Morgunblaðið - 15.03.1977, Side 17

Morgunblaðið - 15.03.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977 17 Sandspyrnukeppnin við Hraun i Ölfusi sl. sumar. Vilhjálmur Ragnarsson á Willys 283 chevy, hann sigraði í flokki 8 strokka jeppa. Mynd þessi er tekin f júní ’75, áður en Kvartmílu- klúbburinn var stofnaður, og sýnir 340 cid Duster keppa við 442. Olds. rartmíluklúbbnum Mbl. hafði samband við Örvar Sigurðsson, formann Kvartmíluklúbbsins, og spurði hann hvað væri framundan hjá klúbbnum. Hann tjáði okkur, að aðalfundur hefði nýlega ver- ið haldinn, og þar hefði meðal annars verið stjórnar- og for- mannskjör og var Örvar þar endurkosinn formaður. Framundan hjá klúbbnum eru mörg stórmál, t.d. standa þeir í lagningu kvartmílu- brautar hjá Geithálsi og sagði Örvar, að með áframhaldandi þíðu gætu frmakvæmdir við brautina hafizt eftir eina eða tvær vikur. Félagsmenn gera sér vonir um að brautin verði tilbúin í sumar og hafa sumir klúbbsmenn, sem eru að byggja bíla sína upp fyrir brautina, gert sér vonir um að þeir verði tilbúnir þegar brautin kemst upp. Bfll Örvars Sigurðssonar, form. K.K., teg. Camaro ’70 350 cid, 4ra gíra, Hurst. Bílasýning verður 3. april hjá bíla- iölu Guðfinns (bak við Hótel Esju) og nun þar geta að líta mörg af helztu átta >ata tryllitækjum klúbbsins. Ef til vill verða kvikmyndasýningar I vegum klúbbsins eins og tiðkazt hef- ur en þó er það ekki alveg ákveðið. í vetur hefur verið nokkuð um, að menn hafi annarhvort skipt um vélar i bílum sínum og sett stærri vélar i þá eða þeir hafi unnið vélarnar alveg upp frá grunni og breytt þá ýmsu i þeim til að efla þær, en til þess eru margar aðferðir notaðar. Sandspyrnukeppni verður haldin einhvern tímann fyrstu vikurnar í mai, að öllum likindum við Hraun i Ölfúsi. Spyrnukeppnir og tryllitæki njóta sivaxandi vinsælda sem áhugamál hér á landi og fjölgar stöðugt aroerískum bilum á breiðum dekkjum og krómfelg- um sem sjást hér á götum bæjarins. Mikill áhugi er á kvartmílu i Banda- ríkjunum og er þar mikið um kraft mikla bíla sem fara kvartmíluna á allt að 6 eða 7 sek. Að sögn Jóhanns Kristjánssonar, varaformanns Kvartmiluklúbbsins eru kvartmiluspyrnur langhættuminnsta sportið þvi að þær fara fram á stuttri og beinni braut. Stjórn Kaup- mannasamtak- anna skorar á kaupmenn að hætta tóbaks- auglýsingum Framkvæmdastjórn Kaupmannasamtaka íslands hefur samþykkt að beina þeim tilmælum til félagsmanna samtak- anna, að þeir auglýsi ekki framar tóbaks- vörur. I fréttatilkynningu, sem Mbl. hefur borizt frá Kaup- mannasamtökunum segir, að á þennan hátt vilji samtökin koma til móts við skóla í bar- áttu þeirra gegn reykingum barna og unglinga. í fréttatilkynningunni segir, að þessi ákvörðun hafi verið tekin eftir að Kaupmannasam- tökunum barst bréf frá nokk- rum skólpstjórum í Reykjavfk, en bréfið var einnig undirritað af fræðslustjóra, borgarlækni og framkvæmdastjóra Krabba- meinsfélags Reykjavíkur. Sem kunnugt er hefur verið leyfilegt fram til þess að aug- Iýsa tóbaksvörur innandyra og þvi hafa tóbaksvörur verið mikið auglýstar i verzlunar- gluggum og annars staðar í verzlunum. AUGLÝSINGASIMtNN ER: 22410 2H»rgmtt>!«iÍ>tþ R;@ FÉLAG ÍSLENSKRA BIFREIÐAEIGENDA 1. Skoda II0L 1107 cc 83.13 km 6.03 l.pr: 100 km. 2. SIMCA 1100 1118cc 81.14- 6.161. pr:100 km. 3. Skoda 110 Il07cc 80.30- 6.221. pr: 100 km. 4. SIMCA 1100 GLS. 1118cc 79.28- 6.30 l.pr: 100 km. 5. Renault 12 1298 cc 78.03- 6.401. pr: 100 km. 6. SIMCA 1207/1508 1442 cc 77.55 - 6.441. pr: 100 km. 7. Citroen GS 1220cc 75.95- 6.581. pr: 100 km. 8. VW Passat 1297 cc 75.20- 6.641. pr: 100 km. 9. Galant 1596 CC 74.76- 6.681. pr: 100 km. 10. Lancer 1400 cc 74.30- 6.721. pr: 100 km. 11. Peugot 304 1290cc 67.56- 7.401. pr: 100 km. 12. Audi 1558 cc 66.76- 7.481. pr: 100 km. 13. Escort 1298 cc 66.63- 7.501. pr: 100 km. 14. Volvo 66 1108 cc 62.45- 8.001. pr: 100 km. 15. Toyota Corona 1200 cc 59.20- 8.441. pr: 100 km. 16. Volvo 343 1397 cc 58.62- 8.521. pr: 100 km. Enn einu sinni báru SIMCA bílaraf isparaksturskeppni FÍB, þann 14. nóv. '76. Þrátt fyrir vont veður og slæma vegi náðu þrjár Simcur frábærum árangri, eins og meðfylgjandi tafla FÍB sýnir. Berið saman vélarstærð og benzíneyðslu - í Ijós kemur að SIMCA 1100 og 1307/1508 eyða hreint ekki neinu. Það er ekki of sögum sagt að SIMCA er néyslugrannur bíll. Talið við okk- ur og tryggið ykkur nýjan SIMCA strax í dag. 1/ökull hf. ÁRMÚLA 36 REYKJAVÍK Sími 84366. fH RYSI.KR SIMCA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.