Morgunblaðið - 10.12.1976, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
Bíldudalur:
Hafrún átti að
róa í gærkvöldi
HAFRUN frá Bolungarvík, sem nú
hefur verið keypt til Bíldudals, átti
að fara f sinn fyrsta róður frá BHdu-
dal I gærkvöldi og með tilkomu báts-
ins er talið að 30—40 manns fái
vinnu og ef annar bátur fæst til, að
atvinnuleysi muni algjörlega hverfa
á BHdudal.
Theodór Bjarnason, sveitarstjóri i
Bildudal. sagði i samtali við Morgun-
blaðið í gær, að Hafrún hefði komið til
Bildudals í gær, og þá hefði þegar
verið búið að beita 40 bjóð í fyrsta
róðurinn. Á bátnum eru 6 menn og 7
við beitingu. allt Bilddælingar. þá
myndu 20 manns fá vinnu i frystihús-
inu við verkun aflans
Sagði Theodór, að skuldahalli frysti
hússins hefði verið leystur í gær og
menn vonuðust nú til að ástandið á
Biidudal ætti eftir að gjörbreytast En
annað skip þyrfti til viðbótar Hafrúnu,
ef atvinnuleysi ætti að hverfa Til þess
að atvinnulíf yrði tryggt allt árið um
kring. þyrfti 2—3 báta eða skuttogara
Þegar vinna hefst í frystihúsinu á
Bíldudal á morgun, hefur það verið
lokað frá því um mánaðamótin septem-
ber — október á síðasta ári, eða i
meira en 1 4 mánuði
Að sögn Theodórs róa 10 rækjubát-
ar frá Bíldudal um þessar mundir og
hefur afli þeirra verið þolanlegur.
I „lomber” með níu
„mattadora” á hendi
Framnes tók niðri
við Bjargtangavita
FRAMNESIÐ, 137 tonna bátur frá
Þingeyri. tók niðri í fyrrakvöld við
Látrabjarg, skammt frá Bjargtanga-
vita. Losnaði skipið af sjálfsdáðum
af strandstað og var dregið af vél-
bátnum Birgi inn til Patreksfjarðar.
Skemmdist Framnesið talsvert,
dældaðist að framan, stýri skemmd-
ist og stefnisrör, en tiltölulega litlar
skemmdir urðu á skrúfu skipsins. í
gær fóru sjópróf fram hjá sýslumann-
inum á Patreksfirði, en skemmdir
voru ekki fullkannaðar. Framnesið
verður dregið til Reykjavíkur næstu
daga og fer I slipp þar.
Jón Andrésson, skipstjóri á Fram-
nesinu. sagði í viðtali við Morgunblað-
ið í gær, að skipið hefði strandað um
klukkan 1 8 30 I fyrrakvöld. en um leið
og skipið hefði tekið niðri hefði verið
sett á fullt aftur á bak og skipið losnað
fljótlega af strandstað — Við áttuðum
okkur undir eins og skipið var orðið
laust aftur og ekki hafði komið leki að
því. að enginn 'hætta var á ferðum.
Framnesið var síðan komið í tog hjá
Birgi klukkan 20.10 sagði Jón —
Stýrið fór úr sambandi við strandið, en
vindátt var þannig og straumar að
engin hætta var á að okkur ræki upp í
land, þá hálfu aðra klukkustund. sem
leið frá því að við tókum niðri, þar til
við vorum komnir í tog
Á Framnesinu var sex manna áhöfn
og var skipið að koma úr róðri með sex
tonn af línufiski þegar óhappið átti sér
stað Skemmdir voru ekki fullkannaðar
í gærkvöldi. en þó Ijóst að stýri og
stefnisrör voru mikið skemmd. en
skrúfan minna löskuð en talið var I
fyrstu Sjópróf fóru fram í gær hjá
Jóhannesi Árnasyni sýslumanni á Pat-
reksfirði Framnesið verður dregið til
Framhald á bls. 21
Lítið um óhöpp
I GÆRDAG snjóaði í fyrsta sinn i
Reykjavík á vetrinum, en þrátt
fyrir mikla hálku var lítið um
óhöpp í umferðinni. Að sögn lög-
reglunnar höfðu orðið 15 árekstr-
ar um kvöldmat, og engin alvar-
legur. I fyrradag urðu árekstrar
114 talsins, en þá var mjög gott
ökufæri i borginni.
Eínn bátur með
góðan loðnuafla
EFTIR 10 daga brælu héldu
loðnuskipin á miðin I fyrrakvöld,
en aðeins einn bátur fékk góðan
afla áður en tunglið kom upp,
Pétur Jónsson KÓ fékk 350 lestir,
sem hann fór með til Bolungar-
vikur.
Nokkrir aðrir bátar munu hafa
fengið afla, þótt þeir færu ekki
með hann í land. Um leið og
tunglið kom upp stakk loðnan sér
og þýddi þá ekkert að kasta á
hana.
1 gærkvöldi var spáð góðu veðri
á loðnumiðunum og áttu menn
von á góðri ve.iði.
FYRIR „Lomber .spilara" er þa8
eflauststórfrétt að 9 mattadorar
skuli koma á eina hönd I beinni
gjöf. Þetta gerSist þó á þriðjudags-
kvöldið er þeir sátu að spilum
Einar Magnússon fyrrum rektor.
Karl Jónsson læknir, Valdimar
Sveinbjörnsson fyrrverandi
iþróttakennari og Pétur Jónsson
starfsmaður Alþingis og það var sá
sfðastnefndi, sem hafði heppnina
með sér á miðvikudaginn. Spila-
klúbburinn , sem fjórmenningarnir
eru I, hefur verið virkur f 41 ár og
aldrei fyrr hefur það gerzt að 9
mattadorar kæmu beint á sömu
höndina.
Einar Magnússon rektor sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
..lomber'' væri mikið menningarspil,
skemmtileg blanda af heppni og
snilld Það hefði verið mikið spilað
hér áður, en þeir væru stöðugt færri
sem kynnu þetta flókna spil Einar
sagði að þeir hefðu verið með spila-
klúbb i 41 ár, en alltaf þætti þeim
„lomber" jafn spennandi. Eins og
áður sagði er þetta ! fyrsta skipti,
sem 9 mattadorar koma beint á
höndina f klúbbnum. en þrisvar
sinnum hefur það gerzt að 9 matta-
dorar hafa fengizt eftir að keypt var.
Það að fá 9 mattadora þýðir að sá
sem fær hefur á hendinni öll hæstu
spilin I þeirri tegund, sem verið er
að spila. Að þessu sinni var lauf
spilað og Pétur hirti að sjálfsögðu
alla slagina. þvi ekki eru gefin nema
9 spil á hverja hönd i „lomber”.
Verður 18. desember
síðasti kennsludagur?
I nýjum reglum, sem settar voru I arar munu vera mjög óhressir yf-
fyrra um jólafrf f skólum, segir
að jólafrf f grunnskólum skuli
vera frá 21. desember til 4.
janúar, eins og var áður f gagn-
fræðaskólum.
Samkvæmt reglunum á sfðasti
kennsludagur að vera 20. desem-
ber n.k. sem er mánudagur. Kenn-
ir þvi að þurfa að mæta þennan
eina dag i þessari viku, og eftir
þeim upplýsingum, sem Morgun-
blaðið aflaði sér í gær, þá munu
samtök þeirra hafa sótt um
heimild til að kenna laugardaginn
18. desember í stað mánudagsins
20. des. og mun það að likindum
verða samþykkt.
í moldinni glitrar gullið
Ný bók, e.k. ferðalag með Sigurði Haralz
MORGUNBLAÐINU hefur borizt ný
bók, í moldinni glitrar gullið eftir
Kormák Sigurðsson son Sigurðar
Haralz. Útgefandi er Skuggsjá. í
kynningu bókarinnar er sagt frá þvf.
Geðdeild Landspítalans mun taka
virkan þátt í meðferð drykkjusjúkra
— FRÁ sjónarhóli læknis. sem
fæst við meðferð drykkjusjúkra,
tel ég mjög brýnt að geðdeildin
komist I gagnið á Landspltalalóð-
inni sem allra fyrst — ekki aðeins
vegna þess að nauðsyn er á auk-
inni aðstöðu til meðferðar
drykkjusjúkra, heldur kannski
fyrst og fremst vegna þess að
háskólasjúkrahús, sem annast
kennslu læknanema og annarra
heilbrigðisstétta, þarf nauðsyn-
lega að hafa geðdeild — sagði
Jóhannes Bergsveinsson geð-
læknir I viðtali við Morgunblaðið.
— Eins og staðan hefur verið hér
á undanförnum árum með sérstakan
geðspítala, þá læðist sú skoðun að
og verður tilfinning þeirra, sem þar
eru við nám, að líkami og sál séu
aðskilin fyrirbrigði, og menn fara að
lita á einstaka sjúkdóma í sjálfu sér
en ekki á sjúklinginn í heild „Ég hef
orðið þess var t d á meðal drykkju-
sjúkra, að þeir neita þvi að drykkju-
sýki sé geðrænn kvilli. Þetta viðhorf
byggist hvað mest á þvi að menn
gera sér ekki grein fyrir þvi að líkami
og sál starfa saman. Líta menn á
þetta sem sérgreinar, eitt sé geð-
sjúkdómar og geðrænir kvillar og
annað séu líkamlegir sjúkdómar og
líkamlegir kvillar — þetta eigi þvi
ekki samleið Menn vilja ekki viður-
kenna sjúkdóminn, þar sem hann
telst til geðsjúkdóms og því ekki
leita sér lækninga
— Þetta viðhorf verður að breyt-
ast, sagði Jóhannes, ekki aðeins
vegna drykkjusjúkra, heldur og
vegna annarra sjúklinga, sem þjást
af geðrænum kvillum Fyrirbrigði,
sem mikið hefur verið talað um, er
misnotkun alls konar ávana- og
fíkniefna, þar á meðal ávana- og
fíknefna, sem eru lyf, hangir saman
við þetta Menn hafa tilhneigingu til
þess að nota þessi efni án þess að
gera sér grein fyrir því að bak við
einkennin, sem þessi efni hafa áhrif
á, leynast geðrænar flækjur eða geð-
rænir kvillar, sem þarfnast aHt ann-
arrar meðferðar, og hana fá þeir
ekki. Þetta — og nauðsyn þess að
ekki má einungis líta á sjúklinginn
sem heild. heldur einnig verður að
lita á það félagslega umhverfi, sem
hann er í — má ekki aðskilja en það
verður aðskilið ef svo heldur áfram,
sem verið hefur, að háskólaspítalinn
sé rekinn án geðdeildar
„Þegar ég fór til Svíþjóðar að
skoða geðdeildir í sambandi við
hönnun geðdeildarinnar, þá kom ég
t.d. á Beckomberea-sjúkrahúsið i
Stokkhólmi, sem er stór geðspftali,
„geðspítalaófreskja' , sem víða er
unnt að sjá í heiminum, t.d. i Banda-
rikjunum Sviar hafa farið þá leið í
lausn vandamála spítalans, að þeir
hafa hreinlega byggt við hann deild
segir Jóhannes Berg-
sveinsson geólæknir
ir fyrir Ifkamlega sjúka Það gera
þeir til þess að þessi starfsemi fari
öll saman
Þá er það einnig, sagði Jóhannes
Bergsveinsson, að f framtfðinni er
unnt að reikna með þvi að geðdeild-
in við Landspítalann taki vírkan þátt
í meðferðinni á drykkjusjúkum og
þvi er nauðsynlegt, að þar séu
möguleikar til þess að þar sé unnt
að leggja sjúklinginn inn á aðrar
deildir — eða fá aðstoð frá öðrum
deildum og sérfræðingum. þegar
eitthvað fleira er að sjúklingnum og
einhverjir Ifkamlegir kvillar blandast
inn i. M: ður, sem kemur eftir lang-
varandi drykkju, svo sem nýlegt
dæmi sannar. á göngudeildina og er
með lungnabólgu mjög bráða, sem
hann hefur fengið af því, að móf-
stöðuaflið er skert, þyrfti nauðsyn-
lega að fara beint inn á lyflæknis-
deild í þessu tilviki, sem ég hef i
huga, tókst það, en hefðum við
fengið harm inn á Kleppsspitalann,
eins og allt eins hefði getað gerzt, þá
höfum við þar engan aðgang að
röntgen i húsinu Við höfum ekki
rannsóknastofu. sem er á vakt allan
sólarhringinn Það er margt þessu
llkt, sem menn gera sér alls ekki
grein fyrir. í þessu tilviki, sem ég
hefði allt eins getað verið um hjarta-
sjúkdómstilfelli að ræða Allt sllkt
þarf að kanna og þvi verður að lita á
sjúklinginn I heild
Morgunblaðíð spurði Jóhannes.
hvort hann liti svo á að um leið og
þeim áfanga sem geðdeild Landsplt-
alans væri, yrði náð, þyrfti þá að
reisa almennt sjúkrahús fyrir llkam-
lega kvilla á Kleppi til þess að gera
spitalann hæfari Jóhannes kvaðst
ekki vilja taka svo djúpt i árinni. þar
sem ætlunin væri að leggja niður
Kleppsspítalann, þar sem hann
stendur á svæði sem siðar á að
verða eins konar Otivistarsvæði Ef
hins vegar lægi fyrir að halda rekstri
spitalans 'fram, væri nauðsynlegt
að hann værí I nánuiu tengslum við
spítala fyrir fólk með likamlega sjúk-
dóma.
Jóhannes Bergsveinsson sagði
augljóst. að áfengissýki væri vax-
andi sjúkdómur i landinu og slikum
sjúkdómstilfellum haldi áfram að
fjölga svo lengi sem áfengisneyzlan
minnkaði ekki, svo að ekki sé talað
um á meðan hún færðist I vöxt
„Vitum við i rauninni ekki, hve mörg
rúm þarf Margt spilar þar inni, en
vitað er, að nauðsynlegt er að fá
miklu betri og meiri aðstöðu. Ekki
þarf einungis rúm. heldur einnig
göngudeild. Gagnslaust er að fá
aðeins göngudeild, því að einnig
þarf aðstöðu til þess að leggja sjúk-
lingana inn.
Nú eru rúmin alls 122. 17 rúm
eru á afvötnunardeildinni, deild nr
10 á Kleppsspltalanum, þá eru 23
rúm á eftirmeðferðardeildinni á
Vlfilsstöðum, slðan 46 rúm á hæl-
inu i Gunnarsholti og 36 rúm eru á
hælinu i Viðinesi Þá eru og nokkur
rúm á heimilinu i Hlaðgerðarkoti.
Flókadeildin er göngudeild og þar
eru ekki lengur rúm fyrir drykkju-
sjúka Jóhannes sagði að margir
teldu, að eftirmeðferðardeildin á
Vifilsstöðum hafi bætzt við þau rúm,
sem fyrir voru. þegar hún var opn-
uð. en svo er ekki, vegna þess að
aðstaðan á Kleppsspítalanum er
þannig að ekki er hægt að taka út
1 7 rúm fyrir afvötnunardeild öðru
vísi en koma sama fjölda af sjúkling-
um fyrir í gömlu Flókadeildinni.
„Þegar ég var stúdent inni á
Kleppi, og reyndar þegar ég var þar
fyrst aðstoðarlæknir í byrjun sjö-
unda áratugarins. þá voru þrengslin
aldeilis geysileg. Reyndar voru einu
sjúklingarnir. sem útskrifuðust þar
sæmilega fljótt drykkjusjúkir Aðrir
sjúklingar stöðnuðu á spítalanum og
hann var orðinn fullskipaður lang-
dvalarsjúklingum. Þurfti þvi gifur-
legt átak til þess að fækka sjúkling-
unum, þannig að á deildum spital-
ans yrði sá fjöldi, sem er I dag
Hann er raunar of mikill miðað við
húsnæðið Það sér hver maður, sem
I spítalann kemur Um sjúklingana
er mjög þröngt. og ef enn þrengist
þar verður spitalinn svo óaðlaðandi,
Framhald á bls. 18
a8 hér séu um að ræða „hreinskilnar
og opinskáar sögur úr fórum ævin-
týramannsins og frásagnarsnillings-
ins sem skrifaSi Lassaróna, Emi-
granta og Nú er tréfótur dauður".
Á bókarkápu eru ennfremur þær
upplýsingar um bókina, að lesandinn
fari með höfundi frá Hæstarétti til
Hrafnistu, með viðkomu á nokkrum
stöðum til sjávar og sveita, við nætur-
vörslu í Völundi eða í heimsókn hjá
Ingibjörgu og Þorgrlmi i Laugarnesi,
eins og komizt er að orði. Fjöldi manna
kemur við sögu. þ.a.m. Árni Þórarins-
son á Stórahrauni, Jón Norland lækn-
SigurSur Haralz.
ir. Jóhannes Kjarval, Jón Pálsson frá
Hllð, sem nú er farinn að koma vlða
við sögu eins og bókmenntafólk hefur
tekið eftir, m.a. I nýrri bók Halldórs
Laxness. Ungur ég var. fjármálamaður-
inn umdeildi Sigurður Berndsen. Guð-
brandur Magnússon I Rikinu og Sig-
urður Jónasson i Tóbakinu, eins og
þeir eru auðkenndir á kápunni. „Allt
voru þetta vinir Sigurðar Haralz og allt
voru þetta óvenjulegir persónuleikar,
stórbrotnir og skemmtilegir." Og svo
er klykkt út með þvi. að ekki skorti á
magnaðar draugasögur i bókina.
5. bókmennta-
kynningin á
Kjarvalsstöðum
FIMMTA bókmenntakynning Rit
höfundasambands Islands oj
Kjarvalsstaða verður sunnudag
inn 12. desember á Kjarvalsstöð
um kl. 4 siðdegis. Þar munu les;
úr verkum sínum: Guðmundu:
Gíslason Hagalin, Hannes Péturs
son, Pjétur Lárusson og Tho:
Vilhjálmsson.