Morgunblaðið - 10.12.1976, Page 17

Morgunblaðið - 10.12.1976, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976 17 Ljósm. Friðþjófur. Bjarni Guðlaugsson, framkvæmda- íst hvar óhreinu kassarnir fara inn, v. Halldór Gfslason verkfræðingur, urðsson eigandi Stálvirkjans. með markað strandar og er þegar byrjað að smíða aðra vélina, enda kvað Hall- dór þörfina mikla og sýndi þetta að ekkert stæði í vegi fyrir Is- lenzkum iðnaði ef einhverja fyrir- greiðslu væri að fá hjá hinu opin- bera. Ekki tók Halldór heldur fyr- ir þann möguleika að vélin yrði seld til annarra landa, þvf fisk- kassar eru mikið notaðir um allan heim. Halldór er verkfræðingur að mennt. Hann starfaði um árabil fyrir Fiskmat rlkisins og þar kynntist hann upphaflega notkun fiskkassa og þeim erfiðleikum, sem fylgja þvf að hreinsa þá. Nú undanfarið hefur hann starfað fyrir Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna. Þess má geta að I dag mun vélin verða til sýnis öllum, sem áhuga hafa, 1 Hraðfrystistöðinni á Grandagarði frá 10—12 og 14— 16. Fur skemmtilega mynd af þjóólffinu. taðinn með ullina og bfða eftir af- inn skeggræða hjá pakkhúsdyrunum. er myndin er tekin, en ýmislegt má ssonar EráAB mála að bókinni, þar sem hann gerir grein fyrir upphafi Ijósmyndunar, segir frá lífi og starfi Sigfúsar og Danlels o.fl. Þótt auðvelt sé að staðfæra flestar myndanna, er stundum erfitt að tfma- setja þær nákvæmlega, en elzta mynd- in, sem tlmasett verður með öruggri vissu, er tekin I Stykkishólmi haustið 1868 Elzta myndi'" j. Reykjavfk er hins vegar frá I- _,st fyrir R70 og er hún jafnfram. talin ein elztó 'iósmynd sem til e. af Reykjavfk Bókin er 1 20 bls. að stærð, i b. ’inu 26x26 sm Um umbrot og útlit á Graffk og hönnun — Ottó Ólafsso. Bókin kostar 5 880.00,- krónur. Pólverjar: Fái veiðiheimildir í norskri lögsögu Ósló, 9. des. Ntb. SEINT í gærkvöldi, 8. des. náðist samkomulag um samning milli Norðmanna og Pólverja, þar sem Pólverjar fá heimild til að veiða f efnahagslögsögu Noregs norðan 62. breiddargráðu, eftir að þeir færa út I 200 mílur 1. janúar n.k. Það voru Jens Evensen hafréttar- ráðherra og pólski aðstoðarutan- ríkisráðherrann E. Winniewski, sem orðuðu drög þau sem unnið verður eftir. Pólska sendinefndin var i Ósló dagana 6. — 8. desember 1 þessu augnamiði. Ekki verður gert kunnugt að svo stöddu hvað felst I samkomulagsdrögum þessum. Noregur: Lögþingið stað- festi útfærslu Ósló, 9. des. Ntb. NORSKA lögþingið staðfesti ( dag samþykkt efri deildar þings- ins, óðalsþingsins, um 200 milna efnahagslögsögu Noregs frá og með 1. janúar n.k. Formaður fiskimálanefndar þingsins, Valt- er Gabrielsen, sagði að það væri Norev hvatning, svo og Sovétrfkj- unum að ná samkomulagi um að- gerðir sem gæti orðið til verndun- ar þorskstofnanum, eftir að starf Norðausturatlantshafsfiskveiði- nefndarinnar hefði nánast farið út um þúfur. Hann sagði að Norðmenn yrðu að mynda sér skýra afstöðu um þær aðgerðir sem yrði að gripa til, veiðikvóta fyrir erlend skip 1 lög- sögu þeirri, bann við notkun flot- trolls bæði fyrir norska og er- lenda fiskimenn, setja yrði nákvæmar reglur um möskva- stærð og fylgja öllum þessum ákvæðum eftar. Formaður utanríkismálanefnd- ar lögþingsins, Tor Oftedal, sagð- ist fagna samþykktinni og sagði það sérstakt gleðiefni hversu mik- ill einhugur hefði komið fram meðal Norðmanna og einnig væri gleðiefni að ýmis önnur ríki hefðu sýnt skilning á brýnni þörf Norðmanna fyrir þessar aðgerðir. Hann sagði að Norðmenn hefðu orðið að gera sér ljóst að svo kynni að fara að kurr kæmi upp meðal annarra þjóða, en flest benti til að Norðmenn slyppu við að lenda í þorskastríði. Gilmoremálið: Gilmore með lögfræðingi sfnum Ronald Stanger. Lagalegar forsendur til aftöku brostnar? Salt Lake City, 9. des. Reuter. Ntb. LÖGFRÆÐINGUR Gary Gilmor- es, hins fræga dauðadæmda fanga I Salt Lake City krafðist þess i dag að Gilmore yrði látinn laus vegna þess að hann hefði ekki verið tekinn af lffi innan 60 daga frá dómsuppkvaðningu eins og lögin gera ráð fyrir. Lögfræðingurinn staðhæfði að þar sem Gilmore hefði ekki verið lfflátinn á mánudaginn var eins og talað hefði verið um, væru þar með lagalegar forsendur brostnar fyrir aftöku hans. Hann benti og á að Gilmore hefði verið dæmdur til dauða en ekki til setu I lífstíðarfangelsi og hefði öll meðferð á honum ein- kennzt af ómannúðlegri meðferð og lögleysu. Gilmore hefur ekki tjáð sig um þetta efni, en hins vegar lét hann óspart gremju slna I ljós eftir að móðir hans blandaði sér I málið um sl. helgi og óskaði eftir að aftöku yrði frestað. Gilmore sagði að hann kærði sig ekki um slíka afskiptasemi. Liðsmenn „járnfrú- arinnar” óstýrilátir Lundúnum, 9. desember. Reuter. ÞRtR málsmetandi þingmenn brezka Ihaldsflokksins hafa sagt skilið við Margaret Thatchér vegna hatrammra deilna innan þingflokksins vegna þeirra fyrir- mæla flokksleiðtogans að allir st jórnarandstöðuþingmenn greiði atkvæði gegn stjórnarfrumvarpi um að Skotland og Wales fái tak- markaða sjálfstjórn, en atkvæða- greiðslan á að fara fram f næstu viku. Ihaldsþingmennirnir þrír eru allir frá Skotlandi. Einn þeirra er Alick Buchanan-Smith, talsmaður skuggaráðuneytis Thatchers I Skotlandsmálum, en hann hefur gegnt aðstoðarráðherraembætti I stjórn íhaldsflokksins og fór þá með málefni Skotlands. Buchan- an-Smith og samherjar hans I þessu máli hafa allir beitt sér mjög fyrir sjálfstjórnarmálinu. Þegar eftir að tilkynnt hafði verið um ákvörðun Skotanna skipaði Thatcher nýjan talsmann I Skot- landsmálum, en það er Teddy Taylor, sem verið hefur talsmað- ur þingflokksins I iðnaðarmálum. Hann er eindreginn andstæðing- ur sjálfsstjórnar einstakra héraða eða landshluta. Svo virðist sem 20 Ihaldsþ'jng- menn muni greiða atkvæði I and- stöðu við stefnu Thatchers i sjálfsstjórnarmálinu i næstu viku, og meðal þeirra, sem þráast við að láta formanninn skipa sér fyrir verkum á þennan hátt, er Edward Heath, fyrrverandi for- maður íhaldsflokksins og for- sætisráðherra. Amin ætlaði að láta ræna prinsessunni London 8. des. Reuter. TVEIR herforingjar Idi Amins Úgandaforseta voru handteknir og yfirheyrðir er þeir komu til Heathrowsflugvallar. Játuðu þeir, þegar á þá var gengið, að þeir væru komnir þeirra erinda að sækja Elizabeth Okit, prinsessu, sem um skamma stund var utanríkisráðherra Úganda, og ætluðu þeir að flytja hana með sér til Úganda nauðuga viljuga. Mennirnir, sem voru óeinkennisklæddir, sögðu starfsmönnum innflytjendaeftirlitsins i fyrstu að þeir væru í viðskiptaerindum, en við nánari yfir- heyrslur drógust þeir á að játa hið sanna. Mennirnir voru fluttir til lög- úr starfi utanríkisráðherra reglustöðvar og þangað var Oganda I nóvember 1974 og var stefnt einnig stúlkunni, Eliza- beth Okit, og hún spurð hvort hún bæri kennsl á mennina, en annar þeirra kvaðst vera frændi hennar. Mennirnir fá ekki landvistarleyfi I Bretlandi fyrr en málið hefur verið kann- að nánar. Elizabeth prinsessa var rekin sakaði Amin hana um ósiðlegt athæfi og eyðslusemi með al- mannafé, svo og fyrar að hafa haft mök við vestrænan dipló- mat á salerni á Orlyflugvelli. Hún flúði til Kenya og komst slðar til London og hefur búið þar síðan undir nafninu Eliza- beth Okit. Hoss hefur myndað ríkisstiórn í Líbanon Beirut 9.des. Reuter. SELIM Al-hoss, forsætisráðherra Libanons, tilkynnti I kvöld aS hann hefSi myndaS átta manna utanþings- stjóm. en Sarkis forseti fól honum verkiS I gær. Þar var kveSiS svo á um aS Hoss myndaSi utanþings- stjóm sárfræSinga sem stjórnaSi uppbyggingu landsins eftir 19 mán- aSa borgarstyrjöld. i nýju stjóminni sitja meSal annars verkfræSingur, kaupsýslumaSur, bankastjóri og læknir. Hoss. sem er hagfræSingur, fer meS efnahagsmál, iSnaSar-, oliu- og upplýsingamál. InnanrlkisráS- herraembættiS sem er meiriháttar verSur I höndum dr. Salah Salman, sem er læknir aS mennt og hefur áSur gegnt ráSherraembætti. Varnar- málaráSherra verSur Fuad Butros, grlskur orthodox og lögfræSingur. Fjármála- og dómsmálaráSuneytin verSa I höndum Farid Raphael, sem er bankastjóri. KAMAL Jumblatt, leiðtogi vinstri sinna i Libanon. krafðist þess i dag að nýja libanska rikisstjórnin tækist fyrst á við hinn pólitíska vanda í landinu, sem væri meiri en hinn efnahagslega „Efnahagsmálin eru ekki eins aðkall- andi", sagði Jumblatt við Reuter og bætti þvi við að það sem mest væri um vert væri að jafna rétt kristinna og múhammeðstrúarmanna i landinu, ella kæmist þar ekki á varanlegt jafnvægi og friður. Jumblatt sagði að frumskylda væri að láta alla flóttamenn komast á ný heim til sín og þegar þvi væri lokið væri hægt að snúa sér að pólitískum umræðum og nýrri stjórnarskrá. Hann sagði að menn hefðu gert of mikið úr þvi efnahagshruni sem orðið hefði i landinu. enda þótt jtt væri að marg- ichæfir ungir menn hefðu ýmist flúið eða fallið i striðinu. Mjög rólegt hefur verið I Llbanon slðustu þrjár vikur og aðeins komið til óskipulagðra dreifðra bardaga en báðir aðilar, vinstri- og hægrisinnar. telja þó of mikla bjartsýni að spá þvi að erfið- leikarnir séu á enda Camille Chamoun. hægrisinnaður forystumaður hvatti til þess að kan- túnukerfi, i likingu við það sem er i Sviss, yrði komið á, en Jumblatt visaði þeirri hugmynd á bug og sagði að vinstrimenn krefðust þess að fá þing- styrk sem væri i samræmi við það fylgi sem þeir hefðu í landinu i núverandi lögum hafa kristnir menn 54 sæti i þinginu en Múhamm- eðstrúarmenn 45

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.