Morgunblaðið - 22.01.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1977
29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10-11
1 FRÁ MÁNUDEGI
stöðu að taka á móti lögreglu ef
hún er fáanleg.
Forráðamenn bæjarins hafa
leitað eftir þvi að svo verði, en
ekki bólar á úrlausn. Nú hafa
stjórnir sjálfstæðisfélagsins
Ingölfs og Framsóknarfélags
Hveragerðis ákveðið að boða til
almenns borgarafundar um þessi
mál og bjóða til hans þeim sem
helzt kunna okkur svör að veita.
Vil ég skora á Hvergerðinga að
mæta á fundinn sem verður aug-
lýstur næstu daga og tjá hug sinn
um málið.
Sigrún Sigfúsdóttir."
An efa liggja tii þess margar
ástæður, að afbrotum fer fjölg-
andi í Hveragerði og nágrenni,
hvort sem þar er um að ræða
heimamenn eða aðkomumenn.
Bæir og þorp á Suðurlandsundir-
lendinu fara ekki varhluta af
auknum afbrotum frekar en önn-
ur bæjarfélög. Það er eflaust rétt
að beinn og breiður vegur, sem
rætt er um í bréfinu, á einhvern
þátt i stórauknum ferðum manna
austur þangað og þar innan um er
misjafn sauður, eins og oft er
ímörgu fé. Sennilega er þetta því
hluti stærra vandamáls, sem allt
landið á við a- glíma, aukin af-
brotahneigð eða kemur hér annað
til?
0 Unglingar
ófyrirleitnari
en áður?
„Ég las nýlega í blaði eitthvert
viðtal þar sem meðal annars kom
til umræðu það atriði hvort
unglingar væru ekki uppivöðslu-
samari en áður, hvort börn og
unglingar væru ekki ófyrirleitn-
ari og skömmuðust sín ekki fyrir
að vera ruddaleg og ókurteis í
framkomu sinni, bæði við kenn-
ara og aðra sem þeir þurfa að eiga
samskipti við, t.d. afgreiðslufólk.
Mér finnst þetta vera rétt, að
unglingar eru farnir að leyfa sér
meira en áður, meira en maður
þorði í mínu ungdæmi, en er ég
þó ekki mjög aldraður. Þeir eru
orðnir frjálslegri á margan hátt
og það er vel, en öllu þessu frelsi
verður að setja einhver takmörk
og það þýðir ekki að leyfa sér allt,
bara af því að það er f tízku og er
gaman. Það er svo í sumum hverf-
um Reykjavíkur þegar komið er í
„sjoppu" að kvöldlagi að í fyrsta
lagi hafast menn þar varla við,
vegna reykjarmakkar og í öðru
lagi vegna ýmiss konar áreitni
unglinga. Þau leyfa sér t.d. að tala
upphátt um þá sem koma til að
versla, finnst viðkomandi ekki
rétt eða faljega klæddir, og fleira
og gera grín að, við mikinn fögn-
uð hins veikara kyns. sem fylgist
af aðdáun með piltunum fyrir það
hvað þeir þora. Þetta er rnjög
hvimleitt og ég vil beina því til
unglinganna, sem sjálfsagt nenna
ekki að lesa svona raus, að þeir
sjái sóma sinn í því að haga sér
svona nokkuð sæmilega á al-
mannafæri og vera með dónaskap
og óþarfa áreitni við fólk. Eg tek
fram að þetta á auðvitað ekki við
nema hluta af unglingum, en því
miður er það svq, að maður tekur
frekar eftir því sem miður fer og
lætur heyra í sér vegna þess.
Ein tíu árum
eldri en unglingar"
Þessir hringdu . . .
% Einstæð og
atvinnulaus
Kona nokkur hringdi fyrir
skömmu og rakti í stuttu máli það
sem á daga hennar hefur drifið'
siðasta árið, eða þar um bil. Mað-
ur hennar, sem lengi var deildar-
stjóri í stóru fyrirtæki, lézt fyrir
um ári og heíur hún nú árangurs-
laust reynt að fá vinnu sér og syni
sínum til framfæris, en hann er í
menntaskóla. Hún vill reyna að
gera allt til þess að hann geti
haldið áfram námi en óvist er með
það vegna fjárhagsástæðna.
Hún hefur reynt að verða sér
úti um vinnu, eins og fyrr er sagt,
og í því skyni leitað á fund þeirra
fyrirtækja og s'tofnana sem aug-
lýst hafa að undanförnu, en alltaf
fengið neitun. Það sem hefur orð-
ið henni til bjargar, sagði hún, er,
að ættingjar hennar erlendis hafa
sent henni nokkra fjarupphæð
öðru hvoru. Ekknabætur nægja
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu unglingaskákmóti
i V-Berlín um áramótin 1975—76
kom þessi staða upp í skák
Kouatl.v, Líbanon, sem hafði hvítt
og átti leik, og Raupp, V-
Þýzkalandi:
25. Bf8! Kxf8 (Hvorki 25 . . . Hxf8
26. He7 + , né 25. . . Dxb2 26. Bxg7
Dxg7 27. He7+ bjarga svörtum)
26. Hf 1+ Bf5 27. Dxg6 Dxb2 28.
Hxf5+. Svartur gafst upp. Sigur-
vegari á mótinu varð englending-
urinn David Goodman.
ekki til að reka íbúð þá sem hún á
auk annars kostnaðar sem fylgir
því að lifa, eins og hún orðaði það,
þó segist hún ekki eyða neinu í
vitleysu, aðeins kaupa það nauð-
synlegasta, fer ekki á bíó, né held-
ur sonur hennar.
Þessi saga er aðeins rakin hér
til að sýna að ekki eru allir þegn-
ar þessa þjóðfélags vel á vegi
staddir, til er nokkur hópur, sem
er minni máttar og þarfnast skiln-
ing og stuðnings annarra sem
betur mega sín.
HÖGNI HREKKVÍSI
Þessi köttur þinn er ofsa „sporhundur“!
áa Skattaframtal
1977
Tilkynning til hluthafa
Á aðalfundi Eimskipafélagsins 20. maí 1976
var samþykkt að tvöfalda hlutafé félagsins með
útgáfu jöfnunarhlutabréfa á árinu 1 976.
Eimskipafélagið vill benda hluthöfum á, að
skattaframtali 1977 ber þeim að telja fram
hlutafjáreign sína í félaginu með tvöföldu verð-
gildi, miðað við það sem hún var 20. mai
1976, þótt útsendingu jöfnunarhlutabréfanna
hafi ekki verið lokið að fullu fyrir árslok 1 976
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.