Morgunblaðið - 22.01.1977, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.01.1977, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK 16. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Rithöfundar styðjafrelsis- yfirlýsingu París, Prag, 21. janúar. NTB. Reuter. FJÖLDI rithöfunda og leikara á vesturlöndum hefur borið fram mótmæli gegn meðferðinni á stjórnarandstæðingum í Tékkóslóvakíu. Þeir hafa undir- ritað yfirlýsingu alþjóðlegrar stuðningsnefndar, sem hefur Moskva: Blóðgáta í sendiráði Bandaríkja Moskvu, 21. janúar. Reuter. UNGUR sonur starfsmanns bandarfska sendiráðsins í Moskvu hefur verið sendur til Bandarfkjanna til læknisrann- sóknar eftir að komið hefur f Ijós að þriðjungur starfsfólks sendiráðsins hefur óeðlilega blóðsamsetningu, að sögn sendiráðsins f dag. Barnið er sá þriðji sem sendur er til Itandarík janna sfðustu sex mánuði af þessum orsökum. Talsmaður sendiráðsins sagði að drengurinn hefði meira magn af hvítum blóð- kornum en eðlilegt er og for- eldrar hans hefðu óskað eftir að hann yrði rannsakaður heima i næstu viku. Sendiráðið vildi ekki ræða málið nánar. Blóðrannsóknir, sem að undan- förnu hafa verið gerðar á starfsfólki sendiráðsins og fjöl- skyldum þess hafa leitt i ljós að þriðjungur þeirra er með fleiri lymphocytes (tegund hvítra blóðkorna) í blóðinu en eðlilegt er. Rannsóknir voru gerðar á fólkinu eftir að sendiráðið Framhald á bls. 18 aðalstöðvar f París. Yfirlýsingin var send Gustav Husak, leiðtoga tékkneska kommúnistaflokksins, og öðrum kommúnistaleiðtogum, að sögn nokkurra aðstandenda nefndarinnar. Styður nefndin þá sem undirritað hafa og kenndir eru við „frelsisyfirlýsingu '77“, þar sem mótmælt er skerðingu á mannréttindum í Tékkóslóvakíu. Tveir Nóbelsverðlaunahafar eru i nefndinni, þeir Heinrich Böll og Saul Bellow. Aðrir nefndarmenn eru bandarísku rit- höfundarnir Mary McCarthy og Arthur Miller, brezku rithöf- undarnir Iris Murdoch og Graham Green og vestur-þýzki rit- höfundurinn Gunther Grass og frönsku leikararnir Simone Signoret og Yves Montant. Yfir 300 Tékkar hafa sett nafn sitt undir frelsisyfirlýsinguna. Margir þeirra hafa verið yfir- Framhald á bls. 18 Simamynd AP Fyrsta verk forsetans. Carter undirritar greinargerð til þingsins, þar sem segir hverja hann hefur útnefnt f ríkisstjórn sína. Þetta var hans fyrsta embættisverk eftir að hann hafði svarið eið sem 39. þjóðhöfðingi Bandaríkjanna. Fyrsta tilskipun Carters: Hundruðum þúsunda veitt sakaruppgjöf Washington, 21. janúar. Reuter. .'IMMY Carter Bandaríkjaforseti veitti í dag fulla og óskilorðs- bundna sakauppgjöf hundruðum þúsunda Bandaríkjamanna, sem brotið hafa gegn herskyldulögum vegna stríðsins f Vietnam. Með því að efna strax þetta kosninga- loforð sitt vonast Carter til að geta bundið endi á þann bitur- leik, sem enn eimir eftir af frá stríðinu. Náðunin var fyrsta til- skipun hans í Hvíta húsinu. Carter viðurkenndi að ákvörð- un hans væri umdeild og blaða- fulltrúi hans, Jody Powell, sagði forsetann hafa sagt sér að honum væri Ijóst að þetta yrði ekki til að gleðja alla. Bjóst Catter við að meira en helmingur þjóðarinnar áliti að hann hefði annað hvort gengið of langt eða ekki nógu langt. Eitt af fyrstu verkum Geralds Ford í forsetaembætti var einnig að veita sakaruppgjöf. í þvi« til- felli var það Richard Níxon, fyrr- verandi forseti, sem fékk upp- gefið allt sem hann hugsanlega hefði unnið til saka i sambandi við Watergatemálið. Sú sakarupp- gjöf vakti miklar deilur. Tilskipun Carters felldi úr gildi tveggja ára gamla náðunaráætlun Fords, sem fól í sér að menn sem hefðu komið sér undan að gegna Kairo, 21. janúar — NTB. UM ÞAÐ bil 900 manns hafa verið handteknir á Egyptalandi eftir óeirðir sfðustu daga, en rfkisstjórnin hefur lýst kommúnista ábyrga fyrir þeim. Álitið er að bitrar ásakanir stjórnarinnar á hendur kommúnistum muni leiða til mun erfiðari sambúðar milli Egyptalands og Sovétrfkjanna en verið hefur. Samtals týndu 86 lffi f óeirðunum og 800 særðust, en þær eru hinar mestu sem orðið hafa sfðan Anwar Sadat tók við forsetaembætti 1970. Orsök óeirðanna var almenn reiði vegna verðhækkunaráforma stjórnvalda, en þau hafa nú fallið frá þeim. Myndin sýnir strætisvagna brenna í Kairo. Símamynd ap. Vinstri- flokkur utan við- ræðnanna Kaupmannahöfn 21. janúar. NTB. STÆRSTl stjórnarandstöðu- flokkurinn i Danmörku, Vinstriflokkurinn tók ekki þátt í viðræðum rikisstjórnar- innar og fimm stjórnmála- flokka í dag, en þetta er annar Framhald á bls. 18 herþjónustu fengju náðun gegn því að vinna fyrir ríkið sem sjálf- boðaliðar í tvö ár. En eitt af síð- ustu embættisverkum Fords var að vísa frá beiðnum um náðanir. Carter sagði að allar dóms- rannsóknir og ákærur á hendur þeim sem brotið hafa gegn her- skyldulögum án þess að hafa um leið orðið sekir um ofbeldi yrðu endanlega látnar niður falla. Auk þeirra scm sekir eru urn ofbeldi, nær sakaruppgjöfun ekki til um 4.500 liðhlaupa og um 203.000 manna, sem reknir voru úr hern- um. Þeirra mál verða hins vegar tekin til endurskoðunar af varnarmálaráðuneytinu, sem mun leggja tillögur fyrir forset- ann. Powell sagðist ekki vita ná- kvæmlega til hve margra sakar- uppgjöfin næði en þeir væru mörg hundruð þúsund. Það væru aðeins örfáir, sem ekki nytu hennar vegna ofbeldisverknaða. Framhald á bls. 18 Indland: Stjórnarandstaðan myndar einn flokk Nýju Delf, 21. janúar. Reuter. EINN af helztu leiðtogum stjórnarandstöðunnar í Indlandi, friðarsinninn Jayaprakash Narayan, hefur fallist á að styðja sameinaða stjórnarandstöðu í þingkosningunum, sem haldnar verða i marz. Narayan, sem er 74 ára gamall, var helzti leiðtogi st jórnarandstöðunnar, áður en nevðarást andi var lýst yfir í land- inu. A laugardag mun hann halda fund með leiðtogum fjögurra stærstu stjórnarandstöðuflokk- anna að kommúnistum undan- skildum, en þcir mynduðu á fimmtudag einn flokk, Janata eða Þjóðarflokkinn. Narayan hefur af heilsufarsástæðum ekki tekið þátt í stjórnmálum siðan honum var slcppt úr fangelsi í árslok 1975. Hann hefur hins vegar hvað eftir annað hvatt stjórnarand- Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.