Morgunblaðið - 11.02.1977, Side 31
'
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. FEBRUAR 1977
31
— Lágfætt fé...
Framhald af bls. 2
un framfótleggjar væri góður
mælikvarði á vaxtarlag hjá sauð-
fé, þannig að lágfætt fé hefði
meiri holdfyllingu I lærvöðvum
en hávaxið. Jón sagði að þessu til
viðbótar hefði verið notað hug-
lægt mat á holdafari en engar
hérlendar rannsóknir væru til um
hversu nákvæmt slíkt mat mundi
vera, en út frá erlendum niður-
stöðum virtist ástæða til að draga
mjög í efa að það geti verið
nákvæmt.
Jón sagði, að niðurstöður
Halldórs Pálssonar um notkun á
lengd framfótleggjar hlytu m.a.
að hafa byggt á þeirri forsendu að
þetta væri mál, sem væri mjög
lítið háð umhverfisþáttum. Niður-
stöður athugana Sigurgeirs Þor-
geirssonar, sem nú leggur stund á
landbúnaðarfræði I Skotlandi, á
tilraunaniðurstöðum frá búinu á
Hesti sýndu aftur á móti að hjá
fullorðnum hrútum sé 7 milli-
metra munur á lengd framfót-
leggjar eftir þvl hvort hútarnir
væru fæddir sem einlembingar
eða tvllembingar. Þá bentu rann-
sóknir sem framkvæmdar voru á
Hesti til að arfgengi á lengd fram-
fótleggjar sé mjög hátt. Að síð-
ustu sagði Jón, að ályktanir Sigur-
geirs á grundvelli fræðilegra
rannsókna væru þær að megin-
munur á háfættu og lágfættu fé
væri í þvl fólginn að háfætta féð
væri beinameira en það lágfætta
fitumeira. Munur á vöðvamagni
hjá háfættu og lágfættu fé væri
aftur á móti hverfandi.
Halldór Pálsson búnaðarmála-
GJAFIR STREYMA TIL LANDSLIÐSINS — Velgengni hand-
knattleikslandsliðsins I landsleikjum undanfarnar vikur hefur
vakið athygli um allt land. Ymsir hafa orðið til þess, að gefa
rausnarlegar gjafir til handknattieikssambandsins, bæði ein-
staklingar, fyrirtæki og sveitarfélög, enda eru framundan bæði
tlma- og fjárfrek verkefni hjá handknattleiksmönnum. I gær-
kvöldi afhenti dyggur stuðningsmaður handknattleiksfþróttar-
innar, Tobbi I Val, eða Þorbjörn Aðalsteinsson, Jóni Karlssyni,
fyrirliða landsliðsins veglegan konfektkassa og peningagjöf, með
svohljóðandi texta: „Áframhaidandi velgengni, megi guð og
lukkan fylgjaykkur."
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég á við sjúkleika að strfða. Eg skil ekki, hvers vegna slfkar
hömlur eru lagðar á mig f Iffsbaráttunni. Margir losna við
alla slfka erfiðieika. Eigið þér svar við þessari spurningu?
Næstum allir eiga við einhvers konar veikleika að
stríða. Þeir þurfa ekki að vera lamaðir, blindir eða
heyrnarlausir, en eg held, að allir glími við andlegan,
geðrænan eða líkamlegan veikleika í einhverri
mynd. Þetta er blátt áfram eðli lífsins og ekki hjá því
komizt.
Beethoven var heyrnarlaus, en hann lét heyrnar-
leysið ekki aftra sér frá því að semja einhverja
tignarlegustu tónlist, sem heimurinn á. Prédikarinn
mikli, John Wesley, var veikbyggður. Samt fór hann
250 þúsund mílur á hestbaki og predikaði fagnaðar-
erindið fyrir þjóð sinni, Englendingum. Milton var
blindur, og þó reit hann einhver fegurstu ljóð og
laust mál, sem til er á enskri tungu. Júlíus Cæsar var
flogaveikur, en hann var keisari hins mikla róm-
verska ríkis. Napóleon varð fertugasti og sjötti I
röðinni meðal sextíu og fimm nemenda í bekk, en
hann tók sig á eftir þessa slæmu byrjun og hlaut
frægð fyrir herstjórn sína. John D. Rocefeller vann
fyrir sex dölum á viku, þegar hann var ungur, en
fyrir iðni sína og erfiði var hann einn auðugasti
maður heims. Við stríðum öll við eitthvað, sem
hamlar för okkar, sýnilegt eða ósýnilegt. Sumir hafa
lingerðan líkama. Aðrir eru fæddir með takmörkuð-
um gáfum. Sumir eru hrjúfir og hrokafullir. En saga
mikilmenna sýnir, að það má sigrast á hvaða veik-
leika sem er, ef við eigum trú til þess að keppa fram
á við, þrátt fyrir það, sem íþyngir okkur.
Guð getur tekið veikleika og gert hann að drif-
krafti, ef þér viljið leyfa honum það.
stjóri *ar I gær spurður álits á
þessum nýju rannsóknarniður-
stöðum og hvaða áhrif þær kæmu
til með að hafa stefnu i Islenskri
sauðfjárrækt. Sagði Halldór að
þessar nýju niðurstöður byðu upp
á val en hvaða leið yrði valin hlyti
að ráðast af óskum neytenda. —
Ályktanir af niðurstöðunum eru
byggðar á þvi að hlutfall vöðva I
heildarþunga skepnunnar sé það
sama hvort sem hún er lágfætt
eða háfætt, en hann tekur ekki
tillit til þess að lærvöðvar á lág-
vöxnu fé eru þykkari og skemmti-
legri til matreiðslu. Hann miðar
lika við að fénu sé slátrað á
ákveðnum tima en bóndinn á að
gæta þess að slátra fénu þegar
fituhlutfall þess er hæfilegt. Sé
fénu ekki slátrað á réttum tima
eykst hlutfall fitu umfram hlut-
fall beina í skapnunni, sagði Hall-
dór.
Fram kom hjá Halldóri að hér
væri aðeins um einn þátt að ræða
í heilli visindagrein og því örðugt
um vik að gera grein fyrir ein-
stökum þáttum i stuttu máli.
Sagði Halldór að rannsóknir sinar
árið 1973 hefðu sýnt að hægt væri
að nota lengd framfótarlærleggs
sem mælikvarða á ýmsa eigin-
leika sauðfjár. — Við getum likt
þessu með beinin við það að hús-
byggjandi þarf að setja stálgrind í
hús en hann vill ekki hafa of
mikið af járni. Við viljum fá
mikla og fallega vöðva og hæfi-
legt feitt kjöt. Velmegunarþjóðfé-
lög eru dæmd eftir kjötneyslu og
þá eftir gæðum og útliti kjötsins
sem fólk neytir. Ef við stefnum að
hávöxnu fé fáum við þynnri lær-
vöðva og ég er ekki viss um að
húsmæðurnar yrðu ánægðar með
þá stefnu. Fita á kjöti þarf að
vera hæfileg, en bóndinn á aó
geta stjórnað þvi að hún verði
ekki of mikil, sagði Halldór að
lokum.
— Algjört lönd-
unaröngþveiti
Framhald af bls. 32.
ir, en var sama dag i fyrra 93 þús.
lestir.
Skipin voru I gærkvöldi að
veiðum úti af Kambanesi og fór
skipum þá fjölgandi á ný, þ.e.
skipum sem voru að koma frá
Vestmannaeyjum og viðar frá þvl
að losa. Loðnugangan sem var við
Hvalbak fyrir nokkrum dögum er
ekki enn komin upp að landinu,
en menn eiga von á því að það
verði einhvern næstu daga.
Á tlmabilinu frá kl. 21.30 i
fyrrakvöld til kl. 21.30 I gær-
kvöldi tilkynntu 16 skip um afla,
samtals 6070 lestir, mestan afla
var Börkur NK með, 1000 lestir.
Annars eru skipin þessi: Hilmir
SU 530, Ársæll KE 220, Börkur
NK 1000, Helga 2. RE 360, Fifill
GK 570, Skógey SF 200, Ólafur
Magnússon EA 190, Hrafn GK
400, Andvari VE 210, Vikurberg
GK 250, Hilmir KE 200, ísleifur
VE 380, Sæbjörg VE 290, Skarðs-
vik SH 380, Faxi GK 130, Magnús
NK 260 og Rauðsey AK 500.
— Gangsetning
fyrri vélar...
Framhald af bls. 32.
vegna Kröfluvirkjunar 7.793
milljarðar króna.
I sumar er fyrirhugað að bora
fimm vinnsluholur og er nú unnið
að því að staðsetja holurnar. I
skýrslunni segir að miðað við
hinn takmarkaða árangur af bor-
unum 1976 megi ætla að þær geti
gefið a.m.k. 10—20 megawött til
viðbótar þeim, em nú hafa verið
boraðar. Samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem fyrir liggja er búist
við að holur 6, 7 og 10 geti gefið
9—11 megawatta gufu, sem svar-
ar til 3—4 megawatt’a inn á raf-
orkukerfið, þar sem 6—7 MW af
gufu tapast og fer I eiginnotkun
af fyrstu gufu inn á vélina. Öll
viðbótargufa skilgr sér til raf-
orkuöflunar svo til að fullu úr
þvi, segir I greinargerðinni.
I greinargerðinni segir að talið
sé fullvíst að tæringaráhrifin og
gasinnihald gufunnar orsakist af
eldsumbrotum við Kröflu. Ekki sé
unnt að segja til um það hve lengi
áhrifa eldsumbrotanna muni
gæta á vinnslueiginleikum guf-
unnar, sem I ljós kom á þeim
hluta jarðhitasvæðisins við
Kröflu þar sem borað var 1976.
Allar tölur um slíkt, sem fram
hafi komið i fjölmiðlum undan-
farið verði að skoðast sem per-
sónulegt mat viðkomandi. Reynsl-
an ein geti skorið úr um þetta
atriði, segir i greinargerðinni.
Þá segir að ætla megi að áhrif
eldsumbrotanna við Kröflu verði
fremur til að tefja gufuöflun til
virkjunarinnar og gera hana dýr-
ari en að tefla henni i tvisýnu til
frambúðar. Miðað við stöðu verks-
ins og þá reynslu, sem nú þegar
hefur fengist við þessa virkjun og
hinn mikla orkuskort á Norður-
landi, svo og það fjármagn, sem
nú þegar er búið að binda, væri
óraunhæft að fresta framkvæmd-
um um óákveðinn tíma.
Að greinargerðinni standa þeir
Páll Flygering ráðuneytisstjóri,
Árni Snævarr fyrrv. ráðuneytis-
stjóri, Kristmundur Halldórsson
deildarstjóri, Guðmundur Einars-
son verkfræðingur, Jakob Björns-
son orkumálastjóri, Guðmundur
Pálmason jarðeðlisfræðingur
Orkustofnunar, Kristján Jónsson,
rafmagnsveitustjóri ríkisins, og
Einar Tjörvi Elíasson, yfirverk-
fræðingur Kröflunefndar.
:
Látið ekkl
happ úr hendi
sleppe j
Það erhægt
að gera stórkostlega góó kaup
á útsölumarkaónum
að Laugaveg 66 2. hæð
Stakar terelyne
& ullarbuxur
Peysur — Blússur — Bolir
Pils — Kjólar — Dragtir
Stakir kvenjakkar
Stakir herrajakkar
Kápur úr Kanvas
Herraskyrtur —
Stuttjakkar
Skór í úrvali
Þrongar gallabuxur o.m.fl.
40—70% afsláttur
Hafir þú gert góð kaup
á útsölunni munt þú
gera enn betri kaup núna
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
KARNABÆR
Utsölumarkaðurinn
LAUGAVEG 66 SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155