Morgunblaðið - 11.02.1977, Síða 16

Morgunblaðið - 11.02.1977, Síða 16
16 MORCUMU.AÐIÐ. f-OSTl 1)AOL R 11 FKRRL AR 1977 fKwgmiÞIftfrifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingasjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Arvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Bjorn Jóhannsson. Arni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, sími 22480 Askriftargjald 1 1 00 00 kr. á mánuði innanlands. í lausasolu 60 00 kr. eintakið. Pólitískur áróður í skólum Aundanförnum árum hefur kennsla í félagsvísindum verið að ryðja sér til rúms í skólum landsins og þá fyrst og fremst framhaldsskólum og háskóla. Það gefur auga leið, að þessi kennslugrein veitir tækifæri til misnotkunar aðstöðu við kennslu og til þess að reka pólitískan áróður við óharðnaða unglinga, ef kennarar á annaö borð vilja notfæra sér þá aðstöðu. A sl. ári varö uppvíst um eitt áþreifanlegt dæmi slíkrar mis- notkunar, þegar skýrt var frá því, að kennari við fram- haldsskóla í Kópavogi hefði lagt fyrir nemendur sína að kaupa og lesa áróðurspésa frá Fylkingunni, einum af stjórnmálasamtökum kommúnista. Nemendur mót- mæltu en kennarinn hélt fast við sitt. Ætla mætti að hvaða stjórnmálaskoðanir sem menn hafa geti þó allir verðið sammála um, að kennslustundir í skólum landsins séu ekki hinn rétti vettvangur fyrir pólitískan áróður enda hlýtur að koma aö því ef mikil brögð verða að slíku, að foreldrar rísi upp og mótmæli og neiti að senda börn sín í slíka skóla. Nú bregður hins vegar svo við, að i grein í Þjóðviljanum sl. miðvikudag, sem rituð er af Gísla Gunnarssyni sagnfræðingi, sem um þessar mundir virðist starfa i Svíþjóð en hefur starfað sem kennari við framhaldsskóla hér á landi, er tekinn upp hanzkinn fyrir þá hróplegu misnotkun aðstöðu, sem kennarinn i framhaldsskólanum í Kópavogi gerði sig sekan um, og atyrðir greinarhöfundur kennarasamtök fyrir að taka ekki upp vörn fyrir manninn, sem hóf pólitískan áróður í kennslustundum. í grein þessari segir Gísli Gunnarsson m.a.: „Og mér finnst ástæðulaust.. . að gera lítið úr þeim ofsóknum, sem kennari við gagnfræða- skóla í Kópavogi varð fyrir m.a. vegna þess að hann reyndi að framfylgja þeim göfugu markmiðum sem Hörður (Bergmann) segir að gildi i skólum. Það er óskemmtilegt fyrir ungan kennara að sæta daglegum ofsóknum í stærsta blaði landsins. Að kalla ofsóknirnar einsdæmi er því miður ekki rétt. Má í því sambandi nefna árásir Morgunblaðsins (og fleiri blaða) á kennara við Menntaskólann á Akureyri árið 1968. Að gera lítið úr slíkum ofsóknum er í fullu samræmi við aumingjaskap og aðgerðarleysi íslenzkra kennarasamtaka jafnt 1968 og 1976. Hér er hlutunum aldeilis snúið við. Það eru kallað- ar „ofsóknir“, þegar athygli er vakin á því, að kennari misnotar aðstöðu sina í skóla til þess að reka pólitískan áróður meðal nemenda sinna og kennarasamtök eru sökuð um „aumingjaskap" og „aðgerðarleysi“, ekki fyrir það aö hafa ekki tekið kennarann til bæna og veitt þannig félagsmönnum sínum aðhald, heldur fyrir hitt, að hafa ekki veitt kennaranum stuðning til þess aó hann gæti haldið áfram að reka pólitískan áróður meðal nemenda! Og til þess að ekki fari á milli mála hver boðskapurinn er segir greinarhöfundur: „En skilyrði þess að jafnt grunnskóla- og framhaldsskólakennarar á Islandi geti í framtíðinni stuðlað aó „þroska einstaklings- ins sem sjálfstæðs og gagnrýnins þjóðfélagsþegns" er að allir heiðarlegir vinstri sinnaðir menn komi þessum kennurum til aðstoðar þegar íhaldssamar skólanefndir fara að ráðast á þá fyrir að reyna að framfylgja þessu sjálfsagða markmiði." Þessi boðskapur má ekki fara fram hjá nokkrum manni. Bersýnilegt er, að það er markmið einhvers hóps vinstri sinnaðra öfgamanna að hefja skipulagsbundinn áróður í skólum landsins. Sá pólitíski áróður hefur verið rekinn með ýmsum hætti bæði í félagsfræðikennslu og ekki síóur í bókmenntakennslu, þar sem sá háttur er hafður á, aó helzt eru ekki nefnd önnur skáld og rithöf- undar en kommúnistum eru þóknanleg. En nú á greini- lega að hefja baráttu fyrir þvi að þessi vinnubrögð verði tekinn upp fyrir opnum tjöldum og undir því yfirskini að verið sé aö vinna að „göfugu“ og „sjálfsögðu“ markmiði. Það lýsir auðvitað fádæma ósvífni að slík sjónarmið skuli sett fram opinberlega. En það sýnir líka hvílík hætta er á ferðum. Það er skylda skólayfirvalda og kennara að sjá svo um að skólarnir verði ekki misnotaðir í pólitískum tilgangi. Sinni skólayfirvöld ekki þeirri sjálfsögðu skyldu, hljóta foreldrar að koma þar til sög- unnar. Ströngustu mengunarvarnir; Ársframleiðsh 50.000 tonn k íslendingar eiga 55% hlutafjár Samningar með svipuðu sniði Samningar við Elkem- Spigerverket eru við það miðaðir, að félagið gangi til þátttöku i íslenska járnblendifélaginu hf. ásamt ríkisstjórninni, i stað Union Carbide Corporation. Verða samningarnír að flestu leyti með svipuðu sniði og fyrri samningar við UCC, og samstarfs- grundvöllurinn i meginatriðum sambærilegur við það, sem ráð- gert var við upphaflega af- greiðslu málsins á Alþingi. Varðandi tæknisamning er þess að geta, að þátttaka ES varðandi tæknihlið fyrirtækisins verður að þvi leyti rikari en vera átti hjá UCC, að verkfræðideild ES mun sjá um smiði bræðsluofna og fylgibúnaðar þeirra handa verk- smiðjunni. Hefur ES verið einn helsti framleiðandi járnblendi- ofna um langan aldur og staðið fyrir smiði á yfir 300 rafbræðslu- ofnum víðsvegar um heim. Einnig mun byggingardeild ES sjálf hafa umsjón með hönnun og byggingu verksmiðjunnar, í samvinnu við Járnblendifélagið og innlenda verkfræðinga þess, en þá þjón- ustu átti áður að kaupa að mestu frá þriðja aðila (Ralph M. Par- sons Ltd.). Varðandi sölusamning er og vert að benda á, að hann er að undirstöðu til byggður á jafn- réttisaðstöðu milli verksmiðju Járnblendifélagsins og eigin verksmiðja ES í Noregi, sem stunda útflutning á Evrópu- markað og aðra markaði. Hefur með þessu verið mögulegt að koma á viðameiri samningsgerð um markaðsmál Járnblendi- félagsins, sem felur í sér meiri tryggingu fyrir árangursríkri sölu á framleiðslu þess en um var að ræða í fyrirhuguðum umboðssölu- samningi við UCC, en s'amningar um ábyrgð á sölu af hálfu þess aðila höfðu ekki komist á, er sam- vinnrn féll niður. Jafnframt er það veigamikið atriði, að Járn- blendifélagið mun nú geta selt á Bandaríkjamarkað, en það var ekki ráðgert áður. Umsóknin hefur fengið góðar undirtektir og er gert ráð fyrir, að hægt sé að ganga frá lánssamn- ingi innan tíðar. Gert er ráð fyrir, að lánið frá Eksportfinans endur- greiðist á árunum 1980 til 1987. íslendingar eiga 55% hlutafjár Ráðgert er, að ES eignist 45% hlutafjár í Járnblendifélaginu, en íslenska ríkið 55%. Eru þetta sömu hlutföll og um var að ræða í samstarfinu við UCC, og í sam- ræmi við 2. gr. gildandi laga. Um þetta atriði er nánar fjallað í 2. og 4. gr. aðalsamnings. Svo sem þar kemur fram (7. málsgr. 2. gr) mun ES verða bundið um að selja ekki hlut sinn í Járnblendi- félaginu tiltekinn tíma, en það óskar eins og UCC að hafa fyrir- vara þess efnis, að geta farið fram á að ríkið kaupi hlut sinn eftir þann tíma, ef svo ber undir. Lágmarkstíminn, sem ES er bundið, er ákveðinn með hliðsjón af gildistíma samninganna og telst frá upphafi starfrækslu járn- blendiverksmiðjannar. Verður tíminn þannig lengri en vera átti hjá UCC, þ.e. 17 ár f stað 15 áður. Gagnkvæmur forkaupsréttur mun gilda um hlutabréf aðilanna. Hlutafé Járnblendifélagsins verður óbreytt frá stofnsamningi vorið 1975, þ.e. jafnvirði 24 millj. bandaríkjadollara. Vegna verð- bólguáhrifa á stofnkostnað og nokkurs gengissigs á bandaríkja- dollar er hlutdéild þessa hlutafjár í heildarfjárfestingunni orðin Gunnar Thoroddsen, orkuráðherra. Síðari hluti þingræðu Gunn sen, iðnaðarráðherra, með f lögum um jámblendiverksmið Norræni fjár- festingarbankinn Jafnhliða samningsviðræðum aðilanna hefur verið unnið að athugunum og samningum um út- vegun stofnlána til byggingar járnblendiverksmiðjunnar. Hinn 3. janúar siðastliðinn var undir- ritaður í Reykjavík lánssamning- ur milli íslenska járnblendi- félagsins h.f. og Norræna Fjár- festingarbankans. Samningur þessi tryggir félag- inu stofnlán að upphæð 200 millj. norskra króna, sem greitt yrði út sem þrjú sjálfstæð lán á bygg- ingartímanum, en siðan endur- greidd á árunum 1981 til 1994. Ekki er enn ákveðið f hvaða gjald- miðli eða gjaldmiðlum lánin verð veitt, en vextir fara eftir þvi. Ljnið er veit án beinnar ábyrgðar eignaraðila, en gegn veði í fast- eignum verksmiðjunnar. Jafn- framt gerir bankinn kröfu um að eignaraðilar skuldbindi sig til að ljúka verksmiðjubyggingunni og gangist undir nokkrar tak- markanir á greiðslu arðs og greiðslu vaxta og afborgana af hluthafalánum. Einnig hefur verið sótt um lán hjá Eksportfinans í Noregi til að fjármagna vörukaup þar. nokkru lægri en upphaflega var við miðað (W). Aðilar hafa þó ekki uppi áform um að hækka hlutaféð, en hafa rætt um að út- vega félaginu fé í formi hluthafa- lána, er verði víkjandi gagnvart stofnlánum frá öðrum aðilum og treysti þannig lántökuaðstöðu félagsins (sbr. aths. um 3. gr. frv.) Hugmyndir af þessu tagi voru einnig til umræðu haustið 1975 i samvinnunni við UCC. Ríkisstjórnin hefur þegar greitt inn 26% af umsömdu hlutafé sinu, og mun ES greiða samsvar- andi hluta af framlagi sínu i beinu framhaldi af gerð samninga (4. gr. aðalsamnings). Verða þau hlutabréf, sem þar er um að ræða, reiknuð á fullu nafnverði gagn- vart ES, og felst í því viðurkenn- ing á skaðleysi ríkissjóðs af aðila- skiptunum i félaginu. Hluthaf- arnir munu siðan greiða af- ganginn af framlögum sínum jafnhliðaá árunum 1977—79. Tæknileg aðstoð og tækjabúnaður Um fjármögnun með lánsfé eru nú ítarlegri ákvæði en áður voru í aðalsamningi, sbr. 5. gr. hans. Jafnframt þeim er gert ráð fyrir, að hluthafarnir geri samning við Járnblendifélagið, er tryggi að- stöðu þess til að ljúka við bygg- ingu verksmiðjunnar að umsam- inni stærð, sbr. aths. við 3. málsgr. 6. gr. frv. Er þeim samningi ætlað að treysta grundvöllinn undir töku stofnlána félagsins frá þriöja aðila. Ráðgert er, að E§ framselji Járnblendifélaginu i byrjuri tæknikunnáttu á samskonar grundvelli og UCC. Jafnframt mun ES veita félag- inu samfellda tækniþjónustu við verksmiðjureksturinn á svipuð- um grundvelli og UCC og fá fyrir það sömu þóknun, þ.e. sem svarar 3% af andvirði seldrar fram- leiðslu. Gildistími samningsins um þessa aðstoð er óbreyttur, þ.e. 15 ár frá því að starfræksla hefst. Meðal annars mun ES leggja félaginu til tæknilegan fram- kvæmdastjóra við verksmiðjuna fyrstu árin, svo sem áður var ráð- gert. Samkvæmt tæknisamningnum mun ES selja Járnblendifélaginu bræðsluofna verksmiðjunnar ásamt fylgibúnaði, sem fyrr get- ur. Samið hefur verið um verð fyrir þennan búnað, og er það fyllilega sambærilegt við áætlaö og samningsbundið verð sam-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.