Morgunblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 10.12.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976 29 Kátlegar kvonbæn- ir í Hveragerði LEIKFÉLAG Hveragerðis frum- sýnir i kvöld enska gamanleikinn Kátlegar kvonbænir (She Stoops to Conquer) eftir Oliver Gold- smith. Leikstjóri er Benedikt Árnason en leikmynd gerði Jill Brooke. Leikritið, sem er í þýð- ingu Bjarna Guðmundssonar, hef- ur verið fært upp einu sinni hér á landi áður, á Herranótt fyrir rúm- um áratug og þá einnig undir leikstjórn Benedikts. Með helstu hlutverk I sýningu Leikfélags Hveragefðis fara: Svava Hauks- dóttir, Aðalbjörg M. Jóhannsdótt- ir, Inga Wiium, Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, Guðjón H. Björns- son Steindór Gestsson og Níels Kristjánsson. Enginn vafi er áþví að þessi bráðlétti gamanleikur á eftir að laða að sér marga áhorf- endur í Hveragerði og vlðar um Suðurland, en ráðgert er að ferð- ast um með leikinn, svo sem venja er hjá leikfélaginu. Litabók fyrir börn LITABÓKIN, sem kom út fyrir um 30 árum, er nú komin út i annarri útgáfu. I henni eru 16 teikningar, sem Teiknistofa Stefáns Jónssonar teiknaði, en síð- an eiga börnin að lita teikn- ingarnar eftir eigin höfði. Myndirnar í bókinni eru allt dýra- og landslags- myndir. (Jtgefandi er Myndabókaútgáfan. Athugasemd vid frétt um byggingu verksmidjuhúss I MORGUNBLAÐINU s.l. föstu- dag er frétt um að Breiðholt h.f. hafi steypt upp 5.700 rúmm. verk- smiðjuhús á einum mánuði og notað við það aðferð, sem feli í sér algera nýjung við byggingu verk- smiðjuhúsa hér á landi m.a. að þvi leyti er varðar byggingartima. Það er ekki rétt, sem fullyrt er i fréttinni, að skammur byggingar- timi hússins sé nýjung hér á landi þar sem Byggingariðjan h.f. hefir undanfarin ár framleitt stein- steyptar húseiningar I ýmsar gerðir húsa, þar á meðal verk- smiðjuhús, og hafa einingahús Byggingariðjunnar verið reist á miklu skemmri tíma heldur en þeim, sem getið er um í fréttinni. Sem dæmi um þetta má nefna, að s.l. sumar var reast í Mosfells- sveit 12.000 rúmm. Iþróttahús á 12 dögum. Húsið er steinsteypt einingahús með einangruðum út- veggjum fullfrágengnum að utan og innan með steinsteyptri þak- klæðningu, en til 'samanburðar má geta þess að húsið sem Breið- holt h.f. reisti á einum mánuði, 5.700 rúmm. að stærð, var án þak- klæðningar. Aðferð Byggingariðjunnar h.f. er í þvi fólgin, að steinsteyptar einingar eru framleiddar í verk- smiðju, óháð veðri og vindum, á meðan unnið er við gerð hús- grunns, en að þvi loknu er húsið reist á mjög skömmum tlma eða um það bil 1000 rúmm. á dag eins og framangreint dæmi sýnir. Aðferð Breiðholts h.f. er aftur á móti fólgin i því, að útveggir húss- ins ásamt þakbitum en án þak- klæðningar, eru steyptir á staðn- um og er sú framkvæmd þvi háð umhleypingasömu veðurfari hér á landi. Byggingarhraði er sam- kvæmt frétt blaðsins um 300 rúmm. á dag og tekur því þrisvar til fjórum sinnum lengri tlma að Iþróttahús I byggingu I Mosfellssveit. Húsið er 12.000 rúmmetrar og var reist á 12 dögum. reisa hús með aðferð Breiðholts h.f. heldur en að reisa einingahús Byggingariðjunnar h.f. Við samanburð á þessum bygg- ingaraðferðum má nefnaýmislegt fleira, sem er einingahúsum í hag. í húsi þvl, sem frétt blaðsins fjallar um, er súlnaröð I miðju húsi en það er til óhagræðis fyrir alla starfsemi I húsinu. Eininga- hús Byggingariðjunnar h.f. eru | aftur á móti súlnalaus fyrir allt að 30 m húsbreidd. Þakklæðning Breiðholtshússins er úr timbri, sem er innflutt efni, en þak- klæðning einingahúsa Byggingar- iðjunnar eru steinsteypueiningar, sem er islensk iðnaðarframleiðsla að mestu úr islensku byggingar- efni. f.h. Byggingariðjunnar h.f. Helgi H. Árnason „Heitar ástir”, þýdd ástarsaga FJÓRÐA bókin I bókaflokknum Grænu skáldsögurnar, sem Sögu- safn heimilanna gefur út, er kom- in á markaðinn. Nefnist hún .Jleitar ástir“ og er eftir Joy Packer. Bókin heitir „Boomerang" á frummálinu og er sögusvið henn- ar Suður-Afrika. „Þeir atburðir, sem hún greinir frá eru þó á engan hátt staðbundnir og gæti hún þvi gerzt hvar sem væri I heimi okkar,“ segir á kápusiðu. „Þetta er ósvikin ástarsaga, eins og nafnið bendir til.“ Bókin er 245 bls. að stærð. ‘Pe>«Z)(scx^t eíR. v'&RYyAorv'ft 1 £ö.ooo V^ - tS h.f. Laugavegi 33 sími 115 08

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.