Morgunblaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977
Millirödd í bjórkór
Borinn skutlast til baka — brimar ládauður sjór kippirfara um Kötlu Krafla gýs sterkum bjór. Menning gerjast i mönnum — Matthías, eg og Thor spjöllum á spásséringu og splæsum i kollu af bjór.
Sólnes veður í virkjun — vekur upp gamlan draug og angandi ölkrár spretta einsog bankar á haug. Tilverutómið fyllist túristinn fær í glas og öl á álrykið drýpur — ekkert mengunarþras.
Loksins fær leiðinn argi lífstíðar skólafrí — brennd vin fúlna á bokkum bjórinn sérfyrir þvi. Sprúttsalinn ákaft ekur en enginn vill mænu sjá — Hallærisplanið heitið hófdrykkjumannakrá.
Ráðherra leiðir róna rakleitt til borðs með sér timburmenn troðast undir — templari á gægjum er. Verðbólguveirum hæfir venjulegt fingurtraf en þjórið lögfest á þingi — þjóðin strammar sig af.
Fjallhár bjórmiði, festur framan á Hallgrimsturn — fyrst og fremst til að þjóna framboði og eftirspurn. Lífið fossar á flúðum og flæðir um Lækjartorg — æ, þetta er og verður elskuleg drykkjuborg.
Kristínn Reyr
Helgadóttir).
(Ljósm. Pétur)
„I deiglunni
sýnt á Húsavík
Húsavfk 16. marz
LEIKFÉLAG Húsavfkur frum-
sýndi f gærkvöldi sjónleikinn „!
deiglunni" eftir Arthur Miller,
undir leikstjórn Hauks J.
Gunnarssonar. Húsið var fullsetið
og létu áhorfendur f Ijós þakkir
sfnar fyrir góðan leik með blóm-
um og langvinnu lófataki en um
leikritið munu vera skiptar skoð-
anir.
Flestir lofsyngja leikstjórann
fyrir mjög heilsteypta sýningu,
sem hlýtur að hafa verið að koma
upp með svo fjölmennum hóp,
eingöngu skipuðum áhugaleikur-
um. í aðalhlutverkum eru Ingi-
mundur Jónsson (Séra Samýel
Parris), Sigrún Sigurbjörnsdóttir
(Abígael Williams), Kristján
Elías Jónsson (Jón Proctor),
Kristjana Helgadóttir (Elísabet
Proctor), Guðrún K. Johannsdótt-
ir (María Warren), Einar Njáls-
son (sr. Jón Hale) og Sigurður
Hallmarsson (Danlorth).
Leikmynd gerði Sveinbjörn
Magnússon og Haukur J.
Gunnarsson. Er þetta annað verk-
efni féíagsins á þessu leikári.
— frétUriUri.
AÐGÖNGUMIÐASALA í AUSTURBÆJARBÍÓI