Morgunblaðið - 11.02.1977, Síða 29

Morgunblaðið - 11.02.1977, Síða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1977 -H AI VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL. 10—11 FRÁ MÁNUDEGI Þarna finnst mér hann ganga helzt til langt í því að tala fyrir allra hönd. Um það hvað aðrir viti hljótum við jafnan að fullyrða með varúð. Það er framsetning annarra manna á vitneskju sinni sem við höfum :ðgang að, miklu fremur en hitt, hvað þeir vita eða geta vitað. Að því er snertir líkamninga og önnur slik fyrirbrigði, þá er það kunnugt, að öll slík hafa löngum sætt mikiili tortryggni og verið vefengd af mörgum. Var sú af- staða miklu skiljanlegri áður fyrr, meðan menn vissu ekki að manns- líkaminn er orkumiðstöð, sem sendir frá sér lifgeislan. En hún hefur nú verið ljösmynduð þann- ig, að enginn reynir lengur að mæla þar á móti. Aldrei hefur það hvarflað að mér að framtíð jarðarbúa væri undir því komin, að floti geim- skipa (hvort sem þau væru nú með disklagi eða öðruvísi) næði hér að lenda og kippa málum i lag. Ég hygg að sjálfráð hugsun jarðarbúa þurfi að koma til og eflast. Og hverju skrefi í þá átt fagna ég. Ég get ekki annað en haft dálítið gaman af því, að jafn- ófullkomið hugmyndakerfi og það, sem tengt er nafninu „fljúg- andi diskar", skuli hafa komið slíkum mönnum sem þeim Þor- steini Sæmundssyni og örnólfi Thorlacius og Kjartani Norðdahl til að fara að tala opinberlega um íbúa annarra stjarna og hugsan- leg áhrif þeirra hér á jörð. Þó að byrjunin sé smá, lofar hún góðu um framtíðina. Ég er viss um að þessir menn og fjöldi annarra munu telja sig hafa nokkuð til . málanna að leggja um lífið hér á jörð sem þátt i lifi alheimsins. Þorsteinn Guðjónsson." Þessir hringdu . . . 0 Ohófleg sölulaun af fasteignum Björn Indriðason hringdi og hafði þetta að segja: — t sambandi við skrifin um fasteignasölur finnst mér lítið haft orð á því, hve mikil sölulaun fasteignasalar taka, en þar er um himinháar tölur að ræða. Enda sér það á fjölda fasteignasala að þessi atvinnurekstur hlýtur að blómstra vel. Það nær engri átt, þegar sölulaunin skipta orðið hundruðum þúsunda. — Mér finnst að fasteignasalar hljóti að geta boðið lægra verð fyrir þjónustu sína sér að skað- lausu. Og ef þeir finna það ekki upp hjá sjálfum sér sé ég ekki annað en löggjafinn verði að grípa í taumana. Ég fæ ekki betur séð en samtök séu með fasteigna- sölum um að hafa sölutaxtann í hámarki — en hvað er þá orðið um hina frjálsu samkeppni? SKAK Umsjón: Margeir Pétursson BANDARÍSKA skáksnillingnum Robert Fischer hefur verið boðið hingað til lands í tilefni af þvi að nú eru fimm ár liðin síðan hann varð heimsmeistari i skák. Hér að neðan gefur að lita eina af skemmtilegustu vinningsskák- um Fischers. Skákin er tefld á millisvæðamótinu i Sousse 1967 og það er Fischer sem hefur hvitt og á leik gegn Mjagmasuren, Mongóliu. 29. Bg2!! — dxc2, 30. Dh6 — Df8, 31. Dxh7+! og svarut gafst upp, þvi að eftir 31.. .Kxh7, 32. hxg6+ — Kxg6, 33. Be4 er hann mát. Fischer varð þó ekki sigurvegari á mótinu, þvi að hann hætti þátt- töku að 10 umferðum loknum, þá hafði hann hlotið 8H vinning af 10 mögulegum. 0 Enginn vandi að fá athafna- þránni svalað Sesselja Steingrímsdóttir hringdi: — Ég er orðin leið á þessum húsmæðrum, sem alltaf eru að kvarta yfir að þær hafi ekki nóg að gera. Til er fjöldi líknarfélaga, sem vantar starfskrafta til að vinna að málefnum sínum. Við fáum að visu ekki peninga fyrir það starf, en launin eru ánægjan af að sjá, hvað hægt er að gera fyrir það fólk, sem þarf á aðstoð eða aðhlynningu að halda. — Sjálf er ég búin að koma upp 10 barna hópi — og sé enga ástæðu nú til þess að fara út á vinnumarkaðinn, en hef fundið athafnaþrá minni útrás með þvi að hefja starf í líknarfélagi. Af nógu er að taka í þeim efnum og engin ástæða til þess að láta sér leiðast heima. 0 Öhentugt boð? Skákáhugamaður hringdi og lýsti furðu sinni á þeirri ákvörðun Skáksambands íslands að bjóða Bobby Fischer til íslands á sama tíma og boris Spassky tefldi við Vlastimil Hort. Hann sagði að þetta einvígi yrði mikil þrekraun fyrir Spassky og því væri óviðeigandi að Fischer yrði boðið hingað á sama tima. „Er þetta gert til þess að hafa sálræn áhrif á Spassky?" spurði þessi skákunnandi. Maðurinn benti á, að það hefði ekki einungis verið hnekkir fyrir Spassky að missa titilinn í sjálfu sér, heldur hefði hitt ekki síður verið alvarlegt fyrir þennan mikla sovézka skákmann að missa heimsmeistaratitilinn frá Sovét- rikjunum til Bandaríkjanna. Benti hann á, að Spassky hefði ekki verið of vel séður af skákyf- irvöldum i Sovétríkjunum siðan og þar með sovézkum stjórnvöld- um. „Ég hefði gaman af því að fá Fischer til Islands," sagði þessi skákunnandi, „svo sem flestir aðrir — en á þessum tíma, þegar væntanlegt einvígi fer fram, er þetta boð mjög svo tillitslaust í garð annars aðilans í einvíginu. Kæmi mér ekki á óvart að Spassky hætti við einvígið, ef F’ischer kemur." H0GNI HREKKVISI /-Zf <£* 1977 McNaughtSvnd Vió gotum sparað dósaniatinn næstu daga! S3P SVG&A V/öGA É \/LVtftAkJ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.