Morgunblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 15
MORtiUNBLAÐlÐ. FÖSTUDAGUR 11. FEBRUAR 1977. 15 J ór daní udr o ttning borin til grafar Animan 10. febrúar. Reuter HUSSEIN Jórdaníukon- ungur fylgdi í dag harmi sleginn til grafar Aliu drottningu sinni, sem fórst í þyrluslysi skammt fyrir utan Amman í gær ásamt heilbrigðisráöherra lands- ins, Mohammed Al-Basir, flugmanni og herlækni. Alia, sem var 28 ára að aldri var að koma frá því að skoða sjúkrahús í Tafileh við Dauðahafið, eftir að hafa lesið frétt í blaði þar sem kvartað var yfir aðbúnaðinum. Var þetta einkennandi fyrir hinn mikla áhuga Latina á vík- ingaleifum á Grænlandi Kaupmannahöfn, 10. febrúar. Reuter. TALSMAÐUR danska þjóð- minjasafnsins skýrði frá því f dag, að fyrstu latnesku áritan- irnar, sem vitað væri um á fornleifum frá Víkingatímun- um á Grænlandi, hefðu fund- ist. Voru áritanirnar á hand- fangi matarskálar, sem fannst á Fisigarfik I Godthaabfirði á sl. sumri. Að sögn talsmanns- ins hefur enn ekki tekist að ráða hvað áritunin þýðir, en hinum megin á handfanginu er rúnaletur eins og vfkingarn- ir, sem settust að á Grænlandi á 10. öld, notuðu. drottningar á velferð almennings í Jórdaníu en hún giftist Hussein 1972 og var þriðja kona hans. Hún lætur eftir sig eins árs gamlan son, sen einn barna Husseins getur tekið við konungdómi af föður sínum, og tveggja ára dóttur. Slysið varð, er þyrlan lenti í óvæntum regnsveip ög steyptist tíl jarðar, þar sem hún varð alelda á svipstundu. Assad Sýrlandsfor- seti stóð við hlið Husseins við útförina svo og Hans Dietrich Genscher, utanrikisráðherra V- Þýzkalands, sem aflýsti fyrirhug- aðri tveggja daga heimsókn sinni til 'Sýrlands til að komast til Jórdaníu. Fáir aðrir erlendir leið- togar náðu til Amman í tæka tíð, en Farah, keisaraynja af íran, kom til borgarinnar skömmu siðar. Drottningin var jarðsett í garði hallarinnar, sem Hussein lét byggja handa henni og var lokið við fyrir 4 mánuðum. Alia drottning var af palestínskum ættum fædd i Kaíró og starfaði sem kynningarfulltrúi hjá Flugfélagi Jórdaniu, er hún kynntist konungi við sjóskíða- keppni i Aqaba. Hussein skildi við aðra eiginkonu sína, Munu Al-Hussein, 1972. Stjórnmálafréttaritarar segja að andlát drottningar kunni að verða til þess að mikilvægum við- ræðum Husseins konungs við leið- toga PLO, Frelsissamtaka Palestínumanna, verði frestað en þær áttu að hefjast á laugardag. Vikuþjóðarsorg hefur verið fyrir- skipuð i landinu. Orlov handtek- inn í Moskvu Moskvu 10. fihrrtar. NTB EINN af leiðtogum andstöðuafl- anna í Sovétríkjunum, eðlis- fræðingurin Jrij Orlov, var hand- tekinn í Moskvu á fimmtudag. Orlov er leiðtogi hóps, sem reynir að fá stjórnvöld til að fara eftir Helsingfors yfiriýsingunni frá 1975. Það voru vinir Orlovs, sem sögðu frá handtöku hans. Orlov var sóttur af 7 einkennisklæddum lögreglumönnum í hús annars andófsmanns, Luda Alkesjeva, í morgun. Hann kom til Alksejeva í gær, eftir að hafa farið huldu höfði i viku vegna þess að sovézk blöð og útvarp hafa haldið uppi árásum á hann og Alexander Ginsburg, sem handtekinn var fyrir viku. Lögreglan gerði húsleit á heimili Orlovs og tveggja annarra andófsmanna í janúar. Orlov og (Jinsburg voru ásakaöir um að hafa haft samband við samtök landflótta Sovétmanna NTS, og fyrir ólögleg gjaldeyrisviðskipti. Báðir hafa neitað ásökununum og halda þeir því fram að lögreglan hafi sett erlenda gjaldeyrinn i íbúðir þeirra. Ilyushin er látinn Moskvu, 10. febrúar. Reuter. SOVÉZKI flugvélaverkfræðing- urinn Sergei Ilyushin er látinn, 82 ára gamall. Hann hóf feril sinn sem hjálpardrengur I flugher Rússlandskeisara og gerði meir en 50 flugvélategundir á ævi- skeiði slnu. Hann var þrisvar sinnum sæmdur Leninorðunni og hlaut fleiri viðurkenningar. Ilyushin fæddist 1884 og for- eldrar hans voru bændafólk. 1914 gekk hann í þjónustu flughers keisarans og var þar hjálpar- drengur í flugskýlum. Þar lærði hann að fljúga og tíu árum síðar lauk hann verkfræðiprófi við Sjukovskiakademiuna. Stuttu seinna varð hann yfirmaður til- raunaverksmiðju flughersins í Moskvu þar sem hann teiknaði meðal annars orustuflugvélina II—2. Rússar kölluðu flugvélina „Fljúgandi skriðdrekann", en Þjóðverjar nefndu hann „Svarta dauða“. Varð flugvélin fræg i stríðinu við Þjóðverja á austur- vigstöðvunum. Ilyushin varð fyrst heimsfræg- ur 1939, þegar tveggja hreyfla flugvél hans „Moskva“ flaug án viðkomu frá Moskvu til Norður- Ameríku á 22 klukkustundum. Eftir stríðið helgaði hann sig hönnun farþegaflugvéla og uppi- staða flugflota sovézka flugfélags- ins Aeroflot eru Iljushyn- flugvélar. Hann hannaði nýjustu flugvél Aeroflot og fyrstu breið- þotu flugfélagsins 11-86, sem fljót- lega verður tekin í notkun. Símamvnd AP. Dóminikanskar nunnur við eina af kistum sjö kaþólskra trúboða og kennara, sem myrtir voru af afrískum skæruliðum í Rhódesíu fyrr í þessari viku. Jarðarför þeirra fór fram í gær. Sovézka fréttastofan APN kærd í Svíþjóð Stokkhólmi 10. febrúar. NTB. ÞRÍR starfsmenn sovézku - fréttastofunnar APN í Stokkhólmi eiga á hættu að fá dóm vegna þess að fréttabréf frétta- stofunnar kemur út í Sví- þjóð án þess að ábyrgðar- maður þess sé tilgreind- ur. Það er lögfræðingur, Lennart Hane, sem kært heíur fréttastofuna og heldur hann því fram að Sovétríkin noti hana til að breiða út falskar ásak- anir á hendur Svíum. Hane er lögfræöingur Pavel Vesselov, sem er sovézkur flóttamaður og hefur búiö í Finnlandi um árabil. Vesselov er lögfræðilegur ráögjafi Valentin Agapov, sem einnig er sovézkur flótta- maöur, búsettur í Sví- þjóö. Hann hefur lengi barist fyrir því aö fá eig- inkonu sina og dóttur, sem búa i Sovétríkjun- um, til Svíþjóðar, en þær hafa ekki fengið leyfi til að fara úr landi. Enginn ábyrgöamaöur er fyrir fréttabréfi APN í Svíþjóö og starfsmenn fréttastofunnar hafa ekki viljaö tjá sig um málið. Hane átti því í vandræðum meö hvern hann átti að kæra. Það gerir málió erfiðara að fréttabréfið er ekki skráð í Svíþjóó, og enginn starfsmannanna hefur viljað skýra frá því hver standi á bak við útgáf- una. Samkvæmt sænsk- um lögum verða öll tíma- rit að vera skráð og hafa ábyrgðarmann. í kæru sinni segir Hane að það geti ekki gengið að málgögn er- lendra ríkja geti haldið uppi fölskum ásökunum á hendur sænskum borg- urum án þess að þær séu skrifaðar undir fullu nafni. Vesselov hefur krafist 100.000 sænskra króna eða 4,48 milljóna íslenzkra króna í skaða- bætur fyrir meiðyrði. Réttarhöld í málinu hefj- ast 28. febrúar. Útsala — Bútasala Gardínuefni frá 450 — kr. Stórisefni stórlækkað verð. Eldhúsgardínur áður 4.500 - nú kr. 2.800.- Terelyne í buxur og pils áður 1 .1 50 - nú 700.- Frotté í rúmteppi og sloppa áður 1.800 - nú 1.300.- Riflað flauel áður 1.075,- nú 550,- Tweed-efni áður 1.250 - nú 800.- Finnsk bómullarefni áður 980 - nú 600.- Skyrtuflunel, sængurvera og lakaefni, gólfteppi, sessur og m.fl. Notið tækifærið og gerið góð kaup. Opið 9—12 á laugardögum. tíwfuiin aa fi aiutið Iðnaðarhúsinu SÍmí 16 2 59. v/ Ingólfstrapti _ ^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.