Morgunblaðið - 19.03.1977, Síða 16

Morgunblaðið - 19.03.1977, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977 Millirödd í bjórkór Borinn skutlast til baka — brimar ládauður sjór kippirfara um Kötlu Krafla gýs sterkum bjór. Menning gerjast i mönnum — Matthías, eg og Thor spjöllum á spásséringu og splæsum i kollu af bjór. Sólnes veður í virkjun — vekur upp gamlan draug og angandi ölkrár spretta einsog bankar á haug. Tilverutómið fyllist túristinn fær í glas og öl á álrykið drýpur — ekkert mengunarþras. Loksins fær leiðinn argi lífstíðar skólafrí — brennd vin fúlna á bokkum bjórinn sérfyrir þvi. Sprúttsalinn ákaft ekur en enginn vill mænu sjá — Hallærisplanið heitið hófdrykkjumannakrá. Ráðherra leiðir róna rakleitt til borðs með sér timburmenn troðast undir — templari á gægjum er. Verðbólguveirum hæfir venjulegt fingurtraf en þjórið lögfest á þingi — þjóðin strammar sig af. Fjallhár bjórmiði, festur framan á Hallgrimsturn — fyrst og fremst til að þjóna framboði og eftirspurn. Lífið fossar á flúðum og flæðir um Lækjartorg — æ, þetta er og verður elskuleg drykkjuborg. Kristínn Reyr Helgadóttir). (Ljósm. Pétur) „I deiglunni sýnt á Húsavík Húsavfk 16. marz LEIKFÉLAG Húsavfkur frum- sýndi f gærkvöldi sjónleikinn „! deiglunni" eftir Arthur Miller, undir leikstjórn Hauks J. Gunnarssonar. Húsið var fullsetið og létu áhorfendur f Ijós þakkir sfnar fyrir góðan leik með blóm- um og langvinnu lófataki en um leikritið munu vera skiptar skoð- anir. Flestir lofsyngja leikstjórann fyrir mjög heilsteypta sýningu, sem hlýtur að hafa verið að koma upp með svo fjölmennum hóp, eingöngu skipuðum áhugaleikur- um. í aðalhlutverkum eru Ingi- mundur Jónsson (Séra Samýel Parris), Sigrún Sigurbjörnsdóttir (Abígael Williams), Kristján Elías Jónsson (Jón Proctor), Kristjana Helgadóttir (Elísabet Proctor), Guðrún K. Johannsdótt- ir (María Warren), Einar Njáls- son (sr. Jón Hale) og Sigurður Hallmarsson (Danlorth). Leikmynd gerði Sveinbjörn Magnússon og Haukur J. Gunnarsson. Er þetta annað verk- efni féíagsins á þessu leikári. — frétUriUri. AÐGÖNGUMIÐASALA í AUSTURBÆJARBÍÓI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.