Morgunblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.02.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRUAR 1977 23 Eins og að líkum lætur er hann orðinn þunnskipaður sá hópur ungra og tápmikilla manna, sem settu svip á sfmastofnunina um þær mundir, þegar mig rak þar á fjörur, árið 1920. Or þeim hópi eignaðist ég marga vini og sam- starfsmenn, sem hver af öðrum hafa sfðan skilið eftir söknuð og minningar, sem ekki hafa fyrnst. Og enn er einn farinn af þeim fáu, sem eftir voru, og verður hann til moldar borinn í dag, en það er Magnús Richardson, fyrr- verandi umdæmisstjóri á Borð- eyri og Brú í Hrútafirði. Magnús gerðist starfsmaður Landssímans 1920, að foknu sím- ritunarnámi, og vann við stofnun- ina í 52 ár sem fastur starfs- maður, eða til ársins 1972, og sfðan sem lausráðinn til æviloka, eða samtals f 57 ár. Hefur enginn annar unnið svo lengi við þá stofnun. Og nú sakna hans margir eftir föng kynni. Hann setti svip á stofnunina, kom til vinnu á hverj- um degi fyrstur manna, fasmikill og fyrirmannlegur eins og hann átti kyn til, oftast brosmildur og hlýr í viðmóti, en brúnaþungur og harður i horn að taka, hver sem f hlut átti, ef svo bar undir. öll þau ár, sem liðin eru frá fyrstu kynn- um okkar Magnúsar lágu leiðir okkar saman með daglegu sam- bandi, þó stundum væri vfk á milli þau ár, sem hann starfaði utan Reykjavfkur, fyrst sem sím- ritari á ísafirði og sfðar sem um- dæmisstjóri pósts og síma I Hrúta- firði. Á þeim árum heimsóttum við hvor annan er tækifæri gáf- ust, en einkum eftir að hann flutt- ist aftur til Reykjavikur með seinni konu sinni, Unni Jóns- dóttur. Heimili þeirra hér f Reykjavfk varð fljótt samkomu- staður mikils vinahóps. En þegar Magnús missti hina fjölhæfu og aðlaðandi konu sina, er hún dó um aldur fram, varð hann fyrir meira áfalli en vinum hans var ljóst, enda var það ekki eðli hans samkvæmt að bera mótlæti sitt á torg. Hann mætti þeim örlögum að eignast tvær konur, sem hann deildi mikilli hamingju með, en varð að sjá á bak þeim báðum. Magnús var vinur vina sinna f þess orðs bestu merkingu. Hann var greiðvikinn, og alltaf reiðu- búinn til hjálpar, og aldrei var hann glaðari en þegar hann fékk tækifæri til að aðstoða vini sfna við að koma bífnum f gang, eða lagfæra heimilistæki, sem aðrir gáfust upp við, enda lék allt f höndum hans. Frá laxveiðiferðum með Magnúsi eigum við vinir hans margar skemmtilegar endurminn- ingar, þvf hann átti fáa sfna lfka sem ferðafélagi. Ég þakka honum fyrir margar ógleymanlegar stundir á langri samleið, og það gera margir sam- starfsmenn hans í dag. Með honum er tryggur vinur margra horfinn. Guð blessi minningu hans. A.G. Þormar. í dag verður jarðsunginn heiðursmaðurinn Magnús Richardson, fyrrverandi um- daemisstjóri hjá Landssfmanum. Hann andaðist í svefni heima hjá sér, aðfararnótt 7. febrúar, en hann var nýkominn af sjúkrahúsi eftir 5 vikna legu vegna hjartabil- unar. Magnús var komin á 76. aldurs- ár, en segja má þó með sanni, að hann hafi ekki litið út fyrir að vera orðinn það fullorðinn. Það var þannig með hann, alla tfð sfðan ég fyrst kynntist honum fyrir um 20 árum, að hann leit jafnan út fyrir að vera 10 til 15 árum yngri en kirkjubækur um kváðu. Ekki var það einasta, að líkamlega væri hann hressari en flestir jafnaldrar hans, heldur var allt lífsviðhorf hans sem viðhorf miklu yngri manns. Vegna þess, sem að framan seg- ir, hraus Magnúsi hugur við að sjá fram á litlausa tilveru hjarta- sjúklings. Það gekk illa að fá hann til að hlýta ráðum sérfróðra og við það bættist svo auðvitað, að erfiðara er að hemja sig, þegar hugsunin er í lagi og heilsan góð að öðru leyti. En keðjan verður aldrei sterkari en veikasti hlekk- ur hennar. Hjá Magnúsi var hjartað veikasti hlekkurinn og það brást á mánudaginn var. Magnús fæddist 26. október 1901 á Guttormshaga f Holtum og var hann sonur séra Richard Torfasonar prests í Holtaþingum og konu hans Málfrfðar Lúðvfksd. Hann nam sfmritun, útskrifaðist og var skipaður símritari f Reykjavfk 1. júnf 1920. Frá þeim degi helgaði hann Landssimanum og sfmamálum á íslandi starfs- krafta sfna. Hann hóf starfið hér í borg sem sfmritari, eins og áður var sagt, vann sfðan á Isafirði, aftur I Reykjavik, næst varðstjóri við Ritsfmann og loks umdæmis- stjóri á Borðeyri, en þar starfaði hann í rúm 20 ár. Árið 1953 flutt- ist Magnús aftur til Reykjavíkur og starfaði hann á Aðalskrifstofu Landssfmans þar til hann komst á eftirlaunaaldur, árið 1971. Siðan vann hann hálfan daginn á birgðastöð sfmans við ,,að telja skrúfur og nagla“ eins og hann sagði sjálfur. Þannig vann hann rúm 55 ár hjá Sfmanum og held ég, að þeir séu ekki margir, sem svo löngum starfsdegi hafa skilað sfmamálum þjóðarinnar. Þetta er þá starfssaga Magnúsar Richardsonar f mjög stórum dráttum. Hann hlýtur að hafa skilið mikið eftir hjá Sfman- um á rúmrar hálfrar afdar starfs- ferli. Á sama hátt hefir Siminn orðið óaðskiljanlegur hluti af honum og má segja, að hvorugur hafi án hinns getað verið. Ég þekkti Magnús ekki, þegar hann var á Borðeyri, en einhvern veginn hefir mér skilist, að það hafi verið blómaskeið hjúskapar hans og Símans, ef svo má að orði komast. Það var sem sé há- punkturinn á starfsferli hans. Hann var á þeim árum meira heldur en simstöðvarstjóri á Borðeyri. Hann var leiðtogi á staðnum og sjálfkjörinn hjálpar- hella ferðamanna og annarra, sem leið áttu um plássið. Sagt hafa mér menn, sem flugu flug- vélum í þá daga, að enginn hafi dirfst að leggja upp héðan norður f land, án þess fyrst að hringja f Manga Rikk á Borðeyri til að ráðgast um veður og útlit! Tvfgiftur var Magnús og lifði hann báðar konur sínar, Sigriði Matthfasdóttur og Unni Jóns- dóttur. Með Sigrfði eignaðist hann Gunnar, sem kvæntur er Hrafnhildi Guðbrandsdóttur, Jóhönnu, sem gift er Benedikt Gunnlaugssyni og eina dóttur, sem dó ung. Einnig eignaðist hann son, Þór, sem kvæntur er Maríu Heiðdal. Móðir Þórs er Sig- rfður Þórðardóttir. Erlu, dóttur Unnar Jónsdóttur, seinni konu sinnar, gekk hann f föður stað. Erla er gift undirrituðum. Barna- börn á Magnús mörg og auk þess tvö barnabarnabörn. Magnús var f eðli sfnu félags- vera og eignaðist hann fjölda vina og kunningja. Bezt undi hann sér f hópi góðs fólks við spjall eða spil, og mikið yndi hafði hann af veiðum og ferðalögum um fjöll og firnindi landsins. Eins og margir landar hans, fylgdist hann vel með viðburðum öllum, innan lands og utan. Dagblöðin missa dyggan lesanda og útvarpið áhugasaman hlustanda, þvi án hvorugra þeirra fjölmiðla vildi Magnús vera. Hann var glæsilegur maður hann Magnús, og hann naut þess í ríkum mæli að vera til. Þótt hann yrði fyrir ýmsum áföllum á ævi- skeiðinu, bar hann sig jafnan karlmannlega og kunni að Ifta á björtu hliðar lífsins. Hann var mikill Islendingur, ef leyfilegt er að nota það orð sem lýsingarorð, og undi hann sér aldrei á löngum ferðalögum í útlandinu. Hann fór fljótlega að klæja í lófana eftir að komast aftur heim á hólmann sinn og f hópinn sinn. Þegar þessi heiðursmaður er kvaddur hinzta sinni, hafa vinir hans og ættingjar margs að minn- ast. Minningarnar eru hlýjar og bjartar um góðan dreng og gjöfuf- an, kátan og hressilegan, hjálp- saman og ósérhlifinn, trúan og tryggan. Skarð Magnúsar stendur ófyllt f hjörtum þeirra, sem hann þekktu. Þórir S. Gröndal. Kjartan Asmundsson gullsmiður - Minning Fæddur 3.7.1903. Dáinn 4.2.1977. Ég var fimmtán ára gamall þeg- ar ég hitti Kjartan Ásmundsson fyrst. Eg gekk inn á gullsmiða- verkstæði og mætti glaðlegum ungum manni sem heilsaði mér brosandi. Frá þeirri stundu vor- um við vinir. Sú vinátta hélst órofin. Seinna, eða nánar tiltekið árið 1932, þegar ég var með tann- smíðaverkstæði f Austurstræti 5, voru erfiðir tfmar. Þá flutti Kjart- an tif mfn og við höfðum verk- stæði saman i hálft annað ár. Þá fór hann til Þýzkalands til að læra emalieringu. Að námi loknu smfð- aði hann fslenzku fálkakrossana. Kjartan var óvenju fríður mað- ur og hlaut hann að vekja athygli hvar sem hann fór. Hann giftist Kristinu Bjarna- dóttur frá Húsavík og eignuðust þau 4 börn. Þrjá syni og eina dóttur. Þau slitu samvistum. Kjartan lærði gullsmiði hjá snillingnum Baldvini Björnssyni og fylgdi honum til Vestmanna- eyja. Oft sagði hann mér frá Bald- vini og ávalt var sama aðdáunin gagnvart þeim ágæta manni. Vin- áttan hélst á meðan Baldvin lifði og tengslin við fjölskyldu hans héldust. Nokkru eftir lát Baldvins hringdi Kjartan til mín og bað mig að finna sig. Þá sýndi hann mér olfumálverk eftir Baldvin sem Björn listfræðingur, sonur Baldvins, hafði fært honum að gjöf. Gleðin sem skein úr hverj- um andlitsdrætti Kjartans var ólýsanleg. Þar tóku saman hönd- um ánægjan og hamingjan. Á verkstæðinu hjá Kjartani hittist allur vinahópurinn. Það varð að sjálfsögðum vana að koma þar við, spjalla saman og gjarnan spilað fram á kvöldmat. Auðvitað var Kjartan ávalt miðdepill hóps- ins. Þegar Kjartan varð sextugur orti hinn þjóðkunni hagyrðingur: Guðmundur heitinn Sigurðsson vinur okkar skemmtilegt kvæði til hans og leyfi ég mér að vitna í eitt erindi úr þvf kvæði: „Hér er enginn miðlungsmaður að myndarskap f orði og gerðum, ungur ber sem ekkert v*ri áratugi sex á herðum, hugumstór og höfðinglyndur heill að öllu starfi gengur, varla mun þó vftt sé leitað verða fundinn betri drengur.“ Theodór heitinn Brynjólfsson tannlæknir var góður vinur okkar Kjartans. Eitt sinn er við vorum tveir einir sagði hann við mig: „Það er sama hvað hann Kjartan gerir, þar fylgir alltaf farsæld." En enginn má sköpum renna. Fyrir nokkrum árum veiktist Kjartan og sá illi krankleiki angr- aði hann hörmulega. Aldrei var þó kvartað. Hann tók þessu eins og hetja, en sárt var að sjá hve mikið er lagt á einn mann. Það var eitt sinn að ég sat hjá honum. Við höfðum spjallað um margt. Honum var ljóst að hverju stefndi. Þá komst hann þannig að orði að auðvitað hlyti maður alltaf að tapa sfðustu skákinni. En svo hélt hann áfram og sagði: „Hvers vegna þarf dauðastriðið að taka svona óstjórnlega lagan tfma?“ Manni verður svarafátt undir slíkum kringumstæðum, en ég sagði aðeins: „Ég veit það ekki vinur, en varst þú ekki að segja að maður hlyti afltaf að tapa síðustu skákinni?" „Jú, það er alveg rétt, maður tapar henni alltaf." Ég vissi að það var lausn fyrir Kjartan að fá að fara eins og komið var. Samt fannst mér eftir að stundin var runnin upp, að eitthvað hefði slitnað innan f mér. En kannski er söknuður og sorg aðeins eigingirni? Spyr sá sem ekki veit. Góðir menn eru fágætir. Nú er- um við einum fátækari. Hann tapaði siðustu • skákinni eins og allir aðrir. En farsældin hlýtur að fylgja honum á þær lendar sem hann gistir um ókomna framtfð. Friðrik Dungal. Kvaddur er mágur og vinur. Þegar ég kom heim til tslands að heimsstyrjöldinni lokinni I júlfmánuði 1945 og M.S. Esja rann upp að Sprengisandi, en Em- il Jónsson ráðherra steig i pont- una á bryggjunni til þess að ávarpa úr helju endurheimta tslendinga frá Evrópu, þá leit ég yfir mannfjöldann á bryggjunni og á þaki Hafnarhússins og fanns allt þetta harla gott, en skrýtið. Loks kom ég auga á Asgeir bróður minn og hjá honum stóðu tveir menn, og þekkti ég hvorug- an. Annar reyndist mágur minn, Kjartan Ásmundsson gullsmiður, en hinn var næstum mágur minn, Sverrir Þorbjarnarson frá Hnffs- daf og þá þegar forstjóri Tyrggingastofnunar rfkisins. Sfð- ar á lffsleiðinni kynntist ég þess- um tveim mönnum betur, og naut ég ávallt sfðan vináttu þeirra, þannig voru þessar manngerðir. Kjartan Ásmundsson var fædd- ur 3. júlf 1903 að Fróðá á Snæfellsnesi. Foreldrar hans voru Ásmundur Sigurðsson bóndi og kennari þar, en síðar vfðar þar vestra og Katrfn Arndfs Einars- dóttir frá Lambastöðum f Flóa, Magnússonar, en Katrfn var náskyld Einari Arnórssyni ráð- herra og hæstaréttardómara í Reykjavfk. Foreldrar Kjartans fluttust vestur á Snæfellsnes árið 1898 frá Skrauthólum á Kjalar- nesi, en Ásmundur faðir hans var kennari, bóndi og oddviti f Eyrar- sveitinni, en drukknaði sviplega f lendingu 31. janúar 1919. Einar i Sindra sonur hans og bróðir Kjartans bjargaðist úr þeim sjávarháska. Ásmundur kennari var sonur Sigurðar B. á Vallá á Kjalarnesi, Sigurðssonar bónda á Jörva f sömu sveit, Þórólfssonar útvegsbónda í Engey og er það kyn vfða rakið, m.a. f Sögu Reykjavíkur eftir Klemenz Jóns- son ráðherra. Frekari ættfræði er vfst óviðeigandi f skrifum um látna menn og vini, og skal hér staðar numið. Ásmundur og Katrfn skildu samvistir árið 1906, en Kjartan ólst upp á Snæfells- nesinu norðanverðu með föður sínum til um 1917, en þá gerðist hann heimilismaður sambýlis- manns Ásmundar, séra Ólafs Stephensens, sfðar prests f Bjarnarnesi í Hornafirði. Kjartan flutti austur með sr. Ólafi um 1918, en þaðan til Vestmannaeyja árið 1920 og hóf þá gullsmíðanám hjá bræðrunum Baldvin og Birni Björnssonum, en þeir störfuðu f Reykjavfk frá árinu 1921. Að loknu framhaldsnámi f Dan- mörku á árunum 1924—25 og síð- ar að smfði heiðursmerkja i Þýzkalandi 1934—35 hóf Kjartan almenna gullsmfði f Reykjavfk ásamt listamönnunum Finni Jóns- syni og Birni Björnssyni árin 1925—1932, en frá þeim tfma rak hann eigin gullsmfðastofu til 1975, en þá gafst hinn sterki lfk- ami Kjartans upp, og eftir það er Framhald á bls. 21 Steindór Steindórsson járnsmiður — Kveðja Fæddur. 14. aprfl 1921. Dáinn 30. jan. 1977. Þann 5. febrúar sl. kvöddum við félagar í Rótarýklúbbi Akureyrar vin okkar og félaga, Steindór Steindórsson járnsmið. Andlát hans bar að höndum 30. jan. sl. Aðeins tveim dögum fyrr hafði hann verið á fundi meðal okkar, og gegnt þar skyldustörf- um sinum, sem endranær. Ekki er ætlunin að fjölyrða hér um upp- runa eða stöf Steindórs járn- smiðs, en undir því nafni var hann þekktur, ekki aðeins hér á Akureyri og nærsveitum, heldur nánast um allt land. Kom þar einkum tvennt til. Steindór hafði getið sér orðstýr f iðn sinni, sem hann nam ungur og stundaði sfðan alla ævi og var við kenndur. Hann var einnig þekkt- ur sem vandvirkur og listrænn Ijósmyndari og kvikmyndatöku- maður, sem slíkur var hann kunn- ur alþjóð, m.a. vegna starfa sinna fyrir sjónvarpið hér á Akureyri. Við félagar hans þektum hann þó enn betur á öðrum vettvangi. Við þekktum hann sem hinn dug- lega og ósérhlífna félagshyggju- mann. Á þessum tímum fjölmiðla og efnihyggju gerist æ erfiðara að halda uppi umtalsverðu félags- starfi. Að slíkt tekst er aðeins að þakka mönnum með sama eigin- leika og rfkastur var f fari Stein- dórs járnsmiðs. Hann hafði svo fullkomlega tileinkað sér aðal einkunnarorð Rótarýhreyfingar- innar, „Þjónusta ofar sjálfs- hyggju“. Þegar þar við bættist hans ein- staki áhugi á félagsstörfum, hlaut það að skapa hinn fullkomna fél- aga. Steindór gerðist félagi f Rótarý- klúbbi Akureyrar árið 1964. Á umliðnum árum hafði hann gegnt /elflestum trúnaðarstörfum f ‘élagsskapnum, að einu undan- ikildu. Því átti hann að taka við á niðju yfirstandandi ári. Hann var forsetaefni klúbbsins næsta starfsár. Sem forsetaefni var hann um leið stjórnarmeðlimur yfirstandandi starfsárs. Þar kynntumst við ef til vill best hans rólegu yfirvegun og rökvfsi, sem svo oft fann lausnina á aðsteðj- andi vandamálum. Vissulega var Steindór maður mjög störfum hlaðinn. En aldrei skyldi heyrast frá honum orð þess efnis, að hann hefði ekki tíma til verka, ef i þágu félagsskaparins var. Þvf vissum við allir að velferð Rótarýklúbbs- ins yrði vel borgið f hans höndum. Nú er þar skarð fyrir skildi. Við þökkum Steindóri öll hans störf f þágu Rótarýklúbbs Akureyrar. Við þökkum honum samfylgdina alla tfð. Slíkt var æðruleysi Steindórs á öllum stundum að kveinstafir voru hori- um ekki að skapi. Þvi munum við bera harm okkar og söknuð f hljóði. En minningarnar um góð- an dreng og félaga munu ylja okkur allt til endurfundanna. Eiginkonu , börnum tengda- börnum svo og öðrum ástvinum vottum við einlæga samúð okkar og biðjum blessunar alföður. Rótarýklúbbur Akurevrar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.