Morgunblaðið - 22.02.1977, Blaðsíða 37
"?(■ ( ÍIAUHflai .SS HlJí)AÍVJl.(II'HtJ OIOA.UiV!’.JÓHOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977
37
fclk í
fréttum
+ Það getur flokkast undir kraftaverk að hin 64 ára gamla Maragret Fuller skyldi komast lífs af eftir
að hún hafði fallið fyrir borð af farþegaskipinu „Windsor Castle“ í nóvember sl. Frú Fuller var ekki
saknað strax og hafði hún verið á sundi I þrjár klukkustundir er hún fannst um 400 sjómflur undan
strönd Angóia. Hér sést Maragret synda að björgunarbátnum sem sótti hana frá skipinu.
LÉK HLUTVERKIÐ
í HJÖLASTÓL
+ Ameríska leikkonan
Katharine Hepburn er
orðin 67 ára. Um daginn
var hún svo óheppin að
detta og fótbrotna,
stuttu -fyrir frumsýn-
ingu á leikriti sem hún
leikur í, í San Diego,
Katharine lét þaö ekki
aftra sér frá að taka þátt
í frumsýningunni og lék
hlutverkið í hjólastól.
+ Ég vil aldrei framar sjá þessa konu, ekki f bátnum mfnum,
ekki á eyjunni minni né f landinu mfnu. Þannig voru kveðjuorð
Christinu Onassi+vió stjúpmóður sfna, Jackie, eftir að hún hafði
látið hana hafa ávfsun á 180 milljónir f peningum auk hlutabréfa
að upphæð 1200 mifljónir. Þetta er þó aðeins helmingur þess sem
Jackie fór fram á að fá fyrir sinn hlut f eyjunni Skorpio og
snekkjunni „Christina". Jackie hefur þó lýst því yfir, að hún ætli
að láta sér nægja þessar krónur sem Christina taldi sig geta látið
af hendi og þar með er Christina ein eigandi að öllum Onassis-
auðæfunum og segist vonast til að hún þurfi aldrei að hitta
stjúpmóður sfna, sem hún hefur hatað sfðan faðir hennar kvænt-
ist henni.
+ Tvær húsmæður vestur f Texas foringjar f skátafélagi, brenna
hér einkennisbúninga sfna. Sögðust þær með þvf vilja mótmæla
nýlegri viðurkenningu bandarfska Skátasambandsins á jafn-
réttisbreytingunni á bandarfsku stjórnarskránni.
HEIÐURSBORGARI
WINNIPEG
+ Ambassador Islendinga f
Washington, Hans G.
Andersen, var gerður að heið-
ursborgara Winnipeg-borgar á
meðan hann dvaldist þar með
konu sinni, f tilefni af Þjóð-
ræknisþinginu. Birnie Wolfe
varaborgarstjóri Winnipeg
afhenti sendiherranum bók að
gjöf með myndum frá Winni-
peg, um leið og hann tilkynnti
honum, að hann hefði verið
gerður að heiðursborgara, en
eins og kunnugt er, er Hans G.
Andersen fæddur f Winnipeg.
Snæfellingar
stofna félag
um mjöl-
verksmiðju
Stykkishótmi, lg. febrúar —
A SNÆFELLSNESI hefur mikið
verið rætt um nauðsyn þess, að
fiskimjölsverksmiðja rfsi við
Breiðafjörð, þvf að undanfarið
hefur mikið af úrgangi verið hent
og ekki verið hægt að nota hann.
Þessar litlu fiskimjölsverksmiðj-
ur, sem voru tengdar hraðfrysti-
húsunum, hafa þegar gengið sér
til húðar.
Hugmyndin er að annaðhvort
komi ein verksmiðja á nesinu eða
tvær, sem þykir þó líklegra, þvf að
þær munu verða í Rifi og í Grund-
arfirði. Með tilkomu hinnar nýju
hafnar í Grundarfirði og líkur
fyrir því að þar fáist á næstunni
heitt vatn'úr jörðu, beinist athygl-
in þangað. í gær var svo stofnað
félag um byggingu og rekstur
þessarar fyrirhuguðu verksmiðju.
Félagið hlaut nafnið Jöklamjöl
h.f. og eru stærstu hluthafarnir
hreppsnefnd Eyrarsveitar og
Zóphanías Cesilsson. Kosin var 7
manna stjórn og er formaður
hennar Guðmundur Runólfsson,
Grundarfirði. 62 aðilar stóðu að
stofnun félagsins víðs vegar að af
nesinu. Þá hafa hinu nýja félagi
borizt stuðningsyfirlýsingar vfða
að og m.a. hefur hreppsnefnd
Stykkishólms samþykkt þar að
lútandi. Þegar eru hafnar aðgerð-
ir til þess að þetta mál fái sem
skjótastan framgang og eru mikl-
ar vonir Snæfellinga bundnar við
þessa félagsstofnun.
— Fréttaritari.
Dömur á öllum aldri
í Keflavík og nágrenni ath:
Frá „Toppi til Táar" er námskeið, fyrir konur á
öllum aldri eða frá 1 6 ára til sextugs.
Þið lærið: Rétt og betra göngulag, snyrtingu,
líkamsrækt, rétt mataræði, almenna framkomu
o.fl.
Frá „Toppi til Táar" er námskeið, sem hver kona
ætti að notfæra sér, það hjálpar meðal annars
til að auka sjálfsöryggið og er til ánægju.
Námskeiðið verður haldið í Keflavík og hefst
25. feb. Kennt er 2 kvöld í viku.
Uppl. og innritun er í síma 8083, 22. feb. allan
daginn.
Skóli Guðmundu.
Verður haldið að Hlíðarenda n.k. laugardag 26/2'77
og hefst stundvíslega kl. 13.15. Tefldar verða hrað-
skákir eftir Monrad-kerfi. Keppt verður um hinn
glæsilega VALS-hrók. Mætið tímanlega með klukku
og töfl. Þátttaka tilkynnist Hermanni Gunnarssyni
fyrir laugardag.
NÝTT SHAMPOO
Vo 5 gæða shampoo fyrir allar hártegundir, ásamt
viðeigandi hárnæringu.