Morgunblaðið - 22.02.1977, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1977
5
Atriði úr Hringekju Iffsins.
Hringekjalífsins
— Hin átta aldurs-
skeið ævinnar
Á DAGSKRÁ sjónvarpsins í kvöld
klukkan 20.35 er fyrri hluti
bandarískrar teiknimyndar, sem
nefnist Ilringekja lffsins og er
byggð á athugunum og kenning-
um bandarísks sálfræðings að
nafni Erik H. Erikson. Á myndin
að lýsa þroskaferli mannsfns frá
fæðingu til elli. Síðari hluti
myndarinnar verður sýndur á
morgun, miðvikudag klukkan
20.35.
Að því er Heba Júlíusdóttir
þýðandi myndarinnar sagði, er
teiknimynd þessi bæði hin
skemmtilegasta og fróðlegasta,
ætluð börnum, unglingum og full-
orðnum. Myndin lýsir hinum átta
aldursskeiðum mannlífsins og er
hringekju nafnið dregið þaðan.
Einhver „fígúra" að því er Heba
sagði kemur svo alltaf inn á milli
og kynnir hvert aldursskeið fyrir
sig.
Hringekjan hefst með fæðingu
barns, sem er fyrsta aldursskeið-
ið. Næst er sagt frá því þegar
barnið tekur fyrstu sporin, þá
koma skólaárin, unglingsárin,
fullorðinsráin og síðast ellin, sem
mörgum gengur erfiðlega að
sætta sig við.
Þroskaferlinum er lýst á þann
hátt hvernig andstæður togast á I
manninum. Barni líður vel, þegar
það finnur ást foreldra sinna,
grætur þegar það er svangt eða
syfjað. Unglingur reynir að átta
sig á sinum eigin persónuleika
o.s.frv.
I kvöld sjáum við svo þroskafer-
il fyrstu sex aldursskeiðanna, en I
síðari hlutanum á morgun, sjáum
við tvö siðustu aldursskeiðin, sem
að áliti Eriks H. Erikson eru þau
lengstu.
BREZK-BANDARÍSKI framhaldsmyndaflokkurinn um
Colditz er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld, klukkan 21.20
og nefnist þessi þáttur Velkominn til Colditz og segir
hann frá söguhetju númer tvö og aðdraganda þess að
hann lenti á þessum illræmda stað, en í þvi hlutverki er
bandariski leikarinn Robert Wagner, sem við sjáum á
meðfylgjandi mynd. Á hinni myndinni er svo Colditz
fangelsið, í allri sinni dýrð.“
Yfirlýsing bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á Eskifirði: !
„Bæjarfulltrúa ad ákveða
hvernig f jármunum bæjar-
sjóðs er varið”
1 TILEFNI af viðtali við bæjar-
stjórann á Eskifirði f Dagblaðinu
14. febrúar sfðastliðinn vilja und-
irritaðir bæjarfulltrúar taka
fram eftirfarandi:
1. Jóhann Clausen telur að und-
irskriftasöfnunin hafi verið á
„misskilningi byggð“. 346 Esk-
firðingar, sem allir höfðu náð 18
ára aldri, skoruðu á bæjarstjórn
að beita sér fyrir þvi, að margum-
rædd húseign yrði keypt til að
koma þar á fót dvalarheimilisað-
stöðu fyrir aldraða. Þetta mál hef-
ur lengi verið á döfinni á Eski-
firði og þvi mjög liklegt að allir
þeir sem skrifuðu á listana hafi
þekkt málið og ekki misskilið
neitt í því sambandi. Verður það
að teljast mikil kokhreysti bæjar-
stjórans að halda sliku fram.
2. Bæjarstjóri heldur því fram
að kaup á fasteigninni á Botna-
braut hefði i för með sér stórum
meiri kostnað, en gert hefði verið
ráð fyrir í gildandi fjárhagsáætl-
un og myndi valda röskun á fjár-
hag bæjarsjóðs. Við síðari um-
ræðu um fjárhagsáætlun fyrir
Eskifjarðarbæ var samþykkt með
fjórum atkvæðum gegn engu
breytingartillaga, sem felur í sér
að húseignin verði keypt og eru
húsakaupin því á gildandi fjár-
hagsáætlun Eskifjarðar. Þá skal
það tekið fram að húsakaupin
munu ekki leiða til fjárútlána,
umfram það sem áður hafði verið
áætlað, þar sem lánafyrirgreiðsla
mun brúa það bil.
3. Jóhann segir i viðtalinu að
tveir framsóknarmenn og einn al-
þýðuflokksmaður hafi greitt at-
kvæði á moti tillögunni. Þetta er
rangt, þessir bæjarfulltrúar sátu
hjá við atkvæðagreiðsluna.
4. Jóhann bendir á að bæjar-
sjóður standi í ýmsum fjárfrekum
framkvæmdum og nefnir sem
dæmi að bygging grunnskóla sé á
byrjunarstigi og muni kosta bæj-
arsjóð á annað hundrað milljónir
króna. í þessu sambandi er rétt að
fram komi að fjárveitingar til
grunnskólans hafa í engu verið
skertar og hefði bæjarstjóri i
þessu sambandi getað nefnt
hvaða lið úr fjárhagsáætluninni,
sem vera skyldi. Mergurinn máls-
ins er þó sá að það er bæjarfull-
trúa að ræða fram úr því hvernig
fjármunum bæjarsjóðs er varið
og teljum við því háttalag bæjar-
Stjóra og yfirlýsingar vegna þessa
máls slíkt frumhlaup að það verði
ekki þolað öllu lengur.
Eskifirði, 17. febrúar 1977.
Guðmundur A. Auðbjörnsson
Georg Halldórsson
Ekki bara eitt og annað!
heldur
allt
sem skrifstofur, einstaklingar og stofnanir þurfa a aö halda
Nú á einum staö.
Hallarmula 2
%