Morgunblaðið - 22.02.1977, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Efnis og áhaldavörður Óskum að ráða efnis og áhaldavörð. Vélsmiðja Hafnarfjarðar. Fiskvinnslustöðina í Grindavík vantar Karlmenn helzt vana til starfa. Upplýsingar í síma 92 — 8305, og 8140. r Abyggilegur maður óskast til útkeyrslu og vinnu á vörulager. Sími 1 3863.
Skartgripaverzlun Óskum eftir afgreiðslustúlku allan dag- inn. Góð og snyrtileg framkoma. Tungu- mála- og vélritunar kunnátta æskileg Tilboð sendist Mbl. fyrir þriðjudagskvöld merkt: Gull — 1 740. Sölumaður óskast Við viljum ráða frambærilegan einstakling með frumkvæði og jákvæð viðhorf til starfa hjá fyrirtæki voru. Starfið er fólgið í: 1. Afgreiðslu viðskiptavina, er koma á skrifstofu vora. 2. Að hafa samband við viðskiptavini. 3. Að gera könnun hjá hverjum og ein- um viðskiptavini á þörf hans fyrir þá þjónustu, er við bjóðum. Þjálfun fer fram í formi: 1. Námskeiðasóknar. 2. Leiðsögn á lausnum raunverulegra verkefna. Laun: Góð laun eru í boði fyrir réttan einstakling. Umsóknareyðublöð liggja frammi að Suðurlandsbraut 4, 7. hæð, Reykjavík. Sjóvátryggingafélag íslands hf.
Ljósmóðir óskast að sjúkrahúsinu á Blönduósi nú þegar eða síðar. Nánari upplýsingar gefur yfirlæknir eða forstöðukona í síma 95-4206 eða 4207.
Skipstjóri og háseti óskast á 30 tonna bát sem er tilbúinn á þorskanet. Upplýsingar í síma 93 — 1 1 90 kl. 7 — 9 á kvöldin. Skrifstofustarf Óskum eftir að ráða skrifstofumann til vélritunar og almennra skrifstofustarfa á skrifstofu vora. Æskilegt að viðkomandi hafi gott vald á ensku. Upplýsingar veittar á skrifstofu vorri í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu. Skipaútgerð ríkisins
Frá lögreglunni í Reykjavík:
Lýst er eftir tjónvöldum
og vitnum að ákeyrslum
LÖGREGLAN t Reykjavík, slysa-
rannsóknadeild, hefur beðið
Morgunblaðið að lýsa eftir tjón-
völdum og vilnum að eftirtöldum
ákeyrslum, sem áttu sér stað I
höfuðborginni I janúarmánuði
s.l. Tjónvaldar fóru af vettvngi og
hafa ekki fundizt.
Laugard. 1. jan.
Ekið á bifreiðina R-51746 — Fíat-
fólksbifr. árg. ’75, blá að lit. Bif-
reiðin stóð við Mosgerði 24 á tíma-
bilinu frá kl. 12.00 á gamlársdag
til kl. 09.00 á nýársdagsmorgun.
Skemmdir: Vinstra framaurbretti
dældað og stefnuljósker brotið.
Sunnud. 2. jan.
Ekið á bifreiðina R-49579 —
Opel Station árg. ’65, ljósblá að
lit. Bifreiðin stóð við Heiðargerði
23. Hægri hurð skemmd.
Föstud. 7. jan.
Ekið á bifreiðina R-619 — Saab
96 fólksb. árg. '74, appelsínugul.
Bifreiðin stóð við aðkeyrslu að
aðalinngangi Landakotsspítala á
timabilinu kl. 08.00 daginn áður
til kl. 10.00 þennan dag. Skemmd-
ir: Vinstra afturaurbretti dældað
og rispað og stálgrár litur í sári.
Fimmtud. 11. jan.
Ekið á bifreiðina R-16211 —
Austin Mini fólksb. árg. ’74, dökk-
græn að lit. Bifreiðin stóð við
Hagkaup um kl. 09.00. Skemmdir:
Hægra framhorn og grill skemmt
og ljósker brotið.
Laugard. 15. jan.
Ekið á bifreiðina R-7710 —
Chevrólet sendiferðab. árg. 1976,
kremgul að lit. Bifreiðin stóð á
Túngötu rétt vestan Hofsvalla-
götu. Hægri hlið bifreiðarinnar
var öll rispuð í um 160 sm hæð,
hliðarspegill brotinn. Greinilegt
var á ákomu, að tjónvaldur hefur
ekið mót einstefnu og er senni-
lega sendiferða eða vörubifreið.
Sunnud. 16. jan.
Ekið á bifreiðina 11-1643,
Cortina fóiksbifr. árg. ’71, dökk-
græn að-lit. Bifreiðin stóð við
stöðumæli á móts við hús nr. 100
A á Hverfisgötu. Talið að tjón-
valdur sé brúnn og hvítur jeppi.
Skemmdir: Vinstra framaur-
bretti, framhöggvari og vinstra
stefnuljósker dældað og skemmt.
Sunnud. 23. jan.
Ekið á bifreiðina R-18401
Volkswagen fólksb. árg. '73, ljós-
blá að lit, þar sem hún stóð á
bifreiðastæði við Tónabfó kl.
16.50—19.05. Skemmdir: Vinstra
afturaurbretti og höggvari. Grá-
blár litur í sári.
Sunnud. 23. jan.
Ekið á bifreiðina R-28008,
Chevroleg Nova árg. ’75, brún að
lit, þar sem hún stóð á bifreiða-
stæði á móts við Kleppsveg 134,
kl. 12.00—15.00. Skemmdir:
Hægra framaurbretti dældað.
Þriðjud. 25. jan.
Ekið á bifreiðina R-39374, Aust-
in Mini árg. '74, gulbrún að lit,
þar sem hún stóð við Austurbrún
27. Bifreiðin stóð þarna frá því
kvöldið áður kl. 21.00 til kl. 06.40
um morguninn. Skemmdir:
Vinstra afturaurbretti, vinstri
hlið og hurð, afturhöggvari, far-
angursgeymslulok og vinstra aft-
urljós. Dökkgrænn litur i ákomu-
— Korchnoi
Framhald af bls. 1.
Stórmeistarinn, sem kom til
Milano í dag á leið sinni á
keppnisstað, sem er í grennd við
Lucca I Toskaniu, sagði að einvigi
þeirra Petrosjans gæti orðið
„ógeðfellt" því-fyrrverandi skák-
félagar hans litu á hann sem
svikara síðan hann ákvað að leita
hælis i Hollandi. Hélt Korchnoi
því fram, að það væri keppikefli
sovézkra yfirvalda, ekki aðeins
sovézka skáksambandsins, að
koma honum úr keppni sem fyrst.
„í þeim tilgangi er Petrosjan
sendur til leiks með lið manna
með sér, þar á meðal þrjá beztu
þjálfarana. Ég verð hins vegar að
reiða mig á mig sjálfan. Þetta
verður erfitt, en ég er viss um að
vinna,“ sagði Korchnoi.
Einvigi Korchnoi og Petrosjans
er haldið í II Ciocco, nálægt
Lucca, og er það eitt af fjórum
undanúrslitaeinvígjum sem byrja
í lok febrúar þar sem teflt er um
réttinn til að skora á heims-
meistarann Anatoly Karpov.
Bobby Fisher, vinur Korchnois,
afsalaði sér réttinum ti! þátttöku í
undanúrslitunum, en stuðningur
Korchnois við Fischer olli honum
fyrstu erfiðleikunum heima fyrir.
stað. Tjónvaldur sennilega af
Ford-gerð og eldri en 1970 árg.
Fimmtud. 27. jan.
Ekið á bifreiðina G-6868 Skoda
fólksbifr. árg. ’76, gul að lit, talið
að það hafi gerst þar sem hún stóð
á bifreiðastæði við Landakot
þann 19. jan. eða áður. Skemmd-
ir: Vinstra afturaurbretti dældað.
Laugard. 29. jan.
Ekið á bifreiðina R-51061 Volks-
wagen 1302 fólksb. árg. ’71, Ijós-
blá að lit, þar sem hún stóð á
Hverfisgötu við hús nr. 58.
Skemmdir: Vinstra afturaur-
bretti dældað og afturljósker
brotið.
Laugard. 29. jan.
Ekið á bifreiðina R-1355 Datsun
fólksbifr. árg. '72, rauð að lit, við
Ásgarð 75. Skemmdir: Hægra aft-
ur-aurbretti dældað. Talið að tjón-
valdur sé af Bronco-gerð.
Mánud. 31. jan.
Ekið á bifreiðina R-1626,
Toyota fólksbifr. , rauð að
lit, þar sem hún stóð á bifreiða-
stæði við Landspítalann á tímabil-
inu kl. 19.35—20.15. Skemmdir:
Rispa og dæld á hægri hlið bif-
reiðarinnar, aftan við miðju.
— Flugnámið
Framhald af bls. 15
austurs og lendir á brautinni sem
liggur i austur vestur Þetta fer allt
eftir röð og ef umferð er mikil mynd-
ast biðröð.
Haraldur æfði þannig nokkrar
lendingar og hann reyndi einnig á
annarri braut, þar sem hliðarvindur
var öllu meiri, brautinni sem liggur
norður suður Hann lækkaði flugið
yfir Kópavoginum og Kársnesinu og
þegar hann kom inn yfir brautina var
vélin nokkuð mikið á ská, miðað við
brautina, en þetta tókst allt vel og
Haraldur lenti vélinni örugglega.
Hann fór nokkrar ferðir til viðbótaH
loftið og gafst gott tækifæri til að
virða fyrir sér bæjarlífið á laugar
dagsmorgni á meðan flogið var hring
eftir hring yfir miðbænum. Ekki virt-
ist umferðin mikil, en jókst þó ef til
vill þegar klukkan fór að halla I tólf.
Eftir að búið var að lenda nógu oft
að þeirra mati var ekið að flugskýl-
inu og við fórum inn I aðsetur Flug
taks aftur, en það er I gamla flug
turninum. Þar fékk Haraldur stað-
festingu á því að honum væri trúað
fyrir Piper Cherookee-vélinni og
þegar við komum inn var Reynir að
Ijúka sínum tima i „linkinu" og hann
fór yfir árangur tímans með kennar-
anum. Fleiri nemendur voru komnir
og tilbúnir að fara i loftið svo það
virtist ætla að verða lítið hlé á flug-
ferðunum þennan dag hjá
nemendum Flugtaks.
— Jóin
Framhald af bls. 10
gamla íslending sem áratugum
saman var einn þeirra sem setti
svip sinn á bæinn í Þórshöfn.
Meðfylgjandi mynd af Jóin er
tekin úr Þórshafnarblaðinu
Dimming, ásamt texta, er það
birti frásögnina af láti gamla
mannsins á annarri aðalfrétta-
síðu sinni.
Sv.Þ.
— Minning
Ólafur
Framhald af bls. 35
gæslustörf, lengst af í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, af því er
mér er tjáð.
Þau Jenný Guðrún Guðjóns-
dóttir og Ólafur gengu í hjóna-
band árið 1934. Má geta þess, að
vígslu þáðu þau af vini þeirra
séra Þorsteini Briem þávérandi
kirkjumálaráðherra. Eina dóttur
einguðust þau hjón, sem ber fyrra
nafn móður sinnar. Er hún gift
Ragnari Zophoniassyni sjómanni.
Eiga þau þrjú börn. Þau urðu
Ólafi sifelld ánægjuuppspretta,
og ekki síður langafabarnið, enda
naut hann þeirrar náðargáfu að
halda ljúflyndi sínu allt til ævi-
loka. Hjá dóttur sinni og tengda-
syni áttu þau Jenný og Ólafur
heimilisathvarf nokkur siðari
árin, á Tunguvegi 8.
Jenný hefur löngum haft veila
heilsu og hefur borið meðal
annars erfiðar menjar svokallaðr-
ar mænuveiki um margra ára
skeið og raunar allt til þessa dags.
Oft varð ég þess var, sem ég
einnig vissi af afspurn, hvernig
öðlingsmaðurinn Ölafur lét sér
annt um konu sina i vanheilsu
hennar. Síðasta ósk hans, sú að fá
leg i garði Melstaðar-kirkju í
Húnavatnssýslu, er kanski aug-
ljósasti votturinn um djúpan sam-
hug þeirra hjóna, því að þannig
fannst honum sjálfsagt að styðja
þá ósk konu sinnar að hún fengi
að hvíla í Melstaðargarði, en þar á
næsta bæ, Barði, bjuggu fóstur-
foreldrar hennar meðan hún sleit
minnstu barnsskónum. Þegar ég
var að aðstoða þau við að koma
þessu i kring, fann ég, að Jenný
mat mikils þetta vináttubragð
Ólafs, enda sagði hún það í sam-
ræmi við annað i sinn garð um
ævina frá hans hendi.
Undanfarin nokkur ár bjuggu
hjónin á Elliheimilinu Grund.
Kom ég þangað nokkrum sinnum
til þeirra^en of sjaldan. Gott var
að finna þar andrúmsloft Guðs-
trúar og góðrar heimvonar hjá
þeim báðum, hvort sem kallið
kynni að koma fyi r eða siðar.
Helgi Tryggvason
— Nokkur
atriði. . .
Framhald af bls. 35
sen iðnaðarráðherra mun láta
reyna á það í flokki sínum og
innan rikisstjornarinnar, hver af-
staða verður til hins stóra málefn-
is, er hann hefur tekið undir
fyrstur stjórnmálaforingja, en
verið hefur til umræðu og birzt
um fjölmargar blaðagreinar, sem
skoðanir hins almenna manns i
landinu.
Nú ætti forsætisráðherra að
verða var við hinn þunga nið þjóð-
arinnar, að nú verði brotið blað í
samskiptum íslands við Bandarik-
in, þar sem báðar þjóðirnar vinni
að þvi að styrkja stöðu íslendinga
í sambýlismálunum, með þeim
hætti, sem á er minnst hér að
framan. Þeir, sem vinna gegn þvi
eða reyna að tefja málið í skjóli
valdaaðstöðu, vinna gegn íslandi
og Islensku þjóðinni í nútíð og
framtið.
Seyðisfirði i febrúar.
Einar Ö. Björnsson
— Þáttur
skóla ...
Framhald af bls. 29
stuðst við lagagildi varnar-
samningsins. Hins vegar hafi
ráðuneyti sitt vakið athygli ut-
anríkisráðuneytisins, sem fer
með framkvæmd tollgæzlu á
Keflavikurflugvelli, á ákvæð-
um laga um varhir gegn gin- og
klaufaveiki o.fl. alidýrasjúk-
dómum. Yfirdýralæknir hefur
og fylgst með þvi að matvæla-
innflutningur þar sé ekki frá
löndum, sem slik veiki hefur
komið upp.
Pétur Sigurðsson (S) taldi
nútima frystitækni og loftheld-
ar umbúðir útiloka nær alfarið,
að umrætt smit gæti borizt með
frosnum matvælum og myndi
því aðrar ástæður liggja til
grundvallar.