Morgunblaðið - 10.12.1976, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 10.12.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976 5 4 dagar eftir af jólasundmóti öryrkja -5-4' Jólasundmót öryrkja 1976 25. nóv. - 13. des. (nafn) (aldur) I I I Sundstaður: (heimilisfang) I^Örorka vegna: I I 1 Sendrst til Í.S.Í. (tilgreinið t d lömun. fötlun, blinda. vangefni o.s.frv Þátttöku stadfestir i Box 864, Reykjavik.''^^ „Að vera með er stærsti sigurinn” Ljósmynd Friðþjófur Einn af nemendum Öskjuhlfðaskóla f jólasundmót- inu. — VIÐ vinnum stanzlaust að því að fá öryrkja til að vera með. Reynum að fá þetta fólk til að trúa á sjálft sig, hætta að loka sig inni eins og svo margir því miður gera. Það er stað- reynd að öryrkjar almennt geta miklu meira en þeir trúa sjálf- ir og jólasundmótið er góð hvatning I þessa átt. Ég hef trú að að það verði kveikjan að virkari þátttöku öryrkja og geri þá um leið að virkari þjóð- félagsþegnum. Það er Júlíus Arnarsson iþróttakennari, sem mælir þessi orð, en auk þess að vera íþróttakennari I Garðabæ hefur hann verið þjálfari Iþrótta- félags fatlaðra. Hann hefur mikið fylgst með Iþróttaiðkun- um fatlaðra og annarra öryrkja og var m.a. viðstaddur Ólympiuleika fatlaðra í Kanada í sumar. — Sundíþróttin er tvímæla- laust grein númer 1. fyrir fatl- að fólk og það hve jólasundmót- ið er í rauninni auðvelt i fram- kvæmd ætti að fá fleiri til að fara af stað. Okkur vantar alltaf kynningu og auglýsingu á starfi okkar og án efa bætast í hópinn hjá okkur nokkrir, sem húg hafa á að æfa, að þessu sund- móti loknu. Þannig var það eft- ir að íþróttafélag fatlaðra sendi tvo þátttakendur á sundmót í Svíþjóð, eftir að fréttir höfðu birzt um það í blöðum urðu fleiri til að mæta á æfingar hjá okkur segir Júlíus, en íþrótta- félag fatlaðra er með æfingar i sundlaug Arbæjarskóla á mið- vikudagskvöldum og síðdegis á laugardögum. Sundið er ekki eina íþrótta- greinin, sem íþróttafélag fatl- aðra er með á stefnuskrá, en þar sem hér er verið að ræða um jólasundmót öryrkja, þá verður ekki fjallað um aðrar greinar að sinni. Á Ölympfuleikunum í Kan- ada isumar kynntust þeir félag- ar Júlíus Arnarson og Arnór Pétursson því hvað mikið fatlað fólk getur gert í iþróttum. — Það var i einu orði sagt stór- kostlegt að sjá kannski einfætt og einhent fólk á fullri ferð i sundlauginni og virtist ekkert láta bæklun sina hafa áhrif á sig, segir Júlíus. 1 skýrslu sem Arnór Péturs- son tók saman um Ólympíuleik- ana I Kanada greinir hann frá því helzta sem bar fyrir augu þeirra félaga og á einum stað segir hann: — Munurinn var mjög mikill á þeim béztu og þeim lökustu, eins og virtist vera I öllum greinum. Sá mun- ur sýndi manni og sannaði að kjörorð leikanna ,JIér sigra all- ir, að vera með er stærsti sigur- inn“ var svo sannarlega stað- reynd.“ Að þessum orðum sögðum sláum við botninn í þetta spjall, en minnum á að síðustu forvöð eru að taka þátt i jólasundmót- inu eru á mánudaginn, en jóla- sundmótinu lýkur á mánudags- kvöldið. Þvl má bæta við að skrifstofustúlkur Iþróttasam- bans Islands hafa undanfarna daga haft nóg aó gera við að skrifa nöfn þátttakenda og senda út viðurkenningarborða um allt land og stöðugt bætist i hóp þátttakendanna. Kveikt á Hamborgar- jólatrénu álaugardag LAUGARDAGINN 11. des- ember n.k. kl. 16.00 verður kveikt á Hamborgarjóla- trénu, sem Reykjavíkur- höfn hefur nú eins og mörg undanfarin ár fengið sent frá Hamborg. Tréð er gjöf frá klúbbnum Wikingerrunde, sem er félags- skapur fyrrverandi sjómanna, blaða- og verslunarmanna i Ham- borg og nágrenni. Uwe Marek, blaðamaður frá Hamborg, er hingað kominn ásamt konu sinni til þess að af- henda tréð, sem að venju verður reist á hafnarbakkanum við Hafn- arbúðir. Afhendingin fer fram á laugardaginn kl. 16.00 að við- stöddum borgarstjóranum í Reykjavík, sendiherra Þýska sam- bandslýðveldisins á tslandi og öðrum gestum. Gunnar B. Guð- mundsson hafnarstjóri mun veita trénu móttöku. Lúðrasveit Reykjavíkur mun leika við Hafnarbúðir frá kl. 15.45. Fíkniefnamálið: Aðeins einn í varðhaldi AÐEINS einn maður situr nú I gæzluvarðhaldi á vegum flkni- efnadómstólsins vegna rannsókn- ar á hinu umfangsmikla fíkni- efnamáli sem þar hefur verið til meðferðar síðustu mánuði. Er þetta Bandarfkjamaður, sem tal- inn er hafa verið hvað mest við- riðinn dreifingu fikniefna innan Keflavikurflugvallar. Var hann upphaflega úrskurðaður í 35 daga gæzluvarðhald en það síðan fram- lengt um 30 daga til viðbótar sið- astliðinn miðvikudag. TIZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR Simi fra skiptiborði 28155

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.