Morgunblaðið - 15.03.1977, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977
Alviðrumálið
þingfest í dag
ALVIÐRUMÁLIÐ svokallaða
vorður þingfest í dag í Hvera-
gerði, sem er þingstaður ölfus-
hrepps. Mál þetta höfðar
Magnús Jóhannsson, fyrrver-
andi bóndi og eigandi Alviðru,
til gjafariftunar vegna
meintra vanefnda þeirra aðila,
sem Magnús gaf jörðina
Alviðru, þ.e. Árnessýslu og
Landverndar.
24 hjólbörð-
um stolið
í BYRJUN mánaðarins var
miklu magni af hjólbörðum
stolið úr geymslu í Sundaborg.
í fyrstu var ekki nákvæmlega
vitað um fjölda barðanna, en
nú liggur ijóst fyrir, að þetta
voru a.m.k. 24 hjólbarðar af
General-gerð. Söluverðmæti
þeirra er 270—300 þúsund
krónur. Ef einhver telur sig
geta veitt upplýsingar i mál-
inu, er hann beðinn að gefa sig
fram við rannsóknarlögregl-
una.
Jakob hættir
með Orðabók
Háskólans
I FRÉTT frá Menntamálaráðu-
neytinu segir að Jakobi Bene-
diktssyni hafi verið veitt lausn
frá starfi forstöðumanns Orða-
bókar Háskólans fyrir aidurs
sakir. Lætur Jakob af þessu
starfi 1. janúar á næsta ári.
Vitavörð
vantar
STAÐA vitavarðar Reykjanes-
vita hefur verið laus til um-
sóknar. Laun eru samkvæmt
launakerfi starfsmanna rikis-
ins og skulu umsóknir sendast
Samgönguráðuneytinu.
Of mikill klór
í heita vatninu
Þorlákshöfn 14. marz.
VIÐ athugun á sýnishorni á
vatninu úr borhoiunni við
Bakka ( ölfusi kom f Ijós, að
það inniheldur nokkuð mikið
af klór, þannig að ekki er talið
ráðlegt að leiða það beint inn á
hitakerfi húsa. Það er með öðr-
um orðum talið nauðsynlegt að
hafa forhitara fyrir hvert hús.
Vatnið er hins vegar talið vel
hæft til neyzlu.
Nú bíður holan frekari at-
hugunar sérfræðinga og úr
henni eru látnir renna sjálf-
krafa 16 sekúndulítrar af 100
stiga heitu vatni, en meira
vatn mun vera þarna fyrir
hendi. Fyrst þegar vatnið kom
upp við borun, runnu sjálf-
krafa 20 sekúndulítrar af
vatni, svo að vonir standa nú
til að góður árangur náist að
þessu sinni til hitaveitu fyrir
Þorlákshöfn.
Ragnheiður.
Eldur í
áhaldahúsi
UM HELGINA kom upp eldur
í gömlu áhaldahúsi, sem stend-
ur við Vesturgötu í Hafnar-
firði. Þetta er steinhús með
timburinnréttingum. Tölu-
verðar skemmdir urðu í hús-
inu af völdum elds, reyks og
vatns.
Helga Hilmarsdóttir sýningar-
stúlka brá sér f peysu frá Les-
Prjón fyrir Ijósmyndara. Les-
Prjón er nýtt nafn á prjónastofu
önnu Þórðardóttur.
Axel Aspelund frá fyrirtskinu Lexa hf með sýnishorn af framleiðslu
þess fyrirtækis, sem eru herrahálsbindi, flauel-slaufur, kjól- og smok-
ingslaufur, axlabönd og dömuslsður.
FOT/77: Kaupstefna ísl.
fataframleiðenda 1 16. sinn
KAUPSTEFNA (slenzkra fata-
framleiðenda, Föt ’77 hófst f Vfk-
ingasal hótel Loftleiða sfðastlið-
inn sunnudag og stendur fram á
miðvikudagskvöld. Hún er opin
daglega frá klukkan 2—6.
Þátttakendur á kaupstefnu
þessari, sem er sú sextánda f röð-
inni eru alls fimmtán. Kaupstefn-
an Föt, hefur verið haldin tvisvar
sinnum á ári bingaðtil.
Það eru innkaupastjórar
íslenzkra verzlana og fyrirtæki,
sem fá á kaupstefnunni tækifæri
til að kaupa og kynna sér íslenzka
fataframleiðslu á heildsöluverði.
Eftirtalin fyrirtæki taka þátt í
þessari sýningu: Artemis sf, nær-
fatagerð, Lexa, hf„ Skóverksmiðj-
an Iðunn, Fataverksmiðjan Gefj-
un, Henson sportfatnaður hf.,
Les-Prjón hf., Vinnufatagerð ís-
lands hf„ Prjónastofan Iðunn hf,
Klæði. hf„ Nærfatagerðin Ceres
hf„ Bláfeldur hf„ Sólin, sauma-
stofa, Sportver hf., Verksmiðjan
Dúkur hf. og Fataverksmiðjan
Hekla.
Á meðfylgjandi myndum sjást
nokkur sýnishorn þess, sem er á
kaupstefnunni Föt ’77. En sýning-
unni verða gerð betur skil í blað-
inu síðar í þessari viku.
Starfsleyfi gegn vilja
Aldrei fleiri
pantanir frá
útlendingum
í Öræfaferðir
— ÞAÐ lítur út fyrir algert metár
( öræfaferðum, sagði Ulfar
Jacobsen ferðaskrifstofustjóri,
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann.
Hann sagði að pantanir í öræfa-
ferðir erlendis frá væru orðnar
fleiri en nokkru sinni fyrr á þess-
um árstfma. — Við höfum núna
fengið jafn margar pantanir og í
júní í fyrra og það eiga eftir að
berast ennþá fleiri pantanir. I
fyrra var aukningin 27% miðað
við árið áður, sagði Ulfar.
Ferðaskrifstofa Ulfars verður
með 29 fastar ferðir I sumar og
útlit er fyrir fjölda aukaferða. —
Það eru fyrst og fremst Evrópu-
búar, sem koma hingað i öræfa-
ferðirnar, mest frá Þýzkalandi,
Frakklandi, Hollandi og Belgíu,
og einnig töluvert frá Austurríki
og Skandinavíu. Og I sumar kem-
ur svo fyrsti ferðahópurinn frá
Spáni, sagði Ulfar.
Aðspurður sagði hann að sára-
lítið af íslendingum færi i öræfa-
ferðir með ferðaskrifstofu sinni.
— Þeir íslendingar, sem gaman
hafa af öræfaferðum fara í eigin
bílum. Innan við 1% af farþegum
okkar eru tslendingar.
heilbrigðiseftirlitsins
Fnykur frá bræðslunni HafnJBrðingum til ama í tvo áratugi
LODNUVEIÐARNAR og vinnsla
aflans færa miklar tekjur ( þjóð-
arbúið, en þvf miður eru ekki
aðeins jákvæðar hliðar við þessa
miklu tekjulind. 1 Ilafnarfirði
bafa menn barizt fyrir þvf ( mörg
ár að byggður yrði reykbáfur við
bræðslu Lýsi og Mjöls, en án
árangurs allt til þessa dags. Hefur
reyndar verið farið fram á ýmsar
aðrar lagfæringar og breytingar
þar til að losna við ólyktarvanda-
Málverkauppboð Klausturhóla í dag:
Myndir eftir Kjarval,
Brynjólf, Mugg o.fl.
KLAUSTURHÓLAR, uppboðs-
fyrirtæki Guðmundar Axels-
sonar, efnir til 29. listmunaupp-
boðsins ( dag, þriðjudag og hefsl
uppboðið á Hótel Sögu, Súlnasal,
kl. 17.00. Blaðinu befur borizt
uppboðsskráin. Seld verða 58
myndverk, olfumálverk, rauð-
krftarmyndir, teikningar og
vatnslitamyndir eftir fjölmarga
listamenn, Iffs og liðna. Af núlif-
andi listamönnum eru m.a. verk
eftir: Benedikt Gunnarsson: Ur
Skagafirði; Eirfkur Smith: Kola-
teikning; Guðmundur Karl
Asbjörnsson: Frá Kleifarvatni;
Eyjólfur Eyfells: Landmanna-
laugar; Gunnar örn: Andlit;
Jóhannes Geir: Bátur; Karen A.
Þórarinsson: Séð til Bessastaða;
Pétur Friðrik: Snæfellsjökull;
Ragnar Páll: Þingvellir; fimm
málverk eftir Svein Þórarinsson;
Valtýr Pétursson: Landslag.
Einnig eru myndir eftir Hákon
Oddgeir, Örlyg Sigurðsson, Vetur-
liða, Blöku, Baldur Edvins og
sjálfsmynd eftir Steingrfm Sig-
urðsson.
Á uppboðinu eru rúmlega
tuttugu listaverk eftir látna
myndlistarmenn. Þar eru tvær
litlar olíumyndir eftir Brynjólf
Þórðarson, sem lézt fyrir um 40
árum og var meðal efnilegustu
málara. Þá verða seldar tvær
vatnslitamyndir frá Reykjavík
eftir Jón Helgason biskup, en
sjaldgæft er að myndir eftir þessa
listamenn séu til sölu. Tvær
myndir eftir Guðmund Thor-
steinsson, Mugg, báðar málaðar
erlendis. Þrjár myndir eru eftir
Jón Engilberts, tvö olíumálverk
og gömul rauðkrftarteikning, frá
Öslóarárum meistarans. Sex
myndir eru eftir Jóhannes Kjar-
val frá ýmsum tímum á ferli lista-
mannsins, allt frá 1921 —1961.
Þarna verður líka seld mynd eftir
Snorra Arinbjarnar: Baula og
Glanni, vatnslitir. Teikning eftir
Rikarð Jónsson, gerð 1945. Meðal
Framhald á bls. 47
mál, sem fylgja bræðslunni. Hef-
ur sumum þcssara atriða verið
kippt f liðinn, en öðrum ekki, og
reyndar eiga fleiri staðir f svip-
aðri baráttu og Hafnfirðingar og
má f þvf sambandi nefna bæði
Akranes og Keflavfk.
— Fnykur og ódaunn frá loðnu-
bræðslunni og síldarbræðslunni á
sfnum tíma hefur hrjáð okkur í
mörg ár, eða allt frá því fyrir
1960, sagði Sveinn Guðbjartsson,
heilbrigðisfulltrúi 1 Hafnarfirði í
samtali við Mbl. í gær. — Við
höfum ítrekað reynt að fá kröfum
okkar fullnægt, en ekki tekizt enn
sem komið er. Árið 1973 tók heil-
brigðisráðuneytið fram fyrir
hendurnar á okkur og veitti fyrir-
tækinu starfsleyfi f eitt ár með
því skilyrði að úrbætur yrðu gerð-
ar. Þó svo að það hafi ekki verið
gert, þá fekk fyrirtækið starfs-
leyfi enn á ný og starfar enn
samkvæmt ráðherraleyfi. Er
slæmt til þess að vita, að æðstu
yfirvöld skulu taka fram fyrir
hendurnar á yfirvöldum í héraði
og láta málin dankast. Við fáum
sfðan skömm í hattinn fyrir að
gera ekki neitt, sem er þó alrangt,
því barátta fyrir úrbótum hefur
tekið okkur mikinn tíma.
— Loforð forráðamanna Lýsis
Framhald á bls. 47
Ljósm. Mbl. Ol. K. Mag.
Ulfar Jacobsen og aðstoðarstúlka
hans ganga frá útstillingar-
glugga.
Færeyingar
eiga 5 þús.
lestir eftir
FÆREYSKU loðnuskipin, sem
leyfi hafa til loðnuveiða hér við
land, munu nú hafa fengið 19—20
þúsund lestir og eiga því eftir að
veiða um 5 þúsund lestir. Morgun-
blaðinu er ekki kunnugt um
hvernig veiðin hefur skiptzt á
milli skipanna, en nokkuð mun
það misjafnt. Nokkur færeysku
skipanna hafa verið óheppin við
veiðarnar, því nætur þeirra hafa
rifnað illa. Þá lengist sifellt sigl-
ingartíminn til Færeyja og aftur,
og af miðunum við Snæfellsnes
tekur það skipin ekki undir 5—6
sólarhringum að fara fram og aft-
ur.
Báðar þessar myndir eftir Mugg
verða á uppboðinu. Sú efri er frá
Sætersdal en sú neðri frá
Christiansö.
Fréttir af þýzka
skákmótinu sendar
héðan til útlanda
HÉR á landi er nú staddur
júgóslavneskur blaðamaður til
þess að fylgjast með einvígi
Spasskys og Horts, en blaða-
maðurinn mun vera mikill vin-
ur Spasskys. Það má telja til
tfðinda f sambandi við heim-
sókn þessa blaðamanns, að
hann sendir fréttir af afmælis-
mótinu í Þýzkalandi héðan frá
lslandi til Júgóslavíu. Hefur
hann sagt að fréttaflutningur-
inn frá þýzka mótinu hingað til
tslands sé svo góður, að það sé
litlu síðra að vera hér staddur
og senda fréttir af mótinu en að
vera á sjálfum keppnisstaðn-
um. Sem kunnugt er tefla F'rið-
rik Ölafsson og Karpov heims-
meistari á þýzka mótinu, og eru
skákir þeirra sendar hingað til
lands og skýrðar að Hótel Loft-
leiðum um leið og þær eru
tefldar.