Morgunblaðið - 19.03.1977, Page 38

Morgunblaðið - 19.03.1977, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1977 DYNAMO FEKK BORUSSIA ÞAÐ kemur í hlut Broussia Mönchengladbach að hefna harma Vestur-Þjóðverja fyrir tap það er uppáhaldslið þeirra, Bayern Munchen, varð fyrir i Daninn Simonsen 1 Boroussialið- inu. Hann og félagar hans eiga erfitt verkefni framundan. Evrópubikarkeppni meistaraliða á dögunum, en sem kunnugt er var það slegið út af sovézka meistaraliðinu Dynamo Kiev. Þegar dregið var um það hvaða lið lékju saman í undanúrslitunum drógust Dynamo og Borussia saman, en ensku meistararnir, Liverpool, fá hins vegar sviss- nesku meistarana Ziirich sem mótherja. Fyrri leikurinn á að fara fram í Sviss. í Evrópubikarkeppni bikarhafa leika saman Atletico Madrid frá Spáni og Hamburger SV- frá Vest- ur-Þýzkalandi, en eins og margir eflaust muna var Hamburger mótherji Keflvíkinga í fyrstu um- ferð keppninnar. Vann Hamburg- er 3—0 i Hamborg, en jafntefli, 1—1, varð á Laugardalsvellinum. 1 hinum undanúrslitaleiknum mætist Napoli frá italíu og Anderlecht frá Belgíu. i UEFA-bikarkeppninni leika svo saman í undanúrslitunum Atletico Bilbao frá Spáni og RWD Molenbeek frá Belgiu og Juventus frá ítalíu og AEK frá Grikklandi. Fyrri leikirnir i undanúrslitun- um eiga að fara fram 6. apríl og seinni leikirnir20. apríl. Keppni í opnum flokkum júdómótsins um helgina ÞRIÐJI hluti Íslandsmeistara mótsins í júdó fer fram n.k. sunnu- dag, 20. marz, og verður þá keppt í opnum flokkum bæði karla og kvenna, þ e. flokkum án þyngdar takmarkana. Á íslandsmótinu i fyrra sigraði Gísli Þorsteinsson i opnum flokki karla og háði hann úrslitaviðureign- ina við Viðar Guðjohnsen í þessum flokki er keppt um DATSUN- bikarinn og verður nú keppt um hann í fimmta sinn Sigurður Kr Jóhannsson hefur unnið hann tvisv- ar, Svavar Carlsen einu sinni og Gísli Þorsteinsson einu sinni Ekki er vitað um forföll beztu júdómann- anna að þessu sinni, og má því búast við harðari keppni en nokkru sinni áður í fyrra sigraði Þóra Þórisdóttir í kvennaflokki. en Sigurveig Péturs- dóttir hafði áður sigrað i opnum flokki kvenna þrjú ár í röð Um aðra helgi verður svo Norður- landameistaramótið í júdó háð í Nor- egi Gert er ráð fyrir að sjö islenzkir júdómenn taki þátt í mótinu að þessu sinni Beztu göngumennirnir keppa í Bláfjöllum Á MORGUN, laugardaginn 19. marz, fer fram f Bláfjöllum punktamót 1 göngu og verður þar keppt 1 13 km göngu 20 ára og eldri og 10 km göngu 17—19 ára. Verða flestir beztu göngu- menn landsins meðal keppenda, og er búizt við mjög harðri keppni, ekki sfzt milli þeirra Halldórs Matthfassonar og Magnúsar Eirfkssonar, en sem kunnugt er sigraði Italldór sfðast þegar þeir mættust, f punktamótinu f Siglufirði. Keppnin á laugardag hefst kl. 14.00 við Borgarskálann f Bláfjöllum, og verður gengið þar um svæðið. Áformað er einnig að keppa í boðgöngu á sunnudaginn. TVEIR LEIKIR11. DEILDINNI UM ÞESSA helgi verða leiknir 2 leikir í 1. deild karla. I dag leika í Njarðvík heimamenn og Valur og hefst sá leikur klukk- an 14. Njarðvíkingar hljóta að telj- ast mun sigurstranglegri í þess- um leik og sennilega verða Valsmenn þeim ekki erfiður ljár í þúfu. Á morgun klukkan 13.30 verður í íþróttahúsi Haga- skóians leikur Fram og Ár- manns og þar ættu Ármenning- ar að geta unnið nokkuð örugg- an sigur, en þess ber þó að gæta að Framarar eru í stöðugri framför og gætu þeir orðið Ár- menningunum skeinuhættir. í 2. deild leika meðal annars Þór og Haukar 2 leiki á Akur- eyri og eru allar lfkur á því að Þórsarar vinnj þá báða og endurheimti þar með sæti sitt í 1. deildinni. Þá leika einnig á Akureyri kvennaflokkar Þórs og Fram og hefjast leikirnir klukkan 15.30 með karla-leiknum. Einnig ieika í kvennaflokki Framhald á bls 22. RAFHAHLAUP í DAG fer fram i Hafnarfirði svokaliað Rafhahiaup, en þar er um að ræða víðavangshlaup, sem börn og unglingar í skólum Hafnarfjarðar keppa í. Hefst hiaupið við Víðistaðaskóla kl. 13.00. Allir þátttakendur í hlaupinu verða heiðraðir með verðlaunaskjali að þessu sinni. Bikarmeistarar KR f karlaflokki ásamt Sveini Jónssyni, formanni KR, Einari Sæmundssen, fyrrverandi formanni KR og Jóni Otta Jónssyni, þjálfara liðsins. Bikarmeistarar KR f kvennaflokki ásamt þjálfara sfnum, Einari Bollasyni og Sveini Jónssyni formanni KR. KR vann tvöfaldan bikarsigur KR-ingar gerðu sór lítið fyrir á fimmtudagskvöldið og unnu tvöfald- an bikarsigur, f kvennaflokki sigruðu KR stúlkurnar ÍR með 66 stigum gegn 50 og f meistaraflokki karla unnu KR-ingar Njarðvfkinga með 61 stigi gegn 59 í æsispennandi bar- áttuleik eftir að staðan í leikhléi hafði verið 35—26 KR í vil. KR-ingar byrjuðu leikinn af mikl- um krafti og komust þeir strax í 5—0, á 4. mfnútu var staðan orðin 13—4 og á 8. mínútu 20—12 KR í vil. Njarðvfkingar sóttu sig svo tals- vert um miðjan hálfleikinn og náðu þeir að minnka muninn niður í 23—20 á 14. mínútu, en KR-ingar gáfu ekkert eftir og höfðu yfir 35—26 f leikhléi Snemma í seinni hálfleik fékk Einar Bollason, bezti maður KR-inga, 4 villur og fór því útaf og við það riðlaðist leikur liðsins nokkuð og Njarðvíkingar náðu að minnka mun- inn niður í 3 stig, 43—40, um miðj- an hálfleikinn, en þá kom Einar inn á aftur og tóku KR-ingar þá mikinn kipp og skoruðu 10 stig í röð án þess að Njarðvikingum tækist að svara fyrir sig. Skömmu síðar varð Einar svo að yfirgefa leikvöllinn vegna meiðsla og á meðan gert var að sárum hans tókst Njarðvíkingum enn að minnka muninn niður f 4 stig, 61 — 57, á 18. mínútu en það dugði ekki til, Einar kom enn inná og leiddi lið sitt til sigurs og urðu lokatölur 61 — 59. Leikur þessi var eins og áður sagði ákaflega spennandi, en ekki að sama skapi vel leikinn og var greinilegt að illa gekk að venjast körfunum, sem eru heldur verri en f hinum húsunum. Einnig setti taugaóstyrkur leikmanna talsvert mark á leikinn. KR-ingar léku í þetta sinn bezta varnarleik, sem liðið hefur náð að sýna, og var það fyrst og fremst hann ásamt gífurlegri baráttu sem skóp sigur þeirra. Beztu menn liðsins voru Einar Bollason, Kristinn Stefánsson og bakverðirnir, Árni Guðmundsson, Kolbeinn Pálsson og Gunnar Ingimundarson, en stigin skoruðu: Einar Bollason 17, Bjarni Jóhannsson 13, Kristinn Stefánsson 10, Árni Guðmundsson 9, Kolbeinn Pálsson og Gunnar Ingimundarson 6 hvor og Eiríkur Jóhannsson 2 stig. Beztu menn Njarðvíkinga í þessum leik voru þeir Geir Þorsteinsson og Gunnar Þorvarðarson. Stigin fyrir Njarðvík skoruðu: Gunnar Þorvarðarson 13, Kári Marfsson 11, Geir Þorsteinsson 10, Jónas Jóhannesson og Brynjar Sig mundsson 8 hvor, Stefán Bjarkason 3, Guðsteinn Ingimarsson 4, Þor- steinn Bjarnason 2. í sambandi við leik þennan er rétt Framhald á bls 22. Punktamót í Bláfjöllum NÚ um helgina fer fram í Bláfjöllum helzta sklðamót vetrarins á Reykja- víkur'svæSinu. Er þar um að ræSa punktamót fullorSinna I Alpagrein- um, og mun flest bezta sklSafólk landsins vera skráS til þátttöku. VerSa alls 45 keppendur I karlaflokki og 1 7 I kvennaflokki. Keppnin hefst meS stórsvigi á laugardag kl. 14.00, og svigkeppnin hefst slSan kl. 13.00 á sunnudag. VerSlaunaafhending verSur strax aS lokinni keppni, og hefur sktSadeild Armanns, sem er umsjónaraSili mótsins. útvegaS fagra verSlauna gripi til keppninnar. Sæmilegur snjór er nú 1 Bláfjöll- um, en brugSiS getur til beggja vona. — ViS erum hálfhræddir, sagSi Sig- urSur Haukur, einn af forsvarsmönn- um sklSadeildar Ármanns I gær. — þaS eru svo mikil hlýindi þama upp frá aS snjórinn er fljótur aS minnka. Ég geri mér þó vonir um aS aSstaSa til mótshalds geti veriS allgóS. Iþróttakennarar íþróttasambandinu berast fyrirspurnir víðs vegar að af landinu um möguleika á að fá iþróttakennara til starfa yfir sumarmánuðina. Einkum er um að ræða tilsögn i frjálsum iþróttum og knattleikjum. Þeir iþróttakennarar, sem kynnu að hafa hug á að taka að sér slik störf i skemmri eða lengri tima, eru góðfúslega beðnir að setja sig i samband við skrifstofu Í.S.Í. sími 83377. íþróttasamband íslands

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.