Morgunblaðið - 15.03.1977, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977
37
Ný reglugerd
um netasvædi á
Selvogsbanka
SJAVARtJTVEGSRAÐUNEYTIÐ hefur gefið út reglu-
gerð um netasvæði á Selvogsbanka. Samkvæmt reglu-
gerð þessari eru allar veiðar aðrar en netaveiðar og
handfæraveiðar bannaðar tfmabilið 20. marz — 15. maf á
tilgreindu svæði austan friðaða hólfsins á Selvogsbanka.
Svæði þetta markast af lfnum, sem dregnar eru milli
eftirgreindra puntka:
a) 63°18’0 n.br., 21°10’0 v. lgd.
b) 63°13’6 n. br„ 20°36’3 v. lgd.
c) 63°05’6 nr. br„ 20°36’3 v. lgd.
d) 63°10’0 n. br„ 21°10’0 v. lgd.
Jafnframt vekur sjávarútvegsráðuneytið athygli á því
að samkvæmt gildandi reglugerð eru þorskfiskveiðar í
net bannaðar allt árið í norðanverðum Faxaflóa innan
línu, sem dregin er úr Þormóðsskeri í Gölt og á Breiða-
firði innan línu, sem dregin er úr Skorarvita um
suðvesturhorn Selskers i Eyrarfjall.
Ib Wessman matreiðslumeistari Ieldhúsi Naustsins.
Ljósm. Ól. K. M.
Frð landsmótinu 1974
Landsmót skáta haldið
að dlfljótsvatni í snmar
Dagana 17. — 24. júll I sumar
verður haldið að Clfljótsvatni
17. landsmót skáta. Er þetta
afmælismót, þar sem liðin eru
65 ár frá stofnun skátahreyf-
ingarinnar á tslandi og 70 ái
frá stofnun skátastarfs I heim
inum. Sfðast var landsmó!
skáta haldið 1974 og sóttu þa(
um 1500 manns auk þess sen
um 700 manns dvöldust f fjöl
skyldubúðum einhvern hluti
mótsins. Fjölskyldubúðir verði
einnig starfræktar á mótinu
sumar og gert er ráð fyrir ai
um 250 erlendir gestir sæk
mótið, flestir frá Norðurlönd
um, aðallega frá Noregi, um 7(
— 80.
Nlna Hjaltadóttir er fram
kvæmdastjóri mótsins oj
kynnti hún ásamt Birni Finns
syni erindreka og Arnfinn
Jónssyni mótið fyrir blaða
mönnum, en Arnfinnur á sæti I
stjórn Bandalags ísl. skáta og er
tengiliður stjórnarinnar við
mótsstjórnina.
Þau sögðu að skipting á tjald-
búðarsvæði yrði með nýju sniði
I ár. Þátttakendum væri skipt á
6 torg og fjölskyldubúðirnar
væru 7. Stórt félag sem sendir
margar sveitir á mótið mun þvi
skipta sínum sveitum niður á
fleiri en eitt torg, þannig að
skátunum gefst tækifæri til að
kynnast betur hver öðrum og
vinna saman að hinum ýmsu
dagskrárefnum. Mun það einn-
ig gefa skátum frá minni kaup-
túnum tækifæri til að læra
Hér er verið að sýna hvernig
útbúa má sjúkrabörur úr þvf
sem tiltækt er ef þörf krefur.
meira i sambandi við útfærslu á
verkefnum. Einnig verður út-
lendingunum , sem sækja mót-
ið, skipt niður á torgin. Breyt-
ingin er aðallega fólgin í þvi að
áður var hvert félag út af fyrir
sig, en nú er þeim sem sagt
meira blandað saman
Áherzla er lögð á það að hver
einstaklingur, sem sækir mótið
fái og taki þátt í verkefnum
mótsins en dagskráin er að
miklu leyti byggð á umfjöllun
um töluna 7, 70 ára afmæli
skátastarfs i heiminum , árið
'77, 7. mánuður ársins 7. torg
o.s.frv. Þá hefur verið getið um
það í skátafélögunum um allt
land, sem nú eru milli 40 og 50,
að hver þátttakandi komi með
plötu meðferðist á mótið. Plötu,
sem á séu 4 göt og siðan munu
þeir sem búa á hverju togri
útbúa eitt listaverk úr öllum
plötunum. Þannig verða 7 lista-
verk gerð, sem allir hafa átt
þátt i að útbúa.
Það kom fram á fundi með
forráðamönnum að islenzkir
skátar voru brautryðjendur i
því að stúlkur og drengir störf-
uðu saman, Bandalag isl. skáta
er þannig eitt af fáum banda-
lögum, sem skátafélög af
báðum kynjum sitja í. Einnig
eru fjölskyldubúðir á mótum
nýjung, sem Islendingar voru
fyrstir til að koma fram með.
Merki mótsins teiknaði Páll
Guðmundsson, útfært úr töl-
unni 7. Mótið, sem stendur yfir
í 8 daga kostar 13.500 krónur og
er allt fæði innifalið svo og dag-
skrárbók, merkið og allt, sem
aó mótinu snýr. Veittur er syst-
kinaafsláttur. Starfrækt verður
pósthús með sérstökum póst-
stimpli, banki, minjagripaverzl-
un , heilsugæzlustöð og ferða-
skrifstofa, sem skipuleggur
ferðir um nálæga sögustaði.
Frestur til að tiíkynna þátt-
töku er til 15. april.
Frá lögreglunni:
Auglýst eftir vitnum
Slysarannsóknardeild lögreglunnar f Reykjavík hefur
beðið Morgunblaðið að auglýsa eftir vitnum að eftirtöld-
um ákeyrslum, sem átt hafa sér stað í Reykjavík. Ef
einhver telur sig geta veitt upplvsingar um þessar
ákeyrslur er hann beðinn að snúa sér til lögreglunnar:
Föstudaginn 25. feb
Ekið á bifreiðina U-1851 Volks-
wagen fólksbifr. árg. 1972 bláa að
lit, þar sem hún stóð á móts við
hús nr. 32 við Sólheima á tíma-
bilinu kl. 01:00 daginn áður til kl.
16:45 þennan dag. Skemmdir:
Vinstra framaurbretti dældað og
rispað í 40—65 cm. hæð. Ljósgræn
málning í sári, einnig far eftir
gúmmí, sennilega af höggvara.
Föstudaginn 25. feb.
Ekið á bifreiðina R-51043 Ford
Cortinu fólksbifr. árg. 1969 græn-
blá að lit, þar sem hún stóð fyrir
utan hús nr. 33 við Breiðagerði á
tímabilinu kl. 22:30 kvöldið áður
til kl. 08:00 þennan dag.
Skemmdir: Vinstra framaur-
bretti, framhöggvari og vélarlok,
dældað og skemmt.
Sunnudaginn 22. feb.
Ekið á bifreiðina R-7024 Ford
Escort fólksb. árg. '74 þar sem
hún stóð á bifreiðastæði á móts
við Hraunbæ 42—44. Bifreiðin er
blásanseruð að lit. Skemmdir:
Vinstra framaurbretti, vinstri
hurð og hlið dælduð og skemmd.
Ljós litur tjónvalds var í sári eða
ákomustöðum.
Þriðjudaginn 1. marz
Ekið á bifreiðina R-51759
Sunbeam fólksb. árg. 1972 mosa-
græna að lit þar sem hún stóð við
Arahóla 2. Skemmdir án
höggvara að framan og bæði
framljós skemmd. Rauður litur á
tjónvaldi.