Morgunblaðið - 10.12.1976, Síða 11

Morgunblaðið - 10.12.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976 11 í Borgarnesi Iðnkynning í Borgarnesi Iðnkyn Stefán Ólafsson (Ijósm. ágás) Stefán Ólafsson skósmiður: ,,Nú bara ein- tómar helvítis vidgerdir 99 - skóari í 62 ár ,4A, hvað ætli kommarnir segðu núna, og kratarnir lfka, ef f dag þyrftu menn að læra við slfkar aðstæður og maður þurfti f byrjun aldarinnar? — Þá þurfti ekkert að kaupa unglingana til að læra, og ekki þurfti það opinbera að borga mönnum kaup til að læra. — Og svo þurfti maður lfka að vinna, sko. Það var nú þannig sko að fyrstu árin var ég bara ráðinn til að læra hjá mfnum meistara og fæða þurfti ég mig sjálfur. Maður þurfti að vinna, og það komu tfmar þegar nóttin var lögð við dag, eins og t.d. á tfma- bilinu frá nóvember til fébrúar, þegar mikið lá við að gera skútu- karlana klára. Það var mikið að gera f þvf sambandi, og það var erfitt að smfða skutukarla- sjóstfgvél. Þau voru úr þykku efni, því þá var ekkert gúmmíið. En það komu þó Ifka góðir tfmar og þá var nú ekki puðað eins mikið, þótt alltaf væri nóg að gera.“ Eitthvað á þessa leið mælti Stefán Ólafsson skósmiður á Borgarnesi, þegar við tókum hann tali nú nýverið. — Stefán var þá á vinnustofu sinni, en að eigin sögn er hann - farinn að minnka sinn vinnutíma og nú vinnur hann aðeins 4 klst hvern dag, þótt áður hafi 12 klst tíma vinnudagur varla dugað til að sinna verkefnunum. Á vinnu- stofunni, sem er i fyrrum Ibúðar- húsi Stefáns við Borgarbraut, úir og grúir af nútímaverkfærum og vélum sem til skóviðgerða notast. Stóru vélarnar voru af nýrra taginu, og þykir það ef til vill sérstætt, þegar höfð er í huga sú tækni sem Stefán nam sína iðn við og tíðkaðist fram eftir starfs- aldri hans svo og hár aldur Stefáns, en hann er 81 árs að aldri þó svo að það beri hann ekki beint utan á sér. — Stefán Ólafsson er fæddur í Hjarðarholti i Stafholtstungum á árinu 1895. Giftur er hann Sigur- björgu Magnúsdóttir ættaðri af Vatnsleysuströnd, systir Erlends á Kálfatjörnum. Skósmiðanám hóf Stefán á Akranesi á árinu 1910 hjá meistara þar sem hét Jón Jónsson. Sagði Stefán meistara sinn hafa verið stórmenni og hafa verið ákaflega vel liðinn af öllum. Jón þessi hætti skósmíðum stuttu eftir að Stefán hafði lokið námi og gerðist sveatarbóndi í Fellsöxl i Innri-Akraneshreppi, að sögn Stefáns. — Námi lauk Stefán árið 1914. Fluttist hann þegar til Borgarness og setti upp stofu þar. Tjáði hann Mbl. að hann hefði keypt sín verkfæri aó mestu af Eggert Eiríkssyni, sem þá var að hætta skósmíðum, en hann hafði verið með stofu á Akranesi. — Það var svolítið sérkennileg tið daginn sem ég kom hingað til Borgarness að námi loknu sagði Stefán. Það var 20. maí 1914, og kom ég með danska skipinu Kong Helgi, sem margir kannast við frá þessum árum. Veðrið þann dag var þannag, að á var svartabylur og á landi allsstaðar ökkladjúpur snjór Skósmíðin hefur breyst með tfmanum — Þegar ég lærði og byrjaði mitt starf þá voru ekki nein tæki i þessari iðn nema saumavélin ein sér. Nú er öldin önnur og nota menn allskyns vélar og áhöld sér til aðstoðar. Verkefnin hafa lika breyst með timanum. Fram til 1940 var miklu meiri vinna I nýsmíði alls konar heldur en í viðgerðum. Nú eru nýsmíðarnar horfnar og iðnin ekkert nema helvítis viðgerðir, eintómar viðgerðir. Aðspurður sagðist Stefán svo sem ekkert sjá eftir nýsmíðunum. Þær hafi verið erfiðar, eins og t.d. smíði sjóstíg- véla, en þó skemmtilegar. Sagðist Stefán litið hafa smíðað af sjóstig- vélum eftir að hann kom til Borgarness, þá hafi tekið við smíði reiðstigvéla fyrir karlmenn, spariskór og alls konar vinnu- skófatnaður. — Það má segja um skósmíðina að hún hefur gengið í gegnum sams konar breytingar og heyskapurinn hvað vinnsluna snertir. Áður var þetta mest handavinna, eins og heyskaður- inn, en nú er þetta hvorttveggja að svo til öllu leyti vélavinna. Þótt ég hafi lært við frumstæðari aðstæður en nú þekkjast, þá hefur ekkert þýtt annað en að fylgjast með tækninni. Það hefði lítið stoðað með því að stanza í gömlu tækninni. Ja, það þætti sennilega flestum heyskapur upp á gamla mátanna ganga hægt fyrir sig nú til dags. — Stefán sagðist vera kominn af bændafólki, og hafði hann hugsað sér að verða bóndi. — Þær fyrirætlanir fóru þó allar út um þúfur þegar faðir minn réð mig til náms I skósmíði. Var hann búinn að því áður en ég vissi af, og það varð að standa. Það hafði að visu verið innra með mér að nema trésmfði, þ.e. húsasmíði, og var ég við slíkt í alls þrjú ár. Lauk ég þó aldrei prófi i þeirri iðn, og urðu skósmiðarnar mitt hlutskipti, og Framhald á bls. 19 Spil Muggs gefin út í annað sinn Fyrstu islenzku spilin teiknaði Guðmundur Thorsteinsson, Muggur, en Bjarni Þ. Magnússon. sem var góðvinur Muggs, gaf þau út árið 1922. Spilin seldust fljót- lega upp og eru nú mjög fágæt. Nú hafa þessi spil verið gefin út I annað sinn. Rétt er að taka fram, með tilliti til safnara, að 1. útgáfa spilanna hefur þau sérkenni, að engin hætta er á, að þessum tveimur útgáfum verði ruglað saman. Spiladrottningar Guðmundar klæðast íslenzkum búningum og gosarnir eru I gervi bónda, sjómanns, verkamanns og stúdents. Ásarnir eru með mynd- um frá ýmsum stöðum á landinu, en um kóngana er ekkert sérstakt að segja. Hluti af fyrstu sendingu var gefinn Rauða krossi Islands, sem mun selja spilin í verzlunum sin- um á spitölum, en annars er aðal- útsölustaður i frímerkjamiðstöð- inni á Skólavörðustig. Þannig lltur tfgulgosinn í spilun- um út. TlZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS KARNABÆR Simi frá skiptibofði 281S5

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.