Morgunblaðið - 10.12.1976, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1976
31
Enn var það Klempel
sem sígraði FH-inga
- FH-liðið sýndi góðan leik
í Póllandi en tapaði 18:22
FH-ingar léku seinni leik sinn l
Evrópubikarkeppni meistaraliða við
pólska liðiS Slask i Wroclaw i
Póllandi i fyrrakvöld. Átti FH-liðið
þarna skínandi góSan leik, og mátti
teljast óheppið að tapa leiknum með
4 marka mun eða 22:18, þar sem
það var öilu betri aðilinn allt fram
undir lokaminútur leiksins.
FH-íngar höfðu forystu I leiknum til
að byrja með, en stórskytta pólska
liðsins. Klempel. var eins og i fyrri
leiknum illviðráðanleg og það var fyrst
og fremst honum að þakka að Pólverj-
um tókst að jafna 8:8. þegar nokkrar
mlnútur voru til loka fyrri hálfleiksins.
Pólverjar skoruðu siðan tvö slðustu
mörk hálfleiksins þannig að staðan að
honum loknum var 10:8 Slask I vil.
i byrjun seinni hálfleiks tókst Slask
enn að auka muninn og komst I 12:8,
en FH-ingar létu ekki deigan slga og
tókst að jafna á tölunni 15:15. Komu
þá fyrir atvik sem breyttu tvimælalaust
gangi leiksins. FH-ingar fengu tvisvar
mjög góð marktækifæri, en skutu I
bæði skiptin I stöng og i bæði skiptin
náðu Pólverjar knettinum og skoruðu
úr hraðaupphlaupi. Þar með átti FH
undir högg að sækja og fóru að reyna
skot úr verri færum en áður. sem varð
svo til þess að Pólverjunum tókst að
auka muninn I fjögur mörk fyrir leiks-
lok.
í leik þessum áttu tveir leikmanna
FH mjög góðan leik, þeir Birgir Finn-
bogason, sem var lengst af I markinu
og varði mjög vel. Hann mátti sln þó
ekki við hraðaupphlaupum Slask, en
þannig skoraði liðið hvorki fleiri né
færri en 8 mörk Hinn leikmaður FH-
liðsins sem stóð sig mjög vel I leik
þessum var Viðar Símonarson. Hann
var einn traustasti varnarleikmaður
liðsins I leiknum og skoraði flest mörk
FH-inga, 7 talsins. Þeir Geir og Janus
komust einnig ágætlega frá þessum
leik.
Mörk Slask: Klempel 10, Faleta 4.
Antczak 3, Moczulski 2, Czykaluk 2,
Sokolowski 1.
Ólafur og
Axel með í
undirbúningi
landsliðsins?
MEÐAL áhorfenda aó lands-
leik Islands og Austur-
Þýzkalands ( Berlfn I gær-
kvöldi voru þeir Ólafur H.
Jónsson og Axel Axelsson en
þeir komu akandi frá Minden (
gær, bæði til þess að fylgjast
með leiknum og eins til þess
að ræða við landsliðsnefndar-
menn og landsliðsþjálfarann.
Sátu þeir lengi á fundi I gær
og var farið yfir æfingapró-
gramm (slenzka liðsins fram
að B-heimsmeistarakeppninni
I Austurfki. Kom fram, að þeir
Ólafur og Axel hafa báðir mik-
inn áhuga á að vera með I
undirbúningi og leikjum Is-
lenzka liðsins. Kom fram, að
þeir eiga ekki að leika nema
þrjá leiki með liði sfnu,
Dankersen, frá áramótum og
fram yfir heimsmeistara-
keppnina og langt er á milli
þessara leikja. Hins vegar
kann staðan eitthvað að breyt-
ast ef Dankersen kemst áfram
I Evrópubikarkeppni bikar-
hafa, en liðið á að leika seinni
leik sinn við sænska liðið
Heim 12. desember n.k.
Janus Cerwinski og Birgir
Björnsson sögðu báðir I viðtali
við Morgunblaðið I gærkvöldi,
að þeir hefðu áhuga á þvl að fá
þá Ólaf og Axel inn I liðið og
yrði áfram unnið að þessu
máli.
Mörk FH: Viðar Slmonarson7, Janus
Guðlaugsson 4, Sæmundur
Stefánsson 2, Geir Hallsteinsson 2,
Örn Sigurðsson 1, Július Pálsson 1,
Kristján Stefánsson 1.
TVEIR
NÝLIÐAR
I' KVÖLD
ÍSELNDINGAR og Austur-Þjóðverjar
leika annan handknattleikslandsleik
i kvöld og fer hann fram i Frankfurt.
íslenzka landsliðsnefndin og Janus
Cerwinski þjálfari voru ekki búnir að
velja islenzka liSið fyrir þann leik er
MorgunblaSiS hafði samband viS þá
í gærkvöldi, en sögSu hins vegaar að
þeir tveir leikmenn sem ekki voru
meS I gærkvöldi myndi leika i kvöld,
en þeir eru Þorbergur ASalsteinsson
úr Vikingi og Kristjan Sigmundsson
úr Þrótti. Leika þeir þar báSir sinn
fyrsta landsleik.
SLAKUR VARNARLEIKUR OR-
SAKAÐI 6 MARKA ÖSIGUR
- EN SÓKNARLEIKURINN VAR VEL OG SKYNSAMLEGA ÚTFÆRÐUR
Frá Sigtryggi Sigtryggssyni
blaSamanni Morgunblaðsins
í Berlfn.
ÍSLENZKA landsliSiS i handknattleik
varð aS þola tap i sinum fyrsta leik
undir stjóm hins nýja landsliSsþjálf-
ara, Janusar Cerwinski, er það
mætti Austur-Þjóðverjum i gær-
kvöldi. 25—19, eSa 6 marka munur
Þjóðverjunum i vil urSu úrslit leiks-
ins en ekki verður annaS sagt en aS
sá sigur hafi verið fullstór miSað við
gang leiksins. íslendingar misstu af
nokkrum ágætum tækifærum i leikn-
um, þannig aS eSlilegt hefði veriS aS
munurinn væri 3—4 mörk. Siðast er
íslendingar léku viS Austur-
Þjóðverja á heimavelli var i Rostock
árið 1973 og þá töpuðu íslendingar
14:35. MiSaS viS þau úrslit má út-
koman i gærkvöldi teljast bærileg.
Mikill tilraunasvipur var á leik
beggja liðanna I gær, enda eru Þjóð-
verjarnir ekki siður en við að þreifa sig
áfram fyrir B-heimsmeistarakeppnina I
Austurrlki, en þar leika þeir i sama riðli
og við. Lið þeirra er blanda ungra og
nýrra manna I landsliðinu og gamal-
reyndra landsliðsmanna. sem leikið
hafa vel á annað hundrað landsleiki.
Margt af þvi sem Þjóðverjarnir ætluðu
sér sýnilega að gera I leiknum I gær-
kvöldi gekk ekki upp hjá þeim, og
mega verða töluverð straumhvörf, ef
Islendingar eiga nokkra möguleika
gegn þeim þegar út I alvöruna —
heimsmeistarakeppnina er komið
íslenzka liðið byrjaði leikinn ágæt-
lega i gærkvöldi og maður gerði sér
vonir um að þetta yrði einn af hinum
góðu dögum þess. Eftir fimm mlnútna
leik var staðan orðin 3:1 fyrir ísland.
en upp úr þv! fóru að koma I Ijós miklir
annmarkar á leik liðsins, sérstaklega I
vörninni, sem opnaðist hvað eftir ann-
að mjög illa, þannig áð Þjóðverjarnir
þurftu ekki að hafa mikið fyrir Kvi að
skora. Staðan breyttist lika i samræmi
við þetta og fyrr en varði höfðu Þjóð-
verjarnir náð 4 marka forystu, er stað-
an var 9:5, og eftir það tókst ekki að
ógna sigri þeirra, jafnvel þótt vörn
islenzka liðsins lagaðist nokkuð I seinni
hálfleiknum
Það verður greinilega mikið verk hjá
Cerwinski að koma vörn liðsins I lag,
og eftir leiknum i gærkvöldi að dæma
verður það aðalverkefni hans á næst-
unni. SóknadeiKur liðsins var hins veg-
ar bærilegur og mun meiri ró og festa
yfir honum en oft áður. Margar sóknar-
lotur Islenzka liðsins voru alllangar, og
lyktaði ekki fyrr en góð færi fengust
sem ýmist gáfu mörk eða vitaköst.
Telst það gott hjá hvaða liði sem er að
skora 18 mörk hjá Austur-Þjóðverjum
sem þekktir eru fyrir góðan og harðan
varnarleik, ásamt með góðri mark-
vörzlu.
Eitt var þó það sem brást illa I
sókarleik íslenzka liðsins. en það voru
hraðaupphlaupin, en einmitt það atriði
hefur Cerwinski lagt mikla áherzlu á að
bæta hjá liðinu að undanförnu. Fengu
Islendingar nokkrum sinnum góð tæki-
færi til hraðaupphlaupa I leiknum. en
ævinlega skorti herzlumuninn á að út-
færa þau Með svolltið meiri æfingu
ætti hins vegar að geta fengist töluvert
út úr hraðaupphlaupunum, en hingað
til hefur það meira heyrt til undantekn-
inga ef Islenzk landslið hafa reynt þau,
hvað þá meira.
Viðar Simonarson
framúrskarandi
Það fór ekkert á milii mála hver var
bezti leikmaður islenzka liðsins I þess-
um leik. Viðar Simonarson var framúr-
skarandi, bæði I sókn og vörn. Er
árangur Viðars i leik þessum enn
glæsilegri þegar tekið er tillit til þess
að hann gat tæpast verið verr undir
átökin búinn. FH-ingarnir léku erfiðan
leik við pólska liðið Slask I Póllandi I
fyrrakvöld, og þaðan lögðu þeir slðan
af stað undir miðnætti þeir Viðar. Geir
og Þórarinn Tók ferðin til Berlinar 10
klukkustundir með næturlestinni, og
gátu þeir félagar lítið sem ekkert sofið
á leiðinni Þegar þeir komust loks á
hótelið i Berlln sem islenzka landsliðið
bjó á, gátu þeir lagt sig stundarkorn,
en siðan hófst undirbúningurinn fyrir
landsleikinn
Björgvin Björgvinsson átti einnig
ágætan leik í gærkvöldi Hann var
frlskúr á linunni og hreyfði sig mikið,
en alltof oft kom það fyrir að þegar
Björgvin var búinn að skapa sér færi,
fékk hann ekki knöttinn Hann skoraði
þó tvö mörk — annað á sinn sérstæða
og glæsilega hátt og fiskaði nokkur
vitaköst að auki.
Ólafur Benediktsson var I markinu
nær allan leikinn Hann varði nokkrum
sinnum ágætlega, en hlutverk hans var
annars ekki öfundsvert vegna þess hve
islenzka vörnin opnaðist illa og Þjóð-
verjarnir fengu góð færi
Ólafur Einarsson var sá sem ógnaði
hvað mest I sóknarleiknum, og höfðu
Þjóðverjarnir nánar gætur á honum. í
fyrri hálfleiknum komu þeir vel út á
móti honum, en I seinni hálfleiknum
mátti heita að hann væri tekinn úr
umferð
Geir Hallsteinsson var mjög hreyfan-
legur I þessum leik, en hann var
óheppinn með skot sln, og má vel vera
að þreyta vegna hinnar erfiðu nætur-
ferar hafi komið niður á snerpu hans.
Þá komst Jón H. Karlsson bærilega frá
leiknum, en hann var nú i fyrsta sinn
fyrirliði islenzka landsliðsins Vert er
einnig að geta um frammistöðu Þor-
björns Guðmundssonar, en hann lék
bara með I vörninni. og var raunar eini
islenzki leikmaðurinn sem komst vel
frá varnarleiknum i gærkvöldi
( STUHU MÁLI
I STUTTU MÁLI
LANDSLEIKUR t HANDKNATTLEI
BERLtN 9. DESEMBER
URSLIT: A-Þýzkaland 6 tsland 25—18
(13-4)
GANGUR LEIKSINS:
Mln A-Þýzkal.
2
2. Griiner
3.
4.
5. Griiner(v)
6. Schmith
7. Schmith
8. Griiner
9. Hildebrand
9.
11. Engels
13.
15. Griiner
16. Schmidt
16.
17. Engels
20. Griiner
21.
23. Engels (v)
25.
27.
28. Híldebrand
31. Kriiger
31. Wal
36. Rost
tsland
0:1 Ólafur
1:1
1:2 Ólafur
1:3 Jón K.
2:3
3:3
4:3
5:3
6:3
6:4 Viðar (v)
7:4
7:5 Jón K.
8:5
9:5
9:6 Viðar (v)
10:6
11:6
11:7 Viðar (v)
12:7
12:8 Viðar (v)
12:9 Vipðar(v)
13:9
39. Griiner
40. Wal
40.
40.
42. Griiner (v)
45.
45. Schmidt
50. Engels
50.
51. Engels
51.
52.
55. Griiner
57.
58. Griiner
59. Schmith
16:10 Björgvin
16:11 Jón
17:11
18:11
18:12 Viðar (v)
18:13 Viðar
19:13
19:14 Viðar
20:14
21:14
21:15 Ólafur
22:16 Viðar (v)
22:16 Viðar (v)
22:17 Geir
23:17
23:18 BJörgvin
24:18
25:18
HÁLFLEIKUR
14:9
15:9
16:9
MÖRK A-ÞVZKALANDS: Gruner 9, Schmidt
5, Engels 5, Hildebrand 2, Wal 2, Kriiger 1,
Rost 1.
MÖRK tSLANDS: Viðar Símonarson 9, Ólaf-
ur Einarsson 3, Jón Karlsson 3, Björgvin
Björgvinsson 2, Geir Hallsteinsson 1.
BROTTVlSANIR AF VELLI: Þorbjörn Guð-
mundsson 12 mfn.
MISHEPPNUÐ VtTAKÖST: Engin.
DÓMARAR: Frá Austurríki. Þeir voru mjög
óöruggir og sumir dómar þeirra hreinlega út
I hött, eins og er þeir sendu Þorbjörn Guð-
mundsson af velli fyrir smóvægilegt brot, án
áðurgenginnar áminningar.
— ss
wr