Morgunblaðið - 19.03.1977, Side 5

Morgunblaðið - 19.03.1977, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977 5 Andlitsmynd af póstmanninum Roulin, sem Vincent van Gogh málaði í Arles. Kammerhljómsveit Stuttgartborgar KAMMERHLJÓMSVEIT Stuttgart- hjómleikasölum um allan heim og borgar undir stjórn stofnanda síns, Karls Múnchinger, kemur til Reykja- víkur á næstunni á vegum Tónlistar- félagsins. Sveitin var stofnuS 18. september 1945, þegar mikill áhugi hafSi vaknaS i borgum Þýzkalands aS blása nýju lifi i hiS rótgróna tón- listarlif, sem blómgazt hafSi og dafn- aS í þessu landi meistaranna. Frá stofnun sveitarinnar hefur hún leikiS verk Hándels, Vivaldis, Johans Hermanns Schein og fleiri öndvegis- verk. og stefnt aS þvi aS flytja jafnan Barokk-tónlist meS visindalegri ná- kvæmni og „ rytmiskri" spennu, fag- urri laglinu og geislandi túlkun, eins og hún áratugum saman hafSi veriS leikin, i áhrifamiklum hefSbúndnum stil. Karl Munchinger og kammersveit hans hafa leikið verk Bachs gg Moz- arts jöfnum höndum með undraverð- um glæsibrag, sem hefur skapað þeim heimsfræð. Og þá ekki siður fyrir flutning á Bachsvitunum, Brandenborgarkonsertunum, Kunst der Fuge, TónaflóSinu, cembal- konsertunum, óratórium og kantöt- um ásamt einleikskonsertum Moz- arts og sinfónium. Öll þessi verk og mörg fleiri hafa veriS óskaefni á hljómsveitaskrá sveitarinnar. Frá fyrstu för sveitarinnar til Sviss 1948 hefur hún verið tíður gestur i verður nú ífyrsta sinn á Íslandi. Þá hefur sveitin tekið þátt i flest- um stærstu listahátiSum heims, Salzburg, Edinburgh, Baalbeck, Strassburg og Nizza. Sveitin hefur leikið inná fjölda platna og margar þeirra, hafa hlotiS viðurkenningu og verSlaun. Ótaldir eru hljómleikar hennar, sem útvarpað hefur verið og sjónvarpað um viSa veröld Það ver því mikiS gleðiefni fyrir íslenzka tónlistarunnendur að fá i heimsókn svo frábæra listamenn og vil ég nota tækifæriS að vekja at- hygli þeirra á komu Kammersveitar Stuttgartborgar til íslands. Páll Pampichler Pálsson. Karl Munchinger föðurhúsanna, þar sem hann gat málað úti í sjálfri náttúrunni. Hann vann mikið, en brátt kom að því að honum fannst hann þurfa leiðsagnar sér reyndari manna. Árið 1882 settist hann að í Haag og vann með málaranum Anton Mauve, sótti listasöfn og leitaði félagsskapar annarra list- málara. Vincent var einrænn að eðlis- fari og þráin eftir náttúrunni gerði brátt vart við sig aftur, svo og löngunin eftir einfaldleika sveitarinnar. Haustið 1883 hélt hann til afskekkts héraðs í norðurhluta Hollands, en þangað sóttu margir mikilsmetnir málar- ar efni i myndir sínar. Þar dvald- ist hann í þrjá mánuði og hélt þá enn einu sinni heim til föðurhúsa, þar sem hann dvaldist næstu þrjú árin. Á þeim árum öðlaðist list hans naktari og öruggari blæ. Hann málaði kyrralifsmyndir, landslag og fólk, og út úr verkum hans skein hið fábrotna lif bónd- ans i sveitinni, mannraunir og þrautir hversdagsleikans og jörð- in, sem bóndinn ræktar. Hann var um þessar mundir einnig undir áhrifum af ritum Emil Zola, en þjóðfélagsádeila Zola á sér sam- nefnara i verkum van Goghs á þessum árum. Hann hafði einnig fundið eins og Delacroix að oliu- litirnir út af fyrir sig túlka sitt og eins og Rubens að túlkun svip- brigða er samsetning lita. Hann hafði mikið dálæti á japönskum teikningum og hóf notkun hreinna lita. í listsköpun sinni vildi van Gogh ráða ferðinni sjálf- ur og þoldi illa þær formúlur, sem listaakademíur settu mönnum. Árið 1886 settist hann að hjá Theo bróður sínum í París. f París komst hann í kynni við full- trúa nýrrar stefnu í franskri myndlist eins og Toulouse- Lautrec og Emile Bernard, sem komu honum i kynni við Paul Gaugin, á sama tíma og Theo kynnti hann fyrir ýmsum „impressjónistum". Þótt ferill Vincent van Gogh væri stuttur eins og fyrr er getið, var hann jafnan mjög viðburðarríkur. Þreyttur á háværu borgarlifi Parisar hélt hann veturinn 1888 til þorpsins Arles í suður Frakk- landi. Næsta árið náði hann há- marki i iistsköpun sinni undir opnum sólrikum himni Suður- Frakklands. Hann málaði þegar andinn kom yfir hann, vann af hraða og nákvæmni, ákveðinn i því að ná áhrifum hugblæsins um leið og hann gagntók hann. Þarna málaði hann ávaxtatrén I blóma, útsýnið yfir þorpið, og nágrenni, sjálfsmyndir og myndir af öðrum, t.d. póstmanninum Roulin og f jöl- skyldu hans, húsið sitt og svefn- herbergi, sólblómin og ef til vill eina af sinum þekktari myndum, sem nú hangir í „Modern Art“ listasafninu í New York, „The Starry Night“ eða Stjörnubjarta nóttin. Van Gogh vissi að list hans var byltingakennd og einstaklings- bundin, en hann vissi einnig að við mótun nýrrar stefnu í mynd- list er þörf hóps listamanna og slikan hóp hafði hann vonazt til að mynda ásamt Toulouse- Lautrec, Gaugin og öðrum impressjónistum i París. Gaugin kom til Suður-Frakklands og vann með van Gough i tvo mán- uði, en þótt hugmyndir þeirra færu saman í ýmsu, deildu þeir um stóra hluti, sem gerði það að verkum að engin „impressjónista- klika" var stofnuð. Vincent og Gaugin lenti m.a.s. svo illa saman, að á aðfangadagskvöld 1888 fékk Vincent taugaáfall og skar hluta af vinstra eyranu á sér af. Hann lá í tvær vikur á spítala og næsta árið fékk hann hvert taugaáfallið á fætur öðru. Það leiddi til þess að hann lét loka sig I ár inni á geð- veikrahæli í Provence-héraði sjálfviljugur. Haldinn heimþrá og meira einmana en nokkru sinni fyrr málaði hann myndir af hol- ienzku landslagi. örvænting hans um að yfirvinna aldrei einmana- kenndina né fá lækningu á sál- rænum fiækjum sínum leiddu hann að lokum til sjálfsmorðs í júlí 1890. Hann lét lifið litt þekktur. Nokkur verka hans höfðu verið sýnd i „Salon des Indépendants" i Paris, aðeins eitt verka sinna hafði hann selt á meðan hann lifði og aðeins ein grein í dagblaði hafði verið skrifuð um hann. Það var fyrir tilverknað ýmissa mál- ara, sem mundu hann og dáðu, að heimurinn gleymdi ekki Vincent van Gogh, og á fyrstu árum 20. aldarinnar fóru verk hans að hljóta verulega viðurkenningu, sem hefur aukizt samfara frægð hans ári fra ári síðan og áhrifa hans gætir mjög í nútíma mynd- list (Matisse, Derain, Picasso) og þá sérstaklega í sambandi við notkun og meðferð olíulita. HÞ. NORÐLENDINGAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.