Morgunblaðið - 11.02.1977, Side 20
20
MORCiUiN'BLAÐIÐ, FÖSTUI)ACiL'R 11. FEBRUAR 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Sendill óskast á ritstjórn. Vinnutími kl. 9—12. Upplýsingar í síma 10100. Ritari Opinber stofnun óskar að ráða ritara í marz n.k. Vélritunarkunnátta og nokkur tungumálakunnátta áskilin. Launakjör samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir um starfið ásamt uppl. um menntun og fyrri störf sendist Mbl. merkt: Ritari — 1688. Saumastúlkur Vanar saumastúlkur óskast nú þegar. Módel Magasín Tunguhálsi 9. Sími 85020. Árbæjarhverfi.
Meinatæknir óskast, fyrir hádegi á læknastofur í mið- borginni. Nánari upplýsingar í síma 73496 eftir kl. 4. Starfsstúlkur óskast í mötuneytið að Reykjalundi í Mosfells- sveit. Húsnæði fylgir. Upplýsingar í síma 66200. Næturvörður óskast í Verzlunarhús í Reykjavík. Þeir sem hafa áhuga á starfinu, leggi nöfn og heimilisfang á afgr. blaðsins fyrir 15. þ.m. merkt: Næturvörður — 4828.
Blikksmiðir Viljum ráða nokkra blikksmiði eða menn vana blikksmíði. Fæði og húsnæði á staðnum. Umsóknareyðublöð á skrifstof- um vorum, Lækjargötu 12, Iðnaðar- bankahúsinu, efstu hæð og Keflavíkur- flugvelli. fslenzkir adalverktakar s. f.
Afgreiðslumaður Ungur maður eitthvað vanur afgreiðslu- störfum, óskast í byggingavöruverzlun. Upplýsingar um aldur og fyrri störf send- ist blaðinu fyrir 16. þ.m. merkt: Afgreiðslustarf — 2570.
Afgreiðslustarf Óskum eftir afgreiðslumanni til starfa við véla- og byggingavörur. Starf í verslun og á lager. Gott framtíðarstarf fyrir lipran og reglusaman mann. Tilboðum með upplýsingum um aldur og fyrri störf, sé skilað fyrir 1 7. þ.m. á afgr. Morgunblaðsins merkt: „Afgreiðslustarf — 4827". Sendill — Vélhjól Óskum eftir að ráða sendil strax, æskilegt að viðkomandi hafi vélhjól. Uppl. gefnar í skrifstofu okkar Hallarmúla 2 milli kl. 9 — 5.
Stúlka óskast til afgreiðslustarfa i sérverslun við Lauga- veg. Verður að vera gædd áhuga á starfi, heiðarleg og rösk. Umsóknir sendist Morgunblaðinu merkt- ar A — 4826 fyrir 1 6. þ.m.
\ raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
tilkynningar
Verkamannaféfagið
Hlíf Hafnarfirði
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaðar-
ráðs VMF Hlífar um stjórn og aðra trún-
aðarmenn félagsins fyrir árið 1 977 liggja
frammi í skrifstofu Hlífar, Strandgötu 1 1
frá og með föstudeginum 1 1 . febrúar.
Öðrum tillögum ber að skila fyrir kl. 1 7
mánudaginn 14 febrúar 1 977 og er þá
framboðsfrestur útrunninn.
Kjörstjórn verkamannafélagsins Hlífar.
Auglýsing
um styrki Evrópuráðsins á sviði læknis-
fræði og heilbrigðisþjónustu fyrir árið
1978.
Evrópuráðið mun á árinu 1978 veita
starfsfólki í heilbrigðisþjónustu styrki til
kynnis- og námsferða í þeim tilgangi að
styrkþegar kynni sér nýja tækni í starfs-
grein sinni í löndum Evrópuráðsins.
Styrktímabilið hefst 1. janúar 1978 og
því lýkur 31. desember 1 978.
Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu land-
læknis og í heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu og eru þar veittar nánari
upplýsingar um styrkina.
Umsóknir skulu sendar ráðuneytinu fyrir
1 5. apríl n.k.
Heilbrtgdis- og trygginga-
má/aráduneytid
10. febrúar 1977.
húsnæöi öskast
Húsnæði
Gott herbergi óskast á leigu í nokkra
mánuði fyrir reglusaman starfsmann
okkar.
Vé/ar og þjónusta h. f.
Smiðshöfða 2 1, sími 83266.
Vil taka á leigu
góða 3 eða 4 herb. íbúð í Austurborginni.
Fullorðið rólegt fólk með öruggar greiðsl-
ur. Vinsamlegast sendið blaðinu tilboð
fyrir mánudagskvöld merkt: Hjúkrunar-
kona — 4825.
Lagerhúsnæði
óskast til leigu
100 — 150 ferm með góðri aðkeyrslu.
Uppl. í sima 1 9037 fyrir hádegi og á
kvöldin og í síma 1 1 757 eftir hádegi.
Geymsluhúsnæði til leigu
120 fm geymsluhúsnæði á jarðhæð til
leigu til 1. okt. eða eftir samkomulagi.
Upplýsingar ísíma 11219 — 25101 og
eftir kl. 6, 86234.
Fundarboð
Aðalfundur húsfélagsins
Æsufelli 4.
Að þessu sinni hefur stjórnin ákveðið að
boða til aðalfundar húsfélagsins í tvennu
lagi. Fyrri hluti aðalfundar verður haldinn
laugardaginn 19. febrúar 1 977, kl.
13.30 í húsnæði Barnaheimilisins.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1 Kosning tveggja endurskoðenda fyrir
reikninga ársins 1976.
2. Fyrirhugaðar breytingar á stöðu hús-
varðar.
3. Breytingar á lögum húsfélagsins.
Framhaldsaðalfundur Húsfélagsins Æsu-
felli 4, verður haldinn laugardaginn 26.
febrúar kl. 13.30 í húsnæði Barnaheimil-
isins.
Dagskrá fundarins veröur sem hér segir.
1 Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
ársins 1976.
2. Kosning í stjórn.
3. Önnur mál. Stjórnin.
Nauðungaruppboð að kröfu Garðars Garðarssonar hdl.,
Sveins H. Valdimarssonar hrl. og Landsbanka íslands verða
bifreiðarnar Ö-645, Ö-3094 og G-3575 svo og 2 sjónvarps-
tæki og Candy isskápur seldar á nauðungaruppboði, sem
haldið verður að Vatnsnesvegi 33, Keflavík föstudaginn 18.
febrúar n.k. kl. 1 6.
UPPBOÐSHALDARINN ( KEFLAVÍK,
njarBvík, grindavík og
GULLBRINGUSÝSLU.