Morgunblaðið - 27.11.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. NÓVEMBER 1976
15
Hvað er leikmaður?
í kristinni kirkju, sem telur innan
sinna vébanda um það bil þriðjung
mannkyns, eru margir einstaklingar.
Með hliðsjón af verkaskiptingu kirkj-
unnar manna hefur frá fornu fari tíð-
kazt að tala um „lærða og leika'.
Lærðir voru menn andlegrar stéttar
þ e. prestar. áður fyrr þeir einu, sem
það gátu kallazt. Leikir voru einstakl-
ingar, konur og karlur úr öllum öðrum
stéttum þjóðfélagsins.
Leikmannastétt
Or röðum leikmanna var snemma
farið að kjósa menn til ákveðinna starfa
i kirkjunni. Leikmannastétt varð til á
dögum fyrstu postula Jesú Þegar
frumsöfnuðurinn I Jerúsalem hafði
vaxið svo, að postulunum var um
megn að sinna auknum skyldum ásamt
predikunarstarfi slnu, voru kosnir þeim
til aðstoðar sjö menn. Nöfn þeirra eru
skráð I Postulasögunni Verkefni þeirra
var að sjá um dreifingu matvæla til
nauðliðandi fólks, en kvartað hafði ver-
ið um, að nokkrir væru settir hjá, er
matargjöfunum var útbýtt.
Dlanonía
Mennirnir sjö voru nefndir safnaðar-
þjónar eða djáknar Brátt urðu til nýjar
þjónustugreinar, t.d. hjúkrun og
kennsla. Fjölmennt lið karla og kvenna
skipaði sér I þessar leikmannaraðir.
Þessi kirkjulega þjónusta fékk nafnið
diakonia. Orðið er grískt og merkir
þjónusta (af orðinu diakonos, sem
merkir þjónn) —
Mér lék hugur á að kynnast leik-
mannastarfi sænsku kirkjunnar, er við
hjónin vorum á ferðalagi í Svíþjóð í
sumar Það var ekki sizt vegna þess, að
stjórn Prestafélags Hólastiftis ákvað að
efna til námskeiðs fyrir leikmenn á
Hólum i Hjaltadal næsta sumar
Svíar eignast
leikmannaskóla
Þegar minnzt er á sænska leik-
mannaskólann, er þar til máls að tala,
að á fyrstu tugum 20. aldar var all-
mikill skortur á prestum I Sviþjóð,
einkum Norður-Svíþjóð Þá var það
prestur að nafni séra Jón Melander,
framkvæmdastjóri sænsku diakon-
hreyfingarinnar 1910—1918, sem
gerðist brautryðjandi leikmanna-
skólans. Hugðist hann bæta úr presta-
skortinum með þvi að mennta svo-
kallaða aðstoðarkennimenn
(pastorsdiakoner). Það var fyrsta verk-
efni skólans. Skólinn var stofnaður 8
okt. 1922 i Hallesjö, prestakalli séra
Jóns Melanders.
Að vakna til
ábyrgðar í kirkjunni
Með skólahugsjóninni var það ósk
séra Melanders og bæn, að skólinn
yrði lyftistöng kirkjulegs starfs i
Sviþjóð, enda er sú raun á orðin
Skólinn hefur vakið leikmenn i kirkj-
unni til ábyrgðar, til þátttöku. fórnar-
vilja og vinnu, sem hefur orðið sænsku
kirkjunni til farsældar. Elisabet, eigin-
kona Melanders. var honum mikil
hjálp i þessari köllun hans. Rétt áður
en skólinn var stofnaður skrifar Mel-
ander: „Elisabet og eg höfum ákveðið
að byrja skólann." Fyrstu nemendur
urðu þrettán og bjuggu þeir á sveita-
heimilum i grennd við safnaðarheimil-
ið i Hallesjö, þar sem kennslan fór
fram. Námstimí aðstoðarkennimanna
var þrjú og hálft ár Fyrstu árin var séra
Melander hvorttveggja sóknarprestur I
Hallesjö og skjólastjóri leikmanna-
skólans.
Að uppbyggjast sem
lifandi steinar
Á stofndegi var skólinn hátíðlega
vigður að viðstöddum nokkrum gest-
Skólastjórinn Carl Henrik
Martling
MeÓ Ajax þvottaefní veróur mísliti
þvotturinn alveg jafn hreinn og
suóuþvotturinn.
Hinir nýju endurbættu
efnakíjúfar gera þaó kleift
aö þvo jafn vel meó ölium
þvottakerfum.
Strax við lægsta hitastig leysast óhreinindi og blettir upp og
viðkvæmi þvotturinn verður alveg hreinn og blettalaus.
Við suðuþvott verður þvotturinn alveg hreinn og hvítur.
Ajax þvottaefni, með hinum nýju efnakljúfum sýnir ótvíræða
kosti sina, einnig á mislitum þvotti — þegar þvottatiminn er
stuttur og hitastigið lágt. Hann verður alveg hreinn og litirnir
skýrast.
Hreinsandi efni og nýjr, endurbættir efnakljúfar ganga alveg
inn i þvottinn og leysa strax upp óhreinindi og bletti i
forþvottinum. Þannig er óþaHt að nota sérstök forþvottaefni.
Ajax pvottaefní þýóir:
gegnumhreínn þvottur meó öllum
þvottakerfum.
Mjög óhreinn fatnaður þarf mjög gott þvottaefm...
Leikmannaskóli
rlkara mæli inn á þá braut, að mennta
ýmsa starfshópa almenns safnaðar-
starfs: Leiðbeinendur i sunnudaga-
skólastarfi, æskulýðsleiðtoga, sóknar-
nefndarmenn, kirkjuverði, reiknings-
haldara, stjórnendur kirkjulegra
saumaklúbba. fræðara i bibliulestri,
kennara smábarnaskóla, unglinga-
fræðslu, heimilisiðnaðar og hjúkrunar-
nema .
Vinafélag leikmannaskólans
Séra Jón Melander var áfram hinn
skeleggi og ótrauði forsvarsmaður leik-
mannaskólans og mótaði stefnu hans:
Hlutverk leikmánnaskólans er að
annast fræðslu leikanna á trúargrund-
velli sænsku kirkjunnar, mennta leik-
menn til þjónustu I kirkjulegum
embættum og frjálsu safnaðarstarfi.
Árið 1924 stofnuðu nokkrir leik-
menn á sumarnámskeiði félag, er hlaut
nafnið: Vinafélag leikmannaskóla
sænsku kirkjunnar. Eins og nafnið
gefur til kynna, er það tilgangur félags-
ins að sýna skólanum hollustu og vin-
áttu, standa vörð um skólahugsjónina.
Ákveðið var að félagar legðu skólanum
til fé árlega, minnst 5 krónur sænskar.
Þá má einnig geta stuðnings sænsku
„kirkjubræðranna" einkum á degi leik-
manna I kirkjunni, þegar fjársöfnun fer
fram I Sviþjóð handa skólannm.
Framhald á Dls. 17
4. grein
um, þar á meðal hinum fræga
erkibiskupi Svía, Natan Söderblom
Erkibiskupinn var þar sem fulltrúi dia-
konhreyfingarinnar, sem hafði átt sinn
þátt I að stofna skólann. Slðastur gesta
gekk Söderblom inn fyrir altarisgrátur
kirkjunnar I Hallesjö. Hann lagði út af
orðunum í 1. Pétursbréfi „og látið
sjálfir upnbyggjast sem lifandi steinar I
andlegt hús til heilags prestafélags til
að frambera andlegar fórnir. . ."
Söderblom talaði um dýrmæti og
gildi fórnarinnar og þakkaði Hállesjö
— söfnuði kærleiksrlka þátttöku i
þessu nýmæli kirkjunnar.
Skólahúsið [ brekkunni
við Löginn
Haustið 1 923, árið eftir að skólinn
hóf starf sitt, var hann fluttur til Sig-
túna Fyrst hafði hann aðsetur i leigu-
húsnæði Sigtúnastofnunar (sambr.
Mbl. 28 sept. s.L), en síðan i eigin
byggingu, er byggð var 1 930 Á þvi
ári var minnzt ellefu alda afmælis
fyrsta kristniboðs I Sviþjóð, er postuli
Norðurlanda. Ansgar, kom fyrst
þangað. Af þvl hátiðlega tilefni var
byggingin i brekkunni látin heita
Ansgarshlíð (Ansgarsliden)
Eftir nokkra reynslu aðstoðarkenni
manna, kom I Ijós, að ekki var grund-
völlur fyrir starfrækslu þeirra, einkum
af fjárhags ástæðum Skólinn fór i æ
Frá norrnnu leikmannanámskeiSi í skólanum
Leikmannaskóli sænsku kirkjunnar i Sigtunum
Einkennismerki skólans,
mynd af Ansgar.
Ur Svíþjóðarför:
Eftir sr. Pétur
Sigurgeirsson