Morgunblaðið - 22.02.1977, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977
Brutust inn
og aflífuðu
4 kalkúna
UM HELGINA var brotizt inn
hjá Skúla Pálssyni á Laxalóni.
Hann hefur í eldi nokkra kalk-
úna, og þjófurinn eða þjófarn-
ir börðu fjóra þeirra til dauða.
Ekki hafa þjófarnir verið að
leita að sunnudagssteik, því
þeir höfðu kalkúnana ekki á
brott með sér. Málið er í rann-
sókn.
— Stefnir
í metvertíð
Framhald af bls. 44
VE 590. Hamravík KE 170. Þórkatla II (iK
240. Börkur NK 950, Bára KE 200, Magnús
NK 260, Helga RE 270, Örn KE 560, Vörður
ÞH 230, Húnaröst ÁR 260, Guðmundur RE
800. Keflvíkingur KE 240, Sæbjörg VE 300.
Grindvfkingur GK 580 Vfkurberg GK 280.
Bergur VE 190, Ámi IVfagnússon ÁR 160,
Helga Guðmundsdóttir BA 460, Jón Finnsson
GK 560, Rauðsey AK 510, Snæfugl SU 215,
Áisey VE 160, Svanur RE 310, Guðmundur
Jónsson og GK 600.
Á sunnudaginn tilkynntu eftir-
taldir 28 bátar um loðnuafla, sam-
tals 7,920 lestir:
Geir Goði KF 160 lestir, Stapavfk SI 540,
Helga II RE 300, Reykjanes GK 180, Árni
Magnússon ÁR 200, Huginn VE 550, Þórður
Jónsasson EA 380, Steinunn SF 35, Sandafell
GK 170, Ársæll KE 210. Snæfugl SU 50,
Arnar ÁR 170, Sóley ÁR 200, Ársæll Sigurðs-
son GK 220, Hákon ÞH 320, Gfsli Árni RE
500, Súlan EA 540, Öslar Halldórsson RE200,
ólafur Magnússon EA 25, Eldborg GK 530,
Vonin KE 150, Sígurbjörg ÓF 250, Bylgja VE
100, tsleifur VE 430, Náttfari ÞH 340, Bjarn-
arey VE 110, Árni Sigurður AK 400 og Pótur
Jónsson RE 660.
Á laugardaginn tilkynntu eftir-*
taldir 32 bátar afla, samtals
11,720 lestir:
Ásberg RE 380. Bergur VE 190, Gullberg
VE 580, Bjarnarey VE 140, Guðmundur RE
800, Rauðsey AK 500, Kári Sölmundarson RE
220, Örn KE 530, Hilmir SU 500, Sæbjörg VE
300, Skarðsvfk SH 420, Keflvíkingur KE 230,
Andvari VE 200, Helga Guðmundsdóttir BA
460, Skógey SF 240, Arnarnes GK 220,
Magnús NK 260, FIosi !.» 250, Jón Finnsson
GK 570. Gindvfkingur GK 580, VfkurbergGK
260, Hilmir KE 230, Loftur Baldvinsson EA
770, Albert GK 570, Hrafn GK 400, Helga RE
270, Dagfari ÞH 270, Svanur RE 300,
Guðmundur Jónsson GK 630, Hrafn Svein-
bjarnarson GK 200, Suðurey VE 150, og
Ársæll VE 100.
— Endursendir
bréf frá
r
Islandi
Framhald af bls. 44
legu ár“. Flest verk Kunze hafa
komið út í Vestur-Þýzkalandi,
m.a. bókin sem áður er getið, en
hún kom út hjá Fischer-Verlag
í Frankfurt. Að minnsta kosti
eitt Ijóða nans hefur komið út í
Austur-Þýzkalandi, því að þótt
ljóð hans séu gagnrýnin á
ástandið í heimalandi hans tjáir
hann sig sjaldr.ast mjög opin-
skátt og talar gjarnan undir
rós. Reiner Kunze hefur oft átt
í útistöðum við stjórnvöld, sem
m.a. hefur komið í veg fyrir að
hann fengi að sækja erlend rit-
höfundamót. Á síðustu árum
hefur hróður hans sem skálds
farið vaxandi á Vesturlöndum
og hann hefur fengið ýmsar
viðurkenningar, m.a. í Svíþjóð
og í Vestur-Þýzkalandi.
Verk Reiners Kunze hafa ver-
ið þýdd á fjölda tungumála og
m.a. hefur hið þekkta enska
listatímarit, London Magazine,
birt úr bókum hans. 1 síðasta
tölublaði t.d., sem nýkomið er
út, eru birtir fjölmargir kaflar
úr „Hin dásamlegu ár“.
Jóhann Hjálma/sson sagði i
viðtali við Morgunblaðið í gær
að hann hefði þýtt talsvert af
ljóðum eftir Kunze. Nú fyrir
jólin kom t.d. út bókin „Þrep á
sjóndeildarhring", þýðinga-
safn, m.a. með ljóðum eftir
Kunze. í bréfinu, sem ekki fékk
náð fyrir ritskoðun austur-
þýzku stjórnarinnar, var kveðja
til Kunze ásamt grein, sem
Jóhann skrifaði i MorgunbJaðið
um Kunze og Wolf Bíermann.
Tilefni greinarinnar var. að pS
hafði Kunze verið vikið ú£.riU
höfundasamtökunum *'■’ »g
Biermann meinað ao snúa aftur
til Austur-Þýzkalands úr hljóm-
leika- og upplestrarför. Einnig
var úrklippa með ljóði eftir
Jóhann Hjálmarsson, sem hann
orti til Kunze og birtist i
Morgunbalðinu. Ljóðið heitir
„nýtt bréf til Reiners Kunze".
en áður hafði Jóharn birt I
„Dagbók borgaralegs skálds"
ljóð sem nefndist „Bref til
Reiners Kunze“. í nýja ljóðinu
er fjallað um brottvikninu
Kunze úr rithöfundasamtök-
unum og þá einangrun, sem
hann hlýtur að búa við eftir
aðgerðir stjórnarinnar gegn
honum.
Þess má geta að Reiner
Kunze er pósturinn einkar hug-
leikinn I ljóðum sínum, en
hann hefur verið honum einkar
mikilvægur I þvl að ná sam-
bandi við umheiminn. í „Nýju
bréfi til Reiners Kunze" kemur
Jóhann einmitt inn á þetta, en
upphaf ljóðsins er svohljóð-
andi:
Þ<*tta bréf berst þér varla.
En ég sé þig sitja
t herbergi þínu í Greiz,
blaóið autt f ritvélinni,
og myndirnar á veggnum
af skáldbræðrum þfnum og vin itíi
horfa á þig
Þú varar á einum stað
Tékkann Jan Skácel við þvf,
(hann sem orti Ijóðið um villigæsirnar),
að senda stór póstkort
og skrifa of mikið
á þau.
Þú segir:
Ég veit.
Pósturínn sem þú yrkir svo oft um
kemur að húsinu
við Franz-Feustel götu
Við skulum vona að það sé hann,
en ekki þeir
sem Biermann söng um
f Vænstu ekki betri tfma.
Þú yrkir á öðrum stað
um dauðann:
Einn morguninn hringir hann dyrabjöll-
unni
f gervi póstsins.
Og þú segir við hann:
Bfddu þangað til pósturinn hefur komið.
— Búnaðarþing
sett í dag
Framhald af bls. 2
ins. Meðal mála, sem koma frá
stjórn Búnaðarfélagsins fyrir
þingið, er tillaga um aukna
kartöfluframleiðslu I landinu og
breytta tilhögun á útfiutningi
landbúnaðarvara.
Eftir hádegi I dag verður kosið I
fastanefndir þingsins og búnaðar-
málastjóri, Halldór Pálsson,
greinir frá framgangi mála frá
síðasta Búnaðarþingi.
— Húsfriðunar-
nefnd
Framhald af bls. 2
á bekkjaskipaninni I kirkjunni
sagði Hörður, að nefndin hefði'
velt þessu vandamáli méð bekk-
ina mikið fyrir sér. „Við höfum
auðvitað ekkert á móti þvl að vel
fari um fólk I kirkjunni," sagði
Hörður, „en það, sem réð úrslit-
um um að við gátum ekki fallizt á
þesa breytingu, er, að kirkjunni
er deilt I svokölluð stafgólf og það
eru stórar og miklar stoðir er bera
uppi þakið og svalirnar, og milli
þeirra eru aftur millisúlur. Arki-
tektinn hefur bundið bak
nokkurra bekkja við þessar súlur
og haft svo tvo bekki á milli.
Hefði verið farið út I það að grisja
bekkina, þá hefði þetta samræmi
horfið, og við töldum einfaldelga
að það væri þyngra á metunum að
vernda þarna verk arkitektsins og
þá hefð sem það hefur fengið
heldur en að auðvelda kirkjugest-
um að komast inn I bekkina. Fólk
hefur þolað þetta I 180 ár og með
tílhlýðilegri tillitssemi við þetta
gamla hús töldum við að þetta
ætti að geta gengið svona áfram.,,
Varðandi skrúðhúsið sagði
Hörður, að það hafi verið Ijóst að
prestarnir þyrftu að fá betri að-
stöðu til að taka á móti fólki og til
að koma til móts við þá hefði einn
nefndarmanna komið með tillögu
til úrbóta, sem um leið hefði I för
með sér lítið sem ekkert rask á
skrúðhúsinu. Skrúðhúsið skiptist
eíginlega I fjórar deildir. Fremst
væri forstofa en síðan væri til
beggja handa lítið herbergi. Væri
annað notað sem salerni en hitt
hefði verið notað sem símaklefi.
Hurð væri á salerninu með þvl
móti sem á kirkjunni væri og til-
laga nefnarinnar hefði verið sú að
heimila að setja nákvæmlega eins
dyr á slmaklefann og breyta hon-
um I biðstofu en síðan gætu prest-
arnir haft innra skrúðhúsið fyrir
sig sem skrifstofu. Þórir
Stephenssen tjáði Morgunblað-
inu, að með þessu móti teldu þeir
prestarnir að fengin væri viðun-
andi aðstaða fyrir þá til að taka á
móti fólki sem til þeirra leitaði.
Þótt kirkjugestir i Dómkirkj-
unni verði eftir sem áður að láta
sér þrengslin á kirkjubekkjunum
lynda, geta þeir þó huggað sig við
að Húsafriðunarnefnd hefur
komið til móts við tillögur um að
setja sessur á bekkina. Eins og
áður segir verður kirkjan einnig
öll máluð og vandað til þess verks
svo sem kostur er, og ný teppi
verða lögð. Siðast en ekki sízt
hefur verið ráðizt I að gera við
altaristöfluna I kirkjunni, og ann-
ast Frank Ponsi, listfræðingur,
það verk. Að sögn Þóris var taflan
farin að láta mjög á sjá og lá
jafnvel undir skemmdum, en
Ponsi mun nú setja hana á nýjan
striga og lagfæra að öðru leyti.
— Kínverjar
Framhald af bls. 1.
sem berðust fyrir mannréttind-
um, og venjulegt fólk, sem væri á
móti „yfirgangs- og útþenslu-
stefnu Sovétríkjanna“. Sagði
fréttastofan, að vistmenn yrðu
daglega fyrir barsmlðum og
grimmdarlegri niðurlægingu og
læknisaðstoðin væri I raun
pynding. Ein læknisaðferðin væri
að binda blaut klæði yfir
sjúklinginn, sem svo þrengja að
öndunarfærum hans um leið og
þau þorna, sagði Nýja-Kina.
- Merkjasala
Rauða krossins
Framhald af jls. 2
merkjanna og að fólk taki þeim
vel.
í fréttatilkynningu sem Mbl.
hefur borizt frá Reykjavíkurdeild
Rauða kross íslands segir að fjár-
munir, sem deildin safnar renni
m.a. til kaupa á sjúkrabílum.
Á þessu og sl. ári hafa verið
keyptir 3 sjúkrabílar, þar af einn
dýr torfærublll, sem hentar við
erfiðar aðstæður svo sem I vondri
færð.
i tilefni af 10 ára afmæli
kvennadeildar Reykjavikur-
deildarinnar á sl. ári gaf deildin 1
millj. kr. til sjúkrabílakaupa.
Af annarri starfsemi Reykja-
víkurdeildarinnar má nefna
kennslu I skyndihjalp, sumar-
dvalir R.víkur á sumardvala-
heimili deildarinnar sl. sumar að
Silungapolli við R.vík — heim-
sendingu matar til aldraðra,
öryrkja og á hina margháttuðu
starfsemi kvennadeildarinnar á
sjúkrahúsum borgarinnar og við
sjúkravinastörf I borginni.
— Owens
Framhald af bls. 1.
hann hefur öðlazt mjög skjótan
frama I stjórnmálum.
Tvær aðrar minniháttar breyt-
ingar voru gerðar á ríkisstjórn-
inni. Frank Judd, sem var ráð-
herra þróunar erlendis, verður
aðstoðarutanríkisráðherra, en
vinstrisinninn Judith Hart, sem
sett var úr ríkisstjórn þegar
Callaghan tók við af Wilson I
aprfl 1976, tók við sínu fyrra
embætti af Judd. Þá var Joel
Barnett, aðstoðarfjármálaráð-
herra, gerður að ráðherra með
sæti I rfkisstjórn.
— Spánn
Framhald af bls. 1.
starfa löglega. Rfkisstjórnin
hefur sagt, að hún ákveði á mið-
vikudag hvort hún muni vfsa
berðm flokksins til hæstaréttar
eða ekki. Kommúnistar undir-
strikuðu hins vegar óskir sfnar f
kvöld með þvf að birta framboðs-
lista f flestum kjördæmum. Þeir
eru þvf fyrstir til að birta fram-
boðslista en kosningarnar verða f
júnf. Santiago Carillo, ritari
flokksins, og Dolores Ibarruri,
forseti hans, en hún er 81 árs, eru
f efstu sætunum f Madrid. Frú
Ibarruri sem þekkt er fyrir eld-
heitar ræður sfnar, er f útlegð f
Moskvu, en vonast til að geta
snúið heim.
— Amin
Framhald af bls. 1.
ingarsamtaka Afrlku, að
kirkjuleiðtogarnir hefðu báðir
lagt hlustir við orðrómi og lyg-
um um Uganda. „Svo virðist
sem báðir mennirnir hafi átt
þátt I óþokkalegri áætlun um
að skapa öngþveiti I Uganda,"
sagði Ugandaútvarpið Amin
hafa sagt I skeytinu. „Þess
vegna urðu það þeim svo mikil
vonbrigði þegar áætlunin
brást og þess vegna eru þeir
fremstir þeirra sem bera út
óhróður um Uganda."
Málgagn stjórnar Tanzaníu,
Daily news, sagði I dag, að Idi
Amin hefði sjálfur drepið
Luwum, erkibiskup, I síðustu
viku með þvl að skjóta hann
tvisvar sinnum I brjóstið. Ber
blaðið fyrir sig ábyrgar heim-
ildir I Kampala, sem herma, að
Amin hafi myrt Luwum I
Nakasero, sem er úthverfi
borgarinnar, eftir að embættis-
menn höfðu pyndað hann og
yfirheyrt.
Liki hans var fleygt I
Viktoriuvatn ásamt líkum
tveggja ráðherra sem einnig
voru myrtir I fangelsi, þar sem
þeir sátu ásakaðir um að hafa
undirbúið áætlun um að
steypa Amin af stóli. Stjórn
Uganda segir mennina þrjá
hafa farizt I bilslysi þegar þeir
reyndu að komast undan.
Enskur biskuð, sem kom til
London frá Nairobi, hefur það
eftir sjónarvotti að á líki
Luwums hafi verið tvö skotsár
i brjósti og eitt I munni.
— Amalrik
Framhald af bls. 1.
en sagði ekki frá efni þess.
Seinna var haft eftir áreiðan-
legum heimildum að hann
hefði neitað að fara I utanrlkis-
ráðuneytið.
Jafnframt þvl sem Amalrik
er kominn til Frakklands er
andófsmaðurinn Vladimir
Bukovsky á förum til Banda-
ríkjanna þar sem honum hefur
verið boðið að hitta Walter
Mondale varaforseta og banda-
ríska þingmenn. Bukovsky
kveðst vonast til að geta hitt
Jimmy Carter forseta að máli.
Amalrik hefur einnig látið I
ljós von um að ræða við
sósíalistaleiðtogann Francois
Mitterand, kommúnistaleiðtog-
ann George Marchais og
gaullistaleiðtogann Jacques
Chirac.
— Viðgerðir á
r
togurum BUR
Framhald af bls. 32.
að Ingólfur Arnarsson væri með
tvær rifur á stefni og sjálfsagt
yrði að gera við hann og styrkja á
sama hátt og Snorra. Ragnar sagði
að telja mætti vlst að styrkja
þyrfti skuttogarann Bjarna Bene-
diktsson þó hann hafi sloppið til
þessa.
Ragnar sagði að þeir Marteinn
hefðu talað saman slðar I vikuni
og þá hefði óskin um að Ragnar
kæmi utan verið Itrekuð. Formað-
ur útgerðarráðs sagðist þegar
hafa haft samband við boargar-
stjóra og skýrt honum frá mála-
vöxtum og þá hefði hann tekið
jákvætt I málið. Þá sagðist Ragnar
hafa haft samband við alia félaga
sína I útgerðarráði og hefðu svör
fjögurra og sitt það fimmta verið
jákvæð. Björgvin Guðmundsson
hefði sýnt efasemdir en Sigurjón
Pétursson hefði verió strax á móti
og sagst myndu gera mál úr ef af
ferðinni yrði. — Viðgerð á Snorra
Sturlusyni vár framkvæmd sam-
kvæmt framansögðu og einnig
viðgerð á stefni skipsins sem orð-
ið hafði fyrir skemmdum fyrir ári
slðan og þá var líka gert við stýrið
og botn málaður. „Þann 23. jan
fór ég svo til Cuxhaven", sagði
Ragnar „og þann 24. var haldinn
fundur um kostnað og kostnaðar-
skiptingu á þessum tjónum öll-
um.“ Að kvöldi þess 25. var skipið
sjósett og sigldi það til íslands
aðfararnótt miðvikudags. Á mið-
vikudagskvöld héldum við heim-
leiðis, töfðumst I Kaupmannahöfn
vegna niðurfellingar á flugi en
komum til Reykjavíkur föstudag-
inn 28. jan en b.v. Snorri Sturlu-
son kom þann 30.
Ragnar Júllusson sagði rétt að
geta þess að Sigurjón Pétursson
væfi ekki alltaf sjálfum sér sam-
kvæmur i málflutningi. Brennsla
svartollu I togurum BUR hefði
verið til umræðu og eftir skraf og
ráðagerðir hefði svartolíunefnd
farið þess á leit við útgerðarráð að
það sendi þrjá menn til framleið-
anda MAN vélanna I Þýzkalandi.
Þetta hefði verið rætt á fundi
borgarráðs s.l. þriðjudag og þá
hefði Sigurjón Pétursson bent á
að eðlilegt væri að senda formann
útgerðarráðs. Svo skrýtið sem það
væri þá hefði kennarinn þá fyrst
haft vit á hlutunum. Ragnar sagð-
ist ekki vita betur en þessi sami
bogarfulltrúi sem talað hafi hér
yfir sér I vandlætingartón hafi
farið með rafvirkja til Portúgals
eitt sinn að velja hótel og bað-
strendur á vegum Landsýnar, En
I útgerðarráði má stjórnarmaður
ekki hafa vit á slíku og þvl síður
láta til sín taka I framkvæmdum.
Björgvin Guðmundsson (A) sagði
að sér fyndist ekki við hæfi að
standa I stórdeilum um BUR á
sjálfum afmælisdeginum. Hann
sagðist hafa tjáð Ragnari að hann
teldi nóg að Marteinn Jónasson
færi utan.
Borgarstjóri Birgir Ísleifur
Gunnarsson (S) tók næst til máls
og sagði að Marteinn Jónasson
hefði komið til sln og spurt hvort
ekki yrði mögulegt að fá formann
útgerðarráðs út á eftir til að ráðg-
ast við ef taka þyrfti stórar
ákvarðanir I máli þessu.
Borgarstjóri sagði það ekkert
grln fyrir einn embættismann að
vera staddur I erlendri borg og
þurfa að taka ákvarðanir um við-
gerðir upp á milljónatugi. Birgir
ísleifur sagðist llta á þetta sem
dæmi um samvizkusemi Marteins
Jónassonar framkvæmdastjóra
BUR sem menn vissu vel um.
Sigurjón Pétursson sagði að dæm-
ið væri ekki um það að nauðsyn
hefði verið að formaður útgerðar-
ráðs færi utan heldur að hann
langaði að fara. Það gætu menn
séð með tilliti til tímans. Sigurjón
sagðist ekki hafa sagt að formað-
ur útgerðarráðs hefði ekki getað
farið vegna þess að hann væri
kennari. Að lokum sagðist Sigur-
jón vilja átelja að ferð sem þessi
væri farin I ástæðuleysi og til-
gangsleysi.
— Ekki bjartsýn-
ismaður seg-
ir Spassky
Framhald af bis. 3
ari Hann hefði þó örugglega sjálfur
viljað vinna fyrir titlinum, ég held hann
hafi viljað tefla við Fischer og vilji það
ennþá Hann ákveður þó ekki einn
hvað skal gera. Sovézka skáksamband-
ið stjórnar Það er alltof mikil pólitik i
þessu, sagði Spassky
— Að keppninni lokinni hér getur
verið að ég takí þátt i móti i Louvre i
Frakklandi, sem byrjar 26. marz. Það
er þó ekki ákveðið og ég þarf langan
tima til að jafna mig eftir svona mót
eins og einvigið við Hort Ég sef eins
og björn í hiði minu í heilan mánuð
eftir slik átök, sagði heimsmeistarinn
fyrrverandi
Um undirbúning sinn hafði Spassky
það að segja að hann hefði síðastliðna
tvo mánuði einbeitt sér að undirbún-
ingi einvigisins Hefði hann teflt sex
skáka einvigi við Kavalek i Vestur-
Þýzkalandi og unnið 4:2. Hann sagðist
vera vel afslappaður og mörgu leyti
betur undirbúinn en fyrir heimsmeist-
araeinvigið i Reykjavík. Sagði Spassky
að hann hefði mikla reynslu af slíkum
einvigjum, en það vaeri kannski enginn
gróði Hort hefði litla reynslu í þessum
efnum, en einbeitingin yrði e.t.v. enn
meíri hjá honum í staðinn.