Morgunblaðið - 15.03.1977, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—11
, FRÁ MANUDEGI
‘iV v
Hvernig væri að þeir framsýnu
og réttlátu menn, er berjast fyrir
breytingu laga um fæðingarorlof,
létu þetta misrétti, sem við erum
beittar af atvinnuleysistryggingar-
sjóði, einnig til sín taka. Megi rétt-
ur-okkur sem einstaklinga sigra.
Bara kona mannsins míns.“
% Eintómar
bjórvambir?
„Kæri Velvakandi.
Mér finnst bjór enginn aufúsu-
gestur hér á íslandi. Er þessi Jón
Sólnes að hugsa um almennings-
heill eða er hann aðeins að hugsa
um eigin hagsmuni?
Og varðandi unglingana þá
finnst mér kvikindislegt að toka þá
inni eins og Hrafn Gunnlaugsson
lagði til. Ef bjór kæmist til okkar
myndi hann bætast við áfengisböl-
ið. Okkur vantar alls ekki bjórinn í
Reykjavík, né annars staðar, en
hins vegar mætti fjölga vínveit-
ingahúsum í staðinn.
Hvernig haldið þið að næsta
kynslóð verði — þ.e.a.s. þeir sem
eru unglingar núna? Eintómar
bjórvambir eins og myndin af
dönsku bjórvömbinni, sem Dag-
blaðið sýndi nýlega.
Með von um birtingu,
Matthildur Birgisdðttir.**
Austan af landi kemur svo ann-
að bréf sem fjallar um mikið rætt
mál, en það er um skattafrumvarp-
ið.
£ Tapaður
frádráttur?
„Velvakandi góður.
Það er nú búið að ræða og rita
svo mikið um skattalagabreyting-
una, að þar er varla við bætandi.
Þó er eitt atriði sem ég ætla að
geta um og hefi ekki orðið var við
að tekin hafi verið afstaða til í
öllum umræðunum. En þó getur
það hafa farið framhjá mér.
En þetta atriði er sú staða, sem
kemur upp þegar t.d. eiginmaður-
inn er heilsulaus og getur ekki
unnið fyrir heimilinu. Á þá konan
sem vinnur úti og sér oft og einatt
um heimilisstörfin að auki að
missa að óbættu þau 50% sem hún
eða hjónin sameiginlega fengu í
frádrátt frá skatti? Þetta atriði
finnst mér að þurfi að taka til
sanngjarnar athugunar og gildir
þá einu hvert hjónanna verður
óvinnufært. Þarna þarf að gera
einhverjar réttlátar hliðarráðstaf-
anir.
1 grundvallaratriðum byggir
núgildandi hjúskaparlöggjöf á
hagsmunalegri og félagslegri sam-
stöðu hjóna nema um séreign sé að
ræða. Þó geta hjón notið verulegs
fjárhagslegs sjálfstæðis sam-
kvæmt lögunum, t.d. þegar um
skiptingu skuldaábyrgðar er að
ræða.
Við skulum öll vona að löggjaf-
inn beri gæfu til að stíga nú stórt
spor í rétta átt, átt réttlætis og
treysta þar með lýðræðið í landi
voru. Sigurður Magnússon."
Þessir hringdu . . .
# Víðar vandræði
Keflvíkingur:
„Ég vil aðeins fá að taka fram í
sambandi við ummæli sem Skaga-
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á miliisvæðamótinu í Biel ( Sviss
( sumar kom þessi staða upp (
skák þeirra Rogoffs, Banda-
ríkjunum, og Portisch, Ungverja-
landi, sem hafði svart og átti leik:
32. ... h4! (Eftir 32. ... Hxf2 33
Hxg7 + ! heldur hvítur sínu) 33.
Hxg7+ (Eða 33. Hxg6 Hxg6+ 34.
Bg2 Hxg2+ 35. Khl Hgxf2 og
hvítur tapar drottningunni)
Kxg7! og hvítur gafst upp. Þaó
var einmitt á þessu móti sem
Portisch vann sér þátttökurétt í
áskorendakeppninni sem nú
stendur yfir.
fólk viðhafði í Velvakanda fyrir
stuttu um að við í Keflavík hefðum
getað leyst þennan vanda með
reyk frá loðnuverksmiðjunum.
Svo er nú ekki alveg, við eigum við
sama vanda að stríða og Skaga-
menn, maður getur ekki opnað
glugga öðru vísi en að fá inn til sín
þessa pest, sem óhjákvæmilega
fylgir loðnubræðslu.
Það var bent á það að við
hefðum gert eitthvað til að berjast
gegn þessum ófögnuði, en viðleitni
okkar hefur engan árangur borið,
bæjarstjórnin hefur lofað að gera
eitthvað í málinu, en verksmiðjan
starfar áfram á undanþágum
trekk í trekk. Við vitum að loðnu-
bræðsla hefur þetta alltaf í för
með sér, það verður ekki komizt
hjá því, en við erum á þeirri skoð-
un að nú þurfi að gera svipað og á
loksins að fara að gera i Álverinu í
Straumsvík, að setja upp einhver
hreinsitæki.
Það hafa lent bílar í árekstri
fyrir austan, af völdum loðnu-
reyks, og ég vil bara minna á að
það gerðist svipað hér í fyrra að
mig minnir að nokkrir bílar lentu í
kös hér fyrir utan Fiskiðjuna. Þeg-
ar vindur stendur af hafi leggur
reykinn beint yfir aðalgötuna og
þá getur það skapað vissa hættu.“
Þetta voru orð Keflvíkingsins og
það er áreiðanlegt að í öllum þess-
um stöðum þar sem loðna er
brædd að þessi mökkur fylgir. Á
að leyfa honum að rjúka óhindrað
út í loftið eða á að skylda verk-
smiðjurnar til að koma upp
hreinsitækjum?
HOGNI HREKKVÍSI
Hver fj. ." ein af mörgæsunum er horfin!
Athugasemd
frá Dýra-
læknafélagi
tslands
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Jóni Péturssyni
formanni Dýralæknafélags Is-
lands:
I blaði yðar hinn 11. þ.m. birtist
teikning eftir ykkar ágæta teikn-
ara Sigmund. Teikningin er af
dýralækni við könnun aðbúnaðar
starfsfólks í Kröflu.
Ég bið yður að flytja Sigmundi
bestu þakkir fyrir teikninguna
svo og fyrir allar hans fyrri
teikningar, sem svo sannarlega
hafa gert okkur dýralæknum til-
veruna bærilegri undanfarin ár.
Þar að auki gefur teikningin mér
tækifæri til að leiðrétta misskiln-
ing, sem um gæti verið að ræða
vegna blaðaskrifa undanfarið, um
heilbrigðismál svo og um heilsu-
gæzlu gæludýra.
Skal þar fyrst taka, að það er
ekki eins hlægilegt og teikningin
gefur til kynna, að dýralæknir
kanni aðbúnað starfsfólks hinna
ýmsu vinnustaða og vinni að heil-
brigðiseftirliti almennt, þar eð
dýralæknar hafa mjög góða
menntun til þessara starfa, má
benda á, að í nágrannalöndum
okkar hvaðan velflestir íslenskir
dýralæknar eru menntaðir, eru
það sérstök dýralæknisembætti
(stadsdyrlæger, byveterinærer)
og rannsóknarstofur þeirra, sem
hafa heilbrigðiseftirlit með hönd-
um. Þetta er einnig viðurkennt af
okkar löggjafa t.d. í lögum um
hollustuhætti og heilbrigðiseftir-
lit.
1 öðru lagi vil ég undirstrika, að
dýralæknar hvorki mega né vilja
auglýsa ágæti sitt í fjölmiðlum, þó
hefur Dýralæknafélag íslands
birt fréttatilkynningar um fundi
sína.
Virðingarfyllst,
Jón Pétursson
formaður
Fyrirlestur
um vistfræði
og lífshætti
Arne Næss, prófessor í heim-
speki við háskólann i Ósló, heldur
opinberan fyrirlestur á vegum
heimspekideildar um efnið Vist-
fræði og Kfshættir. Er unnt að
draga úr sókn eftir efnislegum
gæðum og öðlast meiri Kfsfyll-
ingu?
Fyrirlesturinn verður fluttur
þriðjudaginn 15. mars kl. 17.15 í
stofu 201 í Árnagarði. ÖUum er
heimill aðgangur.
Frétl frá lláskóla islands.
SH/
Komj
fgen
lurl
Ó<
»<s>t
Crisan er sjampó
sem eyðir flösu í
raun og veru.
íslenskar leiðbeiningar
á flöskunni.
Crisan flösusjampó
fæst í apótekum,
snyrtivöruverslunum og
flestum matvöru-
verslunum.
HALLDÓR JONSSON HF.
Dugguvogi 8
SH/
Komj
fgen
Cur
H
WfllA
Bifreiðin R-1 96 til sölu
Citroen DS 23 Pallas árgerð 1973, ekinn
64.000 km, sjálfskiptur, vökvastýri, leðursæti.
Fyrsta flokks meðferð.
Allar upplýsingar hjá sölumanni vorum.
Lágmúla 5
sími 81 555