Morgunblaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 19.03.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977 37 j,i VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100 KL 10— 11 FRÁ MANUDEGI ny(/JyVnp\~iUn?'u n um viröist ásókn i hin svonefndu fíkniefni aukast mjög. Enginn, sem kemst k náin kynni við þau, sleppur frá þeim kynnum án þess að biða tjón, bæði á sál og likama. Er ekki hugsanlegt að bjórinn, ef leyfður verður, kynni að draga nokkuð úr ásókninni i þann hræðilega vímugjafa? Ég tel bjór tiltölulega meinlaus- an drykk, þótt neyta megi hans til skaða. Góður matur getur lika spillt heilsu manna sé hans neytt i óhófi." 0 Hitamál Bjórinn er alltaf jafn- mikið hitamál, þegar hann kemst á dagskrá. Eftir skrifunum — með og móti — er dálitið erfitt fyrir hlutlausan aðila að gera sér grein fyrir, hver áhrif það hefði, ef sala hans yrði leyfð hér. Yrði hann t.d. til þess að draga úr neyzlu sterkara áfengis eða jafn- vel fíkniefna, eða yrði hann aðeins aukning við þá vímugjafa, sem nú eru á boðstólum hér? — Þannig skjóta spurningarnar upp kollinum hver af annarri og engri þeirra er svarað með öruggri vissu. 0 Leiðrétting „1 pistlinum Um stjórnmál á Islandi hér i dálkunum 16.3. s.l. var eftirfarandi klausa: Flest verkföll á tslandi voru hápólitisk, meðan viðreisnarstjórnin var við völd, sn á meðan vinstristjórn var við völd var vinnufriður á meðan hún var að ausa peningum á báða bóga. Arthur Aanes.“ Þessir hringdu . . . 0 Skattarnir Þóra Jónsdóttir hringdi: — Ég er „bara heimavinn- andi húsmóðir", sagði hún, og hef reynt eftir beztu getu að fylgjast með skrifunum um skattamálin, eða þetta nýja skattafrumvarp. Ég vel nú þessa leið að hringja til þín þar sem mér finnst ég ekki vera nógu ritfær til þess að skrifa grein og svo er sennilega um fleiri mína líka, þvi að litið hefur heyrzt i okkur „ræflunum", sem „þurfum“ (hafðu það í gæsalöpp- um) að hanga heima yfir börnum og gamalmennum. — Maðurinn minn hefur sæmi- lega góðar tekjur, en mig svíður sárt, hve mikill hluti þeirra fer í skatta, þegar ég sé fölk allt i kringum mig, sem getur veitt sér margfalt meira en við, en greiðir þó aðeins brot af því sem við gerum í skatta. % Þeir sömu búi ekki alltaf við óréttlætið — Skattlagningin eins og hún er núna getur ekki verið réttlát. Einhver var að segja að skattalög væru aldrei réttlát. Það getur vel verið, en mér finnst að sömu aðilarnir eigi ekki alltaf að búa við óréttlætið. Mér finnst ekki saka þó að þeir, sem hagnast hafa á skattalögunum undanfarna áratugi, fái einhvern smjörþef af því óréttlæti, sem við höfum orðið SKÁK að þola, t.d. þeir, sem hafa fengið að halda helmingi Iauna sinna skattfrjálsum. — Ég er nú ekki meiri manneskja en það, að hefði ég haft slík sérréttindi mundi ég ekki sleppa þeim baráttulaust, en mér hefði aldrei komið til hugar að halda því fram, að það væri einhver jafnréttisbarátta kynjanna. Ekki sízt þar sem þær konur sem vilja teljast menn með mönnum, hafa á undanförnum árum getað látið sérskatta sig. En ég held að fæstar þeirra hafi hirt um það, þó að þær geri það áreiðanlega hér eftir til þess að vera sjálfum sér samkvæmar. 0 Hagsmunir og metnaður — Jæja, annars er bezt að ég hafi þetta ekki lengra, því nú er mér farið að hitna í hamsi og mundi kannski segja eitthvað, sem þú birtir ekki hvort sem er. En einhvern veginn finnst mér að hagsmunir og metnaðurinn fari oftast saman. Ég vona bara að þingmennirnir láti ekki hræða sig frá að breyta skattalögunum. Ég held að þau geti alls ekki versnað. að minnsta kosti ekki hvað órétt- lætið snertir. Um skattsvikin ætla ég ekki að ræða núna, þau eru kapítuli út af fyrir sig. Umsjón: Margeir Pétursson í sveitakeppni skákfélaganna i Moskvu i haust kom þessi staða upp í skák Nikitins, sem hafði hvitt og átti leik, og Gutops Dg4+ verður svartur mát) 15. g4 g5 16. gxf5 gxf4 17. Dh5+ Kg7 18. Dg4+ Kh7 19. Hfl og svartur gafst upp, þvl hann á enga vörn við hótuninni 20. Dh5+ Kg7 21. Hxf4. Sigurvegari í keppninni varð Burevestnik, sem er jafn- framt Evrópumeistari skákfélaga. Sveitina skipuðu þau Guljko, Balashov, Razuvajev, Makarichev, Cehov og Akhsjarumova. HÖGNI HREKKVÍSI © 1977 McNaught Synd., Inc. Á degi dýranna höldum við frið við alla! — Frímerki Framhaid af bls. 12. eðlileg. Ég vildi einungis benda á þá staðreynd, að aðrir safn- arar geta líka eignað sér svo- lítið í þeim. Aftur á móti verður Tryggvi gamli Gunnarsson ekki frá Þingeyingum tekinn. Hann eiga þeir óskiptan, ef svo má segja. Þá eru í grein þessari nefnd nokkur frimerki, sem eru með myndum, sem tengja má at- vinnulífi Þingeyinga, svo sem fiskveiðum, ylrækt og land- búnaði, en einnig skógrækt, dýralifi og laxveiðum. Hér kennir mikillar hugkvæmni hjá þingeysku söfnurunum, en auðvitað geta flest önnur byggðarlög einnig tileinkað sér þessi merki og þær myndir, sem á eru. Engu að síður álít ég grein þeirra hina skemmtileg- ustu, og hún bendir söfnurum vel á, hvernig koma má sér upp mótíf- eða minnasafn. Loks er I árbók þeirra öskju- manna skrá yfir póstafgreiðsl- ur og bréfhirðingar i Suður- Þingeyjarsýslu frá 1873 og stimpla þá, sem notaðir haia verið. Skránni fylgja svo upp- drættir af póstleiðum um sýsl- una 1776, 1873 og 1918, og er öllum frímerkjasöfnurum auð- skilið, hvers vegna þessi ártöl eru valin. Framtak þeirra félaga i Frímerkjaklúbbnum öskju er mjög lofsvert, og vil ég þakka þeim það alveg sérstaklega. Að forfallalausu birtist næsti þáttur 2. apríl n.k., en þann dag er fyrirhugað að halda uppboð á vegum F. F. Ekki hefur upp- boðsskrá enn verið send út, og því er ekki unnt að greina hér frá þvi efni, sem upp verður boðið. Éngu síður er mér óhætt að fullyrða, að þar verður að vanda margt áhugavert. Þess vegna minni ég lesendur þáttarins á frímerkjauppboðið. % Morgunbladið óskareftir blaðburðarfólki Austurbær Miðtún, Samtún, Upplýsingar í síma 35408 toBtntHafrifr Prestkosning í Víðistaðaprestakalli í Hafnarfirði Prestkosning fer fram í Víðistaðaprestakalli í Hafnarfirði sunnudaginn 20. marz n.k. Kosið verður í Víðistaðaskólanum og hefst kosningin kl. 1 0 árdegis og lýkur kl. 22 síðdegis. Víðistaðaprestakall nær yfir Hafnarfjarðarkaup- stað vestan og norðan Reykjavíkurvegar. Mælst er li! að sóknarfólk taki almennt þátt í kosingu þessari og greiði atkvæði snemma dags til að auðvelda framkvæmd kosningarinn- ar. Sóknarnefnd Víðistaðasóknar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.