Morgunblaðið - 19.03.1977, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977
Ráðstafanir Heilbrigðiseftirlits ríkisins:
Fær til landsins sérfræðing
í mengunarvömum 1 álverum
HEILBRIGÐISEFTIRLIT
ríkisins hefur sent Morg-
unblaðinu greinargerð,
sem er svar við greinar-
gerð fslenzka álfélagsins
hf. en hún birtist fyrir
skömmu hér í blaðinu. Þar
kemur m.a. fram, að Heil-
brigðiseftirlitið hefur að
undanförnu unnið að fjór-
um málum, sem stuðla
eiga að mengunarvörnum í
álverinu og víðar. Má þar
nefna, að fenginn hefur
verið hingað til lands
norskur sérfræðingur í
mengunarvörnum í álver-
um og Heyrnardeild
Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur verður falið
að framkvæma heyrnar-
mælingar á öllum starfs-
mönnum ísals hf og hafa
reglulegt eftirlit með
heyrn starfsmanna.
Um þessi fjögur mál segir eftir-
farandi í greinargerðinni:
1. Heyrnardeild Heilsuverndar-
stöðvar Reykjavíkur verður falið i
samráði við fyrrnefnda aðila að
framkvæma á næstunni heyrnar-
mælingar á öllum starfsmönnum
fyrirtækisins svo og síðara reglu-
legt eftirlit með heyrn starfs-
manna.
2. Fenginn hefur verið sérfróð-
ur ráðgjafi frá Atvinnuheil-
brigðismálastofnuninni i Oslo,
sem hefur margra ára reynslu af
málum er varða mengun vinnu-
staða og sérstaklega i álverum og
er hann þekktur á alþjóðavett-
vangi í þessum málum. Mun hann
koma hingað til lands 12. apríl
næstkomandi og vera til aðstoðar
Tíminn 60 ára
í FYRRADAG voru 60 ár liðin frá
því að Tíminn kom í fyrsta sinn
út. Timinn var I upphafi vikublað
en var sfðar gerður að dagblaði.
Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri
Tfmans, fjallaði f forystugrein í
fyrradag um upphaf Tímans og
þá menn, sem stóðu að blaðinu f
byrjun og segir þar m.a.: „I dag
eru liðin 60 ár sfðan Tfminn hóf
göngu sfna. I tilefni af þvf er
eðlilegt að horft sé til baka og
minnzt sérstaklega þeirra manna
sem höfðu forystu um útgáfu
Tfmans og mörkuðu stefnu hans.
Hér var um hóp manna að ræða,
sem voru vaxnir upp í ungmenna-
P
félögunum, kaupfélögunum og
búnaðarsamtökunum. Gamla
flokkakerfið, sem markaðist af
pólitfsku sjálfstæðisbaráttunni
við Dani, var að leysast upp og
þörfin orðin brýn fyrir nýja
flokkaskiptingu. Það var sjónar-
mið þessa áhugamannaliðs, sem
stóð að stofnun Tfmans, að hér
þyrfti að rfsa upp þjóðlegur um-
bótaflokkur er byggði stefnu sína
á hugsjónum samvinnu og ein-
staklingsfrelsi. Tfminn var stofn-
aður til að vera málgagn slfks
flokks."
Síðar f þessari sömu forystu-
grein segir Þórarinn Þórarinsson:
„lslenzkt þjóðfélag er stórum
betra þjóðfélag en það var fyrir
60 árum, stéttamunur minni,
jöfnuður meiri og samvinna hef-
ur þróazt á mörgum sviðum. En
þrátt fyrir þetta er þó margt
óunnið til að gera landið og þjóð-
félagið betra. Og má lfka segja, að
einstök framför kalli á margar
aðrar. Því hefur framsóknarstefn-
an alltaf mikið verk að vinna. Þvf
bfða Tímans enn mikil verkefni f
þágu lands og þjóðar.“
Morgunblaðið sendir Tímanum
og starfsliði hans beztu heillaósk-
ir á þessum tfmamótum f sögu
hlaðsins.
við skipulag mengunarvarna,
eftirliti með mengun vinnustaða,
rannsóknum á mengunarvöldum
svo og vissum heilbrigðis-
rannsóknum en hann hefur ný-
verið unnið að slíku skipulagi
fyrir áliðnaðinn í Noregi ásamt
fulltrúum launþega og atvinnu-
rekenda.
3. Heilbrigðiseftirlit ríkisins
hefur með fjárhagsaðstoð Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins keypt nauðsynleg ryk-
mælingatæki sem notuð verða til
rykmælinga (og flúormælinga í
ryki) í verksmiðjum landsins.
4. Heilbrigðiseftirlit ríkisins
mun á næstunni auglýsa stöðu
heilbrigðisráðunauts og verður
hún ætluð tæknifræðingi og mun
þá bætast aðstaða stofnunarinnar
Framhald á bls. 26
79 skjáJftar
vidKröflu
SAMKVÆMT upplýsingum
skjálftavaktarinnar í Mývatns-
sveit höfðu kl. 3 í gær mælzt 79
skjálftar frá þvf kl. 3 á fimmtu-
dag. Hafði þeim fjölgað Iftillega
að nýju, þar sem þeir voru 66 og
70 talsins tvo sólarhringana þar á
undan en þá fækkaði þeim úr
rúmlega 100, þannig að skjálfta-
tfðnin er nokkuð misjöfn frá degi
til dags. Landris heldur hins veg-
ar áfram með sama hætti og verið
hefur og er halli stöðvarhússins
nú orðinn um 8.7 mm. Hefur
hann aldrei verið meiri frá því
eftir gosið sjálft f Leirhnúki.
o
INNLENT
Sólrisuhátíd
á ísafirði
SÓLRISUHÁTÍÐ hefst á ísa-
firði sunnudaginn 20. marz og
mun standa í eina viku. Þessi
hátíð hefur verið haldin á
hverjum vetri um nokkurra ára
skeið og eru það nemendur við
Menntaskólann á ísafirði, sem
standa að henni. Á hverju
kvöldi verður eitthvað um að
vera og er reynt að hafa hátið-
ina sem fjölbreytilegasta. Með-
al þess efnis, sem flutt verður,
er Skjaldavaka, þar sem Birgir
Svan Simonarson les upp úr
eigin verkum og meðlimir i
Rauðsokkahreyfingunni kynna
verk Ástu Sigurðardóttur.
Selma Guðmundsdóttir, píanó-
leikari, sem er ísfirðingur að
ætt og uppruna mun halda tón-
leika og nemendur úr Mennta-
skólanum á Akureyri munu
sýna söngleikinn „Ó, þetta er
indælt strið". Hátiðinni lýkur
sunnudagskvöld 27. marz með
því að gamlir snillingar úr tón-
listarlífi Vestfjarða halda
„jammsession". Auk alls þessa
veróa sýndar nokkrar úrvals-
kvikmyndir og einnig fer fram
íþróttakeppni milli Mennta-
skólans á ísafirði og Mennta-
skólans á Akureyri.
I tengslum við hátiðina verð-
ur opnuð n.k. sunnudag sýning
á verkum Gunnars Guðjónsson-
ar listmálara úr Reykjavik. í
hinum glæsilega mötuneytissal
■Menntaskólans.
Sólrisuhátíðir eru orðnar
fastur þáttur í bæjarlífinu og er
þess að vænta, að ísfirðingar
bregði sér í betri fötin og njóti
þess, sem á boðstólum er.
Ríkissjóður
millj. kr.
DR. JÓHANNES Nordal,
seðlabankastjóri undirrit-
aði í gær í umboði Matt-
hfasar Á. Mathiesen, fjár-
málaráðherra f.h. ríkis-
sjóðs fslands samning um
opinbertlánsútboð í Þýzka-
landi að fjárhæð 50 mill-
tekur 4000
í Þýzkalandi
Ráðstefna Sjálfstæðisflokks í dag:
Sjálfsforræði
sveitarfélaga
RÁÐSTEFNA Sjálfstæðisflokks-
ins um sjálfsforræði sveitar-
félaga hefst f Valhöll, Bolholti 7,
kl. 9.30 árdegis f dag og lýkur
ráðstefnunni seinni hluta dags á
morgun. Fyrir hádegi f dag
verður rætt um verka- og tekju-
skiptingu rfkis og sveitarfélaga
og um svæðaskiptingu og sam-
starf sveitarfélaga. Framsögu-
menn verða Arni Grétar Finns-
son, Páll Lfndal og Sigurgeir Sig-
urðsson. Eftir hádegi f dag verða
pallborðsumræður og hefjast þær
kl. 13.30. Fyrir svörum sitja:
Birgir tsl. Gunnarsson, Gunnar
Thoroddsen, Kristinn G. Jóhanns-
son, Matthfas Bjarnason,
Matthfas Á Mathiesen, Ólafur B.
Thors og Steinþór Gestsson.
Umræðuhópar starfa milli 16.15
og 18.30. Umræðustjórar verða:
Ilalldór Þ. Jónsson, Markús Örn
Antonsson og Ólafur G. Einars-
son.
Ráðstefnunni verður fram
haldið eftir hádegi á morgun kl.
13.30 og verða þá tekin fyrir álit
umræðuhópa o.fl. Að loknum al-
mennum umræðum mun Geir
Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, slíta ráðstefn-
unni. Við upphaf ráðstefnunnar i
dag mun Gunnar Thoroddsen,
varaformaður Sjálfstæðisflokks-
ins. flytja ávarp.
jónir þýzkra marka, sem
samsvarar um 4000 mill-
jónum íslenzkra króna á
núgildandi gengi.
Lán þetta er tekið af ríkissjóði
skv. heimild í lögum nr. 116/1976
um heimild til erlendrar lántöku
vegna framkvæmdaáætlunar
1977. Verður andvirði lánsins
annars vegar varið til opinberra
framkvæmda í samræmi við fjár-
lög ársins 1977, en hins vegar til
útlána Framkvæmdasjóðs til at-
vinnuvegasjóða.
Lánið var boðið út á alþjóða-
markaði með 8% ársvöxtum en
vegna hagstæóra markaðsskilyrða
tókst að fá vextina lækkaða i 734.
Skuldabréfin eru seld á (100%)
nafnverði og er lánið afborgunar-
laust fyrstu tvö árin en heildar-
lánstiminn er 10 ár. Ákveðið var
að flýta lántöku þessari nokkuð,
umfram það, sem áður var áætlað,
vegna þess að markaðsaðstæður
eru um þetta leyti hagstæðar.
Seðlabanki Islands annaðist
Flóamarkadur hjá
Karlakórskonum
KVENFÉLAG Karlakórs Reykja-
víkur efnir til flóamarkaðar i fé-
lagsheimili kórsins að Freyjugötu
14 í dag og opnar hann kl. 2. Þar
verður margt muna á boðstólum,
mikið af fatnaði og selst ódýrt.
Þetta er fjórða árið sem kvenfé-
lagið efnir til flóamarkaðar af
þessu tagi en ágóðinn rennur til
styrktar starfsemi kórsins.
fyrir
undirbúning lántökunnar
hönd ríkissjóðs.
Undirskrift lánssamningsins
fór fram i Díisseldorf í aðalstöðv-
um Westdeutsche Landesbank
Girozentrale, sem hafði forustu
um lánsútboðið ásamt eftirtöldum
bönkum: Banque Briissel
Lambert S.A., Credit Commercial
de France, Credit Suisse White
Weld Limited, First Boston
(Europe) Limited, Kredietbank
S.A. Luxembourgeoise, Den
norske Creditbank og Skandina-
viska Enskilda Banken.
Klakkur bil-
adi á heimleid
HINN nýji skuttogari Vest-
mannaeyja, Klakkur, bilaði
skammt undan Bergen í Noregi,
er skipið var á heimleið fyrir
nokkrum dögum. Klakkur átti að
koma við I Molde og taka þar
fiskikassa og var á leið þangað, er
bilunin varð. Olfudæla við aðalvél
skipsins mun hafa eyðilagzt og er
ekki vitað hvort búið er að skipta
um dælu.
Klakkur er smiðaður í Póllandi
og er sams konar skip og Ólafur
Jónsson og Bjarni Herjólfsson.
Bjarni Herjólfsson kom til lands-
ins fyrir einni og hálfri viku og er
nú i fyrstu veiðiferð sinni og er
ekki vitað annað en allt hefi geng-
ið vel. Ólafur Jónsson kom hins
vegar til landsins skömmu eftir
áramót og hefur þegar farið
nokkrar veiðiferðir.