Morgunblaðið - 19.03.1977, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977
________
Á sagan að
endurtaka sig?
í orði kveðnu eru allir
sammála um að tak-
markað svigrúm til kjara
breytinga í landinu beri að
nýta til hagsbóta þeim
lægst launuðu og lífeyris-
þegum, sem sitja að
þröngum kosti. Hvert
mannsbarn sér í hendi sér
þá margreyndu þróun,
sem endurtekið hefur sig
æ ofan í æ, að umsamdar
kjarabætur til hinna lægst
launuðu sigli með hlut-
fallshækkunum upp alla
launastiga og beint út í
verðlag vöru og þjónustu;
þann veg. að kjarabæt-
urnar hafa gufað upp,
orðið að engu. Fæstir vilja
að sú saga endurtaki sig.
Fleiri krónur en smærri
bæta engra hag. Þvert á
móti gæti nýtt verðbólgu-
skrið rýrt enn hlut hinna
lægst launuðu, ef að lik
um lætur og stuðzt er við
reynslu fyrri tima.
Dagblaðið Visir segir i
frétt i gær, að 8% grunn-
kaupshækkun, sem þýða
myndi með visitölubótum
um 13.6% launahækkun,
þýddi svipaðan eða aðeins
minni verðbólguvöxt og
var á sl. ári, eða um 27%
á ársgrundvelli. 4%
grunnkaupshækkun, með
visitölubótum um 9.5%
hækkun á árinu, þýddi
verðbólguvöxt um 25.8%.
Ef hinsvegar yrði samið
um 35% kauphækkun i
júni—júli á þessu ári og
gert ráð fyrir að vísitölu
bætur kæmu einu sinni á
árinu, myndi meðalverð-
bólga á árinu verða 42%
og 53% i árslok — og er
þá reiknað með 25%
gengissigi, m.a. vegna
kauphækkana. Þá er
komið í það verðbólgu-
skrið, sem var á árinu
1974, i endaðan feril
vinstri stjórnarinnar. Og
Vinnuveitendasamband
íslands hefur komizt að
þeirri niðurstöðu að ef
gengið yrði að öllum kröf-
um ASÍ gæti verðbólgan
komizt upp i 73% iárslok!
Slik þróun myndi ef að
likum lætur þjóna betur
hagsmunum svokallaðra
„ verðbólgubraskara" en
verkafólks i landinu.
Verðbólgan og
sparifjármynd-
un í landinu
Verðbólgan hefur leikið
þá verst sem sizt skyldi.
Hún hefur gjöreytt sparifé
hinna eldri, sem lagt var
fyrir á langri ævi til efri
ára, gjört það verðlaust.
Hún hefur og sizt af öllu
hvatt til sparif jármynd-
unar i landinu, en eðlileg
sparifjármyndun er ein
traustasta stoð heilbrigðs
efnahagslifs og nauðsyn-
legrar lánsfjáröf lunar til
atvinnuvega og fram-
kvæmda í landinu. Á tiu
ára tímabili,
1961—1971, vóru spari-
innlán um það bil 29% af
verðmæti þjóðarfram-
leiðslu. Þetta hlutfall var
komið niður i 18% á árinu
1975. Þannig hefur lána-
kerfið verulega minna
fjármagn til ráðstöfunar
en ella. Seðlabankastjóri
telur, að bankarnir hefðu
nú 40.000 milljónum
króna meira fé til útlána,
ef hlutfall sparifjár af
þjóðarf ramleiðslu hefði
haldizt óbreytt.
Það eru eigendur spari-
fjár sem leggja grundvöll
að lánastarf semi i
landinu, sem siðan er for-
senda eðlilegrar atvinnu-
starfsemi. Hins vegar
brennur þetta sparifé á
báli verðbólgunnar þann
veg, að flestir keppast við
að koma fjármunum sin-
um í önnur verðmæti,
hverra verðgildi verðbólg-
an eykur eða einfaldlega
sóa því á undan verðbólg-
unni. Þannig er vegið að
eðlilegri sparifjármyndun,
jafnframt þvi sem þjóðar-
eyðslan er aukin, langt
umfram það sem eðlilegt
verður að telja. Það er
kominn timi til að huga að
þessari hlið á verðbólgu-
vandanum.
„Meðan Róma-
borg brann,
lék Neró á
sítar og söng”
„Meðan Rómaborg brann
lék Neró á sitar og söng."
Það eru dökk ský fram-
undan á efnahagshimni
þjóðarinnar, ný kollsteypa
i vændum, ef samræmt
átak þjóðfélagsstétta
kemur ekki i veg fyrir
slíka ógn. Það er gott út
af fyrir sig að Alþingi fjalli
um prestkosningar, Z-
una, stóran staf og litinn,
jafnvel nýtt þinghús, en
sá grunur læðist þó að
almenningi, að verðbólgu-
vandinn sé ekki siður
verðugt viðfangsefni. Það
er máske mannlegt að
stjórnmálamenn á vinstri
væng dundi við hugleið-
ingar um, hvern veg megi
nýta komandi kjaradeilur
til að torvelda viðfangs-
efni rikisstjórnarinnar,
jafnvel koma henni frá, en
stórmannlegra væri að
þeir sinntu marktækum
ábendingum um hjöðnum
verðbólgu, minni skatt-
heimtu, tryggingu at-
vinnuöryggis og raunhæf
ar kjarabætur, sem yrðu
annað og meira en sprek á
verðbólgubálið. Það er
naumast viðeigandi, né
líklegt til giftu, að leika
hefðbundið áróðurslag á
sitar samtimans eða
syngja gamalkunnan
sundrungarsöng, meðan
logar verðbólgunnar læsa
sig um alla þjóðfélags-
byggingu Og enn siður að
stuðla að oliudreifingu á
það bál. En það er þó
a.m.k. komið fram frum-
varp á Alþingi íslendinga
um að bæta konum i hin
almennu slökkvilið, svo
sjálfsagt sem það mál er
annars út af fyrir sig.
Merkjasöludagur
Styrktarfélags vangefinna
verður á morgun sunnudaginn 20. marz. Merk-
in verða afhent í barnaskólunum frá kl. 10 f.h.
Foreldrar styðjið gott málefni og hvetjið börn
ykkar til að selja merkin.
Hárgreiðslustofa
Efnalaug
Til leigu er, mjög gott húsnæði fyrir ofan-
greinda starfsemi í stórri verslunarmiðstöð.
Upplýsingar í síma 1 7888.
Aðalfundur
Samvinnubanka fslands h.f.,
verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, i
dag, laugardaginn 19. marz 1977 og hefst kl.
14:00.
Dagskrá skv. 18. gr. samþykktar fyrir bankann.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir á fundarstað.
GUÐSPJALL DAGSINS:
J6h: 6,1. — 15.:
Jesús mettar 5 þúsundir
manna.
LITUR DAGSINS:
Fjólublár. Er litur iðrunar
og yfirbóta.
DÓMKIRKJAN Nýir messu-
staðir vegna viðgerðar á kirkj-
unni: Klukkan 11 árd. messa i
Kapellu háskólans, gengið inn
um aðaldyr. Séra Hjalti Guð-
mundsson. Klukkan 5 siðd.
föstumessa i Fríkirkjunni, Séra
Þórir Stephensen Kl. 10.30 árd.
barnasamkoma í Vesturbæjar-
skólanum við Öldugötu
NESKIRKJA Barnasamkoma
kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta með
altarisgögnu kl. 2 síðd. Eftir
messu býður Kvenfélagið eldra
safnaðarfólki til kaffidrykkju i
safnaðarheimili kirkjunnar.
Séra Guðmundur Óskar Ólafs-
son.
FlLADELFÍUKIRKJAN Safn-
aðarsamkoma kl. 2 síðd. Al-
menn guðsþjónusta kl. 8 síðd.
Einar J. Gíslason.
FRÍKIRKJAN Reykjavík
Barnasamkoma kl. 10.30 árd.
Guðni Gunnarsson. Messa kl. 2
síðd. Organisti Sigurður ísólfs-
son. Séra Þorsteinn Björnsson.
DÓMKIRKJA KRISTS
Konungs, Landakoti. Lágmessa
kl. 8.30 árd. og hámessa kl.
10.30 ád. Lágmessa kl. 2 siðd.
HALLGRlMSKIRKJA Messa k.
11 árd. Séra Ragnar Fjalar
Lárusson. Fjölskyldumessa kl.
2 síðd. Séra Karl Sigurbjörns-
son.
LANDSPlTALINN Messa kl.
10.30 árd. Séra Karl Sigur-
björnsson.
LAUGARNESKIRKJA Barna-
guðsþjónusta kl. 11 árd. Guðs-
þjónusta kl. 2 síðd. Altaris-
ganga. Þetta er dagur aldraðra i
sókninni og stendur Kvenfélag
Laugarneskirkju fyrir kaffi og
skemmtun fyrir aldraða í
Laugarnesskólanum kl. 3 siðd.
Guðsþjónusta kl. 4 síðd. að
Hátúni 10 b. (Landspitala-
deildin). Sóknarprestur.
HÁTEIGSKIRKJA Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. Séra Tómas
Sveinsson. Messa kl. 2 síðd.
Félagar úr Gideonfélaginu
kynna starf félagsins i mess-
unni. Séra Arngrimur Jónsson.
Helgistund kl. 5 síðd. Séra
Tómas Sveinsson. Biblíules-
hringurinn starfar á mánudags-
kvöldum kl. 8.30 og er öllum
opinn.
BREIÐHOLTSPRESTAKALL
Sunnudagsskóli kl. 11 árd.
Messa kl. 2 síðd. í Breiðholts-
skóla. Séra Lárus Halldórsson.
BtJSTAÐAKIRKJA Barnasam-
koma kl. 11 árd. Guðsþjónusa
kl. 2 síðd. Organisti Birgir Ás
Guðmundsson. Barnagæzla
Séra Ólafur Skúlason.
GRENSASKIRKJA Barnasam-
koma kl. 10.30 og messa kl 2
siðd. Organisti Jón G. Þórarins-
son. Séra Halldór S. Gröndal.
FELLA- OG HÓLASÓKN
Barnasamkoma í Fellaskóla kl.
11 árd. Séra Hreinn Hjartarson.
AÐVENTKIRKJAN Reykjavík
Samkoma kl. 5 siðd. Guðmund-
ur Ólafsson prédikar.
Arbæjarprestakall
Barnasamkoma í Árbæjarskóla
kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta í
skólanum kl. 2 síðd. Æskulýsð-
félagsfundur á sama stað kl. 8
síðd. Séra Guðmundur
Þorsteinsson.
ELLI- og hjúkrunarheimilið
Grund. Guðsþjónusta kl. 2 siðd.
Séra Óskar J. Þorláksson, fyrr-
um dómprófastur, prédikar.
Félag fyrrv. sóknarpresta.
LANGHOLTSPRESTAKALL
Barnasamkoma kl. 10 árd.
IJtvarpsguðsþjónusta kl. 11 árd.
Séra Árelius Nielsson.
ÁSPRESTAKALL Messa kl. 2
síðd. að Norðurbrún 1. Séra
Grimur Grímsson.
iijAlpræðisherinn
Helgunarsamkoma kl. 11 árd.
Sunnudagaskóii kl. 2 síðd.
Hjálpræðissamkoma kl. 8.30
siðd. Lautinant Óskar Óskars-
son frá ísafirði talar.
FÆREYSKA Sjómanna-
heimilið. Samkoma kl. 5 siðd.
Jóhann Olsen.
karsnesprestakall
Barnasamkoma i Kársnesskóla
kl. 11 árd. Messa i Kópavogs-
kirkju kl. 2 siðd. Háskólakórinn
undir stjórn Rutar Magnússon
annars sálmasönginn við mess-
una. Organisti Guðmundur
Gíslason Séra Árni Pálsson.
KAPELLA St. Jósepssystra í
Garðabæ Hámessa kl. 2 síðd.
GARÐAKIRKJA Barnasam-
koma i skólasalnum kl. 11 árd.
Guðsþjónusta kl. 2 siðd. Aðal-
safnaðarfundur verður að
messu lokinni. Séra Bragi
Friðriksson.
BESSASTAÐAKIRKJA Ég flyt
kveðjumessu mina sem sóknar-
prestur í Bessastaðasókn klukk-
an 2 síðdegis. Séra Garðar
Þorsteinsson.
NJARÐVlKURPRESTAKALL
Guðsþjónusta i Innri-
Njarðvíkurkirkju kl. 11 árd. og
Guðsþjónusta i Stapa kl. 2 siðd.
Séra Páll Þórðarson.
KEFLAVIKURKIRKJA Guðs-
þjónusta kl. 2 síðd. Séra Ólafur
Oddur Jónsson.
Framhald á bls. 26
Bankaráð
Samvinnubanka
íslands h.f.