Morgunblaðið - 28.12.1976, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1976
+
Móðir og faðir okkar.
GUÐRÚN OLGEIRSDÓTTIR
ALBERT GUÐJÓNSSON,
önduðust að heimili sínu Hverfisgötu 66 A aðfaranótt 25. desember
Sonja S. Albertsdóttir,
Elísabet Albertsdóttir,
Sævar O. Albertsson.
+
Maðurinn minn
MOGENSLOVEANDERSEN
hárskeri
andaðislað morgni 26 desemberá Borgarspítalanum
Árna Andersen.
+
Eiginmaður minn
JÓN KR. ÞORSTEINSSON
húsasmíðameistari
Skjólbraut 6 Kópavogi
andaðist að Borgarspítalanum 24 desember
Inga Þorsteinsdóttir.
+
Eiginmaður minn.
er látmn
INGIMAR BRYNJÓLFSSON,
stórkaupmaður
Herborg Brynjólfsson.
+
Móðir min og tengdamóðir.
MARIE DAM,
andaðist á Borgarspítalanum 26 des
Ellen & Viðar Pétursson.
+
Konan mín
SARA ÓLAFSDÓTTIR
sem lést 18 þ.m á Hrafnistu verður jarðsungin frá Akraneskirkju
miðvikudaginn 29 þ m kl 15
Þeir sem vildu minnast þeirra látnu er bent á líknarstofnanir Ferð
verður frá Umferðarmiðstöðinni kl 1 2
Fyrir mína hönd og barnanna,
Bergur Arnbjörnsson.
+
Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmu,
JÚLÍÓNU RANNVEIGAR MAGNÚSDÓTTUR
sem lést þ 1 7 desember fer fram frá Frikirkjunni, miðvikudaginn 29
desember kl 1 30
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
SIGURLAUG A. SIGURÐARDÓTTIR
Samtúni 1 2.
verður jarðsungm frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 28 des kl 10 30
fh
Agnar Gústafsson Inga Dóra Hertervig
Inga Dóra Gústafsdóttir Einar Lövdahl
Valur Gústafsson
Þorbjörg Guðmunds-
dóttir - Minningarorð
Fædd: 22. febrúar 1893.
Dáin: 19. desember 1976.
I dag er til moldar borin Þor-
björg Guðmundsdóttir. Hún var
fædd að Tröðum í Staðarsveit 22.
febrúar 1893 og hefði því orðið 84
ára í febrúar næstkomandi. Þor-
björg var dóttir Oddfríðar Þor-
steinsdóttur og Guðmundar
Magnússonar, bónda að Tröðum
og sfðar að Landakoti í Staðar-
sveit. Systkinin voru sjö, þau Þor-
geir, Þorbjörg, Magnús, Sveinn,
Jenný, Þorgrfmur og Vilborg. Á
lífi eru nú aðeins þau Jenný, Þor-
grímur og Vilborg.
Fjórtán ára fór Þorbjörg að
vinna fyrir sér, fyrst að Búðum í
fjögur ár, en sfðan hjá Thor Jen-
sen í Reykjavík í önnur fjögur ár.
Án efa hafa þessi fyrstu ár Þor-
bjargar að Búðum og hjá Thor
Jensen verið hennar aðalskóli, á
myndarheimilum hjá afbragðs-
fólki, sem veitti henni þá upp-
fóstran og þekkingu, sem kom
henni að góðum notum sfðar í
lífinu, og ómissandi voru ungri
stúlku á þeim tíma, þegar ekki
var um auðugan garð að gresja til
skólanáms.
Að lokinni dvöl hjá Thor Jen-
sen réðst Þorbjörg sem vinnu-
kona norður f Hnausakot í Mið-
firði til Rögnvalds Lfndal, bónda
þar. Giftust þau árið 1915 og eign-
uðust fjögur börn, Guðrúnu Ragn-
heiði, Ragnhildi Pálfnu, Björgu
og Rögnvald. Árið 1920 dó Rögn-
valdur Líndai og varð Þorbjörg þá
að bregða búi og koma börnum
sínum fyrir. Fór Guðrún að Foss-
koti, Ragnhildur að Haugi, Björg
að Dalgeirsstöðum og Rögnvaldur
að Syðri-Reykjum í Miðfirði. Voru
þetta allt vildarheimili og nutu
börnin þess, þótt þau hefðu þurft
að sjá af foreldrum sfnum.
Þorbjörg vann síðan á ýmsum
stöðum, dugnaðarkona, sem hún
alla tíð var. Á Siglufirði kynntist
hún Jóni Árnasyni og eignuðust
þau árið 1930 eina dóttur, Hjör-
dísi, sem síðán fylgdi móður sinni.
Yfir 20 ár vann Þorbjörg hjá
þeim heiðurshjónum Brynjólfi og
Kristínu, á Tryggvaskála á Sel-
fossi og minnast áreiðanlega
margir hins góða matar sem kom
úr eldhúsinu á Tryggvaskála þau
árin sem Þorbjörg stóð þar og
eldaði.
Sfðasta áratuginn i lífi sínu
naut Þorbjörg hvíldar og ástúðar
á heimili dóttur sinnar, Hjördísar
og manns hennar, Ragnars, í
Hafnarfirði, að frátöldu síðasta
ári, er Þorbjörg vegna vanheilsu
vistaðist að Sólvangi í Hafnarfirði
í frábærri umsjá lækna og
hjúkrunarliðs þar, sem seint verð-
ur ofmetið.
Nú er amma mín horfin yfir
móðuna miklu, þangað, sem við
eigum öll eft'ir að fylgja henni.
Menn fylgja frá okkur öllum, syst-
kinum, börnum, barnabörnum og
barnabarnabörnum, öllum skyld-
mennum, tengdafólki og vinum
kveðjur og þakklæti fyrir allt,
sem hún miðlaði okkur. Hún var
alltaf hrein og bein, ákveðin í
skoðunum, öllum glaðlyndari, trú-
föst og vinur vina þinna. Megi
Island eignast fleiri slíkar dætur,
sem af dugnaði, eljusemi og
skyldurækni búa í haginn fyrir
komandi kynslóðir. — Hvíli hún f
friði. G.H.Ó.
Sigurlaug A. Sigurðar-
dóttir - Minningarorð
F.4/7 1910.
D. 20/12 1976.
Hinn 20. þ.m. lézt á Borgar-
spitalanum í Reykjavík stjúpmóð-
ir mín, Sigurlaug Aðalbjörg
Sigurðardóttir.
Sigurlaug var fædd f Reykjavík,
4. júli 1910, dóttir hjónanna Ingi-
bjargar Friðriksdóttur og Sigurð-
ar Magnússonar.
Hinn 10. janúar 1931 giftist hún
föður mínum, Gústaf J. Kristjáns-
syni kaupmanni. Bjuggu þau sam-
an f farsælu hjónabandi, þar til
faðir minn lézt hinn 6. marz 1968.
Eignuðust þau 2 börn, Ingu Dóru,
f. 1/5 1931 og Val, f. 21. júnf 1935.
Það er ekki ætlun mín að rekja
nánar lifsferil stjúpmóður minn-
ar heldur einungis þakka henni
samveruna þau rösk 45 ár, sem
við áttum hér samleið.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og útför
ÞORBJARGAR SIGMUNDSDÓTTUR
Guðrún Freysteinsdóttir,
Sigmundur Freysteinsson,
Garðar Jónsson og dætur,
Sigríður Jónsdóttir og synir.
+
Móðir okkar
ÓLAFÍA INDRIÐADÓTTIR
Hrauni Tálknafirði
verður jarðsungin þriðjudaginn 28. desember.
Fyrir hönd aðstandenda
Ingibjorg Þorsteinsdóttir.
Stjúpmóðir mfn var vel af guði
gerð, mikil mannkostakona,
hreinskiptin og trygglynd, vinur
vina sinna. Það lýsir henni að
mfnu áliti betur en mörg orð, að
gagnvart mér kom hún fram frá
upphafi og æ sfðan sfem væri ég
hennar eigin sonur.
Allt þar til fyrir tæplega einu
og hálfu ári var stjúpmóðir mín
við góða heilsu, en þá var hún
skorin upp við heilaæxli, sem
reyndist illkynjað. Eftir það
dvaldist hún að mestu á sjúkra-
húsi, hafði þó stundum fótavist og
gat dvalizt á heimili sínu. Veik-
indi sín bar hún með þrautseigju
án þess að kvarta. Sfðustu vikuna
var hún rænulaus og þegar svo er
komið sýnist manni, að dauðinn
sé líkn.
Eg þakka þér svo að lokum,
mammá mín, fyrir samfylgdina og
vona að þú lifir á bjartari tilveru-
stigum heil heilsu.
Agnar Gústafsson.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR JÓNSSON,
Bergstaðastræti 49,
andaðist að Landakotsspítala 25 desember Jarðarförin fer fram frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 30 desember k> 1 3.30
Hulda Þorvaldsdóttir,
Jón L. Sigurðsson,
Magdalena Sigurðardóttir, Rósar Eggertsson,
og barnaböm.
+
STEINN KR. STEINDÓRSSON.
andaðist 12.12 1976
Jarðarförin hefur farið fram
Britt Steindórsson.
+ Eiginmaður mmn og faðir okkar EINAR EINARSSON, klæðskeri, Austurgötu 6, Hafnarfirði, verður jarðsungmn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði miðvikudaginn 29 desember kl 14 Helga Þorkelsdóttir . og börn. Lokaðí dag vegna jarðarfarar Agnar Gúsiafsson hrl. Hafnarstræti 11.
S. Helgason hf. STEINIOJA
Elnholti 4 Slmar 24477 og 14254