu, hafa læknar Barna-
spitala Hringsins ákveðið
að taka upp aukna þjón-
ustu. Geta heimilis- og
vaktlæknar nú vísað veik-
um börnum til Barnaspít-
ala Hringsins. Með-
fylgjandi upplýsingar bár-
ust Morgunblaðinu í gær
frá Barnaspítala
Hringsins:
„Heimilis- og vaktlæknar geta
nú vísað veikum börnum til
Barnaspítala Hringsins, Land-
spítalanum til skoðunar, en þar
verður síðan tekin ákvörðun um
hvort sjúklingurinn geti farið
heim aftur eða þurfi að leggjast
inn.
Læknar deildarinnar hafa boð-
izt til að veita þessa þjónustu um
óákveðinn tíma og er hún hafin
nú vegna þeirrar aukningar heila-
himnubólgu, sem orðið hefur vart
að undanförnu, en segja má, að
þetta sé spor i þá átt, að gera
Landspítalann virkari i hinni al-
mennu heilbirgðisþjónustu, sér i
lagi, þegar um bráð veikindi er að
ræða. Læknar spítalans hafa haft
áhuga fyrir aukinni þjónustu af
þessu tagi, en reynst hefur erfitt
að finna slikri starfsemi stað í
spítalanum vegna þrengsla.
I sambandi við þá þjónustu,
sem barnadeild Landspitalans er
nú að fara af stað með má geta
þess, að læknar deildarinnar
munu til skiptis gegna þessari við-
bótarstarfsemi, en til hennar
kasta kemur fyrst og fremst í
þeim tilvikum, þegar vaktlæknir
telur sig ekki geta sinnt nógu
fljótt þeim verkefnum, sem fyrir
liggja hverju sinni eða hann álit-
ur sjúklingþarfnastnánari rann-
sóknar en hægt er að veita við
sjúkrabeð".
Kaupa um 50 myndir
Gunnars Hannessonar
FERÐAMÁLARAÐ og Flugleiðir
hafa nýverið fest kaup á 45 af
litmyndum Gunnars heitins
Hannessonar ljósmyndara og
mun vera ætlun þessara aðilja að
nota myndirnar í landkynningar-
starfsemi. Myndirnar spanna yfir
ýmis svið en flestar þeirra eru af
r
Oskað setudóm-
ara í útburðarmáli
bóndans á Alviðru
NUVERANDI eigendur jarðar-
innar Alviðru i Ölfushreppi,
Landvernd og Árnessýsla, hafa
óskað eftir því við sýslumann
Arnessýslu að ábúandi Alviðru,
Helgi Þórarinsson, verði borinn
af jörðini og umráðaréttur yfir
jörðinni verði að fullu afhentur
eigendum Alviðru.
,
WO Efl SJHVflRÚT-
VE6SRÁ0H£RRfl. HflNH
SEÚIR WW9SÉSÍN
PEflSÓNOLEáfl
flp ÞflP VFR9I
VE90R R MORáON
Páll Hallgrímsson, sýslumaður
Arnessýslu, hefur að þessu tilefni
ritað dómsmálaráðuneytinu og
óskað eftir því að sérstakur setu-
dómari verði skipur til að fjalla
um málið vegna aðildar hans að
því sem fulltrúa Arnessýslu í
stjórn Alviðru. Að sögn Baldurs
Möller, ráðuneytisstjóra í dóms-
málarláðneytinu, hefur ráðuneyt-
ið ekki skipað setudómara í málið
en sennilegt er að það verði gert
strax eftir helgi.
Sem kunnugt er af fréttum
hefur fyrrum eigandi Alviðru,
Magnús Jóhannesson, sem gaf
jörðina Landvernd og Árnessýslu,
nú óskað eftir að gjöfinni verði
rift. Páll S. Pálsson, lögmaður
núverandi eiganda, sagði í
samtali við blaðið í gær, að allt
benti nú til að leitað yrði sátta i
riftunarmálinu áður en það yrði
falið dómstólum til úrlausnar.
eldgosum, jöklum, hreinu og
tæru lofti og siðast en ekki sizt
fagurri náttúru.
I viðtali við Morgunblaðið i gær
sagði Heimir Hannesson, formað-
ur Umhverfismálaráðs, að mynd-
irnar væru rtú i stækkun í Noregi,
en fljótlega eftir að vinnslu
þeirra væri lokið yrðu þær settar
á sýningu á meginlandi Evrópu og
síðar væntanlega I Bandarikjun-
um. Myndirnar munu m.a. verða
notaðar sem rammi um vörusýn-
ingar og til greina kæmi að nota
þær á hverri þeirri sýningu er-
lendis sem snerti Island og Is-
Iendinga, sagði Heimir.
Gunnar Gunnarsson, sonur
Gunnars Hannessonar, sagði við
Morgunblaðið i gær að það væri
sérstök ánægja að af þessum
kaupum hefði orðið. — Þetta er
mikil viðurkennig á starfi föður
míns, sem vann alla tíð mikið að
landkynningarmálum. Það er
mikill heiður að opinber aðili eins
og Ferðamálaráð skuli ætla að
kynna ísland með myndum hans,
sagði Gunnar Gunnarsson.
Þess má að lokum geta að Sam-
band islenzkra samvinnufélaga
hefur keypt milli 5 og 10 mynda
Gunnars og hyggst nota þær á
sýningum sínum erlendis.
(Ljósm. Fridþjófur).
„Ég mæti honum daglega,
manninum með pokann.
Og hvert sinn hef ég spurt:
Ifvað er í pokanum?"
(Hvað er I pokanum? T.G.)
Mokloðnuveiði:
Átta bát-
ar með
300 lestir
UM LEIÐ og gefur á loðnu-
miðunum er mokveiði og í
fyrrinótt fengu allir
bátarnir á miðunum full-
fermi utan einn, sem varð
fyrir því óhappi að aðal-
vindan bilaði. Alls fengu
bátarnir um þrjú þúsund
tonn og er þá heildarloðnu-
aflinn kominn yfir 95 þús-
und tonn.
Bátarnir sem voru á miðunum
eru átta talsins, en 14 bátar
stunda nú veiðarnar og fer sifellt
fjölgandi. Bátarnir, sem fengu
afla, voru þessir.: Pétur Jónsson
550 tonn, Hrafn 400 tonn og Ás-
berg 380. Þessir bátar fóru til
Siglufjarðar. Eldborg fór með 530
tonn til Hafnarfjarðar, Ársæll
Sigurðsson 180 til Faxafióahafna,
Bjarni Ólafsson 150 tonn til Akra-
ness og Helga 2. með 360 tonn og
Svanur með 320 tonn til Reykja-
vikur.
Uppsögn röntgen-
tæknanna er baga-
leg fyrir spítalana
STAÐAN I málum röntgentækna
á spftölum I Reykjavfk hefur ekki
breytzt sfðustu daga, en sem
kunnugt er hættu flestir röntgen-
tæknar störfum á þriðjudaginn.
Haukur Benediktsson, fram-
kvæmdarstjóri Borgarspítalans,
sagði í viðtali við Morgunblaðið í
gær að uppsögn röntgentækn-
anna níu á Borgarspítalanum
væri mjög bagaleg fyrir stofnun-
• •
Onnur Twin Otter-vél
Vængja í loftið í dag
ina og t.d. yrði fólk utan úr bæ
nær alveg að bíða með myndatök-
ur, en hins vegar væri hægt að
sinna starfi röntgentækna í að-
kallandi tilfellum með þvi að
röntgenhjúkrunarkonur og lækn-
ar ynnu störf tæknanna.
Ekki hafa þeir aðilar sem eiga í
deilunum verið boðaðir saman til
fundar, en að sögn Hauks er verið
að reyna að finna lausn á þessu
máli. Nú starfa tveir röntgen-
tæknar á Borgarspítalanum, en
þeir voru ráðnir eftir að uppsagn-
ir hinna níu, sem hættu, komu til.
Á Landspítalanum hættu 5 rönt-
gentæknar vinnu í vikunni og
einn á Landakotsspítala.
VÆNGIR hefja f dag að nýju
áætlunarflug með annarri Twin
Otter flugvél félagsins og verður
Guðbjörg til við-
gerðar á Akureyri
tsafirði, 26 nóvember.
SJÁLFSTÝRING mun
hafa bilað er skuttogarinn
Guðbjörg ÍS 46 strandaði
við utanverðan Seljadal í
ísafjarðardjúpi í gær-
kvöldi. Skipið losnaði af
strandstað af eigin ramm-
leik, en er það kom til ísa-
fjarðar kom í ljós að nokk-
ur leki hafði komið að skip-
inu.
Við rannsókn kom í ljós 3—4
metra rifa frá stefni skipsins og
dældir í botninum 4—5 metra þar
fyrir aftan. Auk þess rofnuðu suð-
ur og leki kom að olíutanki bak-
borðsmegin. Lak nokkur olia úr
skipinu, en þessi tankur var fljót-
lega tæmdur. I kvödl hélt Guð-
björg af stað til Akureyrar þar
sem gert verður við þetta mikla
aflaskip eins fljótt og auðið er.
— Ólafur.
flogið til Blönduóss og Sigluf jarð-
ar í dag. Undanfarið hefur Island-
er-vél félagsins verið ein I
áætlunarflugi, en unnið hefur
verið að viðgerðum á hinum flug-
vélunum. Sfðastliðinn miðviku-
dag kom hingað til lands Banda-
rfkjamaðurinn, sem verða mun
yfirflugvirki félagsins, en hann
hefur mikið starfað við Twin Ott-
er-flugvélar.
Að sögn Ómars Ólafssonar hjá
Vængjum var farið í reynsluflug
á annarri Twin Otter-flugvélinni í
gær og reyndist hún í alla staði
mjög vel. Hefur Loftferðaeftirlit-
ið gefið grænt ljós á að vélin hefji
áætlunarflug að sögn Ómars.
Leitað að sjö-
tugum manni
BJÖRGUNARSVEITIR leituðu í
gær að 70 ára gömlum manni,
Gunnlaugi Guðmundssyni,
Barmahlíð 50, Reykjavik. Siðast
er vitað um ferðir Gunnlaugs með
vissu á miðvikudagskvöldið.
Gunnlaugur er hár og grannur,
hvithærður og sennilega klæddur
í gráa úlpu, með köflóttan hatt og
í gráum buxum. Þeir sem hafa
orðið varir við ferðir Gunnlaugs
eftir miðvikudagskvöld eru beðn-
ir að láta rannsóknarlögregluna
vita.
©
INNLENT
Neituðu að landa rækjunni:
Langanes kemur aft-
ur heim með ræk juna
VÉLBÁTURINN Langa-
nes frá Þórshöfn átti að
selja frystan fisk og laus-
frysta rækju í Grimsby í
gærmorgun. Vel gekk að
landa fiskinum, en þegar
kom að því að landa rækj-
unni strandaði allt vegna
kjaradeilna verkamanna
við höfnina í Grimsby.
Langanesið seldi 14 tonn af
lausfrystum fiski fyrir 1.8 millj.
kr. og fékk 126 kr. pr. kíló og
síðan seldi skipið 6 tonn af heil-
frystum fiski, og fengust 140
kr. á kíló af þeim afla.
Að lokum átti að landa rækj-
unni, en þá strandaði allt. 1
fyrstu neituðu tollyfirvöld
bátnum um löndun i fiskihöfn-
inni og létu hann , fara í
verzlunarhöfnina. Þegar þang-
að kom voru verkamenn þar í
verkfalli og neituðu að landa.
Tollyfirvöld féllust þá á að
heimila löndun í fiskihöfninni,
en ekki tók betra við er bátur-
inn kom þangað. Þá kröfðust
verkamenn í fiskihöfninni að fá
sama kaup við þessa löndun og
greitt er í verzlunarhöfninni og
gekk hvorki né rak í samninga-
umleitan. Málið endaði með því
að báturinn verður að sigla með
rækjuna á ný til tslands og
verður að afskipa henni hér og
senda siðan út.