Morgunblaðið - 15.03.1977, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977
35
FÍB telur forsendu
try ggingaf élag-
anna vafasama
BLAÐINU hefur borizt eftirfar-
andi yfirlýsing frá Félagi Is-
lenzkra bifreiðaeigenda vegna
umræðna um hækkunarbeiðni á
vátryggingaiðgjöldum ökutækja:
Vegna þeirra athugasemda sem
fram hafa komið i fjölmiðlum við
greinargerð F.Í.B. um hækkunar-
beiðni tryggingafélaga vill félagið
taka eftirfarandi fram:
j Beiðni tryggingafélaganna um
44% hækkun á iðgjöldum er
byggð á þeirri forsendu að hraði
verðbólgunnar á tímabilinu 1.
febr. 1977 — 1. febr. 1978, verði
hinn sami og á liðnu ári eða
34,5%. Þessa forsendu telur
F.l.B. vafasama og vitnaði því til
verðlagsspár Þjóðhagsstofnunar,
þar sem félagið taldi Þjóðhags-
stofnun tvimælalaust þann aðila
hérlendis sem bezt er i stakk
búinn til þess að gera verðlags-
spár. Jafnframt benti félagið á að
Námskeið um
fyrirtæki í óstöð-
ugu umhverfi
NÝLEGA kom út 3. tbl.
Stjórnunarfrétta, sem Stjórn-
unarfélag tslands gefur út.
í þessu tölublaði eru
upplýsingar um starf félagsins á
s.l. ári og greint frá eðli og til-
gangi Stjórnunarfélagsins. Þá er i
ritinu grein um meðferð starfs-
umsókna og ennfremur er lýsing
á námskeiði á vegum Stjórnunar-
félagsins, sem John Winkler
framkvæmdastjóri leiðbeinir á.
Námskeið John Winkler, sem
verður dagana 28.—30. marz,
fjallar um fyrirtækið í óstöðugu
umhverfi og hvernig það getur
komist af á umbrotatímum.
yfirlýst stefna rikisstjórnarinnar
væri, að dregið skuli úr verð-
bólgu. Þessari stefnu tókst rikis-
stjórninni að framfylgja á liðnu
ári með þvi að draga verulega úr
hraða verðbólgunnar. Er þvi eng-
in ástæða til að ætla annað en að
rikisstjórninni takist á þessu ári
að draga enn frekar úr hraða
verðbólgunnar, og ná þvi marki
að verðbólgan verði 18% eins og
Þjóðhagsstofnun spáir fyrir um.
2 1 einu dagblaðanna i dag lýsa
Bjarni Þórðarson trygginga-
fræðingur og Erlendur Lárusson
forstöðumaður tryggingaeftirlits-
ins því yfir, að verðlagsspá Þjóð-
hagsstofnunar væri mjög óraun-
hæf. Þessi verðlagsspá var gerð í
nóvember á síðastliðnu ári, og að
sögn Ólafs Daviðssonar hjá Þjóð-
hagsstofnun stenst spá þessi í öll-
um aðalatriðum ef litið er á
þróunina þar sem af er árinu. Að
mati hagdeildar F.lB. er verðlags-
spá Þjóðhagsstofnunar byggð á
beztu forsendum sem fræðilega
er hægt að grundvalla verðlags-
spá á. Ef menn sjá ástæðu til þess
að rengja verðlagsspá Þjóðhags-
stofnunar eins og gert hefur ver-
ið, verður Þjóðhagsstofnun að
svara þeim ásökunum.
3 Vegna ummæla Erlends Lárus-
sonar í einu dagblaðanna i dag
þess efnis að „réttara væri að
miða (hækkanir) við verðlags-
þróun ársins á undan, og ef svo
væri ávallt gert, myndi hækkunin
leiðréttast þegar til lengdar léti“,
skal bent á að slik ráðstöfun
leiddi að mati félagsins til þess að
áhrifa verðbólgu gætti lengur á
tímum eins og nú, þegar Verð-
bólga fer minnkandi.
4 Að lokum vill F.l.B. benda á, að
það væri ákaflega einkennileg
stjórnun á verðlagsmálum ef aðil-
ar eins og tryggingafélögin í
þessu tilfelli, gætu rökstutt
hækkunarbeiðni með því að slá
fram eigin hugmyndum um vænt-
anlega verðþróun, og að slíkur
rökstuðningur væri tekinn fram
yfir spá sem unnin er af Þjóð-
hagsstofnun, en hún hefur á að
skipa hæfustu mönnum hérlendis
til verkefna sem þess að gera veð-
lagsspá.
Heilbrigðiseft-
irlitið mótmælir
VEGNA' yfirlýsinga fulltrúa
þeirra launþegafélaga sem aðild
eiga að kjarasamningum við
tslenska álfélagið I Straumsvfk
og fram komu á fundi með frétta-
mönnum 10. þessa mánaðar vill
Heilbrigðiseftirlit rfkisins vekja
athygli á 38. gr. 4 f heilbrigðis-
reglugerð fyrir tsland frá 1972,
en þar segir svo:
Sérstakur fulltrúi verkafólks,
„umsjónarmaður vinnustaða" eða
varamaður hans, tilnefndur af
fulltrúaráði eða fjórðungssam-
bandi, skal eiga þess kost að sitja
heilbrigðisnefndarfundi með
málfrelsi og tillögurétti. Þar sem
ekki starfa sérstakir heilbrigðis-
fulltrúar, skal „umsjónarmaður
vinnustaða" í heilbrigðisnefnd
hafa með höndum eftirlit vinnu-
staða undir yfirumsjón héraðs-
læknis. Jafnan skal hann hafa
samráð við trúnaðarmann verka-
manna um allt sem að bættum
aðbúnaði og hollustu lýtur og gefa
honum kost á að fylgjast með því
hvað umbótum liður.
Heilbrigðiseftirliti ríkisins er
ekki kunnugt um að fyrrnefnd
launþegasambönd hafi notfært
sér þessi réttindi sín til þess að
hafa áhrif á og fylgjast meó fram-
kvæmd heilbrigðis- og hollustu-
mála við álverið í Straumsvik.
Heilbrigðisyfirvöld hafa ætið
gert allt sem í þeirra valdi hefur
staðið til að fá fram bætta vinnu-
aóstöðu og heilbrigðiseftirlit við
álverið í Straumsvík.
Heilbrigðisyfirvöld hafa ætið
gert allt sem í þeirra valdi hefur
staóið til að fá fram bætta vinnu-
aðstöðu og heilbrigðiseftirlit við
álverið í Straumsvík og mótmæla
alfarið fullyrðingum um að þau
hafi verið „dragbítar á þvi sem
þurft hefur að bæta í Straums-
vik“ sem ábyrgðarlausum og
órökstuddum og ekki til þess
föllnum að bæta samvinnu þeirra
aðila sem mál þessi varða.
(fréttatilkynning)
ENN EITT TÆKNIUNDUR FRA CASIO
SKEIÐKLUKKA 1 / 10 sek , millitímar
DIGITALKLUKKA/ DAGATAL Quartz krist
a11 nákvæmni + - 1 5 sek/mán. sjálfvirk
dagatalsleiðrétting um mánaðamót þ.m.t.
hlaupár
TÖLVA allar grunnreiknisaðferðir ásamt
konstant o.fl.
VEKJARAKLUKKA unnt er að stilla 4 mis-
munandi tíma á sólarhring.
ÞYNGD 148 gr. smellur í vasann. kr.
20.850 -
CASIO umboðið
STÁLTÆKI, Vesturveri, S. 27510
RÁÐSTEFNA
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS UM
SJÁLFSFORRÆÐI
SVEITARFÉLAGA
í VALHÖLL BOLHOLTI 7 19.-20. MARZ 1977
DAGSKRÁ.
19. marz, laugardagur
kl. 9.30-12.00.
Framsögur um. Verka- og tekjuskiptingu
ríkis og sveitarfélaga og um:
svæðaskiptingu og samstarf
sveitarfélaga.
Framsögumenn:
Árni Grétar Finnsson, Páll Líndal,
Sigurgeir Sigurðsson.
Kl. 13.30-15.30.
Panelumræður. Fyrir svörum sitja:
Birgir ísl. Gunnarsson,
Gunnar Thoroddsen,
Kristinn G. Jóhannsson,
Matthías Bjarnason, Matthías Á.
Mathiesen, Ólafur B. Thors og
Steinþór Gestsson.
Kl. 16.15-18.30.
Umræðuhópar starfa.
Umræðustjórar:
Halldór Þ. Jónsson,
Markús örn Antonsson
og Ólafur G. Einarsson.
20. marz, sunnudagur
kl. 13.30-16.00.
Álit umræðuhópa — umræður um:
Stefnumörkun — sveitarstjórnarmál.
Kl. 16.30-18.00.
Framhald almennra umræðna.
Ráðstefnuslit:
Geir Hallgrímsson,
forsætisráðherra, formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Ráðstefna um sjálfsforræði
sveitarfélaga,
laugardag— sunnudag
19. og 20. marz.
Til ráðstefnunnar hefur verið
sérstaklega boðað.
Þátttaka tilkynnist til skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins,
Bolholti 7, Reykjavík, sími 82900.
Ráðstefnan verður sett,
laugardaginn 19. marz ki. 9.30
með ávarpi Gunnars Thoroddsen
féiagsmálaráðherra varaformanns
Sjálfstæðisflokksins.