Morgunblaðið - 22.01.1977, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1977
18 réttinda-
lausir öku-
menn tekn-
ir f rá sL
áramótum
ÞAÐ SEM af er janúarmánuði
hefur lögreglan f Reykjavík tekið
18 ökumenn í umferðinni, sem
ekki hafa verid með ökuréttindi.
Höfðu langflestir þeirra verið
sviptir réttindunum vegna ölvun-
ar við akstur.
Að sögn Ingibjargar Benedikst-
dóttur fulltrúa við sakadóm
Reykjavíkur, er sektum beitt ef
menn verða uppvísir að því að aka
bifreið án réttinda. Er lágmarks-
sekt 30 þúsund krónur við fyrsta
brot en ef brot eru ítrekuð jjeta
viðkomandi átt von á að fá mjög
háar sektir. Ef brot af þessu tagi
eru margítrekuð eru mál viðkom-
andi ökumanna send til saksókn-
ara og moga þeir menn eiga von á
ströngum varðhaldsdómum. Nú
hefur saksóknari t.d. til athugun-
ar mál manns, sem hefur verið
tekinn 5 sinnum fyrir að aka bif-
reið réttindalaus.
Að sögn Ingibjargar hefur það
samkvæmt lögum engin áhrif á
lengd ökuleyfissviptingar þólt
menn séu staðnir að því að aka
bifreið án réttinda.
Bílainnflutningur
jókst um 28,1%
Guðmundur organist i f Eyjum gefur tðninn.
Fjögur ár frá því eld-
gos hófst í Heimaey
Þess minnst í Landakirkju á morgun
Ekki meistari
PAMELA Thordarson, eigandi
hárgreiðslustofunnar Pamelu,
hafði samband við blaðið og bað
um að eftirfarandi leiðréttingu
yrði komið á framfæri, þ.e. að hún
væri ekki enn þá orðinn hár-
greiðslumeistari — eins og sagt
var í frétt, hins vegar væri Lára
Davíðsdóttir, samstarfskona
hennar hárgreiðslumeistari.
SUNNUDAGINN 23. jan-
úar eru liöin fjögur ár frá
því jarðeldar komu upp í
Heimaey.
Undanfarin þrjú ár hafa
Vestmannaeyingar komiö
saman i Landakirkju þenn-
an dag til þess að þakka þá
giftusamlegu björgun sem
þá varð.
A sunnudaginn verður sam-
koma í Landakirkju klukkan
20.30. Kirkjukórinn mun flytja
verk eftír Hayden ásamt blönduð-
um kvartett, Sigríður Ella
Magnúsdóttir söngkona syngur
einsöng og Sigurgeir Kristjánsson
forstjóri flytur hugvekju.
I tilkynningu frá sóknarprest-
inum, scm Mbl. hefur borizt, eru
Vestmannaeyingar hvattir til
þátttöku í þessari þakkargjörð.
Bifreiðainnflutningur
landsmanna jókst á árinu
1976 borið saman við inn-
flutning árið 1975 um
28,1%- Á árinu 1976 voru
fluttir inn 4.477 bflar, en
árið áður 3.494 bílar. 8.5%
bflanna, sem fluttir voru
inn á árinu 1976 voru
notaðir eða 382 bílar.
Nýir fólksbílar voru sam-
tals á árinu 1976 3.784, en
höfðu verið á árinu áður
2.888. Notaðir fólksbílar
voru 1976 309, en árið áður
29Ö. Nýir sendiferðabílar
voru 153, en í fyrra 115 og
notaðir voru nú 10, en 9 í
fyrra. Alls voru fluttir inn
136 nýir vörubílar, en 117 í
fyrra og notaðir vörubílar
voru nú 19, en 25 í fyrra.
Bílar, sem flokkast öðru
vísi en hér að ofan er talið
voru nýir nú 22, en 26 í
Stofnfundur saltverk-
smiðjunnar 15. feb. n.k.
Hlutafjárloforðum lokið 1. febrúar
Skagfirðinga
félagið
heldur þorrablót í Festi Grindavík
laugardaginn 29. janúar 1 977.
Miðaafhending miðvikud. 26. janúar í
verzluninni Varðan, Evubæ, Keflavík og
Sigurði Sveinbjörnssyni Grindavík.
Skagfirðingafélagið í Reykjavík.
AKVFÐID hefur verið að halda
stofnfund fyrirhugaðrar saltverk-
smiðju á Reykjanesi þann 15.
febrúar n.k., en hlutaf jársöfnun á
að vera lokið fyrir 1. febrúar n.k.
Það var s.l. vor sem ákveðið var
með lögum að stofna hlutafélag,
sem hefði það markmið, að kanna
aðstæður til þess að reisa og reka
saltverksmiðju á Reykjanesi og
annast undirbúning að því að
slíku fyrirtæki verði komið á fót
m.a. með því að reka tilrauna-
verksmiðju. Með lögunum um
saltverksmiðju er átt við iðjuver
til vinnslu á salti (natríum
klóriði) fyrir innlendan og
erlendan markað og hagnýtingu á
efnum, sem til falla við þá
vinnslu. Akveðið var að aðild sé
heimil öllum innlendum aðilum,
einstaklingum, félögum og
stofnunum, sem áhuga hafa.
í fréttatilkynningu frá undir-
búningsnefnd saltverksmiðj-
unnar, segir að samkvæmt
kostnaðaráætlun verkfræðistofu
Baldurs Líndal frá því á s.I. ári sé
kostnaður vegna tilraunaverk-
smiðjunnar áætlaður 3,2 millj. kr.
1976, árið 1977 röskar 78 m. kr. og
1978 rúmar 56,3 m. kr. eða alls
137.5 millj. kr. Segir að nefndin
sé sammála um að fyrirhuguð
saltverksmiðja á Reykjanesi virð-
ist byggð á traustum jarðfræðileg-
um og tæknilegum forsendum.
Markaðir virðist vera fyrir allar
afurðir hennar og ákveðnir mögu-
leikar til að komast inn á þá
markaði.
Þá segir að fyrirtækið virðist
geta staðíð á viðskiptalega
traustum fótum og sé líklegt til að
gefa töluverðan arð.
Endanlegt stofnhlutafé er enn
ekki ákveðið, en í lögum er gert
ráð fyrir að ríkissjóður geti lagt
fram allt að kr. 60 millj. kr. Legg-
ur undirbúningsnefndin til, að
sveitarfélögin á Suðurnesjum
leggi fram hlutafé i væntanlega
verksmiðju, eftir því sem hvert
þeirra treystir sér til og ákvörðun
þess efnís líggí fyrír ekki síðar en
25. janúar n.k.
Lágmarksupphæð hvers stofn-
aðila er 20 þús. kr. og sú krafa er
gerð að "4 hlutafjárloforðs sé
greiddur innan viku frá stofn-
fundi, sem ákveðinn hefur verið
15. febrúar n.k.
Af hálfu sveitarfélagana á
Suðurnesjum eru eftirtaldir
menn í undirbúningsnefnd: Dag-
bjartur Einarsson, Grindavík,
Finnbogi Björnsson, Garði,
Ingólfur Falsson, Keflavík,
Ingvar Jóhannsson, Njarðvík,
Jóhann G. Jóhannsson, Vogum,
Jón H. Júlíusson, Sandgerði og
Jósef Borgarsson, Höfnum.
<*,<!¦ LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR
<BJ<M
KdARNORKA
oe
KVENHTLLI
<3á<3 Miðnætursýning
'Á ~~ Austurbæjarbíói
í kvöld kl. 24.00
OJO
Í0
Aðgöngumiðasala í Austurbæjar-
(|j(| biói frá kl. 16, simi 11384
fyrra og notaðir 23, en 24 í
fyrra.
Sú tegund, sem mest var
flutt inn af var Skoda
100/110, en af henni kom
481 bíll á árinu 1976.
Orbylgju-
samband frá
Vaðlaheiði til
Gagnheiðar
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
hefur heimilað ríkisútvarpinu að
standa að því með Pósti og sfma
að koma örbylgjusambandi frá
Vaðlaheiði um Norðausturland
til Gagnheiðar og að undirbúa
endurnýjun stöðva, sem nú eru að
syngja sitt sfðasta, eins og segir í
fréttatilkynningu, sem Mbl. barst
frá ráðuneytinu f gær.
Að þvi er segir í fréttatilkynn-
ingunni, þá eru þessar endur-
varpsstöðvar í mestri hættu:
Hnjúkar við Blönduós, Stöðvar-
fjörður, Breiðdalsvík, Horna-
fjörður, Lágafell, Langholt og
Laugardalshóiar.
Aætlaður kostnaður ríkisút-
varpsins vegna þessara fram-
kvæmda er nálægt 100 m. kr., þar
af vegna örbylgjusambands um
50 millj. kr. og vegna stöðvarinn-
ar á Hnúkum um 25 millj. kr.
Tolltekjur af sjónvarpstækjum
á þessu ári hafa verið áætlaðar
1963 millj. kr., en náið verður
fylgst með framvindu innflutn-
ings og tekjuhorfum.
Umdæmisstjór-
ar Lionshreyf-
ingarinnar þinga
í Reykjavík
UMDÆMISSTJÓRAR Lions-
hreyfingarinnar á Norðurlöndum
munu sitja þing n.k. laugardag og
sunnudag á Hótel Loftleiðum. Er
gert ráð fyrir að 60 til 70 manns
komi til þingsins frá hiniim
Norðurlöndunum, að meðtöldum
eiginkonum.
Á þessu þingi, sem haldið er
árlega, verður einkum fjallað um
unglingaskipti og framtíð Lions-
hreyfingarinnar, en hún er al-
þjóðahreyfing, sem Norðurlöndin
eiga fulltrúa í. Er Norðmaðurinn
Einar Kaspersen nú fulltrúi í al-
þjóðastjórninni, og munu Islend-
ingar taka sæti í alþjóðastjórninni
eftir tvö ár. Þátttökurétt á þessari
ráðstefnu eiga umdæmisstjórar
Lions og fyrrverandi umdæmis-
stjórar.______________________
HUSBYGGINGASJOÐURl
Peddinghaus
Steypustyrktar-
járnsklippur
fyrirliggjandi
verkfœri & járnvörur h.f. ^^
Dalshrauni 5,
Hafnarfirði,
sími 53332.