Morgunblaðið - 22.01.1977, Page 2

Morgunblaðið - 22.01.1977, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1977 ' Fjárhagsáætlun Reykjavíkur samþykkt: Tekjuliðir 10,2 milljarðar kr. FJARHAGSÁÆTLUN Reykja- vfkurborgar fyrir árið 1977 var samþykkt á fundi borgarstjórnar skömmu fyrir klukkan 7 á föstu- dagsmorgun og hafði þá fundur staðið f um 14 klukkustundir. Niðurstöðutölur eru þannig að tekjuliðir verða rúmir 10.2 milljarðar og hæstu þættirnir þar eru; tekjuskattar 5,2 milljarðar fasteignagjöld 1,3 milljarðar. ISLENDINGAR voru hinn 1. desember sfðastliðinn 220.545 að tölu, segir f bráðabirgðatölum, sem Morgunblaðið fékk frá Hag- stofu tslands f gær. Karlar voru örlftið fleiri en konur eða 111.334, en konur 109.211. Reykjavík hafði aðeins vinning- inn yfir alla aðra kaupstaði lands- ins sé íbúatala þeirra lögð saman. 1 Reykjavfk voru 84.334 fbúar, en í kaupstöðunum 79.087 fbúar. Reykvfskir karlar voru 41.006 en konur 43.328. Karlar f öðrum kaupstöðum voru 40.043 og konur 39.044. Ibúar f sýslum landsins voru Eldur kom upp á Litla-Hrauni ELDUR gaus upp í vinnuhæl- inu á Litla-Hrauni í gær laust fyrir kl. 8. Kom eldurinn upp í tauherbergi í norðausturálmu gömlu byggingarinnar, en fljótlega tókst að slökkva eld- inn og náði hann ekki að breið- ast út. Reykur náði heldur ekki svo um bygginguna, að grípa þyrfti til þess að flytja vistmenn eða gera aðrar ráð- stafanir. jöfnunarsjóður 1,2 milljarðar og aðstöðugjöld 1,5 milljarðar króna. Rekstrargjöld verða um 7,5 milljarðar króna og stærstu þættir þar eru félagsmál 2,0 milljarðar, fræðslumál 1,4 milljarðar, heilbrigðis- og hrein- lætismál 789 milljónir og liður- inn listir, fþróttir og útivera 700 milljónir króna. A eigna- breytingareikningi færast um 2,7 57.081, 30.255 karlar og 26.826 konur. Óstaðsettir íbúar landsins voru 43, 30 karlar og 13 konur. Stærstu kaupstaðir eru Kópavog- ur með 12.769 íbúa, 6.494 karla og 6.275 konur, Akureyri með 12.279 íbúa, 6.016 karla og 6.263 konur. I þriðja sæti er Hafnarfjörður með 11.724 íbúa, 5.881 karl og 5.843 konur. Aðrir kaupstaðir ná ekki 10 þúsund íbúum, en í fjórða sæti er Keflavík með 6.288 íbúa, 3.212 karla og 3.076 konur. Fjölmennasta sýsla landsins er Árnessýsla með 9.607 íbúa, 5.030 karla og 4.577 konur. Þá kemur Snæfellsnessýsla með 4.448 íbúa, 2.229 karla og 2.119 konur. Suður- Múlasýsla er aðeins fámennari með 4.444 íbúa, 2.353 karla og 2.092 konur. Þá er Rangárvalla- sýsla með 3.560 íbúa, 1.903 karla og 1.657 konur. Aðrar sýslur ná ekki 3 þúsund íbúum. Borið saman við árið 1975 eða bráðabirgðatölur frá 1. desember það ár, er Islendingar voru 218.682, er fjölgunin frá 1975 til 1976 1.863 eða 0.85%. Hliðstæð fólksfjölgun frá árinu áður var 1.16%. Á árinu í fyrra bættust tveir nýir kaupstaðir við, Njarð- vík og Garðabær. Gildistaka kaup- Framhald á bls. 18 milljarðar króna. Hækkun á fjár- hagsáætlun frá áætluninni 1976 er um 30,6% Á fundinum voru sem sjá má, umræður langar og strangar. Kom mikill fjöldi tillagna til umræðu. Þar á meðal tillaga borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um holræsa- mál og var hún samþykkt. Tillag- an hljóðar þannig; „Borgarstjórn samþykkir, að á árinu 1977 verði gerð hönnun og undirbúnar fram- kvæmdir við aðalholræsi frá botni Elliðaárvogs að Kringlumýrar- braut, sem miðist við útrás frá Laugarnesi. í greinargerð sem fylgir tillögunni segir að athug- anir sem gerðar hafi verið á undanförnum árum bendi til að mjög aðkallandi sé að framlengja þær holræsaútrásir sem falla í Elliðaárvog. Á þessu ári er áætlað að verja 10 milljónum króna í gerð nákvæmrar hönnunar og áætlunar. Ræsið verður sennilega 3,8 km á lengd. gert er ráð fyrir að verkið verði unnið í áföngum. Þetta mun verða byrjunin á að leysa holræsamál umhverfis borgarlandið og í því. Nú er unnið að rannsóknum á vegum bogar- innar i Fossvogi og mun nánari ákvörðun um holræsamál bíða niðurstöðu þeirra og samstöðu nágrannasveitarfélaganna. Nánar verður skýrt frá fundi borgar- stjórnar síðar. HEILDARLOÐNUAFLINN var orðinn 75 þúsund lestir f gær- morgun og ef miðað er við að 8.20 fáist fyrir kflóið af loðnunni er aflaverðmætið orðið 660 millj. kr. að meðtöldu stofnfjársjóðsgjaldi. Eftir þessu að dæma er út- flutningsverðmæti loðnuafurða orðið 1300 milljónir króna, það sem af er loðnuvertíðinni, en hún hefur nú staðið í 17 daga og um 60 skip hafa hafið veiðar. oo. ðá 'hnngja fyríi'’ óKunmjgð suÓurtil KeflavíKur að biéja Þeim iriÍSK'urmar’ Á tímabilinu frá því kl. 20 í fyrrakvöld fram til hádegis í gær tilkynntu 25 skip um afla samtals 9270 lestir. Flest skipanna fóru á Austfjarðahafnir, þ.e. frá Vopna- firði til Fáskrúðsfjarðar og eru nú allar þrær fullar á þessum stöð- um. Skipin, sem tilkynntu um afla í fyrrakvöld og fyrrinótt, eru þessi: Eldborg GK 530 lestir, Grind- víkingur GK 450, Sæbjörg VE 290, Hrafn Sveinbjarnarson GK Síbylgju- sýningar í Hafnarbíói HAFNARBtÓ byrjar í dag á þeirri nýjung að sýna kvikmyndir og sfendurtaka þær. Sýnir bfóið tvær kvikmyndir með þessum hætti, „Robinson Cruso og tfgur- inn“ og „Borgarljósin" eftir Chaplin. Sýningarnar hefjast klukkan 13,30 og standa til klukk- an 20.30. Gestir hússins geta á þessum tfma komið hvenær sem er, inn í miðja mynd og setið síðan áfram og séð það sem vant- ar framan á myndina. Alls er möguleiki á að sitja f bfóinu f 7 klukkustundir og sjá aðra mynd- ina tvisvar og hina þrisvar. Jón Ragnarsson, forstjóri Hafn- arbíós, sagði í viðtali við Morgun- blaðið í gær, að um helgar yrði lögð áherzla á að hafa myndir fyrir börn, enda væru þær tvær myndir, sem sýningar hæfust á, fyrir börn og raunar fullorðna líka. Verð á sýningar af þessu tagi verður 450 krónur, en almennt miðaverð er nú 350 krónur. Þá verða níusýningar og ellefu- sýningar eins og verið hefur f Hafnarbíói, en þar er sýnd um þessar mundir bandarfska kvik- myndin Fórnin með Richard Wid- mark og Christopher Lee. Þá má geta þess, að þessi háttur kvikmyndasýninga hefur mjög rutt sér til rúms erlendis, en þetta er fyrsta sinni, sem íslenzkt kvik- myndahús tekur upp þessa tilhög- un. 250, Skarðsvík SH 400, Kefl- víkingur KE 230, Hilmir KE 230, Freyja RE 250, Helga Guðmunds- dóttir BA 450, Kap 2. VE 530, Árni Sigurður AK 420, Hilmir SU 500, Húnaröst ÁR 260, Helga RE 240, Snæfugl SU 200, Börkur NK 800, Loftur Baldvinsson EA 700, Rauðsey AK 460, Vörður ÞH 200, Arnarnes GK 190, Pétur Jónsson RE 580, Guðmundur RE 700, Ár- sæll Sigurðsson GK 190, Bylgjan VE 120 og Bjarnarey VE 80. Islending- ar 220.545 Heildarloðnuaflinn 75 þúsund lestir: Útflutningsverðmæti 1300 millj. Strauk sama kvöld- ið og verjandinn kom Hafði setið inni í fimm mánuði STROKUFANGINN af Keflavlkurflugvelli, Christopher Barbar Smith, er 23 ára gamall, fæddur t september 1953. Sam- kvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér í gær, hefur hann verið til mikilla vandræða síðan hann kom hingað til lands I herþjónustu f júlí 1974. Hefur hann verið sérstaklega afkastamikill við smygl og sölu á fíkniefnum. Allir lögfræðing- ar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli munu hafa beðist undan þvf að verja mál Smiths, og var fenginn til þess lögfræðingur frá Norfolk í Bandarfkjunum. Kom sá einmitt til landsins daginn sem Smith strauk úr fangelsinu. Smith var úrskurðaður í gæzluvarð- hald á Keflavlkurflugvelli um miðjan desember 1975 vegna mikils flkni- efnamals, sem byrjað var að rannsaka Reyndist hann vera höfuðpaurinn I flkniefnasmygli til Keflavlkurflugvallar, en alls var smyglað inn 24 kg. af fíkniefnum. Hluti af þvl efni var til íslendinga utan vallarhliðsins og var Smith þv! fluttur til Reykjavikur og hafður þar I gærzluvarðhaldi um tíma. Var honum sleppt út I byrjun mars 1976 Þegar rannsókn flkniefnamálsins mikla hófst s.l. haust sannaðist fljót- lega að Smith var einnig flæktur I það mál. Hafði hann keypt flkniefni af fs- lenzkum mönnum, sem höfðu smyglað þvi til landsins og selt þau til banda- riskra hermanna á Keflavikurflugvelli Um þetta leyti var væntanlegur dómur yfir Smith vegna fyrra brotsins, en hann hafði ekki verið sendur úr landí vegna þess að dómur var ekle fallinn I máli hans Smith var hnepptur I gæzlu- varðhald I Reykjavlk 7. nóvember s I og þegar Ijóst var að hann var mikið flæktur I nýja málið, var dómsupp- kvaðningu vegna fyrra málsins frestað. Var Smith I gæzluvarðhaldi hjá Flkni- efnadómstólnum I Reykjavík til 7. janúar. Þá var þáttur hans I málinu, sem varðaði islenzka aðila, talinn uop- lýstur og m.a. voru gerðar upptækar nokkrar milljónir króna I erlendum gjaldeyri hjá íslendingum, sem höfðu selt Smith fikniefni. Var hluti af pen- ingunum geymdur I bankahólfi, eins og kom fram í Mbl á slnum tima í janúar óskuðu bandarlsk heryfir- völd eftir lögsögu yfir Smith og var hún veitt af ríkissaksóknara Var talið rétt að áframhaldandi rannsókn á máli Smith færi fram á Keflavlkurflugvelli, en hún var I því fólgin að kanna hvernig hann hafði dreift fikniefnunum til bandariskra hermanna. Var hann fluttur til Keflavíkurflugvallar 7, janúar s I eins og að framan greinir og úr- skurðaður í 30 daga gæzluvarðhald. Hafði hann setið i gæzluvarðhaldi I 5 mánuði samtals siðan i desember 1975, vegna þátttöku I flkniefnamál- um. Fangelsi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd Friðþjófur I klefanum í fangelsinu, var ekki innan flugvallarsvæðisins í gær er Morgun- blaðsmenn voru þar syðra. Hafði hann fengið bifreið sina i héndur aftur eftir að hún hafði verið rannsökuð. en fang- inn stal bifreiðinhi og flúði á henni sem kunnugt er. Bifreiðin fannst i fyrradag á Hraunsandi skammtfrá Grindavik. Þess má geta að bændur á Hrauni heyrðu í bil eða bílum á sjöunda tíman- um á fimmtudagsmorgun. Skömmu siðar kom bifreið úr gagnstæðri átt og er þvl ekki útilokað að strokufanginn hafi skipt um bifreið þar skammt frá. Við bil fangavarðarans i fjöruborðinu fundust spor eftir fangann og lágu þau að sjónum Var þvi sá möguleiki tekinn með í reikninginn að fanginn hefði fyrirfarið sér og fjörur voru leitaðar á þessum slóðum i gærdag, án árang- urs. Fangelsið á KeflavíkurflugveUi: Til bráðabirgða 1 einu af elztu húsum varnarliðsins — VIÐ MUNUM að sjálf- sögðu gera allt, sem í okkar valdi stendur til að ná stroku- fanganum Cristopher Barba Smith, sagði Howard Mat- son, blaðafulltrúi á Keflavlk- urflugvelli, í viðtali við Morg- unblaðið f gær. — Okkar rannsókn er einskorðuð við Keflavíkurflugvöll, því lög- saga okkar nær ekki lengra, en við reynum að hafa eins gott samstarf við íslenzku lögregluna og framast er unnt, sagði Howard. Aðspurður sagðist Howard ekki geta greint frá rannsókninni, sem færi fram á Keflavíkurflugvelli á þessu stigi máls- ins. Hann sagði að margir hefðu verið yfirheyrðir I þessu sambandi og þar á meðal fangavörðurinn, sem stroku- fanginn læsti inni I klefa sinum. Um það hvort eitthvað hefði komið fram sem benti til að vörðurinn væri I vitorði með fanganum, eins og komið hefur fram i fjölmiðlum, sagði Matson að það væri meðal þeirra atriða, sem verið væri að rannsaka Mbl er kunnugt um að eitt þeirra atriða, sem verið er að kanna er hvort strokufanginn hafi farið beint úr fang- elsinu og út af vellinum eða dvalið innan flugvallarsvæðisins I einhvern tíma. I þvi sambandi hafa vaknað spurningar um hvort hann hafi náð sér I peninga, önnur föt og jafnvel vopn áður en hann fór í gegnum hliðið. Fangavörðurinn, sem læstur var inni Ein elzta bygging varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli Morgunblaðsmenn skoðuðu fanga- geymslur Varnarliðsins á Keflavikur- flugvelli í gærdag og þær vistarverur, sem Cristopher Barba Smith, öðru nafni Corky, hefur gist síðan varnarlið- ið fékk lögsögu yfir honum þann 5. janúar siðastliðinn. Eru fangageymsl- urnar I einu af elztu húsunum, sem varnarliðið reisti á Keflavikurflugvelli, liklega byggt 1 942 eða 43, að sögn Howards Matsons. Tveir fangaverðir gættu Cirstophers Smiths frá þvi hann var fluttur I gæzlu á Keflavíkurflugvelli. Á miðvikudags- kvöldið er Smith tókst að flýja mun annar fangavarðanna hafa brugðið sér

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.