Morgunblaðið - 22.01.1977, Side 30

Morgunblaðið - 22.01.1977, Side 30
30 MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. JANUAR 1977 ED GO EZ3 MaxGrundig byrjaði smátt... Evrópa, áriö 1945, stríðinu er nýlokið. Þegar friður komst á var varla til útvarp á þýsku heim- ili. Viötækin höfðu ýmist ver- ið eyðilögð eða gerð upptæk. Fólkið var fátækt. Það var enn bannað að smíða útvarps- tæki. Gegn þessum vanda réðst ungur rafvirki, Max Grundig, með aðstoð fáeinna hjálpar- manna, án auðs eða áhrifa. Með ótrúlegum klókindum tókst honum að hefja gerð viðtækja úr gömlu dóti sem herir bandamanna höfðu í fórum sínum og máttu sjá af. Þannig var kjölur lagður að einu mesta iðnaðarundri seinni ára. Á tólf árum varð Grundig mestur framleiðandi útvarps- og segulbandstækja í Evrópu allri og í gerð sjónvarptækja einn sá fremsti í heimi. Verk- smiðjur hans eru nú 25 í ýmsum löndum Evrópu. Grundigstaður heitir nýtt byggðarlag skammt suðaust- an Nurnberg, sem reist var um 1970. Þar eru nú höfuð- stöðvar Grundigs, og einhver stærsta og fullkomnasta sjón- varpstækjasmiðja heims. Þar vinna nú 10.000 manns að framleiðslunni. Árið 1970 var 10. hvert litsjónvarpstæki í Vestur- Þýskalandi frá Grundig. Nú er 3. hvert litsjónvarp framleitt af fyrirtæki þessa manns, sem sjálfur forðast sviðsljós- ið, fjölmiðlana og hið Ijúfa líf eins og heitan eldinn. Það er fyrir þig en ekki Max Grundig sem þessi saga er sögð hér og nú. Hvernig getum við betur skýrt það ótrúlega traust sem kröfu- hörðustu kaupendur heims sýna einni tegund vöru? ÞAÐ ER ÁSTÆÐA TIL AÐ TREYSTA GRUNDIG. Þröstur Magnússor , Leiðandi fyrirtæki á sviði sjónvarps útvarps og hljómtækja VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.