Morgunblaðið - 11.02.1977, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1977
Mál Hauks
Guðmundssonar:
Avísanamálið
bíður þar til
rannsókn hand-
tökumáls lýkur
RANNSÓKN á ávfsanamáli
Hauks Guðmundssonar mun bfða
þar til rannsókn handtökumáls-
ins er lokið. Þessar upplýsingar
fékk Morgunblaðið I gær hjá
Steingrfmi Gauti Kristjánssyni,
umboðs og setudómara f þessum
tveimur málum.
Að sögn Steingrims hefur rann-
sókn handtökumálsins dregist
nokkuð á langinn, þar sem fram
hafa komið ýmis atriði við yfir-
heyrslur, sem kanna þurfti nánar.
Sagði Steingrímur að rannsóknin
væri i fuflum gangi og yfir-
heyrslur öðru hvoru. Aðstoðar-
maður Steingrfms við rannsókn
handtökumálsins er Hannes
Thorarensen, rannsóknarlög-
reglumaður úr Reykjavik.
Mikill
fugladauði
í Viðfirði
Neskaupstað, 10. febrúar.
FYRIR nokkru urðu menn, sem
fóru frá Neskaupstað til Við-
fjarðar til að huga að útigangsfé
þar, varir við mikið af dauðum
svartfugli og æðarfugli á Viðfirði
og f f jörunni þar.
Fréttaritari Mbl. hafði samband
við Steinþór Þórðarson bónda í
Skuggahlíð sem fór til Viðfjarðar
að athuga með fé. Sagði Steinþór
að þegar hann hefði komið
þangað, hefði mátt sjá dauðan
fugl um allt, bæði í fjörunni og á
firðinum og hefðu dauðu fuglarn-
ir skipt hundruðum. Kvaðst Stein-
þór greinilega hafa séð grútar-
eða oliubrák á firðinum og
kringum hana hefi dauður fugl-
inn verið í röstum.
Að öðru leyti eru menn hér
ekki vissir um hvað hefur valdið
dauða fuglanna, en ekki hefur
orðið vart við dauðan fugl hér á
Norðfirði, hins vegar mátti sjá
olíu eða grútarbrák hér á firðin-
um fyrir skömmu, en ekki varð
fólk vart við að fugl dræpist í
brákinni. —Asgeir.
Óskarsverd-
launaútnefn-
ingintilkynnt
Los Angeles, 10. feb. Reuter.
Kvikmyndaakademían I
Hollywood tilkynnti f dag út-
nefningar til Óskarsverðlauna
kvikmyndaiðnaðarins. Peter
Finch, ástralski leikarinn, sem
lézt fyrir mánuði , var meðal
þeirra, sem útnefndir voru
sem bestir leikarar, fyrir hlut-
verk sitt I Network. Aðrir voru
Robert DeNiro fyrir Taxidriv-
er, Giancarlo Giannini fyrir
Seven Beauties, William
Holden fyrir Network og
Sylvester Stallone fyrir Rocky.
Network og Rocky hlutu flest-
ar verðlaunaútnefningarnar.
Útnefndingu sem bezta leik-
kona hlutu Marie-Christine
Barrault fyrir Cousin Cousine,
Faye Dunaway fyrir Network,
Talia Shire fyrir Rocky, Sissie
Speack fyrir Carrie og Liv Ull-
mann fyrir Face to Face. 5
beztu myndurnar voru út-
nefndar All the Presidents
men, Bound for Glory, Net-
work, Rocky og Taxi Driver.
Verðlaunin verða afhent 28.
marz nk.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi greinargerð til iðnaðar-
ráðherra um stöðu framkvæmda við Kröfluvirkjun. Var greinargerð
þessi rædd á fundi ríkisstjórnarinnar síðastliðinn þriðjudag. Fer
greinargerðin hér á eftir:
Gufuöflun
Alls hafa verið boraðar 11 hol-
ur, þar af 9 vinnsluholur. Á árinu
1974 voru boraðar 2 rannsóknar-
holur, tölusettar sem hola 1 og
hola 2. Gufa úr holu 1 hefur verið
notuð til upphitunar vinnubúða
o.fl.
Á árinu 1975 voru boraðar 3
vinnsluholur. Hola 3 gaf upphaf-
lega 5 MW en varð svo til óvirk
eftir gosið í des. 1975. Hola 4 var í
byrjun mjög aflmikil en ekki
tókst aó hafa taumhald á henni og
breyttist hún í gufuhver. Hola 5
var ekki boruð í fulla dýpt á árinu
1975. Var síðar áformað að dýpka
hana, en fóðurrör hafði skekkst
svo að dýpkun varð ekki möguleg
og er holan óvirk.
Á s.l. ári voru boraðar 6 holur,
sem tölusettar eru 6 til 11* Af
þeim gefa hoiur 6, 7 og 10 nægjan-
lega gufu til að tengja þær við
gufuveituna. Holur 9 og 11 byrj-
uðu að blása um mánaðamót janú-
ar—febrúar en ekki er fullljóst
hvaða ágrangri þær skila, en talið
er óvíst hvort hola 8 muni gefa
nægilega gufu til að borgi sig að
virkja hana.
Samkv. þeim upplýsingum sem
fyrir liggja er búist við að holur 6,
7 og 10 geti gefið 9—11 MW gufu
sem svarar til 3—4 MW inn á
raforkukerfið, þar sem 6—7 MW
af gufu fara i töp og eiginnotkun
af fyrstu gufu inn á vélina. Öll
viðbótargufa skílar sér til raf-
orkuöflunar svo til að fullu úr
því, og þar að auki verulegur
hluti af fyrstu töpum þegar aukið
gufumagn verður fyrir hendi.
Gert er ráð fyrir að bora 5 holur
á komandi sumri. Verið er að
vinna að staðsetningu borhol-
anna. Miðað við hinn takmarkaða
árangur af borunum 1976 má ætla
að þær geti gefið a.m.k. 10—20
MW til viðbótar þeim, sem nú eru
boraðar.
Gufuveita
Samkvæmt tímaáætlun er nú
gert ráð fyrir að tengingu holu 6
verði lokið um mánaðamótin
febrúar—mars, holu 7, 9 og 11 1.
viku í mars og holu 10 í apríl.
Að framansögðu og þegar at-
hugaðar eru allar aðstæður, má að
dómi Orkustofnunar, draga eftir-
farandi fram:
A. „Ljóst er nú þegar, að árang-
ur vinnsluborana 1976 er lakari
en vonir stóðu til, bæði varðandi
magn tiltækrar gufu og gæði
hennar (gasinnihald; tæringar-
áhrif á gufukerfi). Heildarniður-
stöður borananna liggja þó enn
ekki fyrir, þar eð mælingum er
ekki lokið á tveimur síðustu hol-
unum sem boraðar voru.
B. Talið er fullvíst að tæringar-
áhrifin og gasinnihald gufunnar
orsakist af eldsumbrotum við
Kröflu. Vinnuhópur sérfræðinga
starfar nú að því að kanna þau
áhrif og finna leiðir til úrbóta.
Hugsanlegt er einnig að eldsum-
brotin hafi haft áhrif til rýrnunar
á rennsii úr borholum.
C. Það kom fyrst í ljós við bor-
anirnar 1976 að áhrif umbrotanna
urðu svo víðtæk á fyrirhuguðu
borsvæði, sem raun ber vitni.
Þetta vinnslusvæði er hins vegar
aðeins hluti af jarðhitasvæðinu
við Kröflu. Ekki var unnt að segja
fyrir um hversu víðtæk oða varan-
leg áhrifin yrðu, enda “kki við
sambærilega reynslu annars stað-
ar að styðjast.
Greinargerð um stöðu framkvæmda við Kröfluvirkjun:
virkjun. Verið er að athuga hvar
ráðlegast sé að halda borunum
áfram. Ýmsir kostir koma þar til
álita og þarf að bera þá saman. Að
því verður unnið nú á næstunni.
G.2. Halda áfram framkvæmd-
um við stöðvarhús og gufuveitu
að því marki sem nauðsynlegt er
til að geta komið stöðinni í gang
með þeirri gufu sem nú er tiltæk.
Fyrst yrði stöðin rekin í tilrauna-
rekstri meðan ýmiskonar próf-
anir færu fram og byrjunarörðug-
leikar í sjálfum rekstrinum væru
yfirunnir. Er þýðingarmikið að
geta notað tímann í því skyni
meðan unnið er að frekari gufu-
öflun, svo að ekki verði frátafir af
þeim sökum þegar hún er
fengin."
véla- og rafbúnaðar svo og tengi-
virki er langt komið vegna fyrri
vélasamstæðu.
Áætlað er að þeim verkþáttum
sem nauðsynlegir eru vegna gagn-
setningar fyrri vélar verði lokið
31. mars. Grngsetning véla með
álagi gæti þá orðið um miðjan
apríl.
III. Verkefni
Rafmagnsveitna
ríkisins.
Lagningu háspennulínu frá
Kröfluvirkjun til Akureyrar mun
væntanlega ljúka um mánaðamót-
in febr.—mars. Gerð tengivirkis á
Vfsindamenn kanna gasinnihald f gufunni úr holu 10.
Unnið við lagnir að
stöðvarhúsinu.
D. Um það verður ekki sagt að
svo stöddu hversu stórt það svæði
er, sem áhrif umbrotanna ná til;
hvort þau nái til jarðhitasvæðis-
ins alls eða þess hluta einungis,
sem borað var í á síðasta sumri.
Úr þessu verður ekki skorið nema
með frekari borunum.
E. Ekki er heldur unnt að segja
um það á þessu stigi máls hve
lengi muni gæta þeirra áhrifa
eldsumbrotanna á vinnslueigin-
leika, sem í ljós komu á þeim
hluta jarðhitasvæðisins við
Kröflu þar sem borað var 1976.
Allar tölur um slíkt, sem fram
hafa komið í fjölmiðlum undan-
farið verða að skoðast sem per-
sónulegt mat viðkomandi. Reynsl-
an ein getur skorið úr um þetta
atriði.
F. Ætla má, að áhrif eldsum-
brotanna við Kröflu verði fremur
til að tefja gufuöflun til virkjun-
arinnar og gera hana dýrari en að
tefla henni i tvísýnu til frambúð-
ar.
G. Við þessar aðstæður telur
Orkustofnun rétt að gera eftir-
farandi:
G.l Halda áfram nú á þessu ári
vinnsluborunum í þvi skyni að
afla meiri gufu handa Kröflu-
II. Verkefni
Kröflunefndar.
Stöðvarhússbyggingu er nú
langt til lokið. Rétt er að taka
fram að þrátt fyrir það landris og
landsig, sem átt hefur sér stað á
Leirhnjúkssvæðinu hafa engar
skemmdir eða sprungur orðið á
stöðvarhúsinu, enda hefur hæðar-
munur suður og norðurenda
hússins, sem er um 70 m. langt,
aldrei orðið meiri en 1 cm. Vinnu
við kæliturna, niðursetningu
I Að greinargerðinni
standa: Páll Flygenring ’
I ráðuneytisstjóri, Árni I
I Snævarr, fyrrverandi |
| ráðuneytisstjóri, Krist- i
| mundur Halídórsson
deildarstjóri, Guðmund- '
• ur Einarsson verkfræð- I
I ingur, Jakob Björnsson |
| orkumálastjóri, Guð- |
| mundur Pálmason, jarð- .
I eðlisfræðingur Orku-
stofnunar, Kristján I
I Jónsson, rafmagnsveitu- |
| stjóri rfkissins, Einar |
| Tjörvi Elfasson, yfir- .
I verkfræðingur Kröflu-
nefndar.
„Haldið verði áfram á
þessu ári vinnskibor
unum til gufuöflunar"