Morgunblaðið - 15.03.1977, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977
r
V
HREINN Halldórsson, 28 ára
gamall strætisvagnastjóri, vann
ð sunnudaginn eitt glæsileg-
asta fþróttaafrek sem tslend-
ingur hefur unnió f langan
tfma, er hann hreppti Evrópu-
meitaratitilinn f kúluvarpi inn-
anhúss á móti sem fram fór f
borginni San Sebastian á
Spðni. Varpaði Hreinn 20,59
metra þegar f fyrstu tilraun og
þrátt fyrir að f hópi keppinauta
hans væri þáverandi Evrópu-
meistari f greininni, Bretinn
Geoff Capes, Ólympfumeístar-
inn frá Míinchen 1972,
Wladyslaw Komar frá Póllandi,
og silfurverðlaunahafinn frá
HREINN EVRÚPUMEISTARI
Ólympfuleikunum fMontreal,
Evgeny Moronov frá Sovétrfkj-
unum, tókst engum að bæta um
betur. Þriðji Evrópumeistara-
titill tslendings f kúluvarp varð
staðreynd. Sannaði Hreinn
öryggi sitt f keppninni er hann
varpaði 20,27 metra f sfðustu
umferð, en það er betri árangur
en sá er hreppti þriðja sætið f
keppninni náði.
Með þessum glæsilega
árangri hefur Hreinn skipað
sér í hóp beztu kúluvarpara í
heimínum, og þarf meira en
lítið til þess að komast í þann
fríða flokk. Vakti afrek Hreins
gífurlega athygli — heimsat-
hygli er óhætt að segja. Þannig
segir t.d. Reuter-fréttastofan f
allítarlegri frásögn sinni af
mótinu að sigur Hreins hafi
komið sem þruma úr heiðskýru
lofti, og i fréttum brezka
útvarpsins BBC, var mikið sagt
frá afreki Hreins og þar m.a.
sagði, að það vekti stórfurðu
manna, þegar óþekktur frjás-
iþróttamaður kæmi allt í einu
fram á sjónarsviðið og skyti öll-
um ref fyrir rass. I frjálsum
iþróttum, þar sem svo mikið
þyrfti til að komast á toppinn.
væru slíkir atburðir næstum
hættir að gerast, og enn furóu-
legra við þetta væri það, að
þarna ætti í hlut fþróttamaður
þjóðar sem teldi aðeins álika
marga íbúa og fremur lítil borg
I Bretlandi.
Hreinn Haildórsson er reynd-
ar enginn nýliði I íþrótt sinni,
en árangur hans á mótinu i San
Sebastian er þó hans langbezti.
Hreinn á bezt 20,23 metra f
kúluvarpi utanhuss, en þeim
árangri náói hann skömmu fyr-
ir Óiympfuleikana i Montreal.
Afrek Hreins á sunnudaginn
bendir til þess að hann eigi
góða möguleika á að láta enn
meira að sér kveða i framtið-
inni, þar sem hann hefur venju-
lega náð sínum bezta árangri
síðsumars. Sjálfur vildi Hreinn
ekki gera mikið úr möguleikum
sínum, er Morgunblaðið ræddi
við hann á sunnudagskvöldið,
enda jafnan hógvær í orðum.
En eitt sagði hann vist — hann
ætlaði sér að halda áfram i
íþrótt sinni og stefna að þvi aó
gera betur.
Torfi Bryngeirsson, varð Evrópumeistari f langstökki 1950
Þriðji (slendingurinn
sem verður Evrópumeistari
HREINN Halldórsson er þriðji Islendingurinn sem hlýtur
Evrópumeistaratitil f frjálsum fþróttum. Hinir tveir eru þeir
Torfi Bryngeirsson sem varð Evrópumeistari f langstökki f
Brússel 1950, og Gunnar Huseby sem varð Evrópumeistari í
kúluvarpi tvfvegis, fyrst f Ósló 1946 og síðan f Brússel 1950.
Á Evrópumeistaramótinu f Ósló 1946 varpaði Gunnar Huseby
kúlunni 15,56 metra, en á mótinu f Brússel varpaði hann 16,74
metra. Stóð sá árangur Husebys sem íslandsmet allt til þess að
Guðmundur Hermannsson bætti það fyrir nokkrum árum.
Svo sem sjá má af nefndum tölum hafa orðið gffurlegar
framfarir f kúluvarpinu, sem og öllum öðrum greinum frjálsra
fþrótta. Heimsmetið í þessari grein er nú 22,00 metrar, en hins
vegar eru þeir kúluvarparar sem varpa lengra en 20,50 metra
sára fáir, og þá helzt frá stórþjóðunum, Sovétríkjunum, Austur-
Þýzkalandi og Bandarfkjunum.
01 með mér vonir, en
lét þær ekki uppi
— MAÐUR veit varla hvað maður á að segja eftir slfk tfðindi,
sagði Örn Eiðsson, formaður Frjálsfþróttasambandsins, f viðtali
við Morgunblaðið á sunnudaginn, skömmu eftir að fregnin um
sigur Hreins hafði borizt. — Eg var búinn að leyfa mér að vona að
Hreinn yrði meðal þriggja fyrstu, en gætti þess vandlega að halda
slfku með sjálfum mér, til þess að enginn færi að hlæja að mér.
— Samt var það svo, sagði örn, — að áður en þeir Hreinn og
Einar fóru utan, þá stakk ég þvf að Einari að vissara væri fyrir
hann að hafa með sér hljómplötu með fslenzka þjóðsöngnum. Um
þá ráðagerð vildi ég heldur ekki láta neinn vita.
örn Eiðsson sagði ennfremur að það væri ekkert efamál að
þessi sigur Hreins myndi lyfta fslenzkum frjálsum fþróttum
verulega og auka áhuga á þeim, rétt eins og gerðist er Gunnar
Huseby var Evrópumeistari fyrir röskum aldarf jórðungi.
Gunnar Huseby, varð Evrópumeistari f kúluvarpi 1946 og 1950.
Sovétmaðurinn Valeri Borzov sem þarna kemur að
marki sem Olympíusigurvegari, hreppti sinn sjötta
Evrópumeistaratitil í 60 metra hlaupi í keppninni í
San Sebastian.
ÞRJÚ HEIMSMET
ÞRJÚ ný heimsmet litu dagsins
Ijós á Evrópumeistaramótinu f
frjálsum íþróttum innanhúss sem
fram fór f San Sebastian á Spáni
um helgina. Öll voru þessi met
sett á sunnudaginn. Var það Aust-
ur-Þjóðverjinn Thomas Munkelt
sem reið á vaðið og setti nýtt met
f 60 metra grindahlaupi sem hann
hljóp á 7,62 sek. Gamla heims-
metið f þessari grein átti Sovét-
maðurinn Anatoly Moschiasvili
og var það 7,66 sek. Marita Koch
frá Austur-Þýzkalandi hljóp sfð-
an 400 metra hlaup kvenna á
51,14 sek. og bætti þar með eldra
met sitt, en það var 51,17 sek., sett
á móti i Milanó á ttalfu f febrúar-
mánuði. Þriðja metið sem féll á
móti þessu var f 800 metra hlaupi
kvenna, en það hljÓp brezka
stúlkan Katrina Jane Colenbrook
á 2:01,1 mfn. Sama tfma hafði
áður náð Nikolina Chtereva frá
Búigarfu, en met hennar var hins
vegar óstaðfest.
Mjög góð þátttaka var á Evrópu-
meistamótinu að þessu sinni, þar
sem rösklega 300 keppendur frá
24 þjóðum mættu þarna til leiks.
Þrjár þjóðir hættu við þátttöku á
siðustu stundu: Noregur, Austur-
ríki og Rúmenia. Blakti fáni
Rúmeníu i hálfa stöng við íþrótta-
höllina er mótið hófst á laugar-
daginn, enda ástæða þess að
Rúmenar hættu við þátttöku hinir
skelfilegu jarðskjálftar er urðu
þar fyrir skömmu.
Keppnishöllin í San Sebastian
rúmar um 10.000 áhorfendur, en
aðeins um 2000 áhorfendur voru
þar til staðar á mótinu. Ástæðan
var fyrst og fremst verkfall Baska
í borginni, og hinn mikli órói sem
verið hefur og er í borginni þess
vegna. Búizt var við að Baskar
myndu reyna að nota mót þetta til
þess að vekja athygli á málstað
sfnum, svo sem kom á daginn, og
hafði herinn því sérstakan við-
búnað við keppnisstaðinn.
Yfirleitt náðist frábær árangur
i öllum keppnisgreinum á
Evrópumeistaramótinu. Einna
mesta athygli, fyrir utan sigur
Hreins Halldórssonar í kúluvarp-
inu, vakti sigur Sovétmannsins
Valeri Borzov i 60 metra hlaup-
inu, en hann hlaut þarna sinn
sjöunda Evrópumeistaratitil i 60
metra hlaupi, og bætti árangur
sinn á þessu ári hvorki meira né
minna en um 6/100 úr sekúndu.
Sannast þarna enn einu sinni
hæfileikar þessa frábæra sprett-
hlaupara að ná sínu bezta, þegar
mest á reynir.
Eins og vænta mátti voru það
keppendur stórþjóðanna sem
börðust um verðiaunin á móti
þessu, og að venju var hlutur
Austur-Evrópuþjóðanna mestur.
Helztu úrslit í einstökum
keppnisgreinum mótsins urðu
sem hér segir:
LANGSTÖKK
Ilans Baumgartner, V-Þýzkal. 7,96
Lutz Franke, A-Þýzkal. 7,89
Laszlo Szalma, Ungverjal. 7,78
St an isl aw Jasku I ka, P6II. 7,68
Frank Wartenberg, A-Þýzkal. 7,68
Carlo Arrighi, Ítalíu 7,61
Aake Fransson, Svfþjóð 7,61
Gilbert Zante, Frakklandi 7,60
3000 METRA HLAUP:
Karl Fleschen, V-Þýzkal. 7:57,7
Pekka Paivarinta. Finnl. 7:59,3
Markus Ryffel, Sviss 8:00,3
Fernando Cerrada Spánn 8:00,6
Michael Karst, V-Þýzkal. 8:03,2
Stefan Polak, Tékkóslóvakfu 8:08,4
Paul Thijs, Belgfu 8:08,4
60 METRA GRINDAIILAUP
Thomas Munkelt, A-Þýzkal. 7,62
Viktor Myasnikov, Sovétr. 7,78
Arto Bryggare, Finnl. 7,79
Emile Raybois, Frakklandi 7,87
Manfred Schumann, V-Þýzkal. 7,91
Jan Putsy, P6II. 7,91
60 METRA HLAUP KVENNA
Marlis Oelsner, A-Þýzkal. 7,17
Lyudmila Storozhova Sovétr. 7,24
Rita Bottiglieri, Italfu 7,34
Chantai Rega Frakklandi 7,35
Annie Alize, Frakklandi 7,39
Sharon Colyear, Bretlandi 7,39
1500 METRA HLAUP
Jiirgen Straub, A-Þýzkal. 3:46,5
Paul-Heinz Wellmann, V-Þýzkal. 3:46,6
Janos Zemen, Ungverjal. 3:36,6
Anatoly Mamontov, Sovétr. 3:46,9
Henryk Wasilewski, P6I1. 3:47,6
Vladimir Kanev, Sovétr. 3:48,8
Francis Gonzalez, Frakkl. 3:49,2
Eamonn Coghlan, írlandi 3:53,5
400METRA HLAUP:
Alfons Brijdénbach, Belgfu 46,53
Francis Demarthon, Frakkl. 47,11
Marian Gesicki, P6llandi 47,21
Hector Laster, Frakklandi 47,57
Glen Cohen, Bretlandi 47,57
Edward Antczak, P6llandi 47,82
400 METRA HLAUP KVENNA:
Marita Koch, A-Þýzkal. 51,14
Verona Eider, Bretl. 52,75
Jellica Pavlicic, Júgöslavfu 53,49
Natalya Sokolova Sovétr. 53,57
Rosa Colorado, Spáni 53,78
Jarmila Kratochvilova Tékkáslv. 53,95
800 METRA HLAUP
Sebastian Coe, Bretlandi 1:46,5
Erwin Gohlke, A-Þýzkal. 1:47,2
Rolf Gysin, Sviss 1:47,6
Viktor Anokhin, Sovétr. 1:47,7
Gunther Hasler, Liechtenstein 1:48,0
Antonio Paez, Spáni 1:48,3
LANGSTÖKK KVENNA:
Jarmila Nygrynova Tékk6slv. 6,63
Ildiko Szabo, Ungverjal. 6,55
Heidemarie Wycisk, A-Þýzkal. 6,40
Tatiana Skachko, Sovétr. 6,40
Anke Weich, V-Þýzkal. 6,39
Sue Reeve, Bretlandi 6,23
Karin Haenel, V-Þýzkal. 6,21
Jacky Curtet, Frakklandi 6,19
ísland í 9. sæti
ÍSLAND varð i 9. sæti á Evrópu-
meistaramótinu um helgina hvað
varðaSi verSlaun. sem þátttöku-
þjóðirnar hlutu. Fyrir aftan Island
á listanum voru m.a. þjóSir eins
og öll NorSurlöndin, reyndar
hlutu NorSmenn og Danir engin
verSlaun, Sviss. Júgóslavia og
Holland hlutu aSeins bronzverð-
laun á mótinu. Flestar Evrópu-
þjóSirnar sendu fjölmarga kepp-
endur til þessa móts. íslendingar
aSeins Hrein Haildórsson. A-
ÞjóSverjar hlutu flest verðlaun. 4
gull, 4 silfur og 2 bronz. Sovét
menn og Bretar komu siSan i
ÁEM
KULUVARP KARLA:
Hreinn Halld6rsson, tslandi 20,59
Geoff Capes, Bretlandi 20.46
Wladyslaw Komar, P6II. 20,46
Reijo Stahlberg, Finnl. 19,83
Evgeny Mironov, Sovétr. 19,57
Ralf Reichenbach, V-Þýzkal. 19,43
Alexander Nosenko, Sovétr. 19.00
Gerhard Steines, V-Þýzkal. 18,98
Marco Montelatici, Italfu 18,62
Markku Tuokko, Finnl. 18,53
ÞRÍSTÖKK
Viktor Saneyev, Sovétrfkjunum 16,65
Jak Uudmjae, Sovétr. 16,46
Bernard Lamitie, Frakkl. 16,45
Zdzislaw Sobora, P6II. 16.30
Janos Hegedis, Júg6slavfu 16,11
Christian Valetudie, Frakki. 16,09
Roberto Mazzuccato, italfu 16,00
Ríchard Kick, V-Þýzkal. 15,86
HÁSTÖKK KVENNA:
Sara Simeoni, Ítalfu 1,92
Brigitte Holzapfel, V-Þýzkal. 1,89
Edit Samuel, Ungverjal. 1,86
Andrea Matay, Ungverjal. 1,86
Erika Rudolf, Ungverjal. 1,83
Yordanka Blagoeva. Búlgarfu 1,83
Equal Snezana, Júg6slavfu 1,80
Sabine Fenske, V-Þýzkal. 1,80
STANGARSTÖKK:
Wladyslaw Kozakiewicz, P6II. 5,51
Antti Kalliomaki, Finnl. 5,30
Marius Klimcyki, P6II. 5,30
Felix Bohni, Sviss 5tio
Roger Oriol, Spáni 5,10
Jazques Desbois, Frakklandi 5,00
Leszek Holwnia, P6II. 5,00
Tapani Haapakoski, Finnl. 5,00
60 METRA HLAUP KARLA:
Valery Borzov, Sovétr. 6,59
Christer Carpenborg, Svfþj6ð 6,60
Marian Woronin, P6II. 6,67
Klaus Kurrat, A-Þýzkai. 6,69
Detleft Kubeck, A-Þýzkal. 6,75
Zenon Licznerski, P6II. 6,76
60 METRA GRINDAHLAUP KVENNA
Lyubov Nikitengo, Sovétr. 8,29
Zofia Filip, Póllandi 8,34
Rita Bottiglieri, Ítalfu 8,39
Margit Barowiak, A-Þýzkal. 8,39
Danuta Wolocz, P6II. 8,42
Ileana Ongar, italíu 8,47
1500 METRA HLAUP KVENNA:
Mary Stewart, Bretl. 4:09,4
Vessels Yatzinska, Búlgarfu 4:10,0
RoumyanaTchavdarova, Búlgarfu 4:11,3
Cornelia Burki, Sviss 4:16,8
Geertruida Meersseman, Belgfu 4:18,2
KULUVARP KVENNA:
Helena Fibingerova, Tékkóslv. 21,46
Ilona Slupianek, A-Þýzkal. 21.12
Margitta Droese, A-Þýzkal. 20,87
Eva Wilms, V-Þýzkal. 20.09
Svetlana Krachevskaya, Sovétr. 19,62
Beatrix Philipp, V-Þýzkal. 17,35
800 METRA HLAUP KVENNA:
Karina Colebrook, Bretlandi 2:01,1
Totka Petrova, Búlgarfu 2:01,2
Elzbieta Katolik, P6II. 2:01,3
Svetlana Styrkina, Sovétr. 2:01,4
Svetla Koleva, Búlgaríu 2:02,2
Brigitte Kosczelnik, V-Þýzkal. 2:05,6