Morgunblaðið - 22.01.1977, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 22.01.1977, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 22. JANUAR 1977 5 í ‘Í/ f/ úWl / hwujpi., t' ■■ J ■ // Æm 7■ rmm m * i J jj m r' mÉyfwm y jV'Tl Áá; v j' ; j A samkomum kristniboðsvikunnar f Akraneskirkju verður sagt frá þeim breytingum sem orðið hafa á Konsó-þjóðflokknum í Eþfópíu vegna kristniboðsstarfsins þar. Kristnibodsvika á Akranesi UNDANFARIN ár hefur það verið fastur liður í bæjarlífi Akraness að þangað koma starfs- menn Sambands íslenzkra kristniboðsfélaga og halda þar samkomuviku til kynningar á kristniboðsstarfinu f Eþíópíu og til að prédika. Að þessu sinni hefst vikan sunnudaginn 23. janúar og verður í Akranes- kirkju. A fyrstu samkomunni, kl. 20.30 á sunnudag, flytur sóknarprestur- inn, sr. Björn Jónsson, ávarp og Geirlaugur Árnason, verzlunar- maður, og Jóhannes Ingibjarts- son, tæknifræðingur, tala. Sam- komunni stjórnar Skúli Svavars- son, sem nú er heima í leyfi, en hann hefur verið kristniboði í Eþíópfu í allmörg ár. Elsa Jacobsen, kristniboði frá Færeyj- um, mun ásamt Skúla tala flest kvöldin, en þau annast kynningu á kristniboðinu í máli og myndum. A dagskrá er einnig kórsöngur og einsöngur og verður gjöfum til kristniboðsins veitt móttaka. A miðvikudag og föstudag kl. 17.00 verða sérstakar samkomur fyrir börn með myndasýningu. „Töfraskyttan” í Nýja bíói KVIKMYNDASÝNING verður á vegum félagsins Germaniu og Tónleikanefndar Háskóla íslands í Nýja bíói í dag, laugardag, kl. 14. Þar verður sýnd kvikmyndin „Töfraskyttan", sem byggð er á samnefndri óperu eftir Carl Maria von Weber. Þekktir söngvarar koma fram í myndinni, — meðal annarra Tom Krause, Gottlob Frick, Arlene Saunders og Toni Blankenheim. „Töfraskyttan" er litkvikmynd, sem gerð er í Hamborgaróper- unni. Myndin var sýnd hér í sjón- varpi á páskadag 1970. Sögu- þráðurinn er á þá leið, að ungur og hraustur veiðimaður fellir ástarhug til yngismeyjar, en getur ekki fengið hennar með öðru móti en því að sanna skot- fimi sína í viðurvist Ottokars kon- ungssonar. Hinn fláráði Kaspar telur veiðimanninn — Max — á að steypa magnaðar kúlur í Ulfa- gili, sem er draugabæli. Allt fær þó farsælan endi. Eins og fyrr segir hefst sýningin kl. 14 og tek- ur um það bil tvær klukkustund- ir. Aðgangur er ókeypis. Tónlistarskólatónleikar í Háskólabíói TÓNLISTARSKÓLINN i Reykjavík heldur tónleika í Háskólabiói laugardaginn 22. jan. og hefjast þeir kl. 2.30 s.d. á efnisskrá tón- leikanna er konsert fyrir píanó og hljómsveit nr. 27 í B-dúr KV 595 eftir W.A. Mozart og einleikari meö hljómsveitinni veröur Kol- brún Ósk Óskarsdóttir. Er tillegg hennar til þessara tónleika hluti af einleikara- prófi frá Tónlistarskólan- um. Einnig flytur hljómsveitin for- leikinn að „Rosamund" op. 26 eftir Schubert, Brúðarmarz úr „Jónsmessunæturdraumi" Op. 61 nr. 4 eftir Mendelssohn — Barth- oldy og 4 ensk þjóðlög fyrir blásturshljóðfæri eftir Bordon Jacob. Stjórnendur verða Marteinn Hunger Friðriksson og Jón Sigurðsson. Aðgangur að tón- leikunum er ókeypis. Veislumatur, hvaða nafni sem hann nefnist: Kaldir eða heita réttir, Kalt borð, Kabarett, Síldarréttir, Smurt brauð, Snittur o.fl. Sendum í heimahús Leigjum út sali fyrir mannfagnaði og fundarhöld Þorramaturinn okkar er góður Ath.: Tökum niður pantanir í Þorramat, ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSALA — BÚTAS C' H cn > i- > 00 C' H > V) > r~ > C' H C/) > 00 C' H > CO > ÚTSALA-BÚTASALA byrjar í dag. Mjög gott verð. I FRIÐRIK BERTELSEN, LÁGMÚLA 7, SÍMI 86266 > ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSALA — BÚTAS ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSALA — BÚTASALA — ÚTSA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.