Morgunblaðið - 10.12.1976, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
Jólaplöturnar
fást allar hjá
okkur
ASTÞÖRP
Bankastræti 8, sími 17650
CASIO FX — 102
heimsins fyrsta tölva með
almennum brotum, brotabrotum
og skekkjureikningi
I 8TH úu LJ Yii- Lj
LJ LJ LmmJ 1 * 1 LmmJ
i j LJ LJ LJ 1 i
I i
li) UJ
uu
Verðkr 11.995-
STÁLTÆKI
Vesturveri, simi 2 7510
Listskautar
Hockeyskautar
13,
• sími 1 3508.
Bergljót - ný skáldsaga eftir
Ingibjörgu Sigurðardóttur
MORGUNBLAÐINU hefur borist |
| ný ástarsaga eftir Ingibjörgu
| Sigurðardóttur. Bókin er gefin út
af forlagi Odds Björnssonar á
Akureyri.
Ingibjörg Sigurðardóttir hefur
| skrifað margar skáldsögur, eins,
og kunnugt er og á bókarkápu er
þessi nýja skáldsaga hennar
kynnt með svofelldum orðum:
„Þetta er nýjasta ástarsaga
hinnar vinsælu skáldkonu og sú
sautjánda i röðinni.“
„Bergljót virðir unga, ókunna
manninn fyrir sér, háan og grann-
vaxinn með ljósliðað hár og
dimmblá augu, fölan yfirlitum en
frfðan sýnum. Honum fylgir eitt-
Gætu orðið
afdrifarík
mistök
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi frá hreppsnefnd Glæsi-
bæjarhrepps:
Hreppsnefnd Glæsibæjar-
hrepps lýsir sig eindregið andvíga
framkominni hugmynd um bygg-
ingu álvers við Eyjaf jörð.
Greinargerð:
Eyjafjörður er eitt þéttbýlasta
landbúnaðarhérað á Islandi. Þar
er búið að byggja upp traustan og
þróttmikinn landbúnað, sem
framleiðir fimmtung alls mjólk-
urmagns í landinu og umtalsvert
magn af jarðeplum og kjöti.
Héraðið er, vegna hagstæðra
náttúruskilyrða og framúrskar-
andi veðursældar, mjög vel fallið
til grasræktar og heyöflunar,
enda er drjúgur hluti undirlend-
isins ræktaður og mætti þó enn
auka þar allmiklu við. Það hefur
líka oftsinnis, í harðindisárum,
reynst sannkallað heyforðabúr og
miðlað heyfóðri viðsvegar um
land. Veðurfar í Eyjafirði ein-
kennist af staðviðri.
Á sumrum eru hægviðri tíð og
þá gjarnan með hafgolu siðari
hluta dags. Á vetrum er sunnan
átt rikjandí, svokallaðir dalvind-
hvað nýtt og framandi... og hann
átti eftir að verða örlagavaldur I
lífi Bergljótar ...“
Klórad í
bakkann
UT er komin ljóðabókin Klórað I
bakkann eftir Jón Þorleifsson.
Bókaútgáfa Leturs gefur bókina
út, en hún skiptist í 6 kafla með
alls 57 ljóðum. Áður hefur Jón
gefið út Nútimakviksetningu og
Lýðræði eða hvað?
ar. Urkoma er lítil og útskolun úr
jarðvegi í lágmarki. Slík veðrátta
getur varað vikum saman og I því
sambandi er.skemmst að minnast
siðastliðins sumars, þar sem vart
kom dropi úr lofti, frá lokum júlí-
mánaðar þar til vika var liðin af
október.
i sliku tíðarfari, innan hinna
háu fjalla er kringja Eyjafjörð, er
augljóst að mengandi úrgangsefni
frá álbræðslu settust mjög að, en
dreifðust ekki né skoluðust burt
eins og i storma- og úrkomusömu
umhverfi.
Nú er það alkunna að hættuleg-
ustu úrgangsefni frá álbræðslum
eru flúorsambönd, sem setjast
sem ryk á gróður og eiga þvi
greiða leið að búpeningi í högum.
Þar valda þau beinskemmdum,
svo sem hnútum á liðamótum og
tannlosi. Slíkir kvillar eru þekkt-
ir hér á landi, timabundnir, við
öskufall samfara eldgosum, og
hafa þeir, í sumum tilvikum,
orsakað afföll á búpeningi lands-
manna.
Búfé, sem elst upp við þvílíkar
aðstæður á tiltölulegá skammt lif
fyrir höndum.
Hreppsnefndin telur því stór-
lega varhugavert að setja niður í
Eyjafirði, jafn mengandi stóriðju
sem álbræðslu og gæti slik
ákvörðun reynst afdrifarík mis-
tök, sem ekki yrði kostur að bæta
úr siðar.
Hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps.
Austurstræti 14 — Sími 12345