Morgunblaðið - 10.12.1976, Síða 16

Morgunblaðið - 10.12.1976, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976 Utgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ofgaöflin taka völdin í Alþýðubandalaginu Ásíðustu árum hefur svo virzt, sem nokkrar breytingar væru að verða á Alþýðubandalaginu sem stjórnmálaflokki og arf- taka Sósíalistaflokksins í íslenzkum stjórnmálum. Hinir gömlu forirtgjar kommúnista sem voru alls- ráðandi í Kommúnista- flokki íslands og síðar Só- síalistaflokknum og Al- þýðubandalaginu, hafa smátt og smátt dregið sig í hlé, og nýir menn komið til skjalanna. Enda þótt aug- ljóst hafi verið, að þessir nýju menn væru undir sterkum áhrifum frá hin- um gömlu foringjum kommúnista hefur þó mátt merkja nokkra breytingu á viðhorfum þeirra frá því, sem áður var. Eftir að for- maður Alþýðubandalags- ins gaf í skyn í blaðagrein í haust, að Alþýðubandalag- ið kynni að breyta um stefnu í utanríkis- og varnarmálum, a.m.k. að því er varðaði þá áherzlu, sem flokkurinn hingað til hefur lagt á þessa málaflokka, hafa menn að vonum velt því fyrir sér, hvort breytt afstaða gæti skapað nýjar víddir i íslenzkum stjórn- málum. Atburðarásin á þingi ASÍ hefur dregið úr líkum á því að svo sé. Margt bendir til þess, að ofstækisfull öfga- öfl séu að komast til stór- aukinna áhrifa í Alþýðu- bandalaginu. Fyrir ASÍ- þing var vitað, að mikil átök stóðu yfir í verkalýðs- armi Alþýðubandalagsins. Þar tókust á hinir ábyrgari verkalýðsforingjar þess og öfgaöflin. Hin síðarnefndu vildu gera tilraun til þess að „hreinsa út“ lýðræðis- sinnuð öfl í miðstjórn ASÍ. Hinir fyrrnefndu töldu óhyggilegt að raska því jafnvægi, sem verið hefur milli ólíkra hópa í ASÍ um skeið. Talið var víst fyrir þingið, að hinir ábyrgari menn hefðu orðið ofan á. En þegar á þingið kom varð ljóst, að þeir réðu ekki við órólegu deildina, sem svo hefur verið kölluð. Á þinginu kom í ljós, að öfga- mennirnir eru orðnir svo áhrifamiklir í Alþýðu- bandalaginu, að þeir geta farið sínu fram, hvað sem hinir reyndari forystu- menn segja. Þessi staðreynd boðar aukin átök í verkalýðs- félögunum og á vinnu- markanum. Framferði öfgamanna á ASÍ-þingi sýnir að vænta má harðn- andi átaka innan verka- lýðshreyfingarinnar. Hin einstöku verkalýðsfélög hafa á annan áratug verið blessunarlega laus við flokkspólitísk átök innan sinna vébanda. Um og upp úr 1960 fóru fram harðar kosningar í flestum hinna stærri verkalýðsfélaga. Flokksvélarnar tóku þátt í þeirri kosningabaráttu. Nú má búast við, að öfgamenn- irnir í Alþýðubandalaginu vinni markvisst að því að ryðja lýðræðissinnum úr áhrifastöðum innan verka- lýðssamtakanna. Þetta þýð- ir að lýðræðissinnar hvar í flokki, sem þeir standa, verða að snúa bökum sam- an og standa sameiginlega gegn væntanlegu áhlaupi öfgamanna i röðum komm- únista. Það er líka ljóst, að of- stopamennirnir hefðu ekki náð svo langt, sem raun ber vitni um á ASt-þingi, ef þeir hefðu ekki þegar náð umtalsverðum styrkleika innan Alþýðubandalagsins sjálfs. Margt bendir til þess að skipulega sé unnið að því að ryðja hinum hóf- samari forystumönnum Al- þýðubandalagsins til hlið- ar. Alþýðubandalagið yrði þá í enn ríkara mæli en nú er harðsvíraður kommún- istaflokkur, sem beitti öll- um þeim vinnubrögðum, sem slíkum flokkum eru töm. Slík þróun innan Al- þýðubandalagsins nú mundi að sjálfsögðu hafa þau áhrif, að flokkurinn mundi einangra sig frá hvers kyns samstarfi við aðra flokka, þvi að rétttrú- aðir kommúnistaflokkar eru ósamstarfshæfir. Um leið er auðvitað ljóst, að slík þróun herðir samstarf lýðræðisflokkanna í land- inu, bæði þeirra, sem nú starfa saman i ríkisstjórn, og þeirra, sem utan við standa. Menn verða að gera sér grein fyrir því strax, að yfirvofandi valdataka öfga- aflanna í Alþýðubandalag- inu mundi leiða til þess að stjórnmálabaráttan hér á landi harðnar mjög og verður harðskeyttari og all- vígari en hún hefur verið um nokkurt skeið. Lýð- ræðissinnar verða að búa sig undir það. Hitt er svo eftir að sjá, hvernig hinir hófsamari menn í Alþýðu- bandalaginu bregðast við þessari þróun og hvort þeir gera ráðstafanir til þess að vísa öfgaöflunum á bug. Þessi þróun, hvernig, sem hún verður, mun hafa mik- il áhrif á framvindu ís- lenzkra stjórnmála næstu árin. Heldur fleiri erlendir ferða- menn en í fyrra FRÁ áramótum til 1. þessa mánaðar komu 69.325 erlendir ferða- menn hingað til lands og er það aðeins meira en á sama tima í fyrra. Alls hafa í ár komið 123.839 ferðamenn hingað og af þeim eru Islendingar 55.672. t nóvembermánuði sl. komu hingað til lands 5.585 ferðamenn, 3319 Islending- ar og 2266 erlendir ferða- menn. Voru Bandaríkja- menn fjölmennastir 1 þess- um hópi, eða 1120, Danir 150, Svíar 145, Norðmenn 129, Spánverjar 191 og V- Þjóðverjar 94. Hér má sjá „jólagjöf vélaiðnaðarins til hraðfrystiiðnaðarins** eins og stjóri Stáivirkjans, komst svo skemmtilega að orði. Lengst til hægri st einnig sjást dælurnar og stjórnbúnaður. Hjá „jólagjöfinni" standa f. Bjarni Guðlaugsson framkvæmdastjóri Stálvirkjans og Alexander Sigi Islenzk fiskkassaþvottavél ýmsum nýjungum komin á FYRIR skömmu var lokið við smlði á fyrstu fslenzku fiskkassa- þvottavélinni og er hún sérhönn- uð með tilliti til fslenzkra að- stæðna. Það er Halldór Gfslason, verkfræðingur sem hefur hannað vélina, en Stálvirkinn h.f. sá um smfði hennar en það fyrirtæki hefur smfðað fjölmargar vélar fyrir fsienzkan iðnað. Þessi nýa þvottavél hefur ýmsa kosti fram yfir þær erlendu, sem hingað hafa verið keyptar. Felst það aðallega í þvf að f henni eru sérstakir vatnsventlar, sem snú- ast af miklum krafti og skola kass- ana mjög vel, en slfkir snúnings- ventlar munu vera nýjung f vél- um af þessu tagi. Mjög kraftmikl- ar, riðfríar dælur eru f vélinni og erskolkrafturinn meiri en venju- lega gerist eða 12 kg/fsm. Þá er vélin breiðari en hingað til hefur þekkzt, þannig að auk fiskkass- anna er hægt að þvo frystipönnur og trébrettin, sem kössunum er staflað á. Vélin er algjörlega sjálfvirk og við þvott fara kassarnir gegnum þrjú stig: forskolun, þvott og loka- skolun, og að þvotti loknum koma þeir sjóðheitir úr vélinni þannig að þeir þorna mjög fljótt. Sfðan er hægt að útbúa færiband frá vél- inni og þarf því lítinn mannafla við þvottinn. Halldór gerir í hönn- un sinni ráð fyrir þremur mis- munandi hröðum, sem stilla má eftir þvf hvað kassarnir eru óhreinir. Hámarksafköst þessarar fyrstu vélar eru 300 kassar á klst., en búið er að selja hana til Skaga- strandar og þótti ekki ástæða til að hafa afköst vélarinnar meiri. Hins vegar gerir Halldór ráð fyrir hámarksafköstum allt að 7—800 kössum á klst. Halldór hefur éinnig gert ráð fyrir mismunandi aðstæðum á hverjum stað hvað varðar orku til að knýja vélina. Þessi vél er búin öflugum elementum sem hita vatnið en einnig er hægt að útbúa vélina fyrir hitaveitu, sem yrði töluvert ódýrara. Vélin er einnig sjálfvirk að þvf leyti að ef ekki er nægilegt vatn á henni, slekkur hún á sér, og held- ur þannig alltaf réttu vatnsyfir- borði. Þá er á vélinni klukkurofi, svo hægt er að láta hana kveikja sjálfkrafa á sér og hita vatnið á nóttunni, þegan. rafmagnið er ódýrast, og þannig er hún tilbúin til notkunar strax og menn hefja vinnu að morgni. Verð vélarinnar mun vera 314 — 4 milljónir en til samanburðar má geta þess að erlendu þvotta- vélarnar, sem hingað hafa verið keyptar, munu kosta frá 4 — 6 milljónum. Þá má einnig geta þess að gert er ráð fyrir að kostn- aður á ári við að handþvo fisk- kassa úr einum togara nemi urn 214 milljón. Sem fyrr sagði hefur vélin þegar verið seld til Skaga- Blaðað f nýju bókinni. F.v. Brynjólfur Bjarnason forstjóri A.B., Tómas Guðmundsson formaður bókmenntaráðs AB, en hann vakti fyrstur manna máls á útgáfu bókarinnar, og Þór Magnússon þjóðminjavörður. A myndina vantar Eirfk Hrein Finnbogason bókmenntafræðing, sem einnig á þátt í útgáfu bókarinnar. Ljósm. Friðþjófur. Ein myndanna f bókinni, sem gel Bændurnir eru komnir f kaupsi greiðslu. Kaupmaður og búðarþjc Ekki er vitað nákvæmlega hven: ráða af klæðaburði mannanna. Ný bók: Ljósmyndir Sigfúsar Eymund Fróðleikur í myndum i HJÁ Almenna bókafélaginu er kominn út ný bók, sem nefnist Ljósmyndir Sigfúsar Eymundssonar. Er hér um að ræða bók með um 100 Ijós- myndum af húsum, mann- virkjum og mannlffi í Reykja- vfk og þorpum og sveitabæj- um úti um land, sem kenndar eru við Sigfns Eymundsson Ijósmyndara og bóksala. Sigfús Eymundsson (1837—-191 1) var einn af frumkvöðl- um Ijósmyndunar hér á landi og var hann mjög mikilvirkur Ijósmyndari, einkum framan af, og varð hann fyrstur Ijósmyndara til að taka útimyndir að ráði Myndaefnin hans var mjög fjöl- þætt, mannamyndir. myndir af mann- virkjum og atburðum, bæjum . fiusum, fólki við dagleg störf. skipum og bát- um. útgerðarstöðum og yfirleitt flest- um þáttum þjóðltfs þess tíma Þótt titill bókarinnar bendi aðeins til verka Sigfúsar eins, eru þó teknar með allmargar myndir, sem líkur eða jafnvel vissa er fyrír, að Dantel Dantelsson. mágur hans og eftirmaður, hefur tekið Dantel hafði lært Ijósmyndun bæði hjá Sigfúsi og éinnig erlendis og tók hann margar myndir i nafni Sigfúsar og rak Ijósmyndastofu hans stðustu árin. Plöturnar eru þó allar ómerktar og óskráðar og er þvi oft vafamál, hverjar Sigfús og hverjar Danlel hefur tekið Má þó gera ráð fyrir að Daniel hafi tekið nýrri myndirnar allflestar Að Sigfúsi látnum keypti Þjóðminja- safnið allt plötusafn hans, sem var mikið að vöxtum, og eru allar myndirn- ar i bókinni unnar af þeim plötum. en þær hefur valið Þór Magnússon, þjóð- minjavörður. Þótt Ijósmyndirnar tali mest sjálfar stnu máli ! bókinni. fylgja þeim einnig greinargóðar upplýsingar, bæði um myndefnið sjálft og annað tengt þvi. —Flefur Þór Magnússon samið skýringarnar, en hann ritar einnig for-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.