Morgunblaðið - 10.12.1976, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
5
4 dagar eftir af
jólasundmóti öryrkja
-5-4'
Jólasundmót öryrkja 1976
25. nóv. - 13. des.
(nafn)
(aldur)
I
I
I Sundstaður:
(heimilisfang)
I^Örorka vegna:
I
I
1 Sendrst
til Í.S.Í.
(tilgreinið t d lömun. fötlun, blinda. vangefni o.s.frv
Þátttöku stadfestir
i Box 864, Reykjavik.''^^
„Að vera með er
stærsti sigurinn”
Ljósmynd Friðþjófur
Einn af nemendum Öskjuhlfðaskóla f jólasundmót-
inu.
— VIÐ vinnum stanzlaust að
því að fá öryrkja til að vera
með. Reynum að fá þetta fólk
til að trúa á sjálft sig, hætta að
loka sig inni eins og svo margir
því miður gera. Það er stað-
reynd að öryrkjar almennt geta
miklu meira en þeir trúa sjálf-
ir og jólasundmótið er góð
hvatning I þessa átt. Ég hef trú
að að það verði kveikjan að
virkari þátttöku öryrkja og geri
þá um leið að virkari þjóð-
félagsþegnum.
Það er Júlíus Arnarsson
iþróttakennari, sem mælir
þessi orð, en auk þess að vera
íþróttakennari I Garðabæ hefur
hann verið þjálfari Iþrótta-
félags fatlaðra. Hann hefur
mikið fylgst með Iþróttaiðkun-
um fatlaðra og annarra öryrkja
og var m.a. viðstaddur
Ólympiuleika fatlaðra í Kanada
í sumar.
— Sundíþróttin er tvímæla-
laust grein númer 1. fyrir fatl-
að fólk og það hve jólasundmót-
ið er í rauninni auðvelt i fram-
kvæmd ætti að fá fleiri til að
fara af stað. Okkur vantar alltaf
kynningu og auglýsingu á starfi
okkar og án efa bætast í hópinn
hjá okkur nokkrir, sem húg
hafa á að æfa, að þessu sund-
móti loknu. Þannig var það eft-
ir að íþróttafélag fatlaðra sendi
tvo þátttakendur á sundmót í
Svíþjóð, eftir að fréttir höfðu
birzt um það í blöðum urðu
fleiri til að mæta á æfingar hjá
okkur segir Júlíus, en íþrótta-
félag fatlaðra er með æfingar i
sundlaug Arbæjarskóla á mið-
vikudagskvöldum og síðdegis á
laugardögum.
Sundið er ekki eina íþrótta-
greinin, sem íþróttafélag fatl-
aðra er með á stefnuskrá, en
þar sem hér er verið að ræða
um jólasundmót öryrkja, þá
verður ekki fjallað um aðrar
greinar að sinni.
Á Ölympfuleikunum í Kan-
ada isumar kynntust þeir félag-
ar Júlíus Arnarson og Arnór
Pétursson því hvað mikið fatlað
fólk getur gert í iþróttum. —
Það var i einu orði sagt stór-
kostlegt að sjá kannski einfætt
og einhent fólk á fullri ferð i
sundlauginni og virtist ekkert
láta bæklun sina hafa áhrif á
sig, segir Júlíus.
1 skýrslu sem Arnór Péturs-
son tók saman um Ólympíuleik-
ana I Kanada greinir hann frá
því helzta sem bar fyrir augu
þeirra félaga og á einum stað
segir hann: — Munurinn var
mjög mikill á þeim béztu og
þeim lökustu, eins og virtist
vera I öllum greinum. Sá mun-
ur sýndi manni og sannaði að
kjörorð leikanna ,JIér sigra all-
ir, að vera með er stærsti sigur-
inn“ var svo sannarlega stað-
reynd.“
Að þessum orðum sögðum
sláum við botninn í þetta spjall,
en minnum á að síðustu forvöð
eru að taka þátt i jólasundmót-
inu eru á mánudaginn, en jóla-
sundmótinu lýkur á mánudags-
kvöldið. Þvl má bæta við að
skrifstofustúlkur Iþróttasam-
bans Islands hafa undanfarna
daga haft nóg aó gera við að
skrifa nöfn þátttakenda og
senda út viðurkenningarborða
um allt land og stöðugt bætist i
hóp þátttakendanna.
Kveikt á
Hamborgar-
jólatrénu
álaugardag
LAUGARDAGINN 11. des-
ember n.k. kl. 16.00 verður
kveikt á Hamborgarjóla-
trénu, sem Reykjavíkur-
höfn hefur nú eins og
mörg undanfarin ár fengið
sent frá Hamborg.
Tréð er gjöf frá klúbbnum
Wikingerrunde, sem er félags-
skapur fyrrverandi sjómanna,
blaða- og verslunarmanna i Ham-
borg og nágrenni.
Uwe Marek, blaðamaður frá
Hamborg, er hingað kominn
ásamt konu sinni til þess að af-
henda tréð, sem að venju verður
reist á hafnarbakkanum við Hafn-
arbúðir. Afhendingin fer fram á
laugardaginn kl. 16.00 að við-
stöddum borgarstjóranum í
Reykjavík, sendiherra Þýska sam-
bandslýðveldisins á tslandi og
öðrum gestum. Gunnar B. Guð-
mundsson hafnarstjóri mun veita
trénu móttöku.
Lúðrasveit Reykjavíkur mun
leika við Hafnarbúðir frá kl.
15.45.
Fíkniefnamálið:
Aðeins einn
í varðhaldi
AÐEINS einn maður situr nú I
gæzluvarðhaldi á vegum flkni-
efnadómstólsins vegna rannsókn-
ar á hinu umfangsmikla fíkni-
efnamáli sem þar hefur verið til
meðferðar síðustu mánuði. Er
þetta Bandarfkjamaður, sem tal-
inn er hafa verið hvað mest við-
riðinn dreifingu fikniefna innan
Keflavikurflugvallar. Var hann
upphaflega úrskurðaður í 35 daga
gæzluvarðhald en það síðan fram-
lengt um 30 daga til viðbótar sið-
astliðinn miðvikudag.
TIZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
Simi fra skiptiborði 28155