Morgunblaðið - 10.12.1976, Page 21

Morgunblaðið - 10.12.1976, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976 21 — Rankaði við mér .... Framhald af bls. 32. brotinn — því vinstri fóturinn var allur snúinn frá öklanum og blasti í bert beinið. Mín fyrstu viðbrögð voru að kalla á Viðar — auðvitað hvarflaði að mér sú hugsun að hann kynni að vera dáinn eða stórslasaður. Hann svaraði þó lagum rómi og spurði mig hvort hann væri mikið skaddaður I andliti þvl hann sá ekki neitt — ég gat engu svarað því, ég sá ekki framan í hann. Sá bara að hann lá þarna einhversstaðar inni i flakinu. Um aðdragandann að slysinu sagði Sigurður: „Við lögðum af stað frá Reykjavíkurflugvelli um tvöleytið. Viðar flaug og ég fylgdist með.“ Þess má geta að Sigurður, sem er nemandi I Vélskóla Islands, byrjaði að læra flug hjá Flugtak hf. nú I haust og hugðist taka tuttugu tíma I vetur. „I þessum ákveðna tlma hafði Viðar hugsað sér að kenna mér nauðlendingu og hvernig mað- ur brygðist við í slíkum tilfell- um,“ heldur Sigurður áfram. „Viðar sat hægra megin í vél- inni og flaug. Við vorum í fimmtán hundruð metra hæð og höfðum ákveðinn lend- ingarstað I huga, en auðvitað hvarflaði ekki að okkur að nauðlenda I alvöru — hvað þá að við myndum hrapa," sagði Sigurður um leið og hann reyndi að brosa og lyfta höfð- inu, en það var erfitt, þar sem hann á bágt með að hreyfa höfuðið, sökum þess að einn hálsliðurinn sprakk. „Eins og ég sagði," heldur Sigurður áfram“ þá dró Viðar úr benzíngjöfinni um leið og vélin sveif niður í lægstu mögu- lega hæð, 200 fet. Þá var ætlun- in að auka benzíngjöfina að nýju, um leið og vélinni var beint upp — en um leið missir hún hraða. — Og þá gerðist þetta. Okkur fannst vélin hiksta — slðan veit ég ekki af mér, fyrr en undir vinstra vængnum. Ég veit ekki hvort vélin, sem missti þann litla hraða, sem á henni var, ofreis — en tel það líklegt. Ég reikna með að það hafi liðið tíu mlnút- ur frá þvl að ég rankaði við mér og þangað til hjálp barst. Það var bóndinn I Miðdal, Tryggvi Einarsson, og kona hans, Sæunn Halldörsdóttir, sem komu fyrst á slysastaðinn. Þau hlúðu að okkur með tepp- um og yfirhöfnum, áður en þau fóru að sækja hjálp. Ég missti meðvitund aftur I sjúkrabíln- um á leiðinni I bæinn. Aðgerð- inni á mér lauk fyrir miðnætti sama dag — en ég var I hálf- gerðu móki þar til fram á þriðja dag.“ Sigurður kvaðst ekki halda að hann hafi fengið taugaáfall — og þetta ætti ekki eftir að hindra hann að fljúga I framtíð- inni. „Nei, ég held persónulega að flugvélar séu öruggari en bílar og hef aldrei fundið fyrir flughræðslu. Ég áætlaði að taka tuttugu flugtlma I vetur, þann- ig að ég fengi sólópróf — en því seinkar nú að öllum Hkindum, þar sem ég á vafalaust hálfsárs rúmlegu fyrir höndum. Þó von- ast ég til að geta losnað af spítalanum innan tveggja mán- aða — þannig að ég geti farið að lesa utanskóla heima hjá mér.“ — Ófreskja . . Framhald af bls. 1.' auk þess sem fullyrt er að Hún hafi misþyrmt honum, og þannig orðið þess valdandi að heilsu hans hafi hrakað mjög. I kínverskum fjölmiðlum hefur að undanförnu verið mirinzt nokkuð á aðra konu Maós, Yang Kai-Hui, en formaðurinn var fj,ór- giftur. Er Yang Kai-Hui lofuð mjög fyrir hetjulega framgöngu. Hafi hún verið kommúnísk hetja, sem hafi staðizt margskonar þján- ingar og pyndingar fyrir málstað- inn eftir að hún var tekin hönd- um árið 1930, og látið síðan lífið sem píslarvottur mánuði eftir handtökuna. Grein um þetta hef- ur nýlega verið dreift á vegum Hsinhua-fréttastofunnar, en þar segir m.a. að Yang Kai-Hui hafi verið trú marz-leninismanum allt sitt líf. öðru máli gegni um Chi- ang Ching, sem aldri hafi litið I verk marx, Lenins eða Maós. Hún hafi þverskallast við að meðtaka uppfræðslu Maós og gagnrýni, sem henni hafi sífellt staðið til boða, en gengið I lið með sam- særismönnum og brunnið af áfergju eftir að verða „keisara- drottning“. — Vírnet hf. Framhald af bls. 10 fyrirtækið hefði verið heppið með starfskraft frá upphafi. — Þetta var smátt I upp afi, en nú eru hér 14 fastir menn, en starfsemim er meira og minna næstum sjálfvirk vélavinna, svo ekki þarf ýkja marga starfsennn. Hjá okkur hefur einn verið frá byrjin, og fjórir á annan áratug, svo ég held að hægt sé að segja að okkur haldist vel á fólki ,sagði Páll. Byrjuðu f veitingaskála úti í Brákarey Vírnet hf. starfar nú I eigin húsnæði upp á 1200 fermetra, en Páll sagði okkur að upphafleg starfsemi hefði hafizt á gömlum veitingaskála úti I Brákarey. J Sagði Páll það hafa verið I veitingaskálanum hans Fúsa vert, eans og hann var vlst kallaður. En fljótt var orðin þar mikil þröng á þingi að sögn Páls, og var flutt i núverandi húsnæði 1963. Segir Páll okkur, að nú væri svo komið að núverandi húsæði væri orðið of Iitið, og þvl hefði nýlega verið hafizt handa við aðra eins bygg- ingu við og hliðina á núverandi húsnæði og verður það hús tilbúið á næsta ári. Segir Páll að fyrir- tækið muni vart koma til með að nota nema helming þess húsnæðis fyrir núverandi starfrækslu fyrst um sinn alla vega. — Við erum svolltið að hugleiða að taka upp nýja starfsemi hérna hjá okkur þ.e. nýjan þátt. En þetta er þó allt á umræðustigi svo ekki er hægt að greina frá þeim áformum ennþá. Ætli við segjum nokkuð meira um það og setjum heldur bara spenn- ing I fólk, sagði Páll Guðbjartsson að lokum. —ágás. — Urskurður Framhald af bls. 32. ginntur i net lögreglunnar I Keflavík til að lögreglumenn þar gætu orðið sér úti um ástæður til að úrskurða hann I gæzluvarð- hald. Vitað er að Kristján Pétursson, deildarstjóri I tollgæzlunni á Keflavíkurflugvelli, og Haukur Guómundsson, rannsóknarlög- reglumaður I Keflavík, hafa um skeið rannsakað margháttað mis- ferli bifreiðastjórans. Af hálfu rannsóknarlögreglunnar þar hafa komið fram þær skýringar, að hún hafi fengið upplýsingar um ferðir bifreiðastjórans I þessu umdæmi I ólöglegum erindagjörð- um og þess vegna setið fyrir bif- reiðastjóranum. — Framnes Framhald af bls. 2 Reykjavíkur á næstunni þar sem gert verður við það Framnesið strandaði við hinn enda Látrabjargs 19 73, en 1 1 manna áhöfn skipsins komst þá í land á gúmbjörg- unarbát Skipinu var síðan bjargað af strandstað fjórum dögum siðar Árið 1 960 strandaði Sæborg BA á sama stað, en losnaði af strandstaðnum og var dregin til Patreksfjarðar eins og Framnesið núna Skeiðsfoss- virkjun sann- ar ágæti sitt Siglufirði 9. desember. VIÐBÓTARVIRKJUNIN við Skeiðsfossvirkjun hefur nú verið I gangi hátt á annan mánuð og hefur þegar sannað gildi sitt. Þennan tlma hafa mikil frost ver- ið hér og hefur ekki þurft að setja dtsilvél I gang til að auka rafmagnsframleiðsluna. Þannig hafa Siglfirðingar ekki eytt einni einustu krðnu I dýra hráollu. -mj. bakadá hædum Jurto eldavél meö hverfiloftsofni gerir þér kleift aó baka á 4 hœóum - sem sagt - þú getur bakaó á 4 plötum í einu - athyglisvert, ekki satt? Aó sjálfsögóu er Juno meö grilli og klukkurofa - já klukkurofa.sem ekki baraer tengdurofni -hann er líkatengdur 2 hellum - þetta erdagsatt, hann er tengdur tveim hellum - þaö œtti aó geta komió sér vel. Juno hverfiloftsofninn er sjálfhreynsandi-hvaó annaó? II Zmniówms vél ætlum viöaósýnaþér ínotkun-á milli klukkan 2og 5 á morgun. Já.vió œtlumáó baka fyrir þig á milli klukkan 2 og 5 - þar fyrir utan,sýnum vió þér rafmagns-heimilis- tœki frá KRUPS - maóur sleppir ekki svona tœkifœri - er þaó? - auóvitaó ekki - þá sjáumst .vió í sýningarsalnum aóSkúlagötu 30 á morgun. PS. þaó fer ekki ámilli mála aó okkar lausnerbetri lausn n J. ÞORLAKSSON & NORÐMANN H.F Skúlagötu30 -Sími 11280 JUNOogKRUPS Einkaumboö á íslandi JÓN JÓHANNESSON & Co

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.